Þjóðviljinn - 11.05.1976, Page 4
'4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 11. mai 1976
DJOÐVIUINN
MÁLGAGN SÓSÍALISMA,
VERKALÝÐSHREYFINGAR
OG ÞJÓÐFRELSIS.
Útgefandi: Útgáfufclag Þjóðviljans
Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann
Ritstjórar: Kjartan ólafssun
Svavar Gestsson
Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson
Umsjón með sunnudagsblaði:
Árni Bergmann
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar:
Skólavörðust. 19. Simi 17500 (5 linur)
Prentun: Blaðaprent h.f.
ÞETTA TEKUR ÚT YFIR ALLAN ÞJÓFABÁLK
Þegar talsmenn Sjálfstæðisflokksins
voru að teíja þjóðinni trú um það fyrir
tveimur árum siðan, að bráðnauðsynlegt
væri að koma vinstri stjórninni frá völd-
um, — þá var ein höfuðröksemdin sú, að
vinstri stjórnin hafi þanið svo út rikis-
báknið að með öllu væri óviðunandi. Að-
kallandi væri að fá Sjálfstæðisflokknum
völdin i hendur til að skera þetta bákn nið- -
ur við trog og tryggja frelsi einstaklings-
ins!
Á þessu var hamrað i málgögnum Sjálf-
stæðisflokksins, dag eftir dag, viku eftir
viku og mánuð eftir mánuð. Einn var þó sá
i hópi liðsodda Sjálfstæðisflokksins, sem
gekk lengra en allir aðrir i þessari baráttu
frelsispostulanna gegn rikisbákninu, —
það var Matthias Á. Mathiesen, þingmað-
ur nú fjármálaráðherra.
Hann lagði til á alþingi fyrir tveimur ár-
um, að rikisútgjöldin og þar með fjáröflun
rikisins yrðu skorin niður með einu penna-
striki um upphæð sem svarar til 8000—9000
miljóna króna á núgildandi verðlagi.
Nú hefur Matthias Á. Mathiesen gegnt
embætti fjármálaráðherra i nær tvö ár.
Og hvað skyldi hafa orðið um öll stóru
orðin frá honum og öðrum talsmönnum
Sjálfstæðisflokksins um niðurskurð rikis-
útgjalda og samsvarandi afléttingu skatta
á landslýðnum?
Niðurstöður fyrsta heila árs Matthiasar
Á. Mathiesen i starfi fjármálaráðherra,
það er ársins 1975, liggja nú fyrir. Sjálfur
skýrði hann svo frá i ræðu á alþingi i sið-
ustu viku, að i stað þess að framkvæma
stórkostlegan niðurskurð á rikisútgjöld-
um, eins og fólki var talin trú um fyrir
kosningar að Sjálfstæðisflokkurinn myndi
gera, þá dró rikið til sin stærri hluta af
þjóðarframleiðslunni en nokkru sinni fyrr.
í stað þess að skera rikisútgjöldin niður
um 8—9 miljarða eins og boðað hafði verið
þá fór hlutfall rikisútgjalda af þjóðar-
framleiðslunni i fyrsta skipti i sögunni yfir
30% undir fjármálastjórn Matthiasar Á.
Mathiesen, mannsins, sem ákafast hafði
boðað blessun niðurskurðar rikisútgjald-
anna i stórum stil fyrir kosningar.
Og nú að samþykktum nýjum skattaá-
lögum fyrir fáum dögum þá hljóðar út-
gjaldaáætlun fjárlaga þessa árs upp á
hvorki meira né minna en 128% hækkun á
tveimur árum frá fjárlagatölu ársins 1974,
eða alimiklu meira en svarar til hinnar
gifurlegu verðbólguaukningar á þessum
tima, og eru þá reiknaðir með útgjaldalið-
ir, sem færðir voru yfir á sveitarfélögin
við kerfisbreytingu.
Þjóðviljinn vekur ekki athygli á þessum
staðreyndum hér vegna þess, að Við séum
þeirrar skoðunar að stórkostlegur al-
mennur niðurskurður rikisútgjalda sé
lausnarorðið, eins og Matthias Á Mathie-
sen boðaði áður en hann varð ráðherra. Sú
er ekki okkar skoðun, þó fjöldamargt
mætti að sjálfsögðu spara i rikisútgjöld-
unum með góðri stjórnun, ekki sist varð-
andi rekstrarútgjöldin.
En við vekjum athygli á þessum stað-
reyndum til að beina sjónum manna að
þeim ófyrirleitna loddaraleik, sem tals-
menn Sjálfstæðisflokksins með Matthias
Á. Mathiesen fjármálaráðherra i broddi
fylkingar hafa verið staðnir að.
Sá samanburður á orðum og efndum,
sem hér hefur verið rakinn tekur út yfir
allan þjófabálk.
En það er ekki aðeins, að rikisútgjöldin
hafi þanist út, og skattheimtan að sama
skapi, i höndum fjármálaráðherra og fé-
laga hans i rikisstjórninni, heldur hefur
jafnframt átt sér stað gifurleg skuldasöfn-
un hjá rikissjóði og er svo að sjá sem
þeir er við stjórnvölinn sitja viti bókstaf-
lega ekki sitt rjúkandi ráð.
Þegar vörugjaldið var lagt á i júli i fyrra
áttu tekjurnar af þvi að tryggja hallalaus-
an rikisbúskap á siðasta ári, og það að
falla niður við árslok 1975.
Nú liggur hins vegar fyrir, að hallinn á
rikisbúskapnum á siðasta ári varð yfir
6000 miljónir króna. Um gang þessara
mála sagði Geir Gunnarsson alþingis-
maður m.a. i ræðu á alþingi i siðustu viku:
Þegar fjárlagafrumvarpið var lagt
fram i fyrrahaust var talið i greinargerð
þess, að þrátt fyrir álagningu vörugjalds-
ins, sem i júli var talið að tryggði halla-
lausan rekstur, þá yrði samt 770 miljón
króna halli á rikissjóði. Um hálfum mán-
uði siðar flutti fjármálaráðherra f járlaga-
ræðuna og fannst þá vissara, að nær tvö-
falda áætlunina um hallann og taldi að
hann yrði 1270 miljónir kr. Um 50 dögum
siðar, eða 18. des. sl. fór fram umræða um
framlengingu vörugjaldsins, þá nefndi
formaður meirihluta fjárhagsnefndar töl-
una 3500 miljónir i halla. Þá lifðu enn 12
dagar ársins, og skömmu eftir áramót gaf
fjármálaráðuneytið út tilkynningu um af-
komu rikissjóðs á árinu 1975 og taldi hall-
ann hafa numið ekki 3500 miljónum, eins
og 12 dögum áður, heldur 5000 miljónum
kr.
Þetta var hin skarpa mynd, sem Geir
Gunnarsson dró upp af ráðleysi fjármála-
ráðherrans og rikisstjórnarinnar, og sam-
kvæmt upplýsingum fjármálaráðherra
sjálfs varð endirinn svo sá, að hallinn á rik-
isbúskapnum á siðasta ári fór yfir 6000
miljónir kr., þegar öll kurl voru komin til
grafar, en var áætlaður 770 miljónir i
októbermánuði!!
Svo segir Jónas ritstjóri Dagblaðsins, að
vinstri menn geti ekki stjórnað af þvi þeir
hafi ekki vit á fjármálum!
— k.
Ekki samur
Og jafn
Matthias Bjarnason sjávarút-
vegsráðherra fór fyrir nokkrum
mánuðum i ferðalag til Sovét-
rikjanna. Segir ekki mjög af
þeim ferðum hér né heldur hafa
birst um ferðina langar skýrslur
i málgögnum ráðherrans. Þrátt
fyrir þetta veit nú alþjóð að ferð
þessi hefur sett óafmáanlegt
mark á Matthias Bjarnason.
Ekki þannig að hann sé sam-
mála leiðtogum Sovétrikjanna,
Brésnef nýbökuðum marskáiki
né Kosygin. Þess gat hann i
sjónvarpsþætti á föstudaginn;
kvaðst Matthias hafa sömu
skoðun á stjórnarvöldum Sovét-
rikjanna og fyrir ferð þessa! En
það var annað sem olli þvi að
Matthias Bjarnason er vart
samur maður siðan.
Una glaðir við
sitt
> Matthias Bjarnason sjávarút-
vegsráðherra átti að ræða um
neyðarástand fiskistofnanna i
svokölluðu „kastljósi” sjón-
varpsins á föstudagskvöldið.
Það gerði hann lengi vel, þó
furðumikiðá skjön við veruleik-
ann, þar sem hann m.a. nefndi
ekki að heitið gat það höfuð-
vandamál sjávarútvegsins að
útlendingar veiða hér með ráns-
skap og óvinsælum samningum
tugi þúsunda tonna á ári.
Matthias Bjarnason: Barnsleg
hrifning gagntók hann.
En undir lokin mátti Matthías
ekki lengur við bindast, hann
var eins og trúboði sem vildi
nota hið einstæða tækifæri
frammi fyrir alþjóð og yfir svip
hans færðist mærðarleg sæld
þegar hann sagði sjónvarpsá-
horfendum frá lifsreynslu sinni,
einskonar sovéskri niðurdýfing-
arskirn. 1 Sovétrikjunum eru
allir svo jákvæðir og þar eru all-
ir svo ánægðir með það sem þeir
hafa. I Sovétrikjunum eru menn
ánægðir með sjúkrahús, sem
ekki þýddi að bjóða nokkrum
manni hér á landi hvorki til
lækninga né starfs. En hér á
landi eru fjölmiðlarnir alltaf svo
neikvæðir, alltaf að hamra á þvi
sem er vont. Ekki gat boðberinn
þess berum orðum, en það mátti
skilja, að það væri nú eitthvað
annað en i Sovétrikjunum þar
sem fjölmiðlarnir eru svo
dæmalaust jákvæðir um allt og
alla þar i landi: Af þvi gætu is-
lenskir fjölmiðlar mikið lært.
Til fjölmiðla-
náms í Moskvu
Rökrétt framhald af þessum
skoðunum Matthiasar er að
sjálfsögðu það að hann beiti sér
fyrir þvi að koma nafna sinum
Johannesen i fjölmiðlanám til
Sovétrikjanna. Og vissulega
getur undirritaður fyrirfram
fullyrt að Matthias Johannesen
yrði þar góður nemandi, blöð
eins og Morgunblaðið eiga
býsna mikið sameiginlegt með
fjölmiðlum ritskoðunarland-
anna, þó einkum það, að Morg-
unblaðið treystir enn svo mjög á
vald sitt að það skirrist ekki við
að halla réttu máli i trausti þess
að fólk lesi ekkert annað blað.
Þannig er hugarfar Matthiasar
Johannesens vafalaust sem op-
inn og frjór jarðvegur fyrir fjöl-
miðlafræðsluna i Sovétrikjun-
um.
/ Keflavíkur-
gönguna
Það vantáði ekki nema
herslumuninn að Einar Ágústs-
son samþykkti að fara i Kefla-
vfkurgönguna, þegar Vilborg
Harðardóttir spurði hann i þætt-
inum „Beinni linu” á sunnu-
dagskvöldið. Ef Keflavikur-
gangan krefðist aðeins brottfar-
ar hersins yrði Einar Agústsson
sennilega einn göngumanna.
Væri óneitanlega gaman að
verða samferða Einari Agústs-
syni i Keflavikurgöngu, einkum
meðan hann heldur embætti
utanrikisráðherra. Hann þyrfti
ekki að láta sér nægja að „mót-
mæla með fótunum” eins og
Morgunblaðið kallar það, hann
gæti einfaldlega skipað hernum
að fara i ræðu sem hann mætti
gjarnan flytja strax suður við
hlið. Þá yrði Keflavikurgangan
á laugardaginn sigurganga ald-
arinnar.
En þvi miður. Jafnvel þótt
Einar Agústsson gengi á laug-
ardaginn með okkur herstöðva-
andstæðingum er hætt við að
samfylgdhans yrði til litils. Sú
varð reynslan af vinstristjórn-
inni. Hann var allan þann tima
eins og strá i vindi skekið undir
ofurfargi íhaldsins; þegar Einar
Ágústsson birtist á rikisstjórn-
arfundum til þess að ræða her-
stöðvamálið var framganga
hans öll hin dapurlegasta. Það
var eins og hann væri að sligast
undir fargi fjörutiu þúsunda
eintaka af Morgunblaðinu. Og
það farg yrði þungt i Keflavík-
urgöngunni.
Einar Agústss: I Keflavikurgöngu.
Það versta er þó það að hætt
er við að bandarikjamenn tækju
aldrei mark á gönguferð Einars
Agústssonar. Ef hann skipaði
bandariska hernum burt við
dagsbrún laugardagsins 15. mai
er hætt við að hans fyrsta verk
við komuna i bæinn yrði — ekki
að taka þátt i sigurfundi — held-
ur færi hann þvert á móti suður
að hliði aftur — til þess að sækja
brottfarartilkynninguna.
Enginn má sker-
ast þar iír leik
Morgunblaðið vill bera til
baka fréttir Þjóðviljans um að
fólk sé enn að flýja land vegna
samdráttar og atvinnuleysis.
Þvi miður nægja ekki yfirlýs-
ingar Morgunblaðsins til þess
að snúa landfióttanum við, til
þess þarf i fyrsta lagi athafnir,
nýja efnahagsstefnu nýrrar rik-
isstjórnar. Brottflutningur fólks
er mikil blóðtaka fyrir okkar fá-
mennu þjóð. Þess vegna er á-
stæða til þess að skora á fólk að
skoða hugsinn vel áður en það
gripur til þess neyðarúrræðis að
flýja land i atvinnuleit. Hér þarf
á öllum vinnufærum höndum að
halda, ef ekki nú strax, þá strax
og búið er að koma rikisstjórn-
inni frá. Til þess að steypa
stjórninni þurfa allir islenskir
launamenn að leggja sig fram.
Það gera þeir ekki i Sviþjóð eða
i Öanmörku, ættjörðin verður
ekki frelsuð þaðan. —s