Þjóðviljinn - 06.04.1976, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 06.04.1976, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 6. april 1976. þjóÐVILJlNN — SttíA 11 íslandsmeistaramótið í badminton Sigurður tekinn við hlutverki Haraldar hann varó meistari bæói i emlíöa og tvílióaleik — — Haraldur tapaöi öllum þremur íslandsmeistaratitlunum — Lovisa varö þrefaldur íslandsmeistari Það urðu heldur betur sviptingar á íslandsmótinu i badminton uppá Akranesi um siðustu helgi og má hiklaust telja þetta sögulegasta badmin- tonmót sem fram hefur farið um langt árabil. Haraldur Korneliusson sem verið hefur algerlega ósigrandi í badminton hér á landi um langt árabil varð að sjá af öllum titlum sinum að þessu sinni og það er greinilegt að Sigurður Haraldsson er tekinn við hlutverki hans sem besti badmintonleik- ari landsins, hann sigraði bæði i einliða og tviliðaleik á mótinu. Haraldur hefur verið íslandsmeistari 5 ár i röð og það bæði i einliða og tviliðaleik og i fyrra varð hann þrefaldur meistari. Sigurður hefur undanfarin ár fylgt hon- um eins og skugginn en ekki tekist að komast á toppinn fyrr en i vetur, en það gerði hann fyrst er hann sigraði Harald i Rvikurmótinu á dögunum og svo nú er hann bar sigur úr býtum bæði i einliða og tviliðaleik. Lovisa Sigurðardóttir TBR vann það afrek að verða þre- faldur íslandsmeistari á þessu móti og er hún nú i algerum sér- flokki badmintonkvenna hér á landi. En litum þá á úrslit móts- ins. Sigurður sigraði eins og fyrr segir i einliðaleik, þar sigraði hann Harald i úrslitum 18:15 og 15:9, fyrri lotan var jöfn en i þeirri siðari hafði Sigurður yfir- burði. 1 tviliðaleik sigraði Sigurður ásamt hinum unga og stórefni- lega badmintonleikara Jóhanni Kjartanssyni, sem er aðeins 17 ára gamall. Þeir sigruðu þá Ottó Guðjónsson og Sigfús Ægi i úrslit- um 15:13 og 15:8, en áður höfðu Sigurður og Jóhann unnið Harald Korneliusson og Steinar Petersen i undanúrslitum. Lovisa Sigurðardóttir sigraði i einliðaleik kvenna, hún sigraði Hönnu Láru Pálsdóttur i úrslitum 11:1 og 11:1 og i tviliðaleik sigruðu þær Lovisa og Hanna Lára, þær Svanbjörgu Pálsdóttur og Ernú Franklin 15:8 og 15:5. I tvenndarleik sigruðu þau Steinar Petersen og Lovisa þau Harald og Hönnu Láru 18:8 — 9:15 og 18:17. 1 A-flokki urðu úrslit þau að Sigurður Kolbeinsson sigraði i einliðaleik karla, Ingólfur Jóns- son og Friðrik Arngrimsson i tvi- liðaleik, Anna Njálsdóttir sigraði i einliðaleik kvenna og þær Lilja Viðarsdóttir og Ásdis Þórarins- dóttir i tviliðaleik. I tvenndar- leik sigruðu Asdis Þórarinsdóttir og Friðrik Arngrimsson og i öldungaflokki, tviliðaleik sigruðu þeir Gisli Guðlaugsson og Ragnar Haraldsson. Bragðdauft Reykjavíkurmót í frjálsum: íslandsmet Láru og Þórdísar gnæfðu uppúr Valbjörn Reykjavíkurmeistari með 1,70 m. í hástökki! Sigurður Haraldsson tekur hér við islandsineistarabikaruuin i fyrsta sinn. Islandsmet Láru Sveinsdóttur í 50 m. grindahlaupi var hið eina sem upp úr stóö á Reykjavikurmeistara- mótinu í frjálsum íþrótt- um, sem fram fór um helgina. Hún hljóp vega- lengdina á 7.2 sekúndum og bætti met Ingunnar Einarsdóttur frá Meistaramótinu um dag- inn. Það var upp á 7.3 sekúndur, einu sekúndu- broti lakara en tími Láru. Ekki má þó gleyma stórgóðu afreki Þórdisar Gisladóttur i hástökki, en þar setti hún nýtt islandsmet og stökk 1.65 m, en hún átti einnig góða tilraun við 1.70 m, en snerti rána ofurlitið, nóg til þess að hún féll i gólfið en Þórdis hefur nógan tima, hún er ung og efnileg og ekki vafi á að hún flýgur skjótt yfir 1.70 m. Annað markverl gerðist ekki á þessu móti, sem margra hluta vegna var bragðdauft. Margir okkar bestu frjálsiþróttamanna voru fjarverandi, sumir er- lendis og aðrir frá einhverra annarra hluta vegna. Bjarni Stefánsson KR mætti ekki á mótið fremur en á önnur mót i vetur og helsti keppinautur hans Sigurður Sigurðsson dútlaði bara i langstökki i stað þess að hlaupa 50 metrana án nokkurr- ar keppni. Albert Imsland, ellefu ára strákur vakti athygli i 1500 metra hlaupi og fékk timann Lára Sveinsdóttir — lslni. i 50 m. grindahlaupi. 5.29.1 min. sem er frábær árangur hjá ekki eldri iþrótta- manni. Ranghildur Pálsdóttir kom einnig ágætlega frá sinu 800 metra hlaupi á timanum 2.34.1 og Asa Halldórsdóttir sigraði i langstökki (5.25) og einnig i kúluvarpi með 10.48. Annað er vart hægt að tiunda frá þessu móti. Einna helst er Bikarkeppni HSÍ: Valur tryggði sér sæti i úrslit- um bikarkeppni HSÍ á sunnu- dagskvöldið með þvi að sigra Viking i undanúrslitum 26:23. Ilinn leikurinn i undanúrslitun- um, leikur FH og KU fer fram i llafnarfirði nk. miðvikudag. Valur hafði nokkra yfirburði i leiknum gegn Vikingi tók for- ystuna i byrjun og hélt henni út allan leikinn. Mestu.r var munurinn 11:5 en i leikhléi var kannski að geta þess, að Val- björn Þorláksson varð Reykja- vikurmeistari i hástökki og fór yfirhæðina 1.70 metra, sem svo sannarlega hefur ekki til þessa þótt afrek sem verðskuldaði meistaratign. Elias Sveinsson felldi byrjunarhæð sina i há- stökkinu. —gsp staðan 12:10 Val i vil. i siðari hálfleik munaði nær alltaf 2-3 mörkum Val i vil en i lokin fóru Vikingar illa að ráði sinu. misnotuðu 3 vitaköst, sem hefðu getað jafnað leikinn ef þau hefðu tekist. Sjálfsagt munu flestir spá þvi að FH sigri KR og að það verði þvi V’alur og Fll sem leika (il úr- slita i bikarkeppninni 13. april nk. i Laugardalshöllinni. íslensku stúlkurnar uröu í 4. sæti á NM íslensku stúlkurnar höfnuðu i 4. sæti i NM stúlkna i hand- knattleik, sem fram fór i Karlstad i Sviþjóð um helgina. Sviar sigruðu. danir urðu i 2. sæti og norðmenn i 3. trslit leikja hjá islensku stúlkunum urðu segir: sem hér lsland—Sviþjóð 11:20 island—Noregur 12:17 island Danmörk 14:20 island—Finnland 14:8 Lokastaðan i mótinu varð þessi: Sviþjóð 4 4 0 0 69:47 8 Danmörk 4 3 0 1 76:42 6 Noregur 4 2 0 2 61:57 4 islantl 4 1 0 3 51:65 2 Finnland 4 0 0 4 37:83 0 Valur í úrslit sigraöi Víking í undanúrsiitum 26:23

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.