Þjóðviljinn - 01.02.1976, Page 16

Þjóðviljinn - 01.02.1976, Page 16
16 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 1. febrúar 1976. Umsjón: Þórunn Sigurðardóttir Mataræöi hefur mjög verið til umrteðu á undanförnum ár- um og þá ekki síst mataræði barna, en það hefur komið i ljós, bæði hérlendis og erlendis að þvieroft mjög ábótavant. Börn- in taka að sjáifsögðu upp þá siði og þær matarvenjur sem þau kynnast i kringum sig, en þau geta oftast litlu stjórnað matar- æði sinu, amk. ekki til batnaðar. Sé lélegur og jafnvel ónógur (eða of mikill) matur hafður fyrir börnum má gera ráð fyrir að þar með sé lagður grundvöll- ur fyrir matarvenjum þeirra til frambúðar og þá ekki siður heilsu þeirra. Það er þvi mjög þýðingarmikið að leggja svolitið á sig við að velja og matreiða matinn, ekki aðeins fyrir sjálfan sig. heldur miklu fremur fyrir börnin. Börn þurfa betri mat en fullorðnir. Hér á siðunni ætlum við eink- um að f jalla um mat fyrir smá- börn, birta spurningar og svör er snerta mataræði barna al- mennt og svo lista yfir næringarefnaþörf barna innan 1 árs, en einmitt á fyrsta árinu eru lagðar grundvallarvenjur að mataræði barnsins. Það er lika oftast auðveldara að fá upplýsingar um næringarefna- þörf eldri barna en ungbarna. enda er ekki svo ýkja mikill munur á þörf skólabarna fyrir hin ýmsu efni og t .d. kvenna, en almennt er reiknað með að kon- ur þurfi nokkru færri hita- einingar og flest önnur efni (ekki þó járn) en karlmenn. Mikið er rætt um það hvaða mataræði hæfi best ungbörn- um. Allir eru sammála um að i flestum tilfellum er móður- mjólkin æskilegust amk. fyrstu mánuðina. En sé hún ekki fyrir HVAÐA MATUR ER æskilegastur FYRIR BÖRNIN? hendi á þá að gefa barninu þurr- mjólk eða kúamjólk? Þessu verða læknar að svara hverju sinni, en ekki munu allir á einu máli um það. t nágrannalönd- unum er kúamjólk ekki gefin ungbörnum, en þar er selt þar- lent þurrmjólkurduft. Hér fáum við aðeins innflutt (og jafnvel ódagstimplað) þurrmjólkur- duft, sem þar að auki er mjög dýrt. 1 flestum tilfellum ætti amk. að vera óþarfi að gefa barni slíkt í marga mánuði, þar sem kúamjólkin okkar er að öll- um likindum hentugri fyrir ungabörn en sú mjólk sem fæst i nágrannalöndunum. (Rann- sóknir hafa sýnt að hún inni- heldur minna af óæskilegum fitutegundum en mjólk i flestum nágrannalöndunum ). Þar að auki teljum við okkur að öðru jöfnu i minni hættu gagnvart meneun i t.d. mjólkurafurðum en miljónaþjóðirnar, þótt ef til vill séerfitt að fullyrða um slikt. Varðandi barnamatinn, sem hér er seldur i glösum og dós- um, er hins vegar hægt að full- yrða, að innfluttur, niðursoðinn matur sem ekki er dagstimpl- aður er alls ekki æskileg aðal- fæða fyrir ungabörn, en getur verið ágætt að gripa til, þegar á þarf að halda. Það er raunar furðulegt að við með okkar góða fisk skulum ekki geta framleitt sjálf barna- mat, en þurfa að flytja hann inn frá útlöndum og selja hann svo ódagstimplaðan i verslunum. Vissulega eru ávaxtamaukin ekki eins viðkvæm fyrir geymslu og t.d. ýmiss konar kjötmauk, en i öllum tilfellum ætti að dagstimpla þessa vöru, áður en hún er sett i verslanir. Og hana á alltaf að geyma i kæli, bæði i verslunum og i heimahúsum. — A meðan við fáum ekki dagstimplaðan barnamat mælum við með þvi að fólk sjóði sjálft niður barna- mat og geymi t.d. i frysti. Eink- um er æskilegt að sjóða niður fiskmauk sem gert er úr nýjum ýsuflök- um, sem vel eru hreinsuð og kartöflum. tJt i maukið má svo bæta t.d. soðnum rófum, gulróf- um, tómat, grænum baunum eða öðru grænmeti (helst nýju). Þetta er allt stappað saman eftir að það hefur verið soðið vel. Siðan er það látið kólna og sett á glös, sem hægt er að loka vel. Sem ilát má t.d. nota bauka undan skyri eða jóghúrt sem siðan er sett á lok (t.d. plast með góðri teygju) svo að ekkert loft komist að. Litil glös sem hægt er að loka (t.d. undan barnamat) er einnig tilvalið að nota. Siðan má geyma barna- matinn i frysti i vikur og þarf aðeins að láta ilátin i heitt vatn (t.d.undir krana) þegar'hans er neytt. Hliðstætt mauk má gera úr kjöti, t.d. lifur eða góðu hakki. Notið ætið mjög litið krydd og engan sykur. Ef maturinn er fyrir mjög litið barn, sem er að byrja að borða raunverulegan mat, verður að stappa hann mjög vel, en eftir að barnið er 8 mánaða á hann ekki að vera alveg mauk- kenndur, þvi þá þarf barnið að byrja að læra að tyggja. Ávextir er best að stappa nýja um leiö og þeirra er neytt. Spurningar og svör varðandi mataræði barna 1. Hvaö þurfa börn aö borða mikið? Það eru til margvislegar tölur um hitaeiningaþörf barna en al- mennt er talið að t.d. 4 ára barn þurfi um 1600 hitaeiningar og siðan hækkar talan jafnt og þétt i allt að 2800 hitaeiningar fyrir full- orðna karlmenn. Annars er al- mennt talið að matarlystin sé betri leiðarvisir en töflur um hita- einingar. Drengir hafa yfirleitt meiri matarlyst en telpur, en þó ekki fyrr en eftir 3ja ára aldur. 2. Hversu oft þurfa börn aö borða? Þrjár aðalmáltiðir og eitt eða tvö millimál er talið æskilegast, en millimálin eiga ekki að vera fleiri. Og fáar og stórar máltiðir eru heldur ekki æskilegar. 3. Hvað á að gera við börn sem vilja ekki borða? Það sveltur enginn i hel að gamni sinu og börn gera það ekki heldur. Fyrirhöfn og áhyggjur foreldra vegna ónbgrar matar- lystar barnanna eru oftast óþörf og hefur oft þveröfug áhrif við það sem til er ætlast. Að neyða börn til að ljúka alltaf við það sem þeim er skammtað er lika óæski- legt, þvi þau geta orðið hreinir mathatarar fyrir vikið. Best er að halda hollum og góðum mat að barninu á réttum timum og gera sem minnst veður út af borðsiðum og matarræði að öðru leyti, — þá er liklegast að matar- lystin sjái fyrir afgangnum. 4. Er hollt fyrir börn að drekka mikla mjólk? Börn eiga ekki að drekka meira en 5-6 dl á dag af mjólk. Hættan við, of mikla mjólkurdrykkju er fyrst og fremst fólgin i járnskorti og lélegri meltingu. OG munið að gervi ávaxtasafi, sem er þynntur út i vatni er ekkert betri en mjólk (raunar mun verri vegna sykur- magnsins). 5. Þurfa börn að taka inn vítamín? A B C og E vitamin fá börn yfir- leitt i fæðunni, svo framarlega sem hún er fjölbreytt og góð. Það er hinsvegar öllu verra með járnið og D vitaminið. D vitamin er sem kunnugt er fyrst og fremst i feitum fiski (og i lýsi). fbúar i Norður Noregi (i sjávarþorpum) eru taldir neyta of mikils D vita- mins, þar sem feitur fiskur og spik eru þar aðalfæðan og er of- notkun D vitamins ekki talin æskileg. Ekki er þó liklegt að við hér neytum of mikils af þvi, þótt feitur fiskur sé hér gjarnan á boðstólnum og þurfa börn i flest- um tilfellum aukaskammt af þvi. Börn sem borða járnbætt hveiti og kakómalt liða siður af járn- skorti en önnur, en járnskortur er þó algengur kvilli hjá börnum og kemur mjög niður á þreki þeirra, áhuga og getu. Það er þvi nauðsynlegt að fylgjast vel með járninnihaldi i blóði barna, sem virðast slöpp og kraftlitil. Lifur, grænt grænmeti og blóðmör bæta járnið i blóðinu ef þess er neytt að staðaldri, en i flestum tilfellum þarf einnig járntölfur, ef járninnihaldið i blóðinu verður einu sinni of litið. 6. Eiga börn að fá að borða það sem þau vilja? Nei, en matarvenjur fjöl- skyldunnar verða ætið leiðarljós barnsins. Foreldrar sem fussa oft við mat, sem kominn er á borðið, kenna börnum sinum matarsiði, sem getur verið erfitt að losna við. Matarvenjur barnanna verða aldrei betri en foreldranna. Hins vegar eru börn oftast enn ihald- samari hvað snertir nýja rétti, en fullorðnir. Nokkrar matar- tegundir eru liklegri til að vekja andúð barnanna en aðrar, t.d. soðnar rófur, hrátt grænmeti og jafnvel þeyttur rjómi. Reynið ekki að neyða börn til að borða mat sem það vill alls ekki, slikt mynduð þið aldrei gera gagnvart fullorðnum. 7. Þurfa börn betri mat en fullorðnir? Já, vegna þess að þau eru að vaxa og þau eru lika að læra að borða. Þess vegna er þýðingar- mikið að við temjum okkur góða matarsiði, ef við erum með börn i kringum okkur og reynum að velja matinn vel, forðast of mikla fitu og of mikið af kolvetnum. Hvitur sykur og hvitt hveiti, feit- meti og mikið af sterku kryddi — allt þetta þurfum við að forðast ef við viljum venja barnið á hollan mat — og við höfum lika gott af að minnka það við okkur sjálf. Börn eru viðkæmari fyrir mengunar- áhrifum úr mat en fullorðnir. Reynið t.d. að forðast mat með litarefnum (tómatsósu, áv. safi, niðurs. matur ofl.) 8. Hvernig á að forðast sælgætisát? Gleymið ekki að það er fleira sælgæti en karamellur. Otþynnt- Framhald á 20. siðu. DAGLEG NÆRINGARÞÖRF UNGBARNA Aldur vikt hæð i mán. kg. sm 0—2 4 55 2—6 7 63 6—12 9 72 orku- eggja-vit.A Vit.D Vit.C þörí hvita hitaein ae. ae. mg. kgxl20 kgx2,2 750 400 15 kgxllO kgx2,0 750 400 15 kgxioo kgxl,8 750 400 15 Vit B Ribo- Tia- flavin min. mg. mg. 0,4 0,2 0,5 0,4 0,6 0,5 Nia- cin. mg. 5 7 8 Kalk Járn ' g- 0,4 0,5 0,6 mg. 6 10 10 ae. þýðir alþjóðlegar einingar. Orku- og eggjahvituþörf er reikn- uð eftir þyngd barnsins, þ.e. kilóin margfölduð með tölunni sem nefnd er.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.