Þjóðviljinn - 01.02.1976, Page 21
Sunnudagur 1. fcbrúar 197«. ÞJÓDVILJINN — SIÐA 21
Sköpun
jarðarinnar
— Nú skulum viö láta þá vaða reyk!
SAHARA
— Þetta er ágætt... haldið þið bara áfrant að leika ykk-
ur i sandkassanum!
Dómsmálaráðu-
neytið svarar
Framhald af bls. 17.
varla mun fyrnast i islenzkri
réttarsögu. En hversu lengi
verður öðrum alþingismönn-
um þolað að þegja? Hversu
lengi verður þetta látið liggja i
þagnargildi? Alþingi verður
samsekara með hverjum
deginum sem liður.”
Það eina sem ráðuneytinu barst
frá saksóknara rikisins Valdemar
heitnum Stefánssyni um þetta
mál var svohljóðandi bréf dags.
23. október 1972:
,,Hér með sendi ég hinu háa
dómsmálaráðuneyti til athug-
unar afrit af skýrslu og umsögn
Hallvarðs Einvarðssona.r, aðal-
fulltrúa, er hann hefir lagt fyrir
mig um mál það, er þar um
ræðir.”
Það fer heldur ekki á milli mála
að munnlega fjallaði Valdemar
heitinn heldur ekki um málið, við
neinn starfsmann ráðuneytisins
né ráðherra og hefði Valdemar
Stefánsson þó sizt skort hrein-
lyndi til þess, ef honum hefði þótt
við eiga, en ekki mundi öðrum
ljósara en honum, að með þvi
hefði verið teygst inn á valdssviö
ráðherra, sem honum hefði verið
viðs fjarri skapi.
Hins var áður getið, hver var
skoðun aðalfulltrúa saksóknara á
þessu efni, þótt ráðuneytið væri
ekki sammála þeim mæta manni
og þeim öðrum sem vildu láta
lokunina standa. Enginn þeirra
ber þó i þvi sambandi fram neina
túlkun á þvi lagaákvæði, sem um
var fjallað i lokunarákvörðunni.
Er þar að visu nokkuð langt að
rekja og vandrakið, allt aftur til
ársins 1935, að nokkru. Svo löng
er þessi greinargerð orðin, að rétt
þykir að láta þann þátt biða um
sinn. Þó má geta þess, til fróð-
leiks, að núverandi dómsmála-
ráðherra var einn af höfundum og
annar tveggja lögfræðinga er
sömdu áfengislagafrumvarpið,
sem varð að lögum 1954 og núver-
andi ráðuneytisstjóri samdi þá,
sem fulltrúi i dómsmálaráðu-
neytinu, undir handleiðslu þáver-
andi dómsmálaráðherra, reglu-
gerð um sölu og veitingar áfengis.
Ákvæðin um lokun vinveitinga-
húsa i lögunum og reglugerðinni
eru óbreytt frá setningu þeirra
1954, og hafa aldrei verið túlkuð
með öðrum hætti, hvorki i með-
ferð málsins á Alþingi né i ráðu-
neytinu en að er vikið i áður-
greindu minnisblaði.
Spurningar
Framhald af bls. 16
ur gervisafi er engu betri en gos-
drykkir (i flestum tilf. amk) og
sætar kökur eru ekkert betri en
vejulegt sælgæti. Avextir i dósum
eru lika mjög sætir og litið eftir af
vitaminum i þeim eftir margra
mánaða veru i niðursuðudósJBest
er að lorðast hvitan sykur i mat
frá upphafi, þá eru siður likur á
að barnið verði mjög sólgið i
sætindi. En ekki er þó ráðlegt að
fela sætindi algerlega fyrir barn-
inu, þvi þá er eins vist að það
verði gersamlega sjúkt i þau.
9. Er fita einnig hættuleg
fyrir börn?
Mettaðar fitur eru óhollar fyrir
alla, þótt mun minni hætta sé á
æðakölkun hjá börnum en
fullorðnum. Steiktar kartöflur,
fita i sósum, oliusósur, smjör og
rjómi — allt þetta þurfum við að
borða með varúð. Steikið i sem
minnstri feiti og þá helst i jurta-
feiti (oliu). Borðið magran ost og
gjarnan undanrennu, enda þótt
islenska mjólkin innihaldi minna
af mettaðri fitu en algengt er um
mjólk.
10. Eiga börn að borða
sjálf?
Já, strax og þau sýna vilja til
þess. Og þau eiga helst að borða
um leið og aðrir fjölskyldumeð-
limir. Ef þau eru þreytt er ágætl
að koma þeim af stað með
matinn.en liester að þau byrji að
nota skeiðina strax um I árs
aldur. ()g munið að gera litið úr
borðhaldinu að öðru leyti.
horðsiðir og matarlyst verða
siður vandamál el foreldrar gera
sér rkki allt of mikla rellu út al'
þvi.
Þess vegna er
framkvæmdum
haldið áfram
Framhald af 20. siðu.
tvær verulega goöar holur eða
þrjár i meðallagi góðar. Jafnvel
gæti nægt.ef ein hola fengist á við
þá, sem boruð var á sl. hausti en
Orkustofnun missti tök á, vegna
þess að fullkomnasti tæknibúnað-
ur var þá ekki kominn til lands-
ins.
Það tekur rúman mánuð að
bora hverja holu, svo að það eina,
sem virðist geta komið i veg fyrir
að náð verði a.m.k. þessu marki
eru áframhaldandi náttúruham-
farir á'Kröflusvæðinu eða einhver
önnur óvenjuleg og ófyrirséð ó-
höpp. Grein Vilmundar er hins
vegar öll bvggð á þvi, að annað
hvort náist 30 mw eða allur flýtir-
inn sé til ónýtis. Ekki skal ég um
það dæma, hvort þessi stóríellda
blekking Vilmundar stafar af ó-
heiðarleika hans eða landskunn-
um flumbrugangi, - nema hvort
tveggja sé.
Nýtt skipulag
Ég hef rætt hér eingöngu um
Kröfluvirkjun og læt það biða
betri tima, að ræða um aðrar
hliðar raforkumálanna. Það sem
ég hef hér sagt um Kröfluvirkjun
og Sigölduvirkjun er um leið rök-
stuðningur fyrir þeirri skoðun
minni, að skipulag raforkumála
þurfi að breytast i grundvallarat-
riðum. Byggðalinan og væntanleg
stofnlfna til Austurlands og Vest-
fjarða gerir okkur kleift að ræða
virkjanamálin útfrá samanlagðri
orkuþörf allra landsmanna. Að
sjáifsögðu hlýtur það að leiða til
þess, að öll mciri háttar orkuöflun
á landinu verði á einni hendi og
hjá einu orkuöflunarfyrirtæki.
Það er lfka eina leiðin til að ná þvi
marki, að orkan verði seld á
sama verði um allt land. Kröflu-
virkjun er ekki hafin yfir gagn-
rýni, enda þótt i þessari grein,
hafi ég leitast við að sýna fram á,
að allt það mikla nöldur, seni
fram hefur komið uin fram-
kvæmd þessarar virkjunar, sé á
litlum rökum reist. En hitt er ég
sannfærður um, að með einfald-
ari vfirstjórn orkumála verður
miklu auðveldara að samræma
orkuframkvæmdir að þvi marki,
að orkan sé sem ódýrust og alls
staðar næg.
Auglýsingasíminn
er 17500
Danski rithöfundurinn
DAN TURÉLL
kynnir popptónlist i bókasafni Norræna hússins sunnudag-
inn 1. febrúar kl. 17:00
Verið velkomin.
NORRÆNA
HÚSIO
Útboö
Leiguibúðanefnd Stykkishólmshrepps
auglýsir hér með eftir tilboðum i byggingu
8 ibúða i fjölbýlishúsi að Skúlagötu 9
Stykkishólmi. útboðsgögn eru afhent á
skrifstofu sveitarstjóra Stykkishólms-
hrepps Aðalgötu 10 Stykkishólmi gegn
10,000 króna skilatryggingu. Tilboð verða
opnuð á sama stað 1. mars 1976 klukkan
14,00.
Leiguibúðanefnd Stykkishólmshrepps
Þökkunt innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát
og jarðaför mannsins mins, föður okkar, tengdaföður og
afa
Brynjúlfs Eirikssonar,
Brúarlandi Mýrum
llalldóra Guðbrandsdóttir
Eirikur Brynjúlfsson
llelga Brynjúlfsdóttir
Ólöf Brynjúlfsdóttir
Ragnheiður Brynjúlfsdóttir
Halldór Brynjúlfsson .
Guðbrandur Brynjúlfsson
Guðmundur Brynjúlfsson
Brynjúlfur Brynjúlfsson
Borge Jónsson
Páll Sigurbergsson
Haukur Sigurbergsson
Ásta Sigurðardóttir
Snjólaug Guðmundsdóttir
Asdis Baldvinsdóttir
og barnabörn
Útför
Ágústs Jóhaimessonar,
áður til heimilis að Grettisgötu 46, verður gerð frá Foss-
vogskirkju mánudaginn 2. febr. 197«. kl. 13.3«.
Vandamcnn.