Þjóðviljinn - 11.05.1976, Síða 9

Þjóðviljinn - 11.05.1976, Síða 9
Þriöjudagur 11. maí 1976 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9 Gengið með skipverjum að kanna skemmdirnar á Tý „Þaö var aöeins sekúnduspursmál hvenær við slepptum takinu vegna skorts á súrefni,” sögöu þeir Sigurjón og Sigurður (til hægri), en þeir voru á kafi i sjó I nær tvær min. eftir ásiglingu Falmouth. Þeir stóöu á opnu þyrluþilfarinu og munaði litlu aö þeim skolaöi út- byrðis. Mynd Ek. A myndinni sést þegar Faimouth geröi fyrstu atlöguna aö Tý og slæmdi f hann skutnum. Mynd: Sófus. Burðarbitar voru brotnir i sundur undir þyrluþilfarinu sem gekk mikiö niður eins og sést á þessari mynd. Einnig má sjá loftrör, sem stóö upp úr þilfar- inu, kubbaö i sundur. „Eghékkþarna eins ogfáni á stýrinu með lappirnar upp í loft” ijjgjjjjjl — sagði Guðjón Karlsson sem stóð við stýrið í öllum þremur ásiglingunum Skemmdir kannaðar á Berufiröi eftir átökin. Mynd Sófus. — ,,Nú rúllar hann yfir” var það eina sem ég sagöi viö Guö- mund Kjærnested skipherra þegar Falmouth sigldi á okkur þarna á miðunum, sagði Guöjón Karlsson háseti en hann stóö viö stýriö i öllum ásiglingunum þremur. — Ég var næstum al- vcg viss um aö skipið sykki I tveimur seinni ásiglingunum, þegar skipið hallaöist um 70 gráöur og snerist um heilar 180 gráöur... Jú, auðvitað var maður skithræddur, ég held aö þaö hafi enginn haldiö sálarró sinni óskertri þótt menn hafi kannski ekki látiö þaö i ljós. — Það er enginn vafi á þvi að ef við hefðum verið fleiri á þyrluþilfarinu i annarri ásiglingunni heföi einhverjum skolað útbyrðis, sögðu þeir Sigurður Bergmann og Sigurjón Jónsson, en þegar Falmouth keyrði á þyrluþilfarið i fyrra skiptið voru þeir tveir ásamt einum til að slaka út klippunum og undirbúa árás á togara. — Við náðum með herkjum að halda okkur meðan ósköpin gengu á en það hafa áreiðanlega verið einar tvær minútur sem liðu áður en við náðum að draga andann vegna þess að sjórinn flæddi stöðugt yfir okkur. Við vorum allir að gefast upp, sjórinn fossaði með miklum þunga og það var mikil þolraun að halda sér án þess að ná neinu lofti i lungun. Það hefðu ekki mátt liða nema nokkrar sekúndur til viðbótar áður en við hefðum sleppt tak- inu og við vorum allir farnir að súpa sjó að meiru eða minna leyti. Ef við hefðum verið fleiri við að slaka út klippunum hefði ein- hver drukknað á þvi er enginn vafi. Við gátum tveir náð taki á hurð sem var lokuð og með nokkrum handföngum. Sá þriðji fann hins vegar ekkert annað en stórtkefli sem hann rétt náði ut- an um en fékk ekkert almenni- legt tak á. Ef fleiri hefðu verið á þilfarinu heföi einhvern vantað handfestu og skolað útbyrðis, það er varla nokkur vafi á þvi, sögðu þeirSigurður og Sigurjón. Sófus Alexandersson gekk með Þjv. mönnum um skipið og sýndi skemmdirnar. Hann sagði að enginn hefði haft hugmynd um að árekstur væri i bigerð hjá freigátumönnum fyrr en allt i einu að Falmouth sló skutnum i stefni Týs. Hún hafði þá siglt samsiða Tý i nokkrar klukku- stundir og kom þetta mjög skyndilega. Hið sama var að segja um næsta árekstur, menn voru óviðbúnir þessum ósköp- um og hín mesta mildi aö slys eða dauösföll skyldu ekki hljót- ast af. — Jú, þetta var óskemmtileg lifsreynsla og allir vorum við hræddir að þessu sinni. En menneru harðiráþviaögefa sig ekki og mér vitaniega hefur enginn maður orðað það að koma sér burt af varöskipinu. Við ætlum að ég held allir út aftur um leið og þess verður óskað. —gsp Yfirlýsing rannsóknarlögreglunnar vegna Geirfinnsmálsins Svo sem áöur hefur verið frá greint hefir aö undanförnu staðiö yfir umfangsmikil rannsókn við sakadóm Reykjavlkur, sem eink- um hefir beinst að þvi að upplýsa hver orðiö hafi afdrif tveggja horfinna manna, þeirra Guðmundar Einarssonar úr Reykjavik og Geirfinns Einars- sonar frá Keflavik. Rannsókn út af hvarfi Guömundar Einarssonar hófst i siðari hluta desember sl. og hafa siöan setið i gæsluvarðhaldi þrir menn, sem grunaðir eru um að hafa átt sök á dauða Guðmundar. Menn þessir heita Sævar Marinó Ciesielski, Kristján Viðar Viöars- son og Tryggvi Rúnar Leifsson. 1 framburði þeirra hefur komið fram, að Guðmundur hafi látist i átökum við þá að Hamarsbraut 11 i Hafnarfirði, og þeir siðan búið um lik hans og hvatt til kunningja sinn, Albert Klahn Skaftason, sem komið hafði i bifreið að Hamarsbraut 11 og aðstoöað þá við að flytja lik Guðmundar út i Hafnarfjarðarhraun. Albert Skaftason kannast við að hann hafi farið fert» þessa en eigi vitaö hvaö verið var að flytja. Albert var I gæsluvaröhaldi frá 23. desember til 19. mars 1976. Þrátt fyrir leit hefur lik Guðmundar ekki fundist enn. Þá hefir rannsókn málsins á siðarastígi mjög beinst að þvi aö upplýsa um tUdrög ökuferðar, sem fyrrnefndir Sævar Marinó og Kristján Viðar eru taldir hafa farið i ásamt Erlu Bolladóttur sambýliskonu Sævars Marinós, og fjórða manni, þ.e. ökumanni, semekkierennljóst hvervar, til Keflavikur og þar að Dráttar- braut Keflavikur, og að atferli þeirra þar. Ferð þessi var að öll- um likindum farin að kvöldi 19. nóvember 1974, en eftir þann tima var Geirfinns Einarssonar sakn- að. Samkvæmt frásögnum þeirra Kristjáns Viöars ogErlu urðu þau vitni að ágreiningi og átökum milli manna. Telur Kristján Viðar sig þar hafa séð til manna, sem eltu og umkringdu mann einn og þjörmuðu siðan aöhonum með höggum ogbarsmiðum og jafnvel eggvopnum. Hafi maður þessi verið orðinn mjög illa á sig kom- inn og blóöugur er hann sá hann siðast. Þá hafi einhverjir manna þessara hins vegar stuggað sér frá og Sævar Marinó farið með sig að bifreiö þeirra, Telur Kristján Viðar sig minnast þess, að er þeir voru komnir i bif- reiðina, hafihann séð riffil ihönd- um Sævars Marinós, en Erlu sá hann þá ekki. Þá hefir Erla nú nýlega skýrt svo frá, að Sævar Marinó hafi er þetta gekk yfir verið með riffil i höndunum og haldið honum mjög að sér og nánast lagt hann i hendur hennar og sagt henni fyrir verkum um það hvernig hún skyldi beita honum gegn nær- stöddum manni, sem þá var þeg- ar mjög illa á sig kominn. Hafi hún siðan að fyrirmælum Sævars Marinós beint þessu vopni að manninum og hleypt af. Hafi henni þá sortnað fyrir augum, misst byssuna i hendur Sævars Marinós, sem stóð fast að baki hennar, en siðan hlaupið á brott og falið sig, og siðan komist til Hafnarfjarðar og Reykjavikur eins og áður hefir veriö frá skýrt. Eftir myndum að dæma telur Erla næsta sennilegt, að sá, sem fyrir þessu varð, hafi verið Geir- finnur Einarsson. Ekki er frekar upplýst um afdrif hans. Treglega hefir gengið að fá fram hjá Sævari Marinó hvaö gerst hafi þarna sem og um afdrif Guðmundar Einarssonar, og hefir hann orðið margsaga i þeim efnum. Kristján Viðar og Erla töldu sig bera kennsl á nokkra þeirra, sem voru þarna staddir á athafnasvæöi Dráttarbrautarinn- ar, og voru þeir Einar Gunnar Bollason, Magnús Leópoldsson, Valdimar Olsen og Sigurbjörn Eiriksson tilgreindir I þvi efni, en þeir hafa staðfastlega neitað þvi. Hafa þeir Einar Gunnar, Magnús, Valdimar og Sigurbjörn að undanförnu sætt gæsluvaröhaldi vegna þessarar rannsóknar, en hafa nú veriö leystir úr þeirri gæslu, en að ákvörðun rannsókn- ardómara veriö gert aö sæta eftirlitilögregluog takmörkunum á ferðafrelsi I þágu rannsóknar málsins. Rannsókn er haldið áfram bæði af hálfu rannsóknarlögreglu og fyrir dómi. Þau Sævar Marinó, Kristján Viðar, Erla og Tryggvi Rúnar eru öll I gæsluvarðahaldi vegna rannsóknar málsins og jafnframt gert að sæta sérfræði- legri rannsókn á likamlegu og andlegu heilbrigði, og er sú rannsókn hafin fyrir nokkru. Astæða er til aö ætla að menn þeir sem staddirvorui Dráttar- braut Keflavikur umrætt sinn hafi skýrt einhverjum frá þvi. Þá er ástæða til þess að ætla að þeir Sævar Marinó, Tryggvi Rúnar og Kristján Viðar hafi skýrt ein- hverjum frá afdrifum Guðmund- ar Einarssonar. Er hér með skorað á þá sem slika vitneskju hafa að gefa sig þegar fram við rannsóknarlög- regluna. Frá sakadómi Reykjavikur.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.