Þjóðviljinn - 01.02.1976, Page 17

Þjóðviljinn - 01.02.1976, Page 17
Sunnudagur 1. febrúar 1976. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 17 Dómsmálaráðuneytið svarar ásökunum Dómsmálaráðuneytið sendi frá sér i gærmorgun greinargerð i framhaldi af blaðagrcin Vil- mundar Gylfasonar i Visi á föstu- dag um afskipti dómsmálaráð- lierra og dómsmálaráðuneytis af mcðferð tvcggja málsrannsókna. i greinargerð dómsmálaráðu- neytisins er fyrst birt i heild bréf það sem ráðuncytið skrifaði bæjarfógetanum i Keflavik 11. mars 1975 i sambandi við mái Geirfinns Einarssonar o.fl. Bréf þetta er á þessa leið: „Hér með sendast yður, herra bæjarfógeti, til athugunar og um- sagnar eða — eftir atvikum — til viðræðna við ráðuneytið, ljósrit af erindi Sigurbjarnar Eirikssonar, eiga.nda húseignarinnar Borgar- túns 32 i Reykjavik og Magnúsar Leópoldssonar, framkvæmda- stjóra veitingahússins Klússins dags. 3. f.m., svo og bréfi Inga Ingimundarsonar, hæstaréttar- lögmanns. fyrir þeirra hönd, dags. 18. f.m., þar sem fjallað er um þrálátan orðróm og söguburð um aðild þeirra að málefnum i sambandi við hvarf Geirfinns Einarssonar úr Keflavik og jafn- framt i tengslum þar við að hinu umfangsmikla smyglmáli, sem i rannsókn var undangengna mán- uði, i upphafi aðallega við bæjar- fógetaembættið i Keflavik, en siðan einnig við sakadómara- embættið i Reykjavik og viðar. Svo sem fram kemur i umrædd- um erindum, telja hlutaðeigendur litt þolandi fyrir sig og fjölskyldur sinar að liggja undir þeim sögu- burði og illmælum, er þeir hafi mátt þola vegna mála þessara án þess að eitthvað verði að hafst af opinberri hálfu, til þess að beina frá þeim grunsemdum, sem ætla verði að.beinst hafi að þeim að verulegu leyti vegna fram- kvæmdar á rannsókn ofan- greindra mála. Telja hlutaðeig- endur að nauðsynlegt sé, eftir at- vikum, að stofnað verði til opin- berrar rannsóknar til þess að söguuburður og illmæli i þeirra garð verði rakin og hrakin eða að af opinberri hálfu verði gefnar skýlausar yfirlýsingar, sem beini frá þeim söguburði og grunsemd- um, sem um er rætt. Ráðuneytinu er fullljós vand- kvæði á tilstofnun opinberrar rannsóknar, sem til þess megi gagnast, að söguburður og illmæli af þvi tagi, sem hér ræðir um, hverði rakið til upphafssins. Hins vegar telur ráðuneytið skiljanlegt og eðlilegt, að aðilar, sem fyrir slikri aðsókn verða, telji sig ekki geta unað við svo búið, án mótað- gerða. Vill ráðuneytið athuga frekar, hverra úrlausna megi leita.” Þá segir i greinargerð dóms- málaráðuneytisins: „Þann dag, sem ráðuneytið sendi bæjarfógeta þetta bréf, hringdi ráðuneytisstjóri dóms- málaráðuneytis til setts bæjar- fógeta og sagði honum af send- ingu bréfsins og gat þess til viðbótar, að svo sem bréfið aug- ljóslega bæri með sér vlri fráleitt mögulegt að rekja söguburð eða afsanna illmæli með neinu öðru en þvi að rannsókn á tilefni sögu- burðar leiddi hið sanna i ljós. Er bæjarfógeti minnugur þessa sam- tals, en sú viðræða tengist raunar efni bréfs, sem sá er samtalið átti við bæjarfógeta hafi ritað rikis- saksóknara deginum áður, þ.e. 10. marz, og hljóðar svo: „Hér með sendist yður, herra rikissaksóknari, til athugunar, bréf fjármálaráðuneytisins, dags 27. f.m„ þar sem borin er fram ósk um, að stofnað verði til frekari rannsóknar, er fram- kvæma megi i fleiri lögsagnar- umdæmum samhliða, i framhaldi af rannsókn vegna umfangs- mikils smygls ýmissa aðila, nú nýverið en sú rannsókn hófst i Keflavik, en átti viða rætur, m.a. og ekki sizt i Reykjavik, og hefir nú verið lokið að þvi er ýmsa þætti varðar, sem ætla má að leiða munni til ákæru. Ýmsir lög- gæzlumenn, er um þessi mál fjalla, telja miklar likur á, að enn geti verið unnt að upplýsa frekari brot á þessu sviði i framhaldi af og jafnvel i tengslum við þær rannsóknir, er þegar hafa farið fram. Telur þetta ráðuneyti mjög koma til greina, að hentað gæti á þessu stigi, að veita sérstökum dómara, skv. heimild i 5. gr. laga nr. 74 1974, umboðsskrá til þess að framkvæma rannsókn, er fram geti farið i hverju þvi lögsagnar- umdæmi, er þurfa þætti, þannig að auðveldara geti verið að fylgja eftir einstökum rannsóknar- atriðum. Væri þar með engan veginn fyrirhugað að taka úr höndum annarra dómara þau rannsóknarverkefni, er þeir fjöll- uðu um eða upp kæmu til þeirra embætta. Hins vegar gæti slikur sérstakur dómari, með samvinnu við fleiri dómaraembætti, stuðlað að tengingu á störfum þeirra og störfum almennrar tollgæzlu og löggæzlu að þessu sérstaka verk- efni, sem likur þykja á, að nú geti enn fengizt frekar upplýst.” Löggæzlumenn þeir, sem i bréfi þessu er vitnað til, munu vera þeir Haukur Guðmundsson rann- sóknarlögreglumaður i Keflavik og Kristján Pétursson, deildar- stjóri i tollgæzlunni á Keflavikur- flugvelli, en þeir höfðu báðir unn- ið mjög mikið að umræddri rann- sókn, og höfðu nokkru áður lýst áhyggjum sinum af þvi við toll- gæzlustjóra (og raunar annar einnig við ráðuneytisstjóra dóms- málaráðuneytis) að rannsókn gæti koðnað niður ófullgerð, en tollgæzlustjóri hvatti fjármála- ráðuneyti til að veita þvi máli lið. Jafnframt fengu löggæzlumenn- irnir vitneskju um fyrirhugaða skipun sérstaks dómara, sem þeir voru mjög ánægðir með, og tóku rösklega til hendinni við rann- sóknaraðgerðir til undirbúnings verkefna hins væntanlega rann- sóknardómara og að verulegu leyti i samráði við hann. — Rikis- saksóknari tjáði sig, með bréfi dags. 21. marz, meðmæltan skip- un hins sérstaka dómara, og var dómaranum, Ásgeiri Friðjóns- syni sakadómara i fikniefnamál- um gefin svofelld umboðsskrá: Dóms- og kirkjumálaráðherra gerir kunnugt: Að þar sem nauðsyn ber til að skipa sérstakan dómara til þess að fara með rannsókn vegna meintra brota á tollalöggjöfinni með ólögmætum innflutningi ýmiss varnings, þá eruð þér, herra sakadómari, skipaður til þess, samkvæmt 2. mgr. 5. gr. laga nr. 74 1974, að framkvæma rannsókn vegna meintra brota á tollalöggjöfinni i framhaldi af rannsókn, er fram fór i ýmsum lögsagnarumdæmum við sunnan- verðan Faxaflóa um og eftir sl. áramót. Til framkvæmdar starfi þessu er yður veitt heimild til að halda dómþing innan sérhvers lögsagn- v arumdæmis landsins. I dóms- og kirkjumálaráðu- neytinu, 8. april 1975. Bréf það sem fylgdi umboðs- skránni sama dag til dómarans, hljóðar svo: „Með skirskotun til viðræðna sendir ráðuneytið yður, herra sakadómari, hér með umboðs- skrá til þess að fara með rann- sókn vegna meintra brota á tolla- löggjöfinni i framhaldi af rann- sókn, er fram fór i ýmsum lög- sagnarumdæmum við sunnan- verðan Faxaflóa, um og eftir sl. áramót. Sendist yður jafnframt til upplýsinga og leiðbeininga ljósrit af bréfi fjármálaráðuneyt- isins, dags. 27. janúar sl„ bréfi þessa ráðuneytis til rikissaksókn- ar, dags. 10. f.m., og bréfi rikis- saksóknar? dags. 21. f.m„ er öll varða þetta efni. Jafnframt er yður sent, til upp- lýsingar ljósrit af bréfi ráðuneyt- isins, dags. 11. f.m„ til bæjarfó- getans i Keflavik sbr. bréf Sigur- bjarnar Eirikssonar og Magnúsar Leópoldssonar, dags. 3. febrúar sl. og bréf Inga Ingimundarsonar, hrl., dags. 18. s.m., varðandi um- kvartanir vegna orðróms og söguburðar um tengsl hinna fyrr- nefndu m.a. við umrætt smygl- mál.” Svo sem þetta bréf ber með sér, er athygli dómarans m.a. beint að umkvörtunum hinna tilgreindu aðila, en tengist enn þeirri aug- ljósu staðreynd, sem öllum rann- sóknarmönnum er ljós, að einasta leiðin til þess að grundvöllur söguburðar verði rakinn, er meiri rannsókn en ekki minni. Bréf það frá Sigurbirni Eiriks- syni og Magnúsi Leópoldssyni, sem til hefur verið vitnað, er dag- sett 3. febrúar 1975 og hljóðar svo: „Frá þvi i desember sl. hefur gengið þrálátur orðrómur hér i Reykjavik og viðar um að veit- ingarstaðurinn Klúbburinn og við undirritaðir, Sigurbjörn Eiriks- son, eigandi Borgartúns 32 og Magnús Leópoldsson, fram- kvæmdastjóri Klúbbsins, séum viðriðnir hvarf Geirfinns Einars- sonar úr Keflavik og um leið hið mikla smyglmál, sem nýlega hef- ur komist upp um. Hefur orðróm- ur þessi birst i mörgum myndum. M.a. að lik Geirfinns hafi fundist á jörðinni Álfsnesi, sem er i eigu Sigurbjörns, bifreið eins og sú, er auglýst hefur verið eftir sé i eigu Klúbbsins eða okkar persónulega. Höfum við átt að láta breyta um lit á bifreiðinni til þess að hún þekktist ekki. Þá er þvi haldið fram, að vegna þessa og smygl- málsins, hafi við Sigurbjörn og Magnús setið i gæzluvarðhaldi að undanförnu. Þó er þvi einnig haldið fram, að Magnús hafi verið sá maður, sem beðið hafi veriö eftir að kæmi frá Kanarieyjum vegna smyglmálsins. Við höfum hingað til beðið og vonast til að mál þessi upplýstust, þannig að sannleikurinn kæmi opinberlega fram, en eftir þvi sem lengur liður og ekkert kemur fram af hálfu opinberra aðila, sem varpað getur ljósi á stað- reyndir þessara mála, magnast fremur framangreindur orðróm- ur, m a. af frásögnum blaða og löggæzlumanna, sem komið hafa fram i fjölmiðlum. Eins og augljóst er, getur orð- rómur sem þessi haft i för með sér stórkostlegt fjárhagslegt tjón fyrir veitingahúsið og valdið þvi og starfsfólki þess álitshnekki. Það er þvi ósk okkar, að hið háa ráðuneyti annaðhvort gefi yfir- lýsingu opinberlega, sem eyði þessum sögusögnum eða láti fara fram rannsókn á sannleiksgildi þeirra og uppruna.” Bréf það sem lögmaður um- ræddra aðila ritaði 18. febrúar 1975, til áherzlu fyrrgreindu bréfi, er 6 vélritaðar blaðsiður og er efni þess aðallega frásagnir ýmissa t'ilgreindra aðila um þær sögur um bréfritarana sem þeir hafi heyrt fleygt. — Bréfið þykir of langt til að taka inn i þessa frá- sögn, sem þó verður ærið löng, en bréfið er siður en svo óheimilt þeim, er þessi greinargerð snert- ir”. Þá segir i greinargerðinni: .■Loks, og að endingu, þykir rétt að upplýsa, varðandi störf Hauks Guðmundssonar, lögreglumanns að framangreindri rannsókn, að hann var, samkvæmt beiðni bæjarfógétans i Keflavik, leystur frá öðrum starfsskyldum-, með bréfi ráðuneytisins dags. 17. des- ember 1974, svohljóðandi. „Eftir viðtöku bréfs yðar, herra bæjarfógeti, dags. 13. þ.m., þar sem þér óskið þess, að Haukur Guðmundsson, rannsóknarlög- reglumaður, megi helga sig störf- um við rannsókn vegna hvarfs Geirfinns Einarssonar, Brekku- braut 15, Keflavik, um óákveðinn tima, tekur ráðuneytið fram,, að fallist er á beiðnina, enda sé rikis- saksóknara jafnan gefin skýrsla um framvindu málsins, og fyrir- mæla hans leitað, sbr. 21. gr. laga nr. 74 1974 um meðferð opinberra mála. Jafnframt heimilast yður, að ráða til lögreglustarfa um óákveðinn tima Guðmann Rúnar Lúðviksson, Grænagarði 8, Kefla- vik, þannig að kærum og öðrum löggæzluverkefnum verði sinnt með óbreyttum hætti.” Þessi skipan hélzt óbreytt til 4. júni 1975, þ.e. i nærri 3 mánuði eftir að hið margumrædda bréf ráðuneytisins var skrifað. Hitt málið, sem Vilmundur Gylfason fjallar um i umræddri Visisgrein, er rannsókn á ýmis- konar óreiðu i sambandi við vin- kaup veitingahússins Klúbbsins, á árinu 1972. Enn segir: .ilimrædd rannsókn hófst i saka- dómi Reykjavikur hinn 14. októ- ber 1972 og var veitingahúsinu lokað þann dag með ákvörðun lögreglustjóra, með skirskotun til heimildar i 2. málsgr. 14. gr. áfengislaga nr. 82/1969, sem til- kynnt var veitingamanni af full- trúa lögreglustjóra i réttarhaldi i sakadómi Reykjavikur að kvöldi þess dags. Hinn 18. s.m. ritaði veitinga- maðurinn dómsmálaráðuneytinu bréf, þar sem hann skýtur um- ræddri ákvörðun til dómsmála- ráðherra samkvæmt heimild i sömu lagagrein. Atvikaröð er lýst i skýrustu máli i minnisblaði þess starfs- manns, sem um þetta mái fjallaði i ráðuneytinu, svo sem öll mál er varða vinveitingahús, skrifstofu- stjóra ráðuneytisins, en minnis- blaðið, sem er dagsett 20. októ- ber, hljóðar svo: „19. október 1972. Ræddi við lögreglustjóra um vinveitingabannið i Lækjarteig 2. Taldi hann rétt að halda banninu áfram á meðan rannsóknar- dómari teldi þess þörf. Rann- sóknardómari teldi ekkert gefa tilefni til að falla frá banninu. á). október 1972 Ræddi við Þóri Oddsson, fulltrúa i sakadómi. Taldi málið alfarið vera ákvörðun lögreglu- stjóra. Hallvaröur Einvarðsson, aðalfulltrúi saksóknara, hefði komið upplýsingum um málið til lögreglustjóra, þegar rannsókn var að hefjast. Hefðu menn taliö algjörlega óviðeigandi, að starfsemin héldi áfram. Rannsóknin snýst um áfengis- innkaup, sem fóru fram frá áfengisútsölu utan afgreiðslu- skattframtölum hefur ekki verið skilað, launamiðum o.fl. Ekki taldi hann bannið skipta lengur máli fyrir rannsóknina, en fannst þó rétt að láta það standa áfram. Ekki taldi hann unnt að gera það á grundvelli réttarfarslaga, a.m.k. ekki nú. Hallvarður Einvarðsson taldi rétt, að bannið stæði meðan meginþungi rannsóknarinnar færi fram, a.m.k. fram i næstu viku. Athugun fór fram á tilgangi 14. gr. áfengislaga. Greinargerð með áfengislagafrumvarpi 1952 segir ekkert um þetta ákvæði, en til- svarandi ákvæði var ekki i eldri áfengislögum, eingöngu i reglu- gerð, sbr. 17. gr. reglugerðar nr. 126/1945, en þar er við það miðað, að ástand skapist, þannig að sér- stök hætta geti stafað af vinnautn manna. Að svo búnu ræddiég málið við ráðherra, og vorum við sammála um að lita bæri svo á, að ákvæðið ætti ekki við hér, a.m.k. ekki lengur. Tilvist ákvæðisins i áfengislögum væri fyrst og fremst með tilliti til öryggis- sjónarmiða. Almenn réttarfars- lög yrðu að ákvarða, hvort veitingar yrðu bannaðar fram- vegis. Þvi skyldi bannið fellt niður. Ákvæði 12. gr. áfengislaga um leyfissviptingu geta hins veg- ar komið til skoðunar, þegar niðurstaða rannsóknar liggur fyrir. Baldur Möller var þessu al- gjörlega sammála. Þetta tilkynnti ég lögreglu- stjóra, sem kvaðst ósáttur við, að starfsemin héldi áfram, en kvaðst þó mundu tilkynna niðurfellingu sjálfur, án fyrirskipunar ráðu- neytisins.” Svo sem fram kemur i minnis- blaðinu voru þeir aðilar, sem að ákvörðun lokunarinnar höfðu staðið, þeirrar skoðunar, að bannið ætti að standa lengur, en rannsóknardómarinn tók fram, að hann teldi lokunina ekki lengur skiptamáli fyrir rannsóknina. — Með þessu er fullkomlega fallinn málatilbúnaður Vilmundar. sem byggist á þvi, að ráðherra hafi, með hneykslanlegum afskiptum sinum, spillt rannsókn málsins Niðurfelling lokunarinnar hafði, samkvæmt yfirlýsingu rannsóknardómarans sjálfs engin áhrif á rannsóknina. Ekki sýnist fært að sleppa, að lokum, að skýra frá þvi, að i grein Vilmundar er i tvigang skrökvað, algerlega, upp orðum, sem hann segir þáverandi saksóknara rikisins, Valdemar Stefánsson, heitinn, hafa viðhaft, m.a. i bréfi til ráðuneytisins. Ummæli Vilmundar eru þessi: I. „Ekki ómerkari maður en Valdemar Stefánsson fyrrum rikissaksóknari, mótmælti að- gerðum dómsmálaráðherra kröftuglega, en allt kom fyrir ekki.” II. „Valdemar Stefánsson, rikis- saksóknari mótm. og sagði i bréfi að domsmálaráðherra hefði með þessu gengið gegn réttarhagsmunum i landinu, hvorki meira né minna. Það þurfti eitthvað til að jafn stilltur og yfirvegaður maður og Valdemar Stefánsson léti slikt frá sér fara i bréfi. Þetta sagði hann samt. Með þessu drýgði óiafur Jöhannesson athæfi. sem Framhald á 21. siðu. Lesandi sendi okkur svofellda vísu: VEIÐIVÍSA Þótt verðir laganna fari fetið, þeir hreppa oft fisk í hyl. En veiðistjórinn oft vill þessa getu teppa og vel sér til að ákaflýður um önnur met skuli keppa svona um það bil. Allir stórlaxar enda við netið sleppa.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.