Þjóðviljinn - 06.04.1976, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 06.04.1976, Blaðsíða 16
VOÐVIUINN Þriðjudagur (i. april 1976. Karlsefni bilaður Það kom fram i rikisfjölmiðlum um helgina, að togarinn Karlsefni lægi bundinn við bryggju vegna þess, að ekki fengist mannskapur til þess að hægt væri að leysa landfestar. Þjoðviljinn spurði Ragnar Thors teins son, framkvstj. Karlefnis hf. að þvi i gær, hvað hæft væri i' þessari frétt. Sagði hann hana með öllu ranga. Togarinn lægi bundinn við bryggju vegna þess, að hann hefði i siöasta túr fengið vir i skrúfuna, og hafði hann skemmt öxul skipsins. Reiknaði Ragnar með, að togarinn kæmist ekki á veiðar fyrr en að mánuði liðnum af þessum sökum. -úþ Riffilskot í líkinu Tuttgu og átta ára gamall a k u r e y r i n g u r , Guðbjörn Tryggvason, fannst látinn skammt frá heimili sinu uin klukkan sjö á sunnudagsmorgun. Fundust riffilkúlur f hinum látna. Skammt frá þeim stað, sem Guðbjörn heitinn fannst, fannst siðan riffill, sem skotunum virðist hafa verið hleypt úr. Var brotist inn i skotfæraverslun þar i fæ um nóttina, og er riffill sá, sem fyrr greinir, talinn vera sá sem stolið var úr versluninni. t gær var verið að yfirheyra fólk, og verið var að grafast fyrir um ferðir þess umrædda nótt. Guðbjörn heitinn skilur eftir sig eiginkonu og tvö börn. -úþ. M i kilvægar ræktunar tilraimir stöðvast /Vrið 1971 ákvað Þróunar- sjóður Samcinuðu þjóðanna að styrkja mikilvægar ræktunar- tillögur hér á landi með þvi að veita hingað einni miijón dollara í þvi skyni. Á si. sumri varð samkomulag um það milli islenska rikisins og sjóðsins að rannsóknirnar héldu áfram næstu ár. Þróunarsjóöurinn liefur nú lent i mikluni fjár- kröggum og ákveðið að draga til baka fjárveitingar til ýmissa landa þ.á.m. íslands. Björn Sigurbjörnsson forstöðumaður Kannsóknarstofnunar land- búnaðarins sagði að þetta hefði komið eins og þruma úr lieið- skiru lofti og tjónið sem af þessu hlytist yrði miklu meira en sem nemur upphæðinni, sem dregin er til baka, vegna fjár- festinga i hálfkláruðum til- raunum. Þeir sem einkum hafa stýrt Þróunarsjóður SÞ hœttir umsömdum fjárveitingum fyrirvaralaust þessum rannsóknum eru Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri, Halidór Pálsson búnaðarmála- stjóri og Björn Sigurbjörnsson. Hér er um að ræða beitar- rannsóknir, tilraunir til ræktunar grasfæs, til upp- græðslu og túnræktar og til yl- ræktar. Björn Sigurbjörnsson sagði i samtali við Þjóðviljann að þvi hefði verið marglýst yfir að þessum verkefnum yrði haldið áfram og okkur væri brýn nauðsyn á sérfræðiaðstoð. T. d. hefði komið hingað til lands sérfræðingur i beitar- rannsóknum alls 6 sinnum og þyrfti hann að koma oftar til að- stoðar, en nú væri loku skotið fyrir það. Um ástæður þess að hætt er við fjárveitingar sagði Björn að Þróunarsjóðurinn væri i miklum fjárhagskröggum núna og inn i rannsóknirnar hafa bæst við fleiri verkefni en upphaflega var gert ráð fyrir. Þá sagði Björn að islenska rikið skuldaði Þróunarsjóðnum og hefði auk þess látið i það skina að við værum svo rikir og vel þróaðir að við þyrftum ekki á aðstoð að halda. Þess vegna væri eðlilegt að fyrst væri skorið niður við okkur. Hann sagði að i þau 11 ár sem hann starfaði við FAO hefði svona niðurskurður á um- sömdum tilraunum aldrei orðið. Hörður Bjarnason hjá utan- rikisráðuneytinu staðfesti þaö að um vanskil væri að ræða hjá islenska rikinu gagnvart þróunarsjóðnum. Skv. samningi sé gert ráð fyrir 9% framlagi á móti aðstoðinni en það hafi hreinlega gleymst að gera ráð fyrir þessum fjár- munum i fjárhagsáætlunum viðkomandi ráðuneyta. Nú sé hins vegar unnið að þvi að fá aukaframlag frá islenska rikinu. Ekki taldi Hörður þó að þetta ylli stöðvun fjárveitinga heldur fyrst og fremst f járþröng Þróunarsjóðsins og hann legði þess vegna áherslu á aðstoð við þær þjóðir sem hafa mestar þarfir . Sveinbjörn Pagfinnsson ráðuneytisstjóri i landbúnaðar- ráðuneytinu sagði furðulega að þessu staðið að hálfu Þróunar- sjóðsins og fráleitast að stökkva frá verkefninu i miðjum kliðum. Hann sagði að leitað væri að lausn á málum. —GFr Frá nýbyggingu Hraðfryslihúss Patreksfjarðar (Ljósm.GFr.) Framburði breta mótmœlt í öryggisráðinu NEW YORK 5/4 — íslendingar lögðu i dag fram bréflega kæru til íorseta öryggisráðs sameinuðu þjóðanna vegna yfirgangs breta á islandsmiðum. Segir i bréfinu að aðgerðir bretanna séu eins miklar og ágengar og áður. Ambassador fslands hjá SÞ Ingvi Ingvason sagði i bréfinu, sem var afhent forseta öryggis- ráðsins Huang Hua frá Kina, að aðgerðir bretanna hefði farið harðnandi að undanförnu. 1 bréfinu var ekki farið fram á aðgerðir að hálfu öryggisráðsins, en almennt kvartað undan yfir- gangi breta. t bréfinu lýsir sendiherrann að- gerðum bretanna að undanförnu nokkru nánar, en bréfinu var að ósk hans dreift sem opinberu skjali öryggisráðsins. Vegna vanefnda fiskveiðisjóðs ma. verður bygging hraðfrystihúss áPatreksfirði Tveim árum eftir áætlun Tveir drengir drukknuðu A lostudagsnóttina fundust i vök i Bakkatjörn á Seltjarnarnesi lik tveggja drengja, sem 4-500 manns höfðu leitað þá um kvöldið. Drengirnir hétu Geir Jóhannsson, átta ára, og Kristinn Geir Þorsteinsson, sjö ára og voru þeir bræðrasynir. Drengirnir höfðu farið að heiman frá sér um miðjan dag. Erþeir komu ekki heim til sin um kvöldmatarleytið var farið að leita að þeim. Um kl. hálftvö um nóttina fannst vettlingur annars drengsins á fioti i tjörninni og Nýbygging Hraöfrysti- húss Patreksfjaröar mun tef jast um amk. tvö ár ma. vegna vanefnda fiskveiða- sjóðs, en frá þvi var skýrt i Þjóðviljanum fyrir helgi að hann gæti ekki staðið við þau loforð um f jármögnun hraðfrystihúsa sem gefin hafa verið. undir þak nema frystigeymslan, sem þó er að mestu uppsteypt orðin, en meiningin, úr þvi sem komið er, að byggja siðar. í svonefndri frystihúsaáætlun var ætlunin að fiskveiðasjóður greiddi 60% af þvi, sem til upp- byggingar húsanna færi, byggingasjóður 25% og eigendur húsanna 15%. -Þetta klikkaði nokkuð á siðasta ári, sagði Jakob. Byggðasjóður hefur alveg staðið við sitt, en það vantar nokkuð frá fiskveiðasjóði, en siðan vantar mikið meira fé i áframhaldandi framkvæmdir. Það, sem setur okkur i mestan vanda nú, er það, að við erum búnir að selja gamla frystihúsið, kaupfélagið keypti það til þess að gera úr þvi sláturhús, og þvi á að breyta nú strax eftir vertið.Okkar starfsemi stöðvast þvi að vertið lokinni, og það hefur óneitanlega uggvænleg áhrif hér. Við erurn orðnir ári á eftir áætlun, við ætluðum að vera komnir inn i húsið núna. Okkar hugmynd nú, til þess að bjarga þvi, sem bjargað verður, er að ljúka við hluta af húsinu, sleppa allri frystingu i bili, en stefna að þvi, að vinna saltfisk og skreið. Við erum að vona, að fáum við þær fjárveitingar, sem til þessa þarf, þá komumst við inn Eg held samt að þetta sé algert hámark bjartsýninnar. Það er hætt við því, að við verðum amk. tveimur árum á cftiráætlun þegar upp verður staðið. Á Patreksfirði eru tvö frystihús. Hraðfrystihús þetta hefur skapað 60—70 manns fasta viniiu allt árið. Auk þess hefur það tekið við nokkrum hluta skólafólks yfir sumarmánuðina. Þá bætast húsinu smábátar yfir sumar- mánuðina en annars hefur það gert út tvo stóra báta allt árið um kring. Er það álit Jakobs, að hitt frystihúsið gæti ekki annað þvi, sem þetta hefur haft undir, þótt Bresku herskipin láta ekki af dólgshætti sinum á miðunum. Á laugardaginn sigldu þau á varð- skipið Óðinn út af Hvalbak. Skemmdir urðu óverulegar og slys á mönnum engin. Herskipið Bacchante varnaði Óðni að komast að breskum togurum, sem á laugardaginn voru að veiðum um 24 sjómilur frá Hvalbak. Seinna um daginn komst varðskipið samt sem áður að togurunum, sem þegar hifðu inn vörpurnar. Herskipið Bacchante og „aðstoðarskipið” Silla ásamt dráttarbátnum Euroman voru þarna nærstödd og sigldu á fullri ferð að varðskipinu menn þar væru allir af vilja gerðir. -Ég er þeirrar skoðunar, sagði Jakob, að það sé þó nokkuð áfall fyrir marga hér, að húsið skuli þurfa að stoppa. Sjórinn er lifæðin héreins og viða annars staðar, og þótt hér séu fleiri verkunar- stöðvar en þessi, þá hefur þetta samt sem áður sin slæmu áhrif. og var svo þröngt á þingi, að svo virtist, sem breski flotinn myndi lenda i einni bendu. Bökkuðu þá skipin á fullri ferð og lentu sjó- liðar, sem voru á dekki herskip- sins i einni kös á þilfarinu. Stuttu siðar keyrði svo Silla utan i varð- skipið. Umtalsverðar skemmdir urðu ekki á varðskipinu, en einhverjar meiri á herskipinu. 39 breskir togarar voru að veiðum á þessum slóðum i gær. Voru þar þá 6 herskip úr NATÓ-flota hennar hátignar, 2 dráttarbátar og tvö „aðstoðar- skip”. —úþ voru pa Kaiiaoir a vettvang kafararsem fundu lík drengjanna fljótlega. Dýpi i tjörninni er um háifur annar metri þar sem vökin er. Að sögn Jakobs Helgasonar, framkvæmdastjóra Hraðfrysti- húss Patreksfjarðar, er nýbygging fyrirtækisins nú komin Bílnúmerin verða óbreytt I gær ákvað neðri deild alþingis að fella brott úr frumvarpi til um- lerðaiaga ákvæði um skráningu bila sem fólu það i sér að sami hillinn skyldi bera sama auð- kennisnúmer alla notkunartið sina. Verður þvi skráning bila og umdæmisnúmer áfram óbreytt frá þvi sem veriö hefur. Málið sem er stjórnarfrumvarp var til framhalds 2. umræðu i fyrri þingdeildinni i gær. Deildu þingmenn nokkuð um frumvarpið og tóku sér góðan tima til að setja fram skoðanir sinar. Allsherjar- nefnd deildarinnar hafði fyrir sitt leyti ekki fallist á nýju skráningarákvæðin, en dóms- málaráöherra varði frumvarpið i sinni upphaflegu myndog fékk til fulltingis við sig þingmenn úr stjórnarandstöðu ekki siður en stjórnarliði. Önnur ákvæði frumvarpsins um breytingu á umferðarlögum voru ekki umdeild og náðu fram að ganga. Fer nú frumvarpið til 3ju umræðu og siðan til efri deildar. Nánar verður skýrt frá umræöunni siðar. Siglt á Oðin um helgina 39 breskir veiðiþjófar i landhelgi

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.