Þjóðviljinn - 17.02.1976, Qupperneq 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 17. febrúar 1976
FH-ingar með aðra
höndina á bikarnum
24:16 sigur yfir Þrótti — vinni FH Fram nk. sunnudag er liðið íslandsmeistari
FH vantar nú aðeins 2
stig til að hreppa islands-
meistaratitilinn, þarf að-
eins að sigra Fram í Síð-
asta leik sínum í mótinu
nk. sunnudag og þá er
titillinn i höfn, eftir að FH
sigraði Þrótt með yfir-
burðum, 24:16 með dyggri
aðstoð annars dómara
leiksins, Hannesar Þ.
Sigurðssonar, sem olli
hneyksli með framkomu
sinni i leiknum. Það er
vægt tekið til orða að segja
að hann hafi verið heima-
dómari hann gekk lengra
en það og að það skuli eiga
að senda mann sem leyfir
sér slíka framkomu á
ólympiuleika nær engri
átt. Hitt er svo annað mál,
að FH var betri aðilinn í
leiknum og hefði sjálfsagt
sigrað Þrótt með hlutlaus-
um dómara en varla svona
stórt.
Þróttur náði að halda i við FH
framan af leiknum, jafnt var 4:4
Staðan í
I. deild
Staðan i 1. deild að loknum
tveimur leikjum um helgina:
Grótta—Haukar 18:17
FH—Þróttur 24:16
FH 13 9 0 4 289:251 18
Valur 12 7 1 4 236:212 15
Fram 12 6 2 4 204:201 14
Víkingur 12 7 0 5 249:243 14
Haukar 13 5 2 6 242:238 12
Grótta 13 5 0 7 237:256 10
Þróttur 13 4 2 7 246:262 10
Armann 12 3 1 8 187:250 7
Markhæstu menn:
Friðrik Friðrikss, Þr. 83/18
Viðar Simonarson FH 75/27
Pálmi Pálmason Fram 71/21
Páll Björgvinss. Vik. 68/23
Hörður Sigmarss., Hauk. 65/21
Geir Hallsteinss. FH 63/5
Fram
sigraði
FH 10:8
Fram heldur enn i vonina
um að sigra i 1. deild kvenna
eftiraðhafasigraðFH 10:8 í 1.
deiidarkeppni kvenna f hand-
knattleik sl. sunnudag. Fram
hefur tapað 3 stigum en Valur
tveimur, þannig að leikur
þessara tveggja liða í siðari
umferö mótsins verður hreinn
úrslitaleikur, að öðru leyti en
þvi að Val dugar jafntefli til
sigurs i mótinu.
og 6:6 en i leikhléi hafði FH yfir
11:8. Og i siðari hálfleik breikkaði
bilið jafnt og þétt, enda var sama
hversu litið þróttarar komu við
FH-inga i vörninni, annað hvort
dæmdi Hannes aukakast eða viti
af minnsta tilefni, tók jafnvel
völdin af Karli meðdómara sinum
til að geta hyglað vinum sínum.
Lokatölurnar urðu eins og áður
segir 26:16 sigur FH en þá höfðu
þróttarar löngu gefist upp fyrir
ofureflinu, enda var til litils fyrir
þá að reyna að berjast.
Ekki verður sagt að það sé mik-
ill glans yfir FH-liðinu, en það er
samt skársta liðið i 1. deild eins
og er, enda hafa liðin hvert á fætur
öðru fallið niður fyrir meðai-
mennskuna i siðari hluta mótsins.
Þeir Geir, Viðar og Birgir Finn-
bogason voru menn dagsins hjá
FH sem fyrr og það eru fyrst og
fremst þessir mjög svo leik-
reyndu menn sem leik eftir ieik
hafa lyft liðinu nógu hátt að dugað
hefur gegn hinum slöku andstæð-
ingum þeirra.
Hjá Þrótti voru það þeir
Halldór Bragason og Bjarni Jóns-
son sem báru af. Friðrik Frið-
riksson, skoraði að visu 8 mörk en
hann gerði sig sekan um margar
skyssur meðan von var hjá Þrótti
að halda i við FH Tölfræðilega er
Þróttur ekki sloppinn úr fall-
hættu, en varla er hættan meiri en
tölfræðileg.
Mörk FH: Viðar 7, Geir 7, Guð-
mundur Arni 3, Árni 2, Þórarinn 2
Guðmundur Sv. 2, og Sæmundur
1.
Mörk Þróttar: Friðrik 8,
Halldór 3, Bjarni 2, Trausti,
Gunnar og Sveinlaugur 1 mark
hver.
— S.dór.
Friörik Friðriksson, Þrótti, verðandi markakóngur 1. deildar skorar hér eitt marka sinna gegn FH.
Grótta sloppin?
eftir 18:17 sigur yfir Haukum og mjög skemmtilegum leik
Allar lfkur eru á þvi að Grótta
sé sloppin úr fallhættunni eftir
18:17 sigur yfir Haukum sl.
sunnudag. Liðið er nú komið með
9 stig, Armann er aðeins með 6
stig og verður að vinna báða leik-
ina sem liðið á eftir og Grótta að
tapa síöasta leik sinum til þess að
Grótta falli. Þaö er harla óliklegt
að slikt gerist. Það er hinsvegar
næsta lygilegt hve miklum fram-
förum Gróttu-liðið hefur tekið síð-
ustu vikurnar og vitna 3 sigur-
leikir f röð um það. Og þessir
sigrar hafa ekki unnist yfir nein-
um smáliöum, Vfkingi, Val og
Haukum. Sá maður er efalaust
ekki til sem heföi spáð þessu
fyrirfram.
Leikur Gróttu og Hauka var
mjög spennandi og skemmtilegur
á að horfa. Hann var allan timann
frekar jafn. Grótta hafði þó alltaf
frumkvæðið, en náði aldrei meira
en tveggja marka forystu og oft
var staðan jöfn. Siðustu 10 minút-
ur leiksins voru einstaklega
tvisýnar. Jafnt var 15:15 þegar 10
min. voru eftir. Grótta komst yfir
16:15 en Haukar jöfnuðu og
þannig gekk það þar til Haukar
jöfnuðu 17:17 þegar 30 sek. voru
eftir. Þegar svo aðeins 10 sek,
voru eftir var dæmt aukakast á
Hauka, Björn Pétursson, hugðist
skjóta beint, Haukarnir hnöppuðu
sér saman i varnarvegg, gleymdu
Gunnari Lúðvikssyni á linunni og
til hans sendi Björn boltann og
Gunnar skoraði sigurmarkið að-
eins 4 sek, fyrir leikslok. Sann-
gjarn sigur betra liðsins, en
naumur eins og vera bar miðað
við gang leiksins.
Þeir Arni Indriðason og Guð-
mundur Ingimundarson mark-
vörður eru menn Gróttu-liðsins,
þeir eru I algerum sérflokki og
það er fyrst og fremst þeim að
þakka hvað liðið hefur lyft sér
upp að undanförnu. Einnig hefur
Magnús Sigurðsson tekið miklum
framförum og skorar mikið.
Hjá Haukum voru þaö þeir
Hörður, Elias og Stefán Jónsson
sem mest bar á, en Hauka-liðið
virðist dottið niður i meðal-
mennskuna aftur eftir góðan kipp
i byrjun siðari umferðarinnar.
Mörk Gróttu: Hörður Már 7,
Magnús 4, Arni 3, Gunnar 2, Björn
Mörk Hauka: Hörður 6, Jón 4,
Guðmundur 3, Elias, Svavar,’
Stefán Þorgeir, og Ingimar 1
mark hver. _ s.dór.
Úrslit frá
Innsbruck
Sovétrikin báru sigur úr
býtum á vetrar ÓL i Inns-
bruck, eins og búist var við
fyrirfram. Verðlaunin á
leikunum féllu þannig:
gull silfur brons
Sovétrikin 13 6 8
A-Þýskaland 7 5 7
Bandarikin 3 3 4
Noregur 3 3 1
V-Þýskaland 2 5 3
Finnland 2 4 1
Austurriki 2 2 2
Sviss 1.3 1
Holiand 12 3
ítalia 1 2 1
Kanada 1 1 1
Bretland 10 0
Tékkóslóvak. 0 1 0
Sviþjóð 0 0 2
Lichtenstein 0 0 2
Frakkland 0 0 1
Og i hinni óopinberu stiga
keppni urðu úrslit þessi, en
þess skal getið að gefið er stig
fyrir 1. til 6. mann .
Sovétrikin 192 st.
A-Þýskal. 135 st.
USA 73 st.
V-Þýskal. 71 st.
Austurriki 52 st.
Finnland 52 st.
Noregur 51 st.
Sviss 42 st.
Holland 32,5 st.
italia 29 st.
Sviþjóð 24 st.
Kanada 23 st.
Frakkland 10 st.
Tékkóslóvak. 10 st.
Lichtenstein 8 st.
Bretland 7 st.
Ungverjal. 2 st.
Ástralia 1 st.
Pólland 1 st.
^ ^^ N.
Vetrar ÓL i Innsbruck
Austurriki lauk sl. sunnudag.
Þóttu leikarnir takast mjög
vel, allt skipulag þeirra var
talið til fyrirmyndar og menn
fara þaðan ánægðir heim. Ur-
slit isiðustu greinum leikanna
urðu sem hér segir.
1. Ivar Formo,
Noregi 2:37,30,05
2. Gert-Diet Klause,
A-Þýskal. 2:38,13,21
3. Benny Södergren,
Sviþjóð 2:39,39,21
4. Ivan Garanin,
Sovétr. 2:40,38,94
5. Gerhard Grimmer,
A-Þýskaland. 2:41,15,46
6. Per Knut Aland,
Noregi 2:41,18,06
7. Pal Tyldum,
Norcgi 2:42,21,86
8. Tommy Limby,
Sviþjóð ' 2:42,43,58
9. Juhani Repo
Finnlandi 2:42,54,89
10. Arto Kovisto,
Finnlandi 2:43,44,79
2. Dianne de Leuw,
Hollandi 190,24
Listskautahlaup
ívenna:
L Dorothy Hamill, USA 193,80
2. Diannede Leuw,
Holl. 190,24
Framhald á 14. siðu