Þjóðviljinn - 06.04.1976, Blaðsíða 14
14 SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN Þriöjudagur 6. april 1976.
Spánn
Fjöldahandtökur um helgina
Barcelona 5/4 rcuter — Um hclg-
ina var efnt til mótmælaaðgerða
viða um Spán. Lögreglan svaraði
þeim af hörku og handtók hátt á
þriðja hundrað manns en sleppti
sumum þeirra aftur.
f Barcelona söfnuðust viða
saman smáhópar fólks i gær,
sunnudag, og dreifði lögreglan
þeim með reyksprengjum,
gúmmikúlum og kylfum. Nokkrir
voru handteknir og aðrir fóru
slasaðir á sjúkrahús. Á öðrum
stað fóru fylgismenn stjórnarinn-
ar i mótmælagöngu sem lögregl-
an lét i friði enda hafði hún hlotið
leyfi yfirvalda.
í Madrid söfnuðust þúsundir
manna saman og hrópuðu vigorð
gegn stjórn Juan Carlosar kon-
ungs. Lögreglan beitti mótmæl-
endur mikilli hörku og handtók
yfir hundrað þeirra. Meðal hinna
handteknu voru tveir framámenn
stjórnarandstöðunnar og sitja þá
sex leiðtogar andstöðunnar i
fangelsum.
Mótmælin héldu áfram i Barce-
lona i dag en ekki fréttist af nein-
um handtökum.
Hins vegar tilkynnti innanrikis-
ráðuneytið i dag að það hefði
handtekið 50 félaga og stuðnings-
menn sjálfstæðishreyfingar
baska, ETA, og yrðu þeir leiddir
fyrir herrétt. Þetta eru mestu
handtökur sem átt hafa sér stað i
baskahéruðunum siðan Franco
leið. Þær gerast á sama tima og
ETA hóta að lifláta iðjuhöld einn
sem hreyfingin hefur haft i haldi
frá þvi i siðasta mánuði, verði
fjölskylda hans ekki við þeirri
kröfu að greiða fyrir 200 miljónir
peseta i lausnargjald.
V-Þýskaland
Framhald af bls. 5.
dylja raunverulegar ástæður
kreppunnar.
Skrifaði gegn
lýðræði
Valdbeitingarlögin eru aöeins
einn liðurinn i mörgum stjórnar-
farslegum aðgerðum gegn vinstri
sinnum i Vestur-Þýskalandi.
Þetta hófst fyrir allmörgum
árum með lögum um neyðar-
ástand (Notstand) og á sl. ári var
tekið að efna til skipulegra of-
sókna gegn vinstri róttæku fólki i
opinberri þjónustu (Berufs-
verbot). Þaðer þvi engin furða að
ýmsir þjóðverjar telja einstak-
lingsfrelsi og lýðræðisskipulagi
stefnt i hættu i landinu. Og sú
hætta stafi ekki frá neinum smá-
hópum i valdaránshugleiðingum
heldur frá skrifstofuvaldi rikisins
sjálfu.
hj—
Borgar sig
Framhald af bls. 1.
voru: Arnar AK 55, Friöril
Sigurðsson ÁR 17, Skálafell AR
20, Búrfell AR 40, Guðfinna
Steeinsdóttir AR 10, Gissur AR 6,
Guðrún Magnúsdóttir VE 69,
Skúmur GK 22, Freyr KE 98 og
Harpa RE 242.
Skýrsla skipherra um töku
bátanna er væntanleg i dag og
verða málin þá tekin fyrir i
héraði. Siöan mun saksóknari
taka ákvörðun um málshöfðun.
Sektir við brotum sem þessum
nema frá 10 þúsundkrónum upp i
eina miljón króna.
— úþ
Kina
Framhald af bls. 1.
kinverja sem reyndu að skapa
glundroða og berðust gegn bylt-
ingunni.” Sagði hann að óeirðun-
um væri beint gegn Maó formanni
og miðstjórn kommúnistaflokks-
ins og að baki þeim væru menn
sem höfðu valið „leið kapitalism-
ans”. Þetta siðastnefnda er'bein
skirskotun til Teng Hsiao-ping.
Þrátt fyrir hvatningu borgar-
stjórans um að fólk sneri til sins
heima voru enn þúsundir manna
á torginu þegar myrkur skall á.
Meðan á óeirðunum stóð reyndu
óvopnaðir hermenn og félagar úr
varnarsveitum verkalýðs að
halda uppi röð og reglu en undir
kvöldið vopnuðust þeir lurkum og
leiddu mótmælendur út af torginu
og sáust hverfa með þá inn i hinn
eldfoma lokaða borgarhluta. Var
allt með kyrrum kjörum þegar
siðast fréttist og Torg hins him-
neska friðar stóð undir nafni.
Nokkur orð
Framhald af 13. siðu.
freyjan gripur i harmonikkuna
milli þess sem þau svara spurn-
ingum ókunns ferðamanns.
Það er langt á milli Möðrudals
og Stranda, en Árna tókst ágæt-
lega að færa sig á milli staða, og
gefa Stefáni frá Möðrudal kost á
að njóta sin i sinni einlægu frá-
sögn, jafnframt þvi að skýra
myndir sinar.
En öllu gamni fylgir nokkur
alvara og hún var svört i þetta
sinn. Saga skemmtanaiðnaðarins
— italskur myndaflokkur — Ja —
þvilik skemmtun. Mætti ég biðja
um fleiri gesti i heimsókn eða.
hvetja menn til að loka fyrir
framhald viðlika þátta.
Það er ekki ætlunin hér að
skrifa langan dóm um útvarp og
sjónvarp. Þó skal á enn eitt
drepið:
Jón Þ. Þór flytur nú röð
hádegiserinda um þætti úr
nýiendusögu. Efnið er forvitnilegt
um margt og Jón virðist geta
komið þvi sæmilega á framfæri.
Þó er eitt atriði sem ég tel
aðfinnsluvert hjá honum, smá-
atriði aö visu, en þó nokkurs vert. •
Jón er of bundinn heimildum
sinum (enskum?) er hann nefnir
staði sem eiga sér nöfn sem hafa
verið islenskuð. Ég hefði kunnað
betur við að heyra hann tala um
Kastiliu, Aragóniu og Daviðssund
t.d. en fá enskuna t.d. i Deivis-
sund.” Hvers vegna ekki „Deivis-
streit” úr þvi nafn Daviðs var
ekki islenskað?
erl
ALÞÝÐUBANDALAG
Alþýðubandalagið i Rvik
Málfundur verður haldinn á Grettisgötu 3, mið-
vikudaginn 7. april kl. 8.30.
Rætt verður um kjördæmaskiptinguna og fjölda
þingmana.
Málshefjandi verður Svavar Gestsson, ritstjóri.
Félagar Alþýðubandalagsins eru hvattir til að
mæta. — Stjórnin.
Neskaupstaður
Alþýðubandalagið heldur félagsfund i Egilsbúð miðvikudagskvöldið 7.
april kl. 20.30. Dagskrá: 1. Bæjarmálaráð — kosning fulltrúa og starfs-
hættir ráðsins. 2. Atvinnumál i Neskaupstað. Framsögu hefur Ólafur
Gunnarsson. 3. önnur mál. — Stjórnin.
ilÞJÓOLEIKHÚSIfl
SPORVAGNINN GIRND
miðvikudag kl. 20.
Siðasta sinn.
FIMM KONUR
Frumsýning fimmtudag kl. 20.
2. sýning sunnudag kl. 20.
CARMEN
föstudag kl. 20.
NATTBÓLIÐ
laugardag kl. 20.
KARLINN A ÞAKINU
laugardag kl. 15.
Litla sviðið:
INUK
185. sýning i kvöld kl. 20,30.
Fáar sýningar eftir.
Miðasala 13,15 — 20.
Simi 1-1200.
IKFÉIAfi!
YKJAVÍKUlð
Já, en kvennaárinu er lokið, elskan.
SKJALDHAMRAR
i lvöld. — Uppselt.
SAUMASTOFAN
miðvikudag. — Uppselt.
EQUUS
fimmtudag kl. 20,30.
SKJALDHAMRAR
föstudag. — Uppselt.
VILLIÖNDIN
laugardag kl. 20,30.
KOLRASSA
sunnudag kl. 15.
EQUUS
sunnudag kl. 20,30.
Miðasalan I Iðnó er opin kl. 14
til 20,30. Simi 1-66-20.
Aðalfundur Lögmannafélagsins:
Fordæmir ofbeldi gegn
lögmönnum og dómurum
Aðalfundur Lögmannafélags
tslands var haldinn föstudaginn
26. mars si. A fundinum var sam-
þykkt svofelld ályktun:
„Aðalfundur Lögmannafélags
tslands haidinn 26. mars 1976
telur það forsendu fyrir þvi að
lögmenn og dómarar hvarvetna i
heiminum geti sinnt skyldu-
störfum sinum i starfi, að þeir
geti sinnt þeim óhindraðir af
valdhöfum i landi sinu og
lögmenn og dómarar geti i hvi-
vetna i starfi sinu tekið afstöðu án
þess að eiga á hættu að sæta of-
sóknum af hálfu valdhafa.
Þvi fordæmir fundurinn það of-
beldi sem lögmenn og dómarar
hafa sætt viða um heim vegna
starfa sinna og skoðana og birst
hafa m.a. i þvi að lögmenn og
dómarar hafa verið fangelsaðir
og pyntaðir eða jafnvel horfið
sporlaust. Þá fordæmir fundurinn
ekki siður þær þvinganir, sem
lögmenn og dómarar hafa sætt á
annan hátt, svo sem með missi
stöðu eða starfréttinda vegna
þess að þeir hafa ekki viljað
beygja sig fyrir valdhöfum.
Fundurinn Iýsir þvi yfir, að
hann styðji þá baráttu, sem hefur
þegar verið hafin i þeim tilgangi
að vekja athygli á ofsóknum
þeim, sem lögfræðingar hafa sætt
viða um heim vegna starfs sins
eða skoðana og vonar, að bar-
áttan leiði til þess, að sem viðast
fái dómarar og lögmenn að gegna
starfi sinu án þess að eiga á hættu
að lenda i fangelsi eða sæta
öðrum afarkostum af hálfu vald-
hafa.”
Úr stjórn félagsins gengu Páll
S. Pálsson hrl., sem verið hefur
formaður félagsins s.l. þrjú ár og
Ragnar Aðalsteinsson hr., vara-
formaður félagsins. Voru þeim
þökkuð vel unnin störf.
Núverandi stjórn lögmanna-
félagsins skipa: Guðjón Stein-
grimsson hrl, formaður, Jón
Finnsson hrl, varaformaður,
Gylfi Thorlacius hdl, gjaldkeri.
Hjalti Steinþórsson hdl., ritari og
Brynjólfur Kjartansson, hdl„
meðstjórnandi.
&
S KI PAUTGt RÐ RIKISINS
M/s Hekla
fer frá Reykjavik
mánudaginn 12. þ.m.
austur um land i hring-
ferð.
Vörumóttaka: mið-
vikudag, fimmtudag og
til hádegis föstudag til
Austfjarðahafna, Þórs-
hafnar, Raufarhafnar,
Húsavikur og Akureyr-
ar.
Athugasemdir vegna
Kröfluviðtalsins
i viðtali við Þorleif Einarsson
jarðfræðing, sem birtist hér i
blaðinu s.l. fimmtudag, voru
nokkur atriði óljós eða brengluð i
prentun.
Fyrst má telja að óþarflega
sterkt var að orði komist um að
jarðskjálfti hefði nær iagt Kópa-
sker i rúst á dögunum. Jarð-
skjálftinn var að visu sterkur og
olli mikli tjóni, en þetta orðalag
(sem er blaðamannsins) er of
sterkt.
1 öðru lagi mun það hafa valdið
misskilningi hjá sumum, að þar
sem taiað var um 500-1000 MW
afl, sem farið hefði út i gosinu,
var litið á það sem orku. Orkuna
má hins vegar finna með þvi að
margfalda saman aflið og
timann. (þ.e. hversu lengi hefur
útstreymi gufunnar staðið).
Þar sem talað er um hitastig og
hlutfall milli gufu og vatns hafi
veriðóþekkt, á það alls staðar við
það sem upp úr borholunum
kæmi. (Þær höfðu sem kunnugt
er ekki verið boraðar).
Loks má svo geta þess, að á
næstunni mun væntanleg áætlun
um virkjun Bessastaðarár frá
verkfræðistofunni Hönnun h.f.
Mun i þeirri áætlun gert ráð fyrir
mjög stórum miðlunarlónum
fyrir virkjunina til að gera hana
hagkvæmari. — erl
BLAÐBERAR
Vinsamlega kornið á afgreiðsluna og sækið
rukkunarheftin.
ÞJÓÐVILJINN
BLAÐBERAR
óskast í eftirtalin hverfi
F ossvog
Seltjarnarnes
Vinsamlegast haf ið samband við afgreiðsluna
— sími 17500.
ÞJÓÐVILJINN