Þjóðviljinn - 06.04.1976, Side 13
Þriðjudagur 6. april 1976. ÞJÓDVILJINN — StÐA 13
A Spáni eru hræringar mannlifsins annars staðar en á baðströndunum, sem islendingar þekkja best.
Spánarfarar og aliir aðrir hefðu kannski gott af að kynnast gangi mála þar i landi. Þeir ættu þá að opna
sjónvarpið kl. 22.50 I kvöld og sjá hcimildamynd um þróun mála þar i landi siðustu mánuði.
Heimildamynd um
ástandið á Spáni
A dagskrá sjónvarps kl. 22.50 i
kvöld er bresk (auðvitað) heim-
ildarmynd um stjórnmála- og
efnahagsástand á Spáni frá ára-
mótum og fram undir marslok,
þar sem myndin er alveg ný.
Þýðandi myndarinnar er Stefán
r
Utvarp
kl. 14,30:
Noregs-
spjall
Ingólfur Margeirsson flytur spjail
l'rá Noregi kl. Iiálf þrjú i dag. Þar
sem lngólfur er staddur þar i
landi tókst ekki að ná i liann til að
spyrja um efnið, cn af fyrri kynn-
um útvarpshlustenda af Ingótfi
má fullyrða að það só forvitnilegt.
Kr skemmst að minnast þátta
þeirra er hann gerði ásamt Lár-
usi Óskarssyni og nefndi ,,Hálf-
tiniann”. Fleira hefur Ingólfur
gcrt fyrir útvarp. cn hann er nú
við nám i Noregi, og getur vafa-
laust frætt okkur um margt sem
cr að gerast þar i landi.
Jökulsson. Hann sagði i gær, að i
henni væri tekin fyrir barátta
ýmissa hópa fyrir lýðræði á
Spáni. Væru m.a. myndir frá
mótmælaaðgerðum gegn rikjandi
stjórnarfari, bæði á vegum ein-
stakra stétta og þjóðernishópa.
Þjóðernishópar á Spáni eru
nokkrir, og krefjast þeir sjálfs-
stjórnar, eða algers sjálfstæðis.
Mest hefur heyrst frá baráttu
baska að undanförnu, en
katalóniumenn hafa lika uppi
háværar sjálfstæðiskröfur. Er i
myndinni rætt við leiðtoga þeirra,
Jordi Pujol.
I myndinni er einnig rætt við
utanrikisráðherra Spánar, José
Maria de Areilza, en hann mun
vera einna skástur ráðherra
stjórnarinnar, þótt vart muni
hægt að bera honum frjálslyndi á
brýn. Hann mun þar láta i ljósi þá
skoðun sina að kröfugerð hóp-
anna um umbæutr muni ekki
flýta fyrir sliku, auk þess sem hún
kunni að valda töfum á inngöngu
Spánar i Efnahagsbandalagið,
sem er draumur sem ráðamenn
þar vilja sjá rætast i náinni
framtið.
Ekki er i myndinni rætt við
neina leiðtoga hinna bönnuðu
stjórnmálaflokka, en hins vegar
gerð nokkur grein fyrir starfsemi
stéttarfélaga i landinu, sem eru i
höndum stjórnarinnar. Nokkur
önnur sjálfstæð stéttarfélög eru
starfandi, en ekki á yfirborðinu,
þar sem leiðtogar þeirra, sem
bendlaðir eru við kommúnisma,
hafa verið teknir úr umferð og
gista nú dyflissur Jóhanns
Karls konungs.
—eri
Skólamál
Visir menn um skólamál ræða
þau i sjónvarpi að loknum
fréttum i kvöld. Þeir éru
Andri Isaksson prófessor,
i uppeldisfræði, sem átt hef-
ur stærstan hlut að skólarann-
sóknum hérlendis. Er hann nú
sérfræðilegur ráðunautur skóla-
rannsóknadeildar menntamála-
ráðuneytisins, en var þar áður
deildarstjóri. Kári Arnórsson
skólastjóri Fossvogsskóla, sem er
opinn tilraunaskóli, er annar
þátttakandi. Hefur hann vafa-
laust frá mörgu athyglisverðu að
segja úr sinum skóla. Þriðji þátt-
takandinn er Skálholtsrektor,
Heimir Steinsson, en fyrirkomu-
lag i skóla hans er allt mjög
frjálst, og m.a. engin próf. Ætti að
vera fróðlegt að heyra um skoð-
anir hans á þessum málum, ekki
siður en öðrum sem meir hafa
verið i sviðsljósinu. Fjórði mað-
urinn er Páll V. Danielsson hag-
deildarstjóri, og loks skal telja
Helga Jónasson, fræðslustjóra i
Hafnarfirði, sem stýrir
umræðum.
—erl
Andri Kári
Þeir ræða um skólamál i kvöld undir stjórn Helga Jónassonar fræðslu-
stjóra.
Páll
Ileimir
Sjónvarp í kvöld
Nokkur orð - ekki dómur
Það er ástæða að þakka Árna
Johnsen og viðmælendum hans i
sjónvarpinu á sunnudagskvöld-
ið fyrir skemmtilegan þátt.
Islenskt sveitafólk lætur ekki að
sér hæða. heldur sest inn i
sjónvarpssal frammi fyrir
myndavélum og hegðar sér eins
og það viti ekki af þeim. Ekkert
„stress” engin þvingum og frá-
sögnin liður hindrunarlaust
áfram án tilgerðarorðskrúðs og
upphafningar i andliti. Ég hef
ekkert af þessu fólki hitt né
heldur komið norður á Strándir.
en kynni min af fólki þar hafa
stórum aukist að mér finnst við
að heyra þau Jörund og Svövu
segja frá. Það var eins og að sitja
við eldhúsborðið á Hrófbergi og
heyra frásögn þeirra, almælt
tiðindi úr byggðinni, skoðanir á
mönnum og málefnum o.s.frv.,
allt sett fram á þann áreynslu-
lausa hátt sem einkennir spjall
fólks yfir kaffibolla. Oldungurinn
lætur fjúka i hendingum og hús-
Framhald á bls. 14.
útvarp
6. april
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Eyvindur Eiriksson les
söguna „Safnarana” eftir
Mary Norton (12).
Tilkynningar kl. 9.30. Þing-
fréttirkl. 9.45. Létt lög milli
atriða. Fiskispjallkl. 10.05:
Asgeir Jakobsson flytur
þáttinn. Hin gömlu kynnikl.
10.25: Valborg Bentsdóttir
sér um þáttinn. Morguntón-
leikar kl. 11.00: Sinfóniu-
hljómsveit breska útvarps-
ins leikur „Beni Mora”
austurlenska svitu op. 29 nr.
1 eftir Gustav Holst; Sir
Malcolm Sargent
stjórnar/Jacquiline du Pré
og Konunglega filharmoniu-
sveitin i Lundúnum leika
Sellókonsert eftir Frederick
Delius; Sir Malcolm Sargent
stjórnar/Hljómsveit
Tónlistarskólans i Paris
leikur Spænska rapsódiu
eftir Maurice Ravel; André
Cluytens stjórnar.
12.00 Dagskrain. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Spjali frá Noregi. Ingólf-
ur Margeirsson flytur.
15.00 Miðdegistónleikar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir). Tón-
leikar.
16.40 Litli barnatlminn.Sigrún
Björnsdóttir sér um timann.
17.00 Lagið mitt. Anne-Marie
Markan sér um óskalaga-
þátt fyrir börn yngri en tólf
ára.
17.30 Framburðarkennsla I
spænsku og þýsku.
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Lfkamsrækt skólabarna.
Jóhannes Sæmundsson
iþróttakennari flytur fyrra
erindi sitt.
20.00 Lög unga fólksins. Ragn-
heiður Drifa Steinþórsdóttir
kynnir.
20.50 Frá ýmsum hliðum.
Guðmundur ■ Arni Stefáns-
son sér um þátt fyrir ung-
linga.
21.30 „Dimmalimm kóngs-
dóttir” ballettsvita nr. 1 eft-
ir Skúla Halldórsson.
Sinfóniuhljómsveit fslands
leikur; Páll P. Pálsson
stjórnar.
21.50 Kristfræði Nýja testa-
mentisins. Dr. Jakob Jóns-
son flytur tólfta erindi sitt:
Spámaðurinn.
22,00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Lestur
Passiusálma (42).
22.25 Kvöidsagan: „Sá svarti
senuþjófur”, ævisaga
Haralds Björnssenar leik-
ara. Höfundurinn, Njöröur
P. Njarðvik les (2).
22.40 Harmenikulög, Franski
harmonikuleikarinn
Aimable leikur ásamt félög-
um sinum.
23.00 A hljóðbergi,,The Home-
coming” (Heimkoman),
leikrit eftir Harold Pinter;
fyrri hluti. í aðalhlutverk-
um eru Cyril Cusack, Ian
Holm, Paul Rogers og Vivi-
en Merchant. Leikstjóri:
Peter Hall.
23.55 Fréttir. Dagskrárlok.
#s|ónvarp J
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Skólamál Markmið og
leiðir Umræðuþáttur. Þátl-
takendur Anríri ísaksson.
prófessor. Kári Arnórsson.
s k ó 1 a s t j ó r i , H e i m i r
Steinson. rektor lýðhá-
skólans i Skálholti, Páll V.
Danielsson, hagdeildar-
stjóri, og Helgi Jónasson.
fræðslustjóri, sem stýrir
umræðum. Stjórn uppiöku
Sigurður Sverrir Pálsson.
21.20 Grannvaxni maðurinn
(The Thin Man) Bandarisk
biómvnd frá árinu 1933.
Aðalhlutverk William
Powell og Myrna Lov.
Kunnur visindamaður
hverfur á ferðalagi. Dóttir
hans fær fyrrverandi lög-
reglumann, Nick Charles,
til að leita hans. Þýð. Krist-
mann Eiðsson.
22.50 A leið til lýðræðis?
Heimildarmynd um stjórn-
mála- og efnahagsástands á
Spáni. Rætt við utanrikis-
ráðherrann. Jose Maria de
Areilza. og Jordi Pujol. leið-
toga Katalóniumanna. sem
berjast fvrir sjálfræði.
Þyðandi og þulur Stefán
Jökulsson.
23.15 Dagskrárlok