Þjóðviljinn - 11.05.1976, Side 1

Þjóðviljinn - 11.05.1976, Side 1
UOÐVIUINN Þriðjudagur 11. mail976—41. árg. 10/1 tbl. Látið skrá ykkur i Keflavikur- gönguna strax í dag. Því fyrr því betra. Simarnir eru 1-79-66 og 2-51-21. Svar Morgun- blaðsins við morð■ árásum breta t siDustu viku bar upp á sama sólarhringinn tvo at- burði, sem miklu hijóta að ráða um þróun landhelgis- máls okkar íslendinga og deiluna viö breta. Á fundi Hafréttarráðstefnu Sameinuðu þjoöanna i New York var birtur samkomu- lagstexti, sem staðfestir endanlega óskoraðan rétt strandrikja tii 200 mflna auölindalögsögu, svo ekki verður iengur um villst, að við islendingar stöndum á al- þjóðavettvangi meö páimann I höndunum, hvað landhelgismái varðar. Nokkrum kiukkustundum áður en þessi sigur okkar is- lendinga var staöfestur i New York geröi breski NATO-flotinn grimmdar- legri árásir á varðskip okkar aö skyldustörfum en nokkru sinni fyrr. Bókstaflega engu munaði, að hópur fslenskra sjómanna týndi lifi i striðinu við bresku NATO-herskipin. Auðvitað urðu þessir at- buröir tveir tii þess, að nær allir islendingar teija samninga við breta nú, um okkar landhelgismal, frá- leitari en nokkru sinni fyrr. Eðlileg viðbrögð gegn harðnandi ofbeldi breta, sem nú vita sig hafa verri mál- stað en nokkru sinni fyrr eru þau, og þau ein, að gera bretum ljóst að með slikum ofbeldisaðgeröum ioki þau siðasta möguleikanum til samninga hafi hann einhver verið áður. i Morgunblaðinu, ,,blaði allra landsmanna" standa tnál hins vegar með allt öðrum hætti. Daginn eftir að landsmenn fengu fréttir af moröárásum bresku her- skipanna úti fyrir Austur- landi og fundi Hafréttarráð- stefnunnar lauk, þá sá leiðarahöfundur Morgun- blaðsins sérstaka ástæðu til að flytja okkur þann boð- skap, að einmitt nú væri sjálfsagt aö semja við breta — „skynsamlegasta leiðin er friðsamleg lausn til skamms tima” segir þar. Halda menn, að það sé amalegt fyrir sjóliðsforingja NATO um borð i bresku frei- gátunum, að fá svona undir- tektir hjá helsta málgagni is- lensku rikisstjórnarinnar við morðárásum sinum. Getur ályktun þeirra verið nokkur önnur en sú, að það eina sem þurfi til að ná samningum sé að gera full- komlega út af við eitt eða tvö varðskip og áhafnir þeirra. Flaðrandi rakka hafa of- beldismenn löngum iðkað að berja. Þjóðviljinn leggur til að hvereinasti islendingur beri saman ummæli Guðmundar Kjærnested skipherra og ummæli Morgunblaðsins i tilefni nýjustu árásar breta, og geri sér Ijóst með hvorum aðilanum hann stendur. Erla Bolladóttir sambýliskona Sœvars Ciesielski: Játar að hafa skotið Geirfinn Einarsson SJÁ 9. SÍÐU „Munaði hársbreidd að við drukknuðum alflr þrir” sögðu skipverjar á Tý, sem voru hœtt komnir í ásiglingunum Þessi klumpur, sem Sófus Alexanderson, einn skipsmanna á Tý, hampar hér á myndinni, er hluti úr stefni Falmouth, sem á máii varðskipsmanna heitir „Big mouth” (stóri kjaftur) eftir ásiglingarnar á Tý. Þykja þessar menjar árekstursins álitlegt herfang. Undirbúnineur Keflavíkursönsu 300 hafa skráð sig Um hegina var unnið af fullum krafti að undirbún- ingi fyrir Keflavikurgöng- una. Fólst starfið einkum í skráningu göngumanna og dreifingu á dreifimiða. Ásmundur Ásmundsson starfsmaður við gönguna skýrði blaðinu svo frá að skráningin hefði gengið mjög vel um helgina. Hefðu undirtektir fólks verið góðar og ekki spillti „Bein lina" til Einars Ágústssonar sem útvarpað var á sunnudagskvöld fyrir. Unnið er að skráningunni á skrifstofu Miðnefndar herstöðva- andstæðinga að Skólavörðustig 45 en einnig i skólum og viðar á höfuðborgarsvæðinu, Hafnar- firði, Kópavogi og Keflavik. HERINN BURT Seinnipartinn i gær höfðu 260-70 manns látið skrá sig i Reykjavik. Asmundur vissi ekki nákvæmlega hve margir hefðu skráð sig annars staðar, en giskað á að talan væri i heild ekki undir 300. — Þetta er allt á uppleið en við setjum markið hátt, sagði As- mundur. Hann nefndi sem dæmi um áhuga fólks að hringt hafi verið frá Neskaupstað og fólk látið skrá sig i gönguna. Einnig væri von á hópi frá Akranesi og þær fréttir bárust frá Fáskrúðsfirði að fyrir- huguð ganga hefði ýtt við her- stöðvaandstæðingum þar og væri nú i bigerð að stofna deild á Fá- skrúðsfirði. Eins og áður segir var dreift dreifimiða með upplýsingum um gönguna og fundinn á Lækjar- torgi i Reykjavik, Hafnarfirði, Kópavogi, Garðabæ, Keflavik og Akranesi. Um miðja viku kemur Dagfari, málgagn herstöðvaand- stæðinga, út og verður honum dreift ókeypis i sem flest hús á sömu stöðum. —ÞH SJÁ VIÐTÖL Á 3. OG 6. Fjórum mönnum sleppt úr gœslu- varðhaldi en gert að sœta eftirliti lögreglu og takmörkun á ferðafrelsi — málinu er alls ekki lokið I fréttatilkynningu frá rannsóknarlögreglunni sem send var út i gær seg- ir, að Erla Bolladóttir, sambýliskona Sævars Ciesielskis, þess sem játað hefur á sig morðið á Guð- mundi Einarssyni, hafi játað að hafa skotið Geir- finn Einarsson til bana með rifli sem Sævar rétti að henni við Dráttarbraut- ina i Keflavik 19. nóv, 1974 og sagt henni að skjóta Geirfinn, sem þá var nær dauða en lifi eftir meðferð sem hann fékk hjá hópi manna þarna í fjörunni. Eftir að þessi játning kom fram, var þeim fjórum mönnum, sem setið hafa i gæsluvarðhaldi vegna þessa máls, þeim Einari Bollasyni, Sigurbirni .Eirikssyni, Valdemar Olsen og Magnúsi Leopoldssyni, sleppt úr gæslu- varðhaldi i gærmorgun, en þeim er samt gert að sæta eftirliti lög- reglu og ferðafrelsi þeirra er tak- markað i þágu rannsóknar máls- ins. Fréttatilkynning lögreglunnar er birt i heild á bls. 9 i Þjóðviljan- um i dag. Sjá 9. síöu Rannsókn á Ttma- ummœlum Rikissaksóknari hefur að kröfu Kristjáns Péturssonar deildarstjóra, og Hauks Guð- mundssonar, rannsóknar- lögreglumanns, farið þess á leit að opinber rannsókn verði látin fara fram á rétt- mæti sakargifta á hendur þeim um margs konar brot i opinberu starfi, en þessara ásakanir komu fram I grein i Timanum frá 14. fyrra mánaðar. Greinin het ,,Dýr- lingur og James Bond ts- lands” og var auðkennd með stofunum S.B.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.