Þjóðviljinn - 01.02.1976, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 01.02.1976, Blaðsíða 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur I. febrúar 1976. MÐVIUINN MÁLGAGN SÓSÍALISMA, VERKALÝÐSEININGAR OG ÞJÓÐFRELSIS. Útgefandi: útgáfufélag Þjóöviljans Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann Ritstjórar: Kjartan óiafsson Svavar Gestsson Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson Umsjón meö sunnudagsbiaöi: Árni Bergmann Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar: Skólavöröust. 19. Slmi 17500 (5 Iinur) Prentun: Biaðaprent h.f. VERKFALLSBOÐUN Alþýðusamband íslands setti fram til- teknar kröfur i efnahagsmálum nokkru fyrir áramót. Bentu talsmenn sambands- ins á, að ef ríkisvald og atvinnurekendur yrðu við þeim kröfum, gæti það orðið til þess að kaupkröfur yrðu þeim mun lægri en ella, enda væri aðalmarkmið alþýðu- samtakanna að ná aftur og tryggja þann kaupmátt sem var 1974: krónutalan væri að sjálfsögðu ekki aðalatriðið. Þegar þessar kröfur ASl komu fram var þeim fagnað i stjórnarblöðunum: en þegar til kastanna kom reyndist fögnuð- urinn hafa verið eitt saman innantómt orðagjálfrið. Rikisstjórnin beitti sér fyrir þvi á alþingi að láta stjórnarliðið sam- þykkja miljarðaálögur á almenning, sem jafnframt höfðu i för með sér stórfellda aukningu verðbólgunnar — þeirrar verð- bólgu sem stjórnarherrarnir segjast helst af öllu vilja stöðva. Þessar aðgerðir rikis- stjórnarinnar voru eins grófar gagnvart verkalýðshreyfingunni og frekast var unnt að imynda sér. Þar með var augljóst að verkalýðshreyfingin gat með engu móti gert ráð fyrir þvi að rikisstjórnin kæmi til móts við kröfur verkafólks nema þá helst með þvi að draga til baka allar þær ráð- stafanir sem hún samþykkti i skamm- degismyrkrinu rétt fyrir jólin og þar með i rauninni að falla frá efnahagsstefnu sinni! Auk þess sem Alþýðusambandið gerði kröfur um tilteknar aðgerðir i efnahags- málum var gerð sú meginkrafa að tryggð yrði full atvinna. Ekki er annað sýnna en að einnig þessari aðalkröfu verkalýðs- samtakanna hafi verið hafnað með stefnu rikisstjórnarinnar, sem hefur i för með sér stórfelldan samdrátt og yfirvofandi hættu á atvinnuleysi og skerðingu lifs- kjara sem þvi fylgir. Jafnframt þessari markvissu samdráttarstefnu i atvinnu- málum hefur rikisstjórnin nú um skeið staðið i makki við breta um að heimila þeim veiðar innan islensku landhelginnar, en slikur samningur hefði ótvirætt i för með sér atvinnusamdrátt og tekjutap fyrir verkafólk um land allt ásamt þeim pólitisku hættum sem þvi fylgdu. Þannig er rikisstjórnin að grafa undan atvinnuör- yggi i landinu og að koma i veg fyrir að kröfur ASÍ verði framkvæmdar. En framkoma rikisstjórnarinnar i garð verkalýðshreyfingarinnar, sú sem hér hefur verið lýst, er engin tilviljun. Núverandi rikisstjórn hefur i efnahags- málum nákvæmlega sömu meginstefnuna og viðreisnarstjórnin forðum, þe. að hygla gróðalýðnum á kostnað launafólks. Núverandi rikisstjórn er þvi að fram- kvæma stefnu sina þegar hún hafnar til- lögum ASÍ i efnahags- og atvinnumálum og þeirri stefnu stefnu hljóta verkalýðs- samtökin nú að svara af fyllsta þunga. Að undanförnu hafa staðið fyrir dyrum samningaviðræður um kaup og kjör verkafólks en skammt hefur miðað i þeim viðræðum og kemur þar margt til. Fremst ber þó að nefna þá ástæðu að atvinnurek- endur hafa algerlega neitað að hreyfa sig hænufet, enda hafa þeir stuðning rikisL stjórnarinnar i þeim efnum. Þeirra stefna fellur gjörsamlega saman við stefnu rikis- stjórnarinnar. Sú stefna er fólgin i þvi að gera ísland að láglaunasvæði sem er að- gengilegt fyrir erlenda auðhringa, en þessi stefna tryggir islenskri auðstétt um leið aukinn gróða. Þessi stefna rikisstjórnarinnar er háskaleg fyrir efnahagslegt sjálfstæði þjóðarinnar. Þess vegna er það nú brýn nauðsyn að hækka kaupið til þess að koma i veg fyrir enn skert lifskjör, sem aftur hefðu i för með sér minni kaupmátt, minni framleiðslu, atvinnuleysi, landflótta. Launahækkanir handa félagsmönnum Alþýðusamtakanna nú eru þvi ekki einasta kjaramál: þær eru pólitiskt viðfangsefni. Nú efnir Alþýðusambandið til fundar um helgina þar sem að öllum likindum verður tekin ákvörðun um dagsetningu verkfallsboðunar. Það er ljóst af viðbrögðum stjórnvalda að undanförnu að þau gegna engu öðru en verkfallssvipunni og þess vegna verður enn að sveifla henni yfir skilningslausum höfðum ráðamann- anna, sem þessa dagana, láta sig það eitt varða að knýja á um glapræðissamninga við breska herveldið. Rætt við Hörð Bjarnason húsameistara ríkisins Eiga sögurnar enga stoð? Eitt umdeildasta embætti hér á landi er embætti húsameistara rikisins og starfsemi þess. Hafa meðal annars hér i blaöinu verið bornar fram ákveðnar spurning- ar um mannaráðingu við þetta embætti og þeim verið svarað. liúsameistari ríkisins bað um að fá að gera grein fyrir starfsemi embættisins almennt hér i blað- inu og taldi blaðiö sjálfsagt aö verða við þeirri ósk. Er þvi birt hér meðfylgjandi viðtai við Hörð Bjarnason húsameistara rfkisins. En þar verður ekki látið staöar numið, og meiri og fleiri fréttir eru væntaniegar af þessum mál- um á næstunni. Framtiðarverkefni? Rannsóknarstofnanir og sjúkrahús. Byggingar á Landspi- talalóðinni. P" jórðungssjúkrahús fyrir Noröurland. Embættisbú- staöir viða um land. G'æslufang- elsi á Ártúnshöfða. Listasafn. Húsnæði fyrir bifreiðaeftirlit rik- isins. Aðalpósthús: t nýjum mið bæ? Á flugvaliarsvæðinu? Skiptir ekki máli. Það þarf að teikna það. Ogeinnig allt það, sem að framan er upp talið. Þetta eru meðal annars þau verk, sem starfsmenn embættis húsameistara rikisins eru að vinna að, en þar verða þessi mannvirki teiknuð, mæld og met- in áður en verklegar fram- kvæmdir hefjast og sjálfsagt einnig eftir það. Eins og fram hefur komið i blaðinu fór blaðamaður til fundar við húsameistara, Hörð Bjarna- son, á mánudaginn var. Leiddi húsameistari blaðamann um sali og sýndi fíðnum hvað menn voru að fást við á teikniborðum sinum. Þótt sanna megi án mikillar rök- fimi að undirritaður hafi ekki skilið til fulls allt það, sem fyrir augu bar skai það þó fullyrt hér, að timi sundurgerðar i bygging- arlist á tsl. er enn ekki liðinn. Þvi tilsönnunarskaTþaðnefnt, að á landssvæði þvi, sem Land- spitalinn fær til yfirráða, er enn verið að teikna ný afbrigði i húsa- gerðarlist til viðbótar við þau af- brigði, sem komið hefur verið fyrir á lóð spitalans, svo um ókomna tið mun þessi lóð geyma sýnishorn af islenskri byggingar- list eins árhundraðs eða svo i fjöl- breytileik þeirrar íábreytni, sem af sýnishorninu má þegar sjá. Fyrir það að gengið var með undirritaðan um sali fór fram viðrasða hans og húsameistara um eitt og annað viðkomandi stofnun hans. Spurningar blaða- manns áttu sér grunn i þjóðsög- um og sögnum af embættinu. Fer samtalið hér á eftir, mikið stytt. Margfalt eftirlit — Hvemig er fylgst með þvi hvort menn mæti til vinnu, og þá hvort þeir séu að þann tima, sem þeir eru sagðir i vinnunni, hvort þeir séu að snatta fyrir sjálfa sig eða vinna fyrir embættið? — Símastúlkurnar fylgjast með þvi, að menn stimpli sig inn. Það nægir ekki að stimpla sig inn einu sinni á dag ef menn bregða sér úr húsi þvi þá þurfa þeir að stimpla sig út og þá inn þegar þeir koma til baka. Einnig þurfa menn að iáta simastúlkurnar og/eða bók- Höröur Bjarnason ara vita af þvi ef þeir fara úr hús- inu og þá hvert farið er. En það er ýmislegt, sem fylgj- astþarf með utan veggja hússins. Td. þarf að fylgjast með opinber- um framkvæmdum, byggingu og viðhaldi embættisbústaða, skrif- stofuhúsnæði hins opinbera, stjórnarráðsliúsinu, alþingishús- inu og fleiri slikum byggingum. Fristundaarkitektúr — Þú nefndir áðan, húsameist- ari, að laun manna við stofnun- ina væru lág og að þeir þyrftu þvi að bæta sér það upp með auka- vinnu. Er sú aukavinna unnin hér á stofnuninni, eða er það auka- vinna, sem unnin er i' vinnutima manna við stofnunina? — Hvorugt. Menn mega ekki koma með sin einkaverkefni hingað, og kemur ekki til greina, enda væri það ósæmilegt. Hætt var að greiða yfirvinnu hér fyrir nokkru siðan. Aukavinnu taka menn að sér og sinna i eigin fri- tima. En þótt launin séu lág hér vil ég geta þess, að fjölmargir starfandi arkitektar i bænum hafa fengið starfsreynslu sina hjá þessari stofnun. Þjóðarbókhlaðan — Hvers vegna var eða er ekki Þjóðarbókhlaðan teiknuð hér? - Við eigum ekki að taka að okkur að teikna allar rikisbyggingar. Við vorum aidrei beðnir um að taka að okkur að teikna Þjóðar- bókhlöðuna. Ég mælti meðal ann- ars með þvi, sem einn þriggja manna i byggingarnefnd hennar, að þeir arkitektar fengju það verkefni, sem það fengu. Ekki út frá stofnuninni — Er eitthvað hæft i þvi, að verkefni, sem byrjað er að vinna hérhjáembættinu séu af þvi tekin og látin i hendur einkaaðiljum? — Það er gjörsamlega útilokað, að verkefni fari út frá stofnuninni eftir að byrjað er að vinna þau hér. Enginn arkitekt mundi taka viö eða halda áfram verki, sem annar er byrjaður á. Hins vegar kemur fyrir, að byggjendur húss óska eftir þvi sjáifir. að verk, sem við ættum að hafa með höndum fari annað. En slikt gerist ekki eftir að menn eru byrjaðir á verkinu hér við stofn- unina, nema með einni undan- tekningu, þeirri, að við sjúkra- húsið i Vestmannaeyjum var lok- ið annarsstaðar en hér. Sá sem verkiö vann hér við stofnunina. var fluttur á milli ráðuneyta og hóf störf við menntamála.ráðu- neytið. Að ósk byggingarnefndar rikisins hélt hann verkinu áfram eftir að hann hætti hér. Engir útvaldir — Ef fleiri verkefni berast stofnuninni að vinna en hún getur sinnt, velur þú þá sjálfur ein- hvern arkitekt úti i bæ til þess að vinna verkið? — Það berast ekki fleiri verk- efni að núorðið en við getum sinnt. Stundum höfum við þó þurft að visa verkefnum frá. Þá hef ég ekki stungið upp á að neinn sérstakur fái verkið. Þó hafa um- bjóðendur verka óskað eftir þvi i örfáum tilvikum, að ég tiinefni einhvern arkitekt til þess að vinna merkið. Þá hef ég lika gert það. Tilverurétturinn — Margir telja, að embætti húsameistara eigi ekki rétt á sér lengur. Telur þú að stofnunin hafi sannað tilverurétt sinn? — Það tel ég skilyrðislaust að hún hafi gert, en hún hefur starf- að sfðan 1904; og þá jafnframt, að hún eigi jafn skilyrðislausan rétt á sér þrátt fyrir talsverða fjölgun arkilekta. —úþ

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.