Þjóðviljinn - 01.02.1976, Síða 11

Þjóðviljinn - 01.02.1976, Síða 11
Sunnudagur 1. febrúar 1978. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11 Skipting í fína menningu og lágmenningu er sjúk hefð Arni Bergmann talar viö Dan Turéll um Ijóðasmíö, skemmtan og pólitískar þverstæöur Um þessar mundir er ungur danskur rithöf- undur gestur Norræna hússins, Dan Turéll heit- ir hann. Hann flutti á fimmtudag erindi um nokkra höfuðpaura danskrar nútimaljóð- listar, og i dag, sunnu- dag, kl. 17. mun hann tala ,,af fingrum fram” um ljóðlist og popp- músik og eigið starf að hvorutveggja; fylgja þessu músikdæmi og sitthvað fleira. Þegar eftirfarandi viðtal við Dan Turéll fór fram á miðviku- dag var hann fyrst spurður að þvi, hvaðá skáld hann ætlaði einkum að taka til meðferðar og af hverju. — Ég tek fyrir fjögur skáld sem mér finnast best. Ivan Malinovski, Per Síöjholt, Jörgen Lith og Kristen Björnkær. Sá sið- astnefndi er á aldur við mig, en hinir allmiklu eldri. Ég vel þá fremur en jafnaldra mina vegna þess að min kynslóð er ekki nógu gömul orðin i starfi, hefur ekki fengið „eigið andlit”. Þetta eru ólikir menn. Malin- ovski er pólitiskt skáld sem flytur sósialiskan boðskap. Höjholt er lýriskur showmaður eins og ég kalla, leggur sig mjög fram um að vera skemmtilegur. Hinir tveir eru meira i hversdagslýs- ingum, emkalifi. Út fyrir hópinn? — Finnst þér pólitiskum skáld- um farið að fækka, minna fara fyrir þeim en fyrir nokkru? — Nei, alls ekki. Norðurlönd eru full af skáldum sem vilja gjarna hafa pólitisk áhrif, en komast ekki langt af þvi þeir eru ekki lesnir. 1 langflestum tilvik- um skrifa þeir fyrir tiltölulega lit- inn hóp, sem er á svipuðu máli og skáldin sjálf. Þetta getur reyndar haft sina þýðingu fyrir hópinn, en litið meira en það. Þaðeru að visu til undantekningar, t.d. sviar eins og Per Valö, sem ná til margra. Kn Malinovski er ekki ein af þess- um undantekningum. Hann er ekki mikið lesinn. En hann er lygilega duglegt skáld. Ég get ekki stillt mig um að minnast á þá þverstæðu, að það skáldskaparkyns sem mér finnst hafa haft mesta pólitiska þýðingu i Danmörku að undanförnu það eru einmitt textar sem alls ekki var ætlað að ná slikum áhrifum. Til dæmis vil ég taka Svantes vis- er eftir Benny Andersen. Brauðmylsna og alvara — Per Höjholt er sjómaður segirðu, Er hann einn á báti? — Nei, við erum tveir. — Og hvernig er ærslum ykkar tekið? — Bara vel. — Um hvað skrifar Per Höjholt? — Hann skrifar um brauð- mylsnu, umbúðir utan um sild og fleiri hversdagslega hluti. Reynir að gera úr þeim góða skemmtun með ekki alltof hátiðlegri afstöðu til málsins. — Ert þú likur Per þessum? — Nei. Ég er reyndar tuttugu árum yngri en hann. Fæst við ein- faldari hluti. Flestir danskir rit- höfundar koma úr akádemisku umhverfi og tróna mjög maga- veikislegir á svip i sinni hámenn- ingarhefð. Mér leiddist satt að segja öll þessi menntaða alvara. vfirþvrmd af vangaveltum og bóklestri. Mér fannst vanta ein- hvern friskleika i þetta. — Hefurðu skrifað lengi og mikið? — Ég er búinn að vera að i fimm-sex ár. Og hefi skrifað ein- ar fjörutiu bækur. Mest eru þetta ljóðatextar. En ég er nú byrjaður að skrifa prósa. Svipmyndir úr heimaplássi minu. Vangede- hverfi i' Gentofte. Um rokk. Um Bandarikin, fjölmiðla þar og kenningar um þá. Ég hefi orðið fyrir miklum bandariskum áhrif- um. 1 Danmörku er spaugað með það, að eiginlega sé ég partur af bandariskri bókmenntasögu. Að læra af Bitlum — Hvers konar áhrif áttu við? — Ég hefi ekki lesið mikið af dönskum bókmenntum, er ekki vel að mér um þá hefð. Ég hefi lært miklu meira af Walt Whit- man og Allan Ginzberg en af nokkrum dönum. Meira af Bitlun- um ep af nokkrum bókmenntum. Ef þig vantar stimpil á mig, þá má vel kalla mig rokkogrólskáld- ið. — Og hvað gastu helst lært af Bitlum ? — Þeim tókst að ná sambandi, segja mikilvæga hluti við mjög marga á tima, þegar t.d. danskir kollegar minir komust varla neitt. Þeim tókst, þegar allt kemur til alls, að láta fleirum liða betur. — Hefurðu skrifað fyrir hljóm- sveitir? — Já, ég hefi skrifað fyrir marga rokkhópa og ég tala stund- um með einni grúppu — i henni er gitar, pianó, bassi, trommur. Við höfum komið fram i djassklúbb- um og útvarpi. Rokkið, bitlar, þjóðlagamúsik dálitið? — Hvaö um mótmælasöngva? — Ég hefi ekki mikla trú á þeim. Auðvitað er sjálfsagt að hafa þennan þátt með, en hann má ekki kenna sig við mótmæli, þá virkar það ekki. Af fingrum fram --- Erum við ekki komnir núna inn á það sem þú ætlar að tala um á sunnudaginn (þ.e. i dag i Norræna húsinu)? — Ég undirbý mig ekki, ég veit eiginlega ekki hvað ég muni segja, ég-vil helst vinna með impróvisasjón. Eins og saxófón- leikari sem fær stuttan lagstúr, Iratrabrabú, og finnur sjáliur út áframhaldið. Það er að visu rétt, að það er nokkurt happdrætti i þvi fólgið að haga sér svona, en ef þú hefur spilaðá saxófón i fimm ár, þá hefurðu safnað það miklu i Dan Turéll: „Sania er mér hvert menn halda að þaö gamla, góða, helsjuka snörlandi tungu- mál sé að hlaupa. Þær einar málsaðstæður eru skemmti legar þegar málið hættir að virka á sinum eigin forsendum. (Ristið tengslin i sundur aftan frá — Skjótiðgöt á myndirnar — Hugliö siðunum i handriti ykkar — Kveikið i annálunum). Mér finnst tungumálið i sinni núver- andi inynd kúgunarmaskina, kúgari manns andspænis manni og einstaklings andspænis efni. Sérhver apaflokkur nær betra sambandi innan hópsins en maðurinn (The manuskripter). Vangede er plássið sem I)an Turell óx upp i, það er partur af Gentofte. Um þetta hveiíi hefur Dan skrifað vinsæla bók: minn- ingabrot, staöarlýsing, teikn- ingar. Þar segir m.a.: i Gentofte er menningin ihaldssöm, og allir vita að allir i villunum eru ihaldsmenn og að allir ihaldspólitfkusar og for- stjórar búa þar. i Gentofte er menningin ihaldssöm og þar lesa menn Berlingske Tidende. i Vangede er menningin sósialdemókratisk, og það gam- alkratisk — og þar lesa menn Kkstrablaöið og bölva og spýta og drekka bjór af stút. Vangede er bamdaþorp sein varð verkamannaúthverfi á tuttugustu öld. Vangede er svið fvrir kúrekainúsik sem i græn- uin livelli brcyttisl i stórborgar- rokk. Kn það eru enn nokkrir mat- jurtagarðar i brekkunni við járnbrautarteinana. Og ef þjófabjallan hringir hjá Brug- sen, þá færir fólkið sig á bekkn- um við ísluisið og segir: Kttum við ekki að skreppa og gá? Og svarar sér sjálft: Nei. það er bara, einhver að nappa sér nokkra bjóra, og livað ineð það... hrygglengjuna að þetta ætti að takast. Sjálfsagðir hlutir — Við minntumst áðan á áhrif t.d. texta með pólitisku innihaldi. Hvað finnst þér um þá kenningu. að það þurfi ritskoðun að glima við til að þau áhrif geti orðið veruleg? --- Ég er þvi alveg sammála. Það sem þú leitar að i lýrik er mannleg rödd, mennskur andar- dráttur, tilfinning fyrir þvi að vera til, og þetta færð þú ekki ef komið er með eitthvað sem þú veist eiginlega áður. Eða hefuröu heyrt mörg pólitisk kvæði sem segðu eitthvað annað en það sem i raun og veru er sjálfsagt mál? Hefur nokkur látið sér detta i hug að segja i kvæði um Vietnam. aö best væri að plaffa þá niður sem skjótast þessa vietnama? Auðvit- að ekki. Ef við vikjum að þeim Jörgen Lithog Kristen Björnka>r. þá held ég að i raun hafi þeir meiri póii- tiska þýðingu en þeir. sem slá föstum sósi'alistiskum viðhorfum. Þeir byrja á þvi sem er meira sósialt en nokkuð annað — hvers- dagsleikinn, dagleg vandamál sem eru ósköp svipuðhjá flestum. Við getum kannski ekki gert mikið fyrir Vietnam frá Kaup- mannahöfn, allavega ekki i ljóöi. En kannski getum við gert um- ferðina i' Kaupmannahöfn félags- legri — og það er sannarlega póli- tisk iðja að vinna að því. Sportkvæði — Viltu nefna dæmi um fram- teiðslu þessara skálda tveggja. — Björnkær til dæmis. hann hefur skrifað fallega bók um bernsku sina. Þar tæmir hann hausinn af þvi sem hann man af myndum frá bernsku sinni. Þetta má utn leið vel kalia félagslegt frumkvæði, hann fer með reynslu sem margir eiga með honum. og býr um leið til einskonar Dan- merkurmvnd. mvnd af Dan- mörku á vissu augnabliki. i hans tilviki fyrir um tuttugu árum. Um Jörgen Lith. sem hefur samið vinsæla bók sem heitir tþróttakvæði. Hún er aðallega um hjólreiðar. Það er merkilegt að liugsa til þess, að liklega iðkar miljón dana einhverskonar sport. fjórðungur allra landsmanna. Og það hafa komið út þúsundir ljóða- safna, en ekkert af þeim er um iþróttir. Þarna komum við aftur að þvi sem ég minntist á áðan — flestir danskir rithöfundar til- hevra litlum hópi menntamanna. sem hefur ekkert samband fið iþróttir. né heldur afþrevingar- starfsemi ýmiskonar. Skiptingin Þessi hefðbundna skipting i fina menningu. hámenningu ibókin á þar heima) og lágmenningu (S[X)rt. poppmúsik o.fl.) hefur gert okkur marga skráveifu. Þetta er sjúk hefð og ég vona að okkar kynslóð takist að gera upp sakir við hana. Ég held revndar þetta sé byrj- að. Menn skipta t.d. ekki bókum i „góðar" og „vondar" með sama hætti og áður. Menn ætla lesand- anum annan hlut en áður — skilja að sé hann klókur getur hann lesið margt út úr revfara engu siður en Shakespeare. Menn skoða íleiri Ivrirbæri en áður. Og lita ekki á staf rithöfunda með öðrum eins heilangsandablæ og áður. Gera sér betur grein fvrir þvi. að það er misskifningur aiS skáldin „skapi -þau taka. fá lánað. viða að ser. Þau taka orðin úr munni þer. og þú getur keypt þau af þeint aftur þegar þeir hafa bra'tt þau saman við annað sem orðið hefur á vegi þeirra.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.