Þjóðviljinn - 06.04.1976, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 06.04.1976, Blaðsíða 1
DJOBVIUINN Þriðjudagur 6. april 1976—41. árg. — 77. tbl. Bretar œtla að flytja sig 39 breskir togarar voru á Hvalbakssvæðinu i gær. Land- helgisgæslan hafði komist að þvi, að skipstjórar 15 þeirra hygðustum miðnætti leggja af stað þaðan á Vestfjarðamið. Tveir teknir fyrir smygl Sænskir tollverðir fundu hátt i 300 flöskur af 75% vodka i islenska skipinu Sögu sem lá iKungsholm. Tveir skipverjar eru nú i gæsluvarðhaldi i Ude- valla i Sviþjóð vegna málsins. EITT VARÐ- Pólitísk átök í Kína: ÓEffiÐIR í PEKING 10 bátar teknir við netaveiðar Borgar sig að veiða í landhelgi? Peking 5/4 reuter ntb — Hin póli- tiska barátta innan Kinverska kom múnistaflokksins braust i dag út i götuóeirðum á Torgi hins himneska friðar i Peking. Þar söfnuðust tugir þúsunda stuðn- ingsmanna Teng Hsiao-ping fyrr- um forsætisráðherra saman og kveiktu m.a. i húsi og nokkrum bílum. Astæða óeirðanna, sem sagðar eru þær mestu siðan i menningar- byltingunni fyrir 10 árum, virðist hafa verið sú að yfirvöld létu i gærkvöld fjarlægja blómsveiga sem lagðir höfðu verið á torgið til minningar um Sjú en-læ hinn ný- látna forsætisráðherra. Stuðning- ur við Sjú er nú talinn jafngildur stuðningi við Teng sem hefur ver- ið harðlega gagnrýndur að und- anförnu af leiðandi mönnum i flokknum, þ. á m. Maó formanni. Þegar þetta spurðist tók fólk að safnast saman á torginu fyrir framan Höll alþýðunnar. Voru embættismenn úthrópaðir sam- timis þvi sem fólk endurnýjaði blómsveigana. Hélt fólkið á lofti myndum af Sjú En-læ. Eftir nokkra stundstefndi fólkið i átt að anddyri Hallar alþýðunnar þar sem það virtist ætla að afhenda mótmælaskjal. Ekkertvarð þó úr þvi þar sem átök hófust á leiðinni. Fyrst var einum bil velt við mikil fagnaðarlæti en svo var tekið til við að kveikja i bilum. Urðu þrir bflar fyrir þeim örlögum, þ. á m. einn sem tilheyrði hernum. Nokkrir voru teknir og lúbarðir, þ.á m. stúdent frá Tsinghúa há- skólanum þar sem herferðin gegn Teng hófst. Eftir nokkurra stunda þóf á torginu brutust mótmælendur inn i byggingu eina sem sögð er hýsa öryggisþjónustu landsins og kveiktu í henni. Nokkrir ungling- ar fóru inn i húsið, ruddust inn á skrifstofur þar sem þeir fundu skjöl sem þeir fleygðu á bálið fyr- ir utan. Þá gerist það að hátalarar eru settir i gang um allt torgið. Or þeim barst rödd borgarstjóra Peking, Wu Teh, sem fordæmdi aðgerðirnar á torginu harðlega og kvað þær vera skemmdarverk „framgjarnra illmenna”. Að þeim stæði „örlitill minnihluti Framhald á bls. 14. Hér sér i skut logarans Vers frá Akranesi sem er i slipp i lieykjavik. Þannig er nú haldið á mál- efnum landheigisgæslunnar að aðcins eitt varðskip er á miðunum að glima við bret- ann. Er það varðskipið /fgir, skipherra er Þröstur Sig- tryggsson. í Reykjavik liggja tvö varð- skip og tilvonandi varðskip i slipp: Týr og Ver. Eitt varð- skip lá við hafnargarðinn i Reykjavik i gær, Baldur. Fjórða varðskipið lá inni á Seyðisfirði. Óðinn. Höfðu verið teknar upp fóðringar i vél Óð- ins og stímplar. i.andhelgisgæslan hefur sem kunnugt crtekið togarann Ver á leigu og kostar skipið 3 miijónir á mánuði. Callaghan formaður Verka man n afl o k k s i n s — sjá bls. 3 og 6 Sektir fyrir landheigisbrot eru það lágar, að vafalitið borgar það sig fjárhagslega, sé til skamms tima litið, fyrir útgerðarmenn og skipstjóra, að fiska i iandltelgi upp á þá von að sleppa hér eftir se'ui hingað til, en greiða sektir ef illa tekst til. Þetta virðist vera sá skilningur sem skipstjórar og útgerðar- menn leggja i' mál þetta þessa stundina ef marka má af sókn is- lenskra báta inn ilandhelgisvo og inn á alfriðuð svæði. 1 gærmorgun stóð varðskipið Þór 10 islenska netabáta að meintum ólöglegum veiðum á friðuðu svæði á Selvogsbanka. Svæði þetta er friðað fyrir öllum veiðum á timabilinu frá 20. mars til 15. mai samkvæmt reglugerð útgefinni 19. janúar i ár. Veiðar inet á fyrrgreindu svæði varða sektum. en ekki upptöku afla né veiðarfæra. Bátarnirsem teknir voru i gær- morgun að ólöglegum veiðum Framhald á bls. 14. Bretar í túnfœtinum — Við liöfum bretana hér alveg i túnfætinum, og þcir eru að drepa okkur, sagði Jóhann K. Sigurðsson, framkv.stjóri út- gerðar Sildarvinnslunnar i Neskaupstað, er blaðantaður lial'ði tal af honum i gær. Sagði Jóhann, að afli norð- fjarðarbáta væri tregur. Tveir netabátar væru að búa sig á veiðar og nokkur hugur væri kominn i trillukarlana. — En er bretinn liggur bara hér á Austfjarðarmiðum, sagði hann, — og þetta er að drepa okkur, og list okkur ölium jafn illa á, sjómönnum sem land- verkafólki. Togarar okkar þurfa að fara vestur fyrir land. Með þessu verða túrarnir að sjálf- sögðu lengri og fiskurinn lé- legri.auk þess sem minni fiskur bers t á la nd en ven ja h efur ve ri ð til. Þess má geta að bæjarstjórnir i Neskaupstað og á Seyðisfirði hafa gert ályktanir vegna þess ástands, sem skapast hefur vegna rányrkju breta á miðum austfjarðabáta. Þá er og þess að geta, að skut- togarinn, Barði kom i gær úr 11 daga veiðiferð, fyrst norður fyrir land og siðan suður fyrir, með lOOtonn, og þá þess, að 100 tonna afli var ekki óalgengur hjá austfjarðartogurum eftir viku útivist á heimamiðum fyrir það, að bretar einokuðu miðin þar eystra. —úþ Á að selja fiskiskip úr landi Mikið er nú um það rætt, að fyrir dyrum standi að selja mikilvirkustu atvinnutæki landsmanna úr landi. Þannig var gefið i skyn i rikisfjöl- miðlum um helgina, að til stæði að selja togarann Engey úr landi. Að visu var og þess mögu- leika getið að togarinn yrði leigður. Var talað um að norðmenn vildu fá hann. 1 einu siðdegisblaðanna i gær var á þetta minnst, og haft eftir framkvæmdastjóra útgerðar Engeyjar, að ekkert væri ákveðið i þessum málum og ekkert leyf i hefði fengist til þess hjá opinberum aðilum, en eins og kunnugt er þarf rikis- stjórnarleyfi til þess að selja togara úr landi. Einnig hefur verið um það rætt, að-stærri nótaskip okkar verði von bráðar seld úr landi vegna verkefnaskorts. Sifelld- lega er um það rætt, að skapa þurfi þessum skipum verk- efni, og er þá rætt um kol- munnaveiðar og eða spærlingsveiðar i stórum stil. Þó er litið sem ekkert gert til þess að efla rannsóknir á hegðun og háttarlagi þessara fiska og þvi greinilegur verk- efnaskortur framundan hjá stórum nótaskipum, nema þau verði send til veiða i öðrum heimsálfum. —úþ

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.