Þjóðviljinn - 11.05.1976, Side 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN , Þriðjudagur 11. mal 1976
Var Ulrike Meinhof myrt?
Frankfurt 10/5 reuter ntb — Milli
600 og 1.000 manns slógust i dag
við lögreglu á götum Frankfurt er
þeir voru að mótmæla dauða
Ulrike Meinhof I fangelsinu I Sutt-
gart I gær.
Fólkið efndi til mótmælagöngu I
gegnum miðborg Frankfurt en
slagsmálin hófust er lögreglan
reyndi að dreifa mannfjöldanum
með kylfum og vatnsþrýstidæl-
um. Tók fólkið á móti og henti
bensinsprengjum að lögreglunni
og inn I amk, einn bil. Að sögn
lögreglu særðust nokkuð margir
úr báðum fylkingum og margir
voru handteknir.
Dauði Meinhof hefur vakið öldu
mótmæla i Vestur-Þýskalandi og
vlðar. í Frakklandi sprungu þrjár
sprengjur I dag við skrifstofur
Jeremy
Thorpe
segir
af sér
London 10/5 reuter — Jeremy
Thorpe formaður Frjálslynda
flokksins i Bretlandi sagöi af sér i
dag að beiöni forystu flokksins
vegna þess að miklar umræður
hafa oröið I breskum fjölmiðlum
að undanförnu um hvort hann
væri kynvilltur.
Umræðurnar hófust ilok janúar
sl. þegar maður nokkur, Norman
Scottað nafni, skýrði frá þvl fyrir
rétti aö hann hefði átt vingott við
Thorpe fyrir uþb. fimmtán árum.
Thorpe harðneitaði þessum á-
burði en málið tók að versna er
tveir flokksmenn viðurkenndu að
hafa greitt Scott fé fyrir bréf sem
hann hafði I fórum sinum og gátu
reynst flokknum skeinuhætt i
kosningum sem stóðu fyrir dyr-
um. t
Eftir mikil blaðaskrif um þessi
bréf birti Thorpe opinberlega tvö
bréfsem hann ritaði Scott á árun-
um 1961—2. Endar annað þeirra á
þessum orðum: „Þinn ástkæri
Jeremy, ég sakna þin.” Næstu
daga rifust blöðin um þaö hvort
venjulegir karlmenn brúkuðu
svona kveðjur i sendibréfum sin á
milli eða það þyrfti sérstakar
manngerðir til.
Eftir þetta gerðust þær raddir
æ háværari i flokknum um aðj
Thorpe bæri að segja af sér til
þess að bjarga orðsti flokksins.
Nýr formaður verður ekki kos-
inn fyrr en i haust.
Með afsögn Thorpes hafa allir
stóru flokkarnir þrir i Bretlandi
skipt um formenn siðan i siðustu
kosningum. Talið er liklegt að ef
frjálslyndir biða mikinn hnekki i
kosningum vegna þessa máls
verði það til að efla Ihaldið þvi
margir óánægðir ihaldsmenn
kjósa oftast frjálslynda I mót-
mælaskyni. ,
Heimsþekktur organisti i Dómkirkjunni
Leikur 136 ára
gamla efnisskrá
Heimsþekktur organleikari, dr.
Michael Schneider, er hér i boði
félags isl. orgelleikara. Hann
heldur tónleika I Dómkirkjunni i
kvöld kl. 20.30. Þá flytur hann
fyrirlestur á vegum Tónlisar-
skólans i Keykjavik. Auk þess
gefst þeim organleikurum, sem
þess óska, tækifæri á að hlýða á
dr. Schneider leika fyrir sig á
morgun, miðvikudaginn 12.
Efnisskráin á tónleikunum i
Dómkirkjunni er hin sama og
Felix Mendeisohn — Bartholdy
lék 1840 i Tómasarkirkju i Leip-
zig.
íþróttir
Framhald af bls. 11
Það sem eftir var sóttu vik-
ingar stift en tókst ekki að skora
fleiri mörk, enda oftast 11 menn
til varnar hjá Val. Valsmenn áttu
sára fá og engin hættuleg mark-
tækifæri i siðari hálfleik.
Þeir Eirikur Þorsteinsson,
Stefán Halldórsson, Óskar
Tómasson voru að minu áliti
bestu menn Vikings-liðsins og
vörn liösins stóð sig vel það litla
sem á hana reyndi. Það er greini-
legt að vikingar ættu að ná langt i
sumar ef sama harkan og kraft-
urinn verður i liðsmönnum og var
að þessu sinni. Hætt er þó við að
Keflavik urgangan:
Hagnýtar
upplýsingar
Reykjavik
Skrifstofa herstöðvaand-
stæðinga er að Skólavörðustig
45. Simar: 17966 og 25121.
Sjálfboðaliðar skrái sig I sima
25120 á daginn. Skrifstofan er
annars opín frá morgní tii
miðnættis.
Tengiliðir utan
Reykjavíkur:
Kópavogur
Ragna Freyja Karlsdóttir
42462
Björn Arnórsson 44122
Jens Hallgrimsson 40257
GARÐAHREPPUR
Björg Helgadóttir 42998
Hafnarfjörður
Ester Kláusdóttir 50542
Guðrún Bjarnadóttir 53472
Kefiavik
Jóhann Geirdal 1054
Miðnefnd hvetur alla her-
stöðvaandstæðinga til þess að:
— skrá sig sem allra fyrst i
gönguna
— vinna ötullega að undir-
búningi
— hafa samband við
kunningja og vini og hvetja þá
— muna að útvega sér
barnagæslu i tima
— huga strax að göngu-
búnaði, skóm til skipta, skjól-
fötum og nesti.
gegn velleikandi liðum, við góðar
aðstæður þurfi meira að koma til.
Valsliðið náði sér aldrei upp i
þessum leik, það getur leikið vel
við góðar aðstæður, en þá er galli
á islensku liði að geta ekki breytt
um leikaðferð við vondar
aðstæður eins og voru i gær-
kveldi, þær eru svo oft fyrir hendi
hér á landi, jafnvel yfir hásum-
arið. Þó má telja liklegt að Vals-
liðið muni blanda sér i topp-
baráttuna i sumar, það hefur yfir
mörgum góðum einstaklingum að
ráða og þegar þvi tekst upp
verður sjálfsagt ekki létt að
stöðva það.
Að loknum leiknum i gær voru
Vikingum afhent sigurlaunin á
gamla trépallinum á Melavell-
inum, sem hefur i mörg ár verið
verðlaunapallur reykviskra
knattspyrnuliða.
—S.dór
&
SKIPAUTGCRÐ RIKISINS
- iTÍ +T-
M/s Esj
a
fer frá Reykjavik mánudaginn
17. þ.m. vestur um land i
hringferð.
Vörumóttaka: þriðjudag,
miðvikudag og til hádegis á’
fimmtudag til Vestfjarða-
hafna, Norðurfjarðar, Siglu-
fjarðar, Ólafsfjarðar, Akur-
eyrar, Húsavikur, Raufar-
hafnar, Þórshafnar og Vopna-
fjarðar.
Pípulagnir
Nvlagnir, breytingar,
hitaveitutengingar.
Simi :ífs!)2!» (milli' kl.
1- og l oíí el'tir kl.
7 á kvöldin).
þýskra fyrirtækja og I Róm
sprakk sprengja við útibú þýskr-
ar ferðaskrifstofu. 55 fangar I
fangelsinu i Stuttgart þar sem
Meinhof dó neituðu að snúa
aftur til klefa sinna eftir úti-
vistartima i dag. 1 Frankfurt
neituðu tveir menn að taka þátt I
réttarhöldum i máli þeirra, en
þeir eru ákærðir um ofbeldisverk.
Kölluðu þeir dómarann morð-
mgja. I Vestur-Berlin tóku 300
manns þátt I mótmælagöngu þar
sem ma. voru borin spjöld meö
áletruninni „morð I fangelsi”. í
Vin I Austurriki voru 11 manns
handteknir fyrir að mála á veggi
mótmæli gegn daiiða Meinhof.
Verjendur Ulrike Meinhof hafa
vefengt þá fullyröingu fangelsis-
yfirvalda I Stuttgart aö hún hafi
stytt sér aldur með þvi að hengja
sig I klefa sinum. Halda þeir þvi
fram að hún hafi verið myrt.
Systir Ulrike skýrði frá þvi I dag
að hún hafi sagt það við sig oftar
en einu sinni að hún myndi aldrei
fremja sjálfsmorð. Ef þvi væri
haldið fram mætti hún vita að hún
hafi verið myrt.
Ulrike Meinhof hefur setið I
fangelsi siðastliðin fjögur ár og
allt siðasta ár hefur hún staðið
fyrir rétti, nær þvl daglega,
ásamt þremur öðrum félögum i
hópnum sem oftast er kenndur
við hana og Andreas Baader.
Kvennakór
Suðurnesja
Tónleikar
Kvennakór Suðurnesja
heldur sina árlegu tónleika
fyrir styrktarféiaga i Félags-
biói i Keflavik i kvöld, þriðju-
dag 11. mai, og 12. og 14. Tón-
leikarnir hefjast kl. 21.
Fyrir tveimur árum tók
Kvennakórinn þátt i alþjóð-
legri söngkeppni i Kork á tr-
landi og gekk mjög vel. Kórinn
hefur hug á annarri ferð til Ir-
lands og hefur söngskráin að
þessu sinni verið gerð með það
fyrir augum. Hún er fjölbreytt
að vanda: Til dæmis verður
flutt kantata Karls ó. Runólfs-
sonar „Ljóð andvarans”, sem
hann samdi fyrir kvennakór
og einsöngvara, lagið „Asta”
eftir Skúla Halldórsson, fimm
einsöngslög eftir Herbert H.
Agústsson og lög eftir Mozart,
Schubert og Mendelssohn. Þá
verður einnig fluttur kór úr
Hollendingnum fljúgandi eftir
Wagner.
Kórstjóri er Herbert H.
Agústsson, undirleikari Ragn-
heiður Skúladóttir og ein-
söngvarar þær Elisabet Er-
lingsdóttir, sópran og Ragn-
heiður Guðmundsdóttir, alt.
ALÞÝÐUBANDALAG
Alþýðubandalagið i Reykjavik, Árbæjardeild.
Aöalfundur Arbæjardeildar verður haldinn mið-
vikudaginn 12. mai kl. 20.30 að Grettisgötu 3.
Þröstur ólafsson, formaður Alþýðubandalags-
félagsins i Reykjavik, mætir á fundinum.
Dagskrá að öðru leyti: Venjuleg aðalfundar-
störf. Stjórnin.
Aðalfundur 4. deild
(Breiðagerðis og Alftamýrahverfi) verður haldinn fimmtudaginn
13. mai kl. 20.30 að Grettisgötu 3.-Stjórnin.
BLAÐBERAR
óskast í eftirtalin hverfi
Seltjarnarnes
Fossvogur
Miklabraut
Vinsamlegast haf ið samband við afgreiðsluna
— sími 17500.
ÞJÓÐVILJINN
Vinnuheimilið að Reykjalundi
í Mosfellssveit:
Lausar stöður
Fóstra
óskast til að veita forstöðu nýju dag-
heimili að Reykjalundi. Þarf að geta hafið
störf sem fyrst.
Trésmiðir
Okkur vantar húsasmiði eða húsgagna-
smiði til starfa á Reykjalundi.
Upplýsingar i sima 66200.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast i lögn Skammadalsæðar
fyrir Hitaveitu Reykjavikur.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri,
. Frikirkjuveg 3, gegn 10.000,- kr. skila-
tryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, föstu-
daginn 28. april 1976, kl. 11 f.h.
INNKAUPA5TOFNUN REYKJAVIKURBORGA-R
Friki'kjuvegi 3 — Sími 25800