Þjóðviljinn - 17.02.1976, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 17.02.1976, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 17. febrúar 1976 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 Þingsályktunartillaga komin fram á Alþingi Bann við kjarnorkuvopnum á Islandi Tveir þingmenn, þau Svava Jakobsdóttir og Magnús Torfi Ólafsson, hafa lagtfram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um bann við geymslu kjarnorku- vopna á islensku yfirráðasvæði og lendingu flugvéla sem flytja kjarnorkuvopn. 1 tillögunni er kveðiö á um að Alþingi feli rikis- stjórninni að undirbúa löggjöf varðandi þessi atriði og að islend- ingar annist eftirlit til að tryggja að lögin verði virt. I greinargerð með þingsálykt- unartillögunni segir m.a. að allir islendingar muni vera sammála um að hér skuli ekki vera kjarn- orkuvopn enda slikt stórhættulegt fyrir lif og öryggi þjóðarinnar. Nýlegar umræður um hugsanleg kjarnorkuvopn á Islandi sýni hversu berskjaldaðir islendingar standi gagnvart hernaðarumsvif- um bandarikjamanna hér á landi. Bandarisk yfirvöld neiti að gefa upp hvort hér séu kjarnorkuvopn eða ekki og islenskir ráðamenn eigi ekki annars kost en flytja yfirlýsingar sem þeir hafa sjálfir engin tök á að sannreyna að séu réttar. bá segir i greinargerðinni að eftirlitmeð þvi að bann við kjarn- orkuvopnum verði virt þurfi sér- menntaðir islendingar að annast sem hefðu i þvi skyni allan nauð- synlegan aðgang að herstöðinni. —GFr Geymsla kjarnorkuvopna I Kefla- vík byði heim kjarnorkuárás I striði. Listi fráfarandi stjórnar tapaði Iðjukosningunum Bjarni Jakobsson formaður Iðju Reykjavik Kosningin i Iðju félagi verk- miðjufólks I Reykjavik fór þannig að A-Iisti, listi Bjarna Jakobssonar og Guðmundar Þ. Jónssonar hlaut 594 atkvæði, en B-listinn 356 atkvæði. A kjör- Kópavogsbær tekur milj. króna erlent lán Hluti þess fer i húsakaup á miðbæjarsvæðinu 50 Bæjarstjórnarmeirihluti i Kópavogitók þá ákvörðun á fundi 13. febrúar aö taka erlent lán að upphæð 50 mlljónir króna með fullri gengisáhættu. Minnihluti bæjarstjórnar lagði til að ákvörð- un yröi frestað og kannað betur við umræður um fjárhagsáætlun hvort hyggilegt væri að ráðast i lántökuna og þá einnig i hvað íslenska stjórnin: íhugar við- urkenn- ingu á MPLA Nú eru ríkisstjórnir Norður- landa aö búa sig undir að viöurkenna stjórn MPLA i Alþýöulýðveldinu Angólu. Svi- ar hafa þegar ákveðið að gera það i vikunni, spurst hefur að finnar séu i þann veginn að gera slikt hið sama. Danir hafa lýst þvi yfir, að þeir muni ekki biöa þess að önnur aðildarriki EBE viður- kenni stjórn MPLA, heldur hafa um þaö samráð við hin Noröurlöndin. Þá kvaðst norska stjórnin hafa rætt þetta mál i gær og hafi verið ákveðið aö biða átekta og hafa samráð við Norðurlöndin. Pétur Thorsteinsson ráðu- neytisstjóri i utanrikisráðu- neytinu sagði i viðtali við blað- ið að þetta mál hafi verið rætt i ráðneytinu i gær og er haft um það samráð við hin Norður- löndin. Pétur sagði að sviarnir virtust ákafastir i að viður- kenna stjórn MPLA, en spurn- ingin væri sú hvort öll Norður- löndin ættu að gera það sam- timis. — Þaö er regla islensku stjórnarinnar að viðurkenna enga stjórn fyrr en ljóst er að i hún ræður öllu landinu sem hún stjórnar, sagði Pétur. Hann sagði að liklegt væri að islenska stjórnin myndi fylgja hinum Noröurlöndunum eftir i þessu máli en vildi ekki full- yrða neitt i þvi sambandi þar sem enn hefði ekki gefist timi til að bera þetta mál undir ráðherra. — ÞH réttast væri að peningarnir rynnu. Væntanlega hefur verið sótt um lániö á þeim forsendum aö féð yrði notað til gatnagerðar en fengist hefur staðfest að veru- legur hluti þess mun renna i kaup á húsnæði fyrir tómstundastarf- semi. 1 tilefni af þessari lánssam- þykkt var haft samband við Ólaf Jónsson, bæjarfulltrúa Alþýðu- bandalagsins i Kópavogi. Hann sagði þetta hafa verið lengi i bi- gerö hjá meirihluíanum. Ljóst væri að féð yrði notað að hluta til kaupa á kjallara og hæð I húsi á rniðbæjarsvæðinu, sern nú er i srniðurn. Þar væri fyrirhugað að korna upp aðstöðu fyrir tórn- stundastarf og þá einkum i sarn- bandi við dagvistun og föndur- vinnu fyrir aldraða. — Það lá fyrir siðasta bæjar- st jórnarfundi tillaga um að heimila bæjarstjóra undirritun lánssamnings, sagði Ólafur. Rök okkar fyrir þvi að athuga máliö betur voru eftirfarandi: t fyrsta lagi hafði verið samþykkt að næsta fundi á undan þessum að taka á leigu til fimm ára húsnæði undir sömu starf- semi. Þaö húsnæði er i eigu Stefnis Helgasonar bæjarfulltrúa sjálfstæðisflokksins. Þótti okkur sem erum i minnihluta að einkennilega væri að málum staðið, er ekki liða nema nokkrir dagar frá undirritun leigusamn- ings þar til samþykkt er að kaupa fyrir mikið fé annað húsnæði fyrir sömu starfsemi. 1 öðru lagi töldum við brýnt að húsnæði i eigu bæjarins á mið- bæjarsvæðinu yröi, ef eitthvað yrði keypt, notað undir fleira en tómstundastarfsemi eingöngu og vildum láta kanna möguleika á þvi, aö Heilsuverndarstöð Kópa- vogs og læknastofur fengju þar einnig inni. Slik starfsemi gæti hentað mjög vel undir sama þaki og aðstaða fyrir aldrað fólk, sem gæti þá hugsanlega fengið ýmsa þjónustu i gæslunnar. samþykkt af janúarmánuði færi fram, en ákvörðun, húsakynnum heilsu- Það hafði verið bæjarstjórninni i að slik könnum þarna var tekin sem gerir ekki ráð fyrir sameiningu þessara tveggja þátta. v I þriðja lagi verður fjárhags- áætlun til umræðu á næsta fundi bæjarstjórnar. Okkur fannst óeölilegt að taka ákvörðun um svona mikla lántöku áður en aðrir þættir i fjárhagsáætlun höföu ver- ið skoðaðir i samhengi. A þessar röksemdir okkar var hins vegar ekki hlustað og ákvörðunin tekin i snarhasti. Umræður urðu þó allharðar og deildum við i minnihlutanum fast á þetta ráðleysi og þau vinnu- brögð, að láta með verulegum til- kostnaði innrétta leiguhúsnæöi tii fimm ára á sama tima og samþykkt er að kaupa aðstöðu annars staðar, sagði Ólafur að lokum. —gsp skrá voru 2297, atkvæði greiddu '963. B-listinn sem undir varð i kosningunni var skipaður frá- farandi formanni i efsta sætið og var sá listi borinn fram af - stjórn og trúnaðarmannaráði. Er langt um liðið siðan listi stjórnar og trúnaðarráðs hefur tapað kosningu i verkalýðsfé- lagi. — Þessi úrslit voru mjög i samræmi við það sem við höfð- um gert ráð fyrir, sagði Guðmúndur Þ. Jónsson, vara- formannsefni A-listans, er Þjóð- viljinn ræddi við hann i gær. Viö vorum nokkuð sigurvissir allan timann, sagði Guðmundur. Guðmundur sagði að með þessum úrslitum hefði félagið fengið betri og starfhæfari stjórn eh áður. í stjórninni væri nýtt og áhugasamt fólk, sem hefði sýnt vilja til þess að efla félagið. Fyrsta verkefni okkar nú er verkfallið sem hefst á morgun, þriðjudag. Við verðum með verkfallsvaktir á öllum vinnu- stöðum eins og veriö hefur. Okkar meginviðfangsefni nú er að leiða verkfallið til lykta. 1 hinni nýju stjórn Iöju eru: Bjarni Jakobsson, formaður, Guðmundur Þ. Jónsson, vara- formaður, Jón Björnsson. Gunnlaugur Einarsson, Sigriður Skarphéðinsdóttir, Guðmundur Guðni Guðmundsson og Unnur Ingvarsdóttir. t varastjórn eru Asdis Guðmundsdóttir, Magnús Guðjónsson og Ólafur Þor- björnsson. Rannsókn að hefjast á meintu misferli Sigfinns Sigurðssonar Bæjarfógeti vék sæti og bað um setudómara Rannsókn á meintum afbrotum fyrrverandi bæjarstjóra i Vest- mannaeyjum, Sigfinns Sigurðs- sonar, er enn ekki hafin, þar eð bæjarfógeti vék að eigin ósk úr sæti og bað urn að dómsmála- ráðuneytið skipaði setudómara i málið. Taldi fógeti sig hafa flækst um of i málið er hann reyndi án árangurs að leita sátta hjá deilu- aðilum. Að sögn Þórðar Björnssonar rikissaksóknara sendu fjórir bæjarfuiltrúar minnihlutans til hans bréf fyrir allnokkru og báöu um rannsókn á tilteknum meint- urn afbrotum Sigfinns. Saksókn- ari fól bæjarfógetanum i Vest- mannaeyjum rannsóknina i bréfi dagsettu 30. jan. Sagðist hann siðan hafa lesið það i blöðum tveimur dögum siðar að Sigfinni hefði veriö sagt upp störfum vegna vanskila á sarnskotafé, en það var þó ekkert minnst i bréfi áðurnefndra fjögurra bæjarfull- trúa. Þórður sagði að fógeti hefði strax óskað eftir þvi að vikja úr sæti og fá setudómara i sinn stað til þess að annast rannsóknina. Þjv. hafði i gær samband við Kristján Torfason bæjarfógeta. Hann sagðist hafa reynt án árangurs að leita sátta og við það flækst nægilega inn i málið til þess að telja óvarlegt aö taka aö sér umbeðna dómsrannsókn. Sagðist hann hafa vikið úr sæti 2. febrúar og sent bréf þar að lút- andi skömmu siðar. Hjá Ólafi Stefánssyni i dóms- málaráðuneytinu fengust þær upplýsingar að enn hefði ekki verið skipaður setudómari. Sagði ólafur að beiðnin lægi hjá sér á skrifborðinu og yrði áreiðanlega sinnt fljótlega. Ekki sagðist hann hafa kannað hvort hægt væri að finna mann i starfið meðal vest- mannaeyinga. Um hugsanlegan hraða rannsóknarinnar sagðist hann ekkert geta sagt, slikt væri ávallt mismunandi. Er niður- stöður dómsrannsóknar liggja fyrir er það hlutverk Saksóknara rikisins að taka ákvörðun urn, hvort fyrrverandi bæjarstjóri verður sóttur til saka fyrir lög- brot. Samband sveitarfélaga i Suður- landi hefur enn ekki beðið um opinbera rannsókn á störfum Sig- finns i þess þágu, en þar mun hann einnig hafa verið staðinn að óeðlilegum fjármagnstilfæring- um. Greinargerð I greinargerð frá bæjarstjórn Vestmannaeyja vegna fyrirvara- lausrar uppsagnar Sigfinns Sigurðssonar segir rn.a. að ástæðan hafi verið sú, að er Sig- finnur var starfsmaður Sambands sveitarfélaga á Suður- landi hafi hann tekið við sam- skotafé frá tuttuguogtveirnur sveitafélögum, sem send voru vegna jarðeldanna. Lagði hann féö i banka á sérstakan reikning. Athugun á endanlegum skilum gjafaf jár i árslok 1975 leiddi i ljós. að enn var óskilað af gjafafjár- reikningi kr. 476.734.—. Þremur dögum eftir að ákvörðunin um uppsögn Sigfinns var tekin lagði hann upphæðina ásamt vöxtum inn á reikninginn. Telur bæjar- stjórnin þó, að ekki sé þar um fullnaðaruppgjör að ræða, þar eð vextir séu minni en annars hefðu fengist. Gefið er i skyn i greinargerð- inni að bæjarstjórn eigi margt annaö óuppgert við Sigfinn eftir starf hans i þágu bæjarins. —gsp

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.