Þjóðviljinn - 01.02.1976, Qupperneq 3
Sunnudagur 1. febrúar 1976. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Nona Gaprindasjvili með son sinn Dito:
Ennþá hitnar mér um lófana þegar ég
minnist þess hvernig ég varði vita-
spyrnur frá bræðrum minum.
VIÐTAL
VIÐ ffþ
NONU
GAPRINDASJVILI
HEIMSMEISTARA
KVENNA í SKÁK
Þeir þola
ekki að
tapa fyrir
okkur við
taflborð
i viðtali við Nonu Gaprinda-
sjvili, sem um langt skeið hefur
verið fremst kvenna i skákheim-
inum var fyrst að þvi sp.urt,
hvernig háttað væri sambandi
skákkvenna við FIDE, alþjóða
skáksambandið.
— Við skákkonur höfum ekki
staðið í striði við FIDE eins og
karlar, enda þótt við höfum ærna
ástæðu til. Til dæmis voru
olympiumót fyrir konur tekin upp
30árum á eftir karlamótum. Enn
er ekki efnt til Evrópumeistara-
móta eða heimsmeistaramóta
fyrir stúlkur. Stórmeistaratign
fyrir konur var tekin upp fyrir
nokkrum dögum ef svo má segja.
Hneykslanlegt hátterni
Eins og eðlilegt er keppa konur
ekki við karla i flestum iþróttum :
þær hlaupa styttri vegalengdir,
kúla þeirra er léttari, blaknetið er
lægra osfrv. bað er aðeins i skák
að við mætum körlum sem jafn-
ingjum. En skák er reyndar mjög
erfið iþrótt. bað er ekki að
ástæðulausu að Petrosjan hor-
aðist um sex kiló i fyrstaeinvigi
sinu við Spasskf. Nonu veitist
mjög erfitt að þola hið mikla sál-
ræna og likamlega álag fimm
stundir á hverjum degi, kannski
þrjár — fjórar vikur i einu. Að
ógleymdum mörgum smáum og
stórum vandamálum kvenna.
— En karlar hafa lika sinn
djöful að draga. Samanber vig-
orðið: „spörum karlana”.
— Gott og vel spörum karla, en
ekki þá sem tefla, segir Nona
brosandi. Ég get leyft mér að
segja þetta, þvi ég hefi mikla
EINAR
HÁKONARSON
er listamaður dagsins. Einar
er einn af nafntoguðustu lista-
mönnum yngri kynslóðar,
ekki sist á sviði grafiklistar og
hefur haldið eða átt aðild að
íleiri sýningum en hér verði
upp taldar. Mynd Einars er
kölluð ,,On the Steep” og er
gerð 1974.
reynslu af þvi að tefla við karla og
veit að þvi fer fjarri að þeir sýni
riddaramennsku við taflborðið. t
fyrsta lagi skammast þeir sin
mikið fyrir að tapa fyrir konu,
og leggja sig þvi alla fram.
Meistari nokkur, sem tapaði fyrir
mér, móðgaðist svo, að hann
heilsaði mér ekki i nokkra daga.
Gott og vel, þetta getur maður
skilið. En af hverju láta þeir fara
i bið og leika til enda stöður sem
eru bersýnilega jafnteflisstöður
einmitt þegar þeir eru að tefla við
mig — það er algjört hneyksli....
Aödáendur
Sem fyrr segir hefur Nona
Gaprindasjvili,sem erfrá Grúsiu,
sigrað hvern áskorandann af
öðrum. Siðast glimdi hún við
kornunga skákkonu, sem einnig
er frá Tblisi i Grúsiu, Nönu Alex-
andriu. Heimsmeistarinn játar,
að það hafi verið erfið viðureign,
og ekki bara taflið sjálft heldur
lika vegna þess ,,að mér hefur
verið spillt af þeim sem halda
með mér. Ég man árið 1956,
þegar ég var fimmtán ára skóla-
stelpa, þá varð ég Grúsiumeistari
með 15,5 vinningi af 16 mögu-
legum. begar ég gekk út úr leik-
húsinu, þar sem teflt var, þurfti
tvo lögreglumenn til að koma mér
i gegnum þyrpingu æstra
aðdáenda. begar ég gekk á milli
þeirra, þá hrópaði kona ein skelf-
ingu lostin: Drottinn minn, hvað
hefur stelpugreyið gert af sér”.
Viltu ekki leyfa henni aö
vinna?
— En þurfti engan lifvörð
núna? spyr blaðamaðurinn
— Nei, ég var með eigin lif-
vörð, eiginmanninn, son minn og
bræður. En aðdáendurnir höfðu
ekki bara min vegna þyrpst sam-
an. Nana Alexandria nýtur mik-
illa vinsælda og i fyrsta sinn varð
^Sg þess vör, að jafnvel i Tblisi
halda ekki nærri allir með mér.
Fyrst gramdist mér þetta. Til
dæmis þegar einn meðhalds-
maðurinn spurði mig i miklum
barnaskap: Gæturðunú ekki leyft
stelpunni að vinna? bú getur hirt
af henni heimsmeistaratiltilinn
aftur eftir þrjú ár? En svo skildi
ég, að þetta er allt eðlilegt. 1
gamla daga „stal” ég vinsældum
frá öðrum, og það er timi til þess
kominn að ég fari að greiða þá
skuld.
Mér er annarS heldur vel við
þessa „aðdáendur". Og mér hef-
ur alltaf þótt gott að tefla i marg-
menni. Kliðurinn og hvislið úr
salnum hressir mig. Mér þykir
gaman þegar áhorfendur klap'pa
fyrir fallegum leik, ekki fyrir
sigri kannski en fyrir fallegum
leik A slikum augnablikum finnur
maður greinilega að það er list-
rænn þáttur i skák, sem getur
veitt fagurfræðilega ánægju.
En það versta við aðdáendurna
er, að þeir eru aUeg sannfærðir
um að heimsmeistarinn verði að
vera efst á öllum mótum. Einu
sinni lenti ég i öðru sæti á alþjóða-
Auglýsinga-
sími
Þjóöviljans
er
móti kvenna i Belgrad og strax
fóru menn að hrista hausinn:
Hvað hefur komið fyrir hana
Nönu? En satt besta að segja, þá
finn ég, að ég býst lika alltaf við
sigrum einum af knattspyrnu-
liðum eða körfuboltaliðum Tblisi-
borgar — liklega eru allir
meðhaldsmenn eins og verður
ekki breytt.
Andstyggö á skák
— Hefurðu nokkurntima fundið
til andstyggðar á skák?
— bað hefur komið fyrir. 1
siðustu umferð sovéska
meistaramótsins 1964 tefldi ég við
Olgu Andréévu. Mér var þá þegar
tryggt fyrsta sætið, en Olgu hafði
gengið illa og úrslitin skiptu hana
ekki máli. Sama dag áttu hand-
boltamenn frá Tblisi að leika við
júgóslava i keppni meistaraiiða
Evrópu og ég var búin að kaupa
mér miða. Ég t,efldi hvitum, hafði
drottingaskipti og stakk upp á
jafntefli. Ég var viss um að Olga
mundi samþykkja þetta, en hún
vildi tefla við heimsmeistarann
og neitaði. Og þessi lika stór-
spennandi handboltaleikur að
byrja, sem ég vildi ekki með
neinu móti missa af. Ææ! Ég bað
um kaffibolla og reyndi að
gleyma handboltanum. Við tefld-
um til máts. Kannski þótti Olgu
gaman. Ekki henni mér.
Viö gerumst djarfari
— Stundum eruð þið Vera
Mentsjik lum langan aldur
heimsmeistari kvenna) bomar
saman, og sagt að þér hafið
þegar skyggt á frægð hennar?
— Hvernig er hægt að bera
saman skákkonur, sem aldrei
hittust og tefldu ekki einu sinni
við sömu andstæðinga? bað getur
engin farið i föt Veru Mentsjik þó
ekki væri nema vegna þess að það
var hún sem sýndi fyrst fram á
það, að konur geta náð mjög langt
á þessu erfiða sviði. En ég vona
það verði ekki talið mér til gróbbs
þótt ég segi, að kannski hafi ég
með skákstil mínum, með
stöðugri sóknarviðleitni og þvi að
tefla til sigurs við sterka skák-
meistara hafi ég að nokkru orðið
til þess að kvennameistarar tefla
nú djarfar en áður, eiga fleiri úr-
ræði.aðótti þeirra víð að tefla við
karla er að hverfa. Og nú eruð þér
sjálfurafturkominn inn á „karla-
temað”.
— Finnst yður ekki, að þér séuð
ekki alveg sanngjarnar við karl-
peninginn?
— Ég ólst upp með fimm
bræðrum og lék þeirra leiki. Enn
hitnar mér um lófana þegar ég
man hvernig ég stóð i marki og
varði vitaspyrnu. Ég eignaðist
mina fyrstu brúðu þegar ég var
orðin heimsmeistari — það voru
stúdentar sem gáfu mér hana.
Sambúð min við manninn minn er
i allra besta lagi og Datiko litli,
sonur minn,er min stærsta gleði.
Ég er barasta að halda uppi
málsvörn fyrir sannleikann. Min
uppáhaldslesning er t.d. ræður
málflutningsmanna. Reyni ég
bæði i skák og sem móðir og sem
þingmaður að finna réttlátar
lausnir, hvernig get ég látið sem
mig varði engu hvernig konum
vegnar i skák?
— Og að lokum?
Happatala
— Ég skil, ég skal taka það
fram, að ég hefi mætur á tölunni
þrettán. Hún eltir mig á röndum.
bað eru 13 stafir i nafninu minu.
Nafnið á ibúðinni sem ég áður bjó
i og þeirri sem ég bý i núna er 13.
Ég vékk 13 vinninga i áskorenda-
mótinu 1961, og i tveim næstu ein-
vjgjum um heimsmeistatatitil-
inn, sem ég vann, voru tefldar 13
skákir. Tvisvar hefi ég unnið ail-
ar minarskákir á alþjóðlegu móti
— og þær voru 13 i báðum tilvik-
um. Einu sinni vann ég allar
minar skákir i hraðskákmóti
karla i Hastings — en meðal
keppinautanna var sjálfur Tal.
bað er rétt til getið. að þessar
skákir voru þrettán talsins.
APN.