Þjóðviljinn - 11.05.1976, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 11.05.1976, Qupperneq 5
Þriðjudagur 11, maí 1976 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 5 „Hafa bandarikjamenn séð að slðan yrði auðveldara að nota andrúmsloft ótta og tortryggni til aö fá Islendinga til að hleypa erlendum her inn I landið.” Mynd þessa tók Skafti Guöjónsson 30. mars 1949 og sýnir hún mannfjöldann I Austurstræti eftir að hafa hrökklast af Austurvelli undan táragassprengjum lögreglunnar og vopnaðra heimdellinga. Mökkur táragass stendur út úr Pósthússtræti. Eðli bandarískrar utanríkisstefnu og Alþýðubandalagið Ur rœðu Gils Guðmundssonar við utanríkismálaumrœður á Alþingi i siðustu viku Skýrslur þær, sem nú hafa verið birtar, bæði af bandariskri og Islenskri hálfu, um könnunar- viðræður ráðamanna þessara þjóða i marsmánuöi 1949, bregða um sumt nýju ljósi á aödragand- ann að inngöngu islands i Atlantshafsbandalagiö. Ætti það nú naumast að þurfa að vefjast fyrir neinum, sem vill vita hið rétta, hver var annar aðal- tilgangurinn með aðild islands að bandalaginu og komu banda- rikjahers á Keflavikurflugvöll tveim árum siðar. Formælendur aðildar islands að Nató og banda- riskra herstöðva hér hafa löngum hamrað á þvi, að tilgangurinn hafi veriö sá að tryggja island gegn hugsanlegri innrás rússa. Nú er engum biöðum um það að fletta lengur, að i sambandi við væntanlega Natóaðild bollalögðu islcnskir og ameriskir ráðamenn um „byltingaröfl f landinu sjálfu”, að kommúnistar gætu hrifsað til sfn völdin hvenær sem væri”, að islenska lögreglan væri alltof fámenn og þar þyrfti úr að bæta. Það liggur nú fyrir skjal- lega sannað, að það var umræðu- og áhyggjuefni nafngreindra islenskra og bandariskra ráöa- manna, hvernig alið yröi á tor- tryggni meöal islendinga, svo að þeir fengjust til að trúa þvi, að ekki óverulegur hluti þjóöar- innar, islenskir sósialistar, ætlaði aö svikja hana i hendur erlendu valdi. Hafa bandarikjamenn séð að siðan yrði auðveldara að nota andrúmsloft ótta og tortryggni til að fá islendinga til að hleypa erlendum her inn i landið. Öll eru þessi gögn býsna fróðleg, ekki aöeins séö isögulegu ljósi, heldur til að glæða skilning á eöli fslenskrar natóaðildar og hersetu og kjarna bandariskrar utan- rlkisstefnu fyrr og siöar. Að lokum vil ég segja þetta. Alþýðubandalagið er engum háð, nema félags mönnuin sinum, islensku alþýðufólki, sem hefur öðlast þá lifsskoðun, að sósial- ismi, samfara lýðræöi, sé það þjóðskipulag, sem vert sé að berjast fyrir. En Alþýðubanda- lagið viðurkennir einnig mikil- vægi þeirrar baráttu og telur hana mái dagsins — sem snýst um það að treysta stjórnarfars- legt, efnahagslegt og menningar- legt sjálfstæði tslands og islenskrar alþýðu. Það er af þcssum sökum, sem Alþýðubandalagið hefur barist og mun berjast af alefli fyrir fullum sigri islendinga i landhelgis- málinu. Það er af þessum sökum, sem Alþýðubandalagið spyrnir fast gegn vaxandi ftökum og áhrifum erlendra auðhringa á islenskt atvinnulif og hagnýtingu islenskra auðlinda. Það er af þessum sökum sem Alþýðubandalagið heldur .áfram af vaxandi þunga baráttunni fyrir úrsögn tslands úr Nató, brottför alls herliðs héðan og afnámi herstöðva. Ég hef þá bjargföstu sannfæringu, að þessi barátta verði árangursrik á komandi árum. Þá skoðun mina byggi ég ekki sist á þvl, að þessi stefna er hin eina, sem tryggt getur þjóð- frelsi og búiö haginn fyrir alþýðu- völd i auðvalds stað á tslandi. A morgun, 12. maí, kemur út bókin „REFSKÁKIR OG RÉTTVÍSI” eftir eftir Ingveldi Gisladóttur. Bóksalar og aðrir, sem vilja fá bókina, gjöri svo vel að panta hana hjá höfundi í síma 17919 Ingveldur Gisladóttir. Lögtaksúrskurður Keflavík, Grindavík, Njarðvík og Gullbringusýsla Lögtaksúrskurður vegna ógreiddrar en gjaldfallinnar fyrirframgreiðsfu þing- gjalda 1976 var uppkveðinn i dag, fimmtu- daginn 6. mai 1976. Lögtök fyrir framangreindum gjöldum ásamt dráttarvöxtum og kostnaði, verða látin fara fram að 8 dögum liðnum frá birtingu þessarar auglýsingar verði þau eigi að fullu greidd innan þess tima. Keflavik, 6. mai 1976 Bæjarfógetinn í Keflavik, Grindavík og Njarðvík, Sýslumaðurinn i Gullbringusýslu Jón Eysteinsson Hjúkrunarfræðingar Sjúkrahús Siglufjarðar óskar eftir hjúkrunarfræðingum til sumarafleysinga og i föst störf. Upplýsingar hjá forstöðukonu s. 96-71502 og framkvæmdastjóra s. 96-71669. rE" " ""i i i ■ ■ ■ ■ Fólksbíla Vörubíla Dróffarvéla og Jeppa hjólbarðar á gamla verðinu, án hækkaðs vörugjalds - Takmarkaðar birgðir Sparið þúsundir - kaupið Barum í dag. TÉKKNESKA BIFREIÐAUMBOÐIÐ Á ISLANDIH/E AUÐBREKKU 44-46 SÍMI 42606 AKUREYRI: SKODA VERKSTÆÐIÐ A AKUREYRI H/F. OSEYRI 8. EGILSTAÐIR: VARAHLUTAVERSLUN GUNNARS GUNNARSSONAR. GARÐABÆR: NYBARÐI H/F GARÐABÆ.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.