Þjóðviljinn - 06.04.1976, Side 10

Þjóðviljinn - 06.04.1976, Side 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐMLJINN Þriðjudagur 6. april 1976. NM pilta í handknattleik: Danirnir í sérflokki íslenska liöiö olli vonbrigðum og hafnaði í 3. sæti Danir báru höfuð og herðar yfir andstæðinga sína og sigruðu með yfirburðum á Norðurlandamóti pilta sem fram fór hér á landi um síðustu helgi. íslenska liðið sem miklar vonir voru bundnar við olli vonbrigðum. Það náði aðeins 3. sæti eftir stór tap fyrir dönum i síðasta leik mótsins, 8:17. Segja má að íslenska liðið hafi ekki náð sér á strik nema í einum leik, gegn norðmönnum, þvi naumur sigur yfir finnum og tap fyrir svíum og dönum er slakur árangur á heimavelli. Það sem mest háði liðinu var skyttuleysi, öll hin liðin voru með betri langskyttur. Hinsvegar var sóknarleikur þess oft skemmtilegur á að horfa en ekki mjög árangursríkur vegna skorts á skytt- um. Þá var markvarslan ekki uppá það besta. Danska liðið hafði aftur á móti mjög góðan markvörð, frábæra vörn og skemmtiiega útfærðan sóknarleik og það var engin til- viljun að það voru danskir leik- menn sem hirtu öll einstaklings- verðlaun mótsins. En litum þá á úrslit leikja mótsins: tsland—Noregur Danmörk—Svíþjóð Finnland—Noregur tsland—Sviþjóð Panmörk—Noregur island—Finnland Danmörk—Finnland Noregur—Sviþjóð Finnland—Sviþjóð tsland—Danmörk 18:11 (6:5) 10:9 (4:3) 8:9 (4:3) 13:15 (6:6) 14:13 (7:9) 17:15 (8:7) 21:12 (10:3) 9:15 (5:6) 13:21 (13:5) 8:17 (4:8) Og lokastaða mótsins varð þvi þessi: Panmörk 4 0 0 62:42 8 Sviþjóð 3 0 1 60:45 6 ísland 2 0 2 56:58 4 Noregur 1 0 3 42:55 2 Finnland 0 0 4 48:68 0 Markhæstu menn S. Sjögren S 18 A.HalmeF, 16 C. Zatterström S, 15 M. Christensen D, 15 Jón Hauksson 1, 14 Henrik Hansen D, 13 T. Barhaugen N, 12 H.B. Nielsen P 11 Keld Nieisen D, 11 Brottvisanir af leikvelli Sviþjóð 19min Finnland 18min Noregur 16min Danmörk lOmin tsiand 8 min Tapið gegn svíum fór með okkur sagði Viðar Símonarson landsliðsþ. — Tapið fyrir svium olli mér miklum vonbrigðum, og það fer ekki á miRimála að það gerði útum málin Hjá okk- ur. Mér fannst alltaf við vera með þann leik i höndunum og það var vel hægt að vinna hann ef strákarnir hefðu leikið aðeins skynsamlega, þeir gerðu sig seka um of mikið bráðlæti, gerðu of margar vill- ur til þess að hægt væri að vinna leikinn, sagði Viðar Sfmonarson, landsliðsþjálfari er við ræddum við hann að loknu NM pilta. — Tapið fyrir dönum var auðvitað allt of stórt en eins og ég sagði áðan, eftir tapið fyrir svium var eins og menn misstu móðinn. Ég er ekki i nokkrum vafa um að cf okkur hefði tekist að sigra sviana, þá hefði leikurinn við dani farið öðru visi. — Ég neita þvi ekki að maður gerði sér nokkrar vonir um sigur i þessu móti, en svona er þetta i iþróttum, það geta ekki allir sigrað. — S.dór Ný filmeika- stjarna í Sovétríkjum Natalya Shaposhnikova heitir 14 ára sovésk skólastúlka sem er enn ein nýuppgötvuð fimleika- stjarna sovétmanna. Hún vann glæsilegan tvöfaldan sigur á alþjóðlegu fimieikamóti i Moskvu i gær. Sovétmenn hafa á undanförn- um árum komið fram með þessar kornungu stúlkur hverja á fætur annarri og ckki er talið óliklegt að Natalya verði arftaki stærstu stjarnanna á sovéska fimleika- sviðinu. Dönsku meistararnir i handknattleik pilta iWæ 5 -JL .j&y&Æ »vlfwÍBI jrp ■ h#é1 Sigurinn kom mér þægilega á óvart sagði danski þjálfarinn Leif Mikkelsen — Nei, ég átti ekki von á þvi að við myndum sigra, ég bjóst við sigri svianna, sem hafa verið vikum saman i æfinga- búðum fyrir þetta mót og ég býst við að flestir hafi búist við sigri þeirra, þess vegna kom þessi sigur okkar mér þægi- íega á óvart. Að vísu höfðum við leikið tvo leiki við v-þjóð- verja og unnið báða og það gaf manni vissar vonir, en samt bjóst ég ekki viö sigri, sagði danski þjálfarinn Leif Mikkel- sen er við ræddum við hann að loknu Norðurlandameistara- móti pilta i handknattleik. — Þetta er lang sterkasta og jafnasta Norðurlandamót pilta sem ég hef verið með lið i, sagði Leif, það lá ekki ljóst fyrir hver yrði sigurvegari fyrr en eftir siðasta leikinn. — Móttökur allar hér hafa vcrið til fyrirmyndar svo og framkvæmd mótsins og við höfum ekki yfir neinu að kvarta, siður en svo. — Næsta NM verður i Noregi að ári og þá verða eftir i danska liöinu einir 5 piltar sem nú léku og vissulega geri ég mér góðar vonir um að okk- úr takist að halda titiinum þá, sagði Leif Mikkelsen að lok- um. — S.dór Danir hlutu öll verölaun mótsins Þrenn verðlaun voru veitt einstaklingum á Norðurlanda- móti pilta i handknattleik, — besti markvörður mótsins, sóknarleikmaður og varnar- leikmaður. öll þessi verðlaun féllu i hlut danskra leik- manna. Það voru islenskir iþróttafréttamenn sem völdu leikmennina. Besti mark- vörðurinn var kjörinn Jöregn lleit/.sprung, Danmörku, varnarmaður mótsins var kjörinn Henrik Petersen, Panm. og sóknarmaður Keld Nilsen Panm. Verðlaunahafarnir eru hér á myndinni til hliðar. Horvat og félagar á leiö til íslands koma hingað í boði Vals og leika nokkra leiki Allar likur eru á þvl að i næstu viku muni islenskir handknatt- leiksunnendur fá góða heimsókn. Ilingaö er von.á Hrvoje Horvat og félögum lians úr júgóslavenska liöinu Parti/.an Bjelovar, marg- földum júgóslavncskuin meistur- um og afreksmönnum. Það er handknattlciksdeild Vals sem siðustu dagana liefur staðið i skeyta- og bréfasambandi við júgóslava og gera má ráð fyrir því, að ef samningar takast muni gestirnir leika a.m.k. þrjá leiki. — gsp

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.