Þjóðviljinn - 20.07.1976, Síða 1

Þjóðviljinn - 20.07.1976, Síða 1
DJODVIUINN Þriðiudagur 20. júli 1976. —41. árg. —157. tbl. Efnahagslegur hernaður — sjá þýðingu á banda- rískum skýrslum á síðum 12 og 13. Hækkanirnar eru fjarri samanburðargrundvelli Haraldur Steinþórsson, varaform. BSRB um úrskurð kjaranefndar Þjóðviljinn hafði i gær sam- band við Harald Steinþórsson varaformann BSRB um dóm kjaranefndar vegna einstakra starfsmannafélaga sem ekki náð- ust samningar við. Hér er um að ræða 14 félög innan BSRB og á- kaflega mismunandi niðurstöður eftir félögum. Hjá þeim sem hækka ekki fyrr en um áramót er um að ræða lágmarkshækkun ASl en hún var 1%. Hinir fá örlitið meira, sagði Haraldur. bað virðast vera þrjár megin- reglur i hækkunum. Sum starfs- heiti hækka um launaflokk strax, siðan aftur um næstu áramót. Önnur hækka ekkert núna, en hækka um næstu áramót,og þriðji möguleikinn er að hækka um starfsheiti strax og ekkert um næstu áramót, Þau starfsheiti sem fá hækkun strax eru t.d. tækni- og verk- stjórnarstörf, sem eru samt sem áður langt fyrir neðan það sem er á frjálsum markaði. Hvergi kemur fram i niðurstöð- unum hvað þetta þýðir i kaup- hækkunum. Þau störf sem hækka um einn flokk t.d. á miðju ári hækka um 3,6% i launum frá þeim tima eða um 1,8% á ársgrund- velli. Það aö hækka um einn flokk þýðir meðalhækkun Alþýðusam- bandsins. Við fáum hana miklu seinna, þannig að þetta eina pró- sent hjá ASl ætti að jafngilda 1,8%. Hækkanirnar eru langt frá að vera nægilegar miðað við þær samanburðartölur sem lagðar voru fyrir kjaranefnd. —GFr Haraldur Steinþórsson. Meirihl. bœjarstjórnar i Kópavogi: F elldi kauphœkkun— Samþykkti lystireisu Tillaga bæjarfultrúa Alþýðu- bandalagsins i Kópavogi um að unglingavinnufólk fengi kaup- hækkun sem næmi þvi, að það hefði á að giska 200 krónur um timann i stað 130 og 140 krónur var felld með 6 atkvæðum fram- sóknar- og sjálfstæðismanna gegn 5 atkvæðum minnihluta bæjarstjórnar. bess i stað sam- þykkti meirihlutinn 10% kaup- hækkun til unglinganna. Þessi kauphækkun er rétt svipuð þvi, sem almennt gerðist um kauphækkanir um siðustu mánaðamót. Samt sem áður viðurkenndu allir bæjarfulltrú- ar að unglingarnir hefðu unnið gott verk og ættu skilið kaup- hækkun. Að sögn Olafs Jónssonar, bæj- arfulltrúa Alþýðubandalagsins, var samþykkt á sama fundi að senda fjóra fulltrúa i tóm- stundaráði i lystireisu til Skot lands og má áætla að kostnaður- inn af þeirri reisu verði svip- aður og sá kostnaður hefði orðið ef gengið hefði verið að kröfum unglinganna um launahækkun. Gunnar Guðbjartsson, form. Stéttarsambands bœnda, um visitölubindinguna: Misræmi aukið meðal bænda ,,£g tel alls ekki útilokað að á- kvörðunin um visitölubindingu á lánum til útihúsa og ræktunar að einum fjórða muni stöðva framkv. til svcita að mestu. Öruggt er að hún mun auka enn misræmi milli bænda. Þeir menn sem þurfa að leggja i dýr ar framkvæmdir og standa und- ir þessum dýru lánum eru enn Gunnar Guöbjartsson. verrstaddir cn áður, samanbor- ið við þá sem þegar hafa tekið lán, eða hafa byggt upp jaröir sínar.” Þetta sagði Gunnar Guð- bjartss., formaður Stéttarsam- bands bænda i gær, þegar Þjóð- viljinn leitaði álits hans á nýjum lánareglum Stofnlánadeildar landbúnaðarins. ,,Ég hef verið þeirrar skoðun- ar að ekki væri hægt að fram- kvæma visitölubindingu á þenn- an hátt i landbúnaði. Nær hefði verið að koma á sérstöku verð- jöfnunargjaldi á búvöru, sem notað yrði til þess að greiða nið- ur verðtrygginguna, þannig að allir sætu við sama borð. — Þessi lánakjarabreyting kemur ekki inn i verðlagsgrund- völl búvara fyrr en eftir eitt ár, ef hún hefur þá áhrif þar. Þetta bitnar aðeins á hluta bænda- stéttarinnar og þvi óvist að það fáist viðurkennt i grundvellin- um. Eitt og hálft prósent verð- jöfnunargjald myndi hinsvegar nægja til þess að greiða niður verðtrygginguna og ætti ekki að vera svo tilfinnanlegt. — Ég treysti mér ekki til þess að segja i fljótu bragði hvað visitölubindingin bitnar á stór- um hluta bændast. Það má hinsvegar búast við þvi.að Framhald á bls. 14. Friðrik vann Kortsnoj — spennan helst í mótinu — Sjá 5. siðu. Kári Jónasson og Póra Ingvadóttir úr stjórn Starfsmannafélags ríkisútvarpsins fyrir miðju, Margrét R. Bjarnason lil hægri. Illuti útvarpsmanna á Starfsmannafélagsfundinum i gær. YFIRVINNUBANNI r AFLETT Á fjölmennum fundi i gær sam- þykkti Starfsmannafélag rikisút- varpsins að aflétta yfirvinnu- banninu, sem verið hefur i gildi frá 4. júni. Banninu var aflétt samkvæmt ákvörðun fundarins á miðnætti i nótt. Fréttaaukar og beinar útsendingar verða þvi með venjulegum hætti i dag. A fundinum kom fram megn ó- ánægja með úrskurð kjaranefnd- ar, og samþykktu útvarpsmenn harðorða ályktun þar sem segir að starfsmannafélagið áskilji sér allan rétt til frekari aðgerða til þess að knýja fram réttmætar kjarabætur. Frekari aðgerðir eru að sögn útvarpsmanna til athugunar hjá stjórn Starfsmannafélagsins, og er ekki gott að segja upp á hverju íélagið kann að taka.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.