Þjóðviljinn - 20.07.1976, Qupperneq 8
8 SIÐA — ÞJOÐVILJINN ÞriOjudagur 20. júlt 1976.
Montreal ’76
Knatt-
spyrna
(jrsliti þeim leikjum i knatt-
spyrnu á ólympiuleikunum i
Montreal sem þegar hafa farið
fram:
Pólland — Kúba 0:0
Brasilia — A-Þýskal. 0:0
Handknatt-
leikur
Crslit þeirra leikja i hand-
knattieik sem fram hafa farið
til þessa:
Rúmenla — lingverjal. 23:18
Pólland — Túnis 26:12
Tékkóslvak. — USA 28:20
Júgóslavia—Kanada 22:18
(15:12)
V-Þýskal. — Danmörk 18:14
(7:5)
Sovétr. — Japan 26:16
(11:5)
Körfuknatt-
leikur
Úrslitleikja I körfuknattleik
sem fram hafa farið á ÓL i
Montreal:
Tékkóslóvak. —
Egyptal. 103:64
(55:32)
Sovétr.—Mexikó 120:77
(61:40)
Kúba —Astral. 111:89
Júgóslavia —Puerto
Rico 84:63
Kanada — Japan 104:76
Blak
Úrslit úr blakleikjum á ÓL:
Brasilia — Egyptal. 3:1
Sovétr. — Itaiía 3:0
Tékkóslóvak. — Kanada 3:0
Pólland —S-Kórea 3:2
Gulltínsla
rússa
Flestir spá þvi, að lyftinga-
keppnin á ÓL að þessu sinni
verði nánast einvigi á milli
sovétmanna og búlgara. Og i
fyrstu grein lyftingakeppninn-
ar I fiuguvigt sigraði sovét-
maðurínn Alexander Voronin,
lyfti samtals 242,5 kg. sem er
Ólymplumet og heimsmet i
þessum þyngdarflokki,
t 2. sæti varð ungverjinn
Gyorgy Koszegi með 237,5 kg.
og i þriðja sæti Iraninn
Mohammad Nassiri með
235 kg.
Reynir á
uppleið
Reynir á Arskógsströnd lyfti
sér af botni 2. deildar með góðum
sigri yfir isfiröingum nú um helg-
ina og hefur nú jafnmörg stig og
Selfoss I deildinni.
Reynismenn voru miklu á-
kveönari i leiknum og sýndu mik-
inn baráttuvilja, og var sigur
þeirra sanngjarn. Þeir skoruöu
eina mark leiksins rétt fyrir leik-
hlé meö skallabolta úr horn-
spyrnu.
,, Okkar menn löbbuðu inn á
völlinn með bæöi stigin en ekkert
út af honum aftur”. Þannig lýsti
einn af forystumönnum knatt-
spyrnunnar á ísafirði leiknum.
Dregið i Biharkeppninni:
Einn leikur í Rvk
i 1. umferðinni
t gær var dregið I 16 liða úr-
slitin I Bikarkeppni KSt.
Aðeins einn leikur I fyrstu um-
ferð verður I Reykjavik og
þrlr leikir verða milli 1.
deildarliða.
Þessi lið drógust saman i 1.
umferð:
Þróttur, Nesk. — Viðir sand-
gerði
IBI — Fram
Haukar — Valur
KA - KR
Völsungar — Breiöablik
IA — Vikingur
IBK — IBV
Þróttur, Rvk. — FH
Leikirnir verða á heimavelli
þess liðs sem fyrr er talið og
fara þeir allir fram 27. júli
nema leikur Þróttar, Nesk.,og
Viöis^sem fer fram 28. júll.
Ekkert mark
á Akureyri
Akureyrarliöin Þór og KA sem
berjast um 2. sætið I 2. deild
skildu jöfn I marklausum leik á
Akureyri á laugardag. Fyrri leik
liðanna lyktaði einnig jöfnum. 1:1.
Þetta var heldur lélegur leikur
og einkenndist af þvi hve mikil-
vægur hann var I baráttunni um
það að fá að leika aukaleik um
sætið I 1. deild að ári. Ekki bætti
það úr að völlurinn var renn -
blautur, þvl hellirigningu geröi á
Akureyri kvöldiö áður, I fyrsta
skipti 1 langan tlma.
KA var nær sigri I leiknum og
átti heldur fleiri tækifæri þótt
Þórsmarkiö kæmist raunar sjald-
an I hættu. Bestu menn KA voru
þeir Hörður Hilmarsson, sem
heldur vörninni saman og byggir
upp allt spil, og Jóhann Jakobs-
son tengiliöur. Hjá Þór voru best-
ir þeir Gunnar Austfjörö og
Samúel I markinu.
Ahorfendur voru um 1000 og
dómari var Arnþór Óskarsson.
Tveir leikmenn Þórs fengu að sjá
gula spjaldið hjá dómara, þeir
Gunnar Austfjörð og Magnús
Jónatansson.
Unglingalandsleikurinn i Laugardal:
íslenskur sigur
aldrei í hættu
Unglingalandslið okkar I knatt-
spyrnu, skipað leikmönnum 16-18
ára, sigraði jafnaldra sina frá
Færeyjum I landsleik sem fram
fór á Laugardalsvellinum á
laugardag meö 3 mörkum gegn
engu.
Framan af var leikurinn þóf-
kenndur og fór að mikluleyti fram
á miðju vallarins, og 1 hálfleik
hafði hvorugu liðinu tekist að
skora. En I hálfleik þinguðu
Islensku strákarnir og árangur-
inn var eins og áður segir 3:0sig-
ur.
I fyrri hálfleik voru bæði liðin
að þreifa fyrir sér og var ekki
mikiö um marktækifæri, en þó
áttu bæði liðin möguleika á að
skora, en allt kom fyrir ekki.
En fundarhöldin meö Tony
Knapp þjálfara i hálfleik höfðu
sitt að segja. Aðeins 9 mlnútur
voru liðnar af slðari hálfleiknum
er Jón Orri Guðmundsson, sem
kom inná eftir hálfleikinn, komst
einn og óvaldaöur innfyrir vörn
færeyinganna og sendi
af öryggi framhjá markveröin-
um, 1:0.
Ekki voru liðnar nema örfáar
minútur frá fyrsta markinu, að
annað mark var staöreynd. Jón
Orri var þar enn aö verki og nú
skoraöi hann fallegt mark með
skalla, eftir mjög góöa fyrirgjöf
utan af kanti, 2:0.
Það sem eftir var leiksins fór að
mestu framá vallarhelmingi
færeyinganna, en þó áttu þeir
fáein hraðaupphlaup sem nær öll
voru hættulaus.
Þó svo að leiktiminn styttist nú
óðum hafði maður það á tilfinn-
ingunni að islensku strákarnir
hefðu ekki sagt sitt siðasta orð i
leiknum. Sú varð og raunin, þvi
örfáum sekúndum fyrir leikslok
prjónaði Þórir Sigfússon sig
skemmtilega gegn um vörn fær-
eyinganna og gulltryggði sigur
okkar manna með stórglæsilegu
marki, 3:0
Islenska liðiö stóð sig i heild vel
i þessum leik og náði á köflum
góöu spili, en þess á milli voru
þeir ekki nógu ákveðnir og
öruggir. Þetta á einkum við um
fyrri hálfleikinn, en i þeim siðari
sýndu strákarnir betur hvað i
þeim býr, og var þá ekki að
stökum að spyrja. Einkum var
það miöjan sem var slök, en það
kom ekki mikiö aö sök þar sem
færéyingarnir voru ekki betri,
en þeir sýndu nokkrum sinnum
góð tilþrif, en oftast tókst þeim aö
klúðra þvi sem þeir vora að reyna
að gera og oft á furöulegan hátt.
Þegar á heildina er litið, var
islenskur sigur mjög sanngjarn
oghefði jafnvelátt aövera stærri.
Guðmundur Þorbjörnsson sækir að Magnúsi Guðmundssyni markverði KR‘, Guðjón
Hilmarsson er við öllu búinn. .
Meistaraheppnin
með Val í gærkvöld
Svo sannarlega hefur
meistaraheppnin fylgt Val I
siðustu leikjum og kannski
mest i leiknum gegn KR i
gærkvöld. Kr-ingar börðust
eins og ljón allan leikinn og
áttu miklu fleiri marktæki-
færi i leiknum.
Valsmenn léku undan orð-
anstrekkingi i fyrri hálfleik
en KR-ingar b.yrjuðu af
miklum krafti. Strax á 3.
min. átti Björn Pétursson
skot i þverslá Valsmarksins.
Nokkru siðar var Valsmark-
ið aftur i hættu eftir fyrirgjöf
frá vinstri þar sem Ólafur
Magnússon markvörður
Vals sýndi mikið óöryggi i
þessum fyrsta leik slnum i 1.
deildinni, en Sigurður Dags-
son var meiddur og gat ekki
leikið þótt hann sæti á vara-
mannabekk.
A 22. min. skoraði Björn
Pétursson fyrsta mark leiks-
ins. Hann lék upp hægra
megin ótruflaður af vörn
Vals, alveg upp að marki og
skaut föstu skoti innan vita-
teigs.
Rétt fyrir lok hálfieiksins
var Valsmarkið enn i hættu
eftir glannalegt úthlaup
Ólafs markvarðar.
Á 2. min. siðar hálfleiks
jafnaði Bergsveinn fyrirVal,
mikið heppnismark, því skot
hans lenti i varnarmanni KR
og breytti um stefnu, óverj-
andi fyrir Magnús.
Aðeins minútu siðar átti
Jóhann Torfason skot i þver-
slá Valsmarksins af stuttu
færi. Nokkru siðar klúðraði
Hálfdán örlygsson frir fyrir
marki eftir sendingu frá
Birni Péturssyni. A 20. mln.
var Guðmundur Jóhannes-
son kominn einn innfyrir
Valsvörnina en Ólafur bjarg-
aði með góðu úthlaupi.
Á 22. min komst KR aftur
yfir með marki frá Guð-
mundi þar sem hann fékk
góða sendingu inn i vitateig
frá Sigurði Indriðasyni.
KR-ingar héldu sókninni á-
fram og á sömu min. átti
Björn Pétursson skot alveg
út við stöng en Ólafi tókst að
verja, enda skotið laust.
Er 10 min. voru eftir af
leiknum tókst Valsmönnum
að jafna. Albert Guðmunds-
son fékk boltann frá lnga
Birni og skaut föstu skoti
sem snerti varnarmann KR
og truflaði Magnús i mark-
inu.
Minnstu munaði að KR
tækist að komast yfir aftur á
sömu min., þá dundu þrjú
skot i röð á Valsmarkið, en
alltaf var einhver i vörninni
fyrir. Hættulegasta færi Vals
i þessum hálfleik var á 42.
min. er Magnús bjargaði
stórglæsilega úr þvögu á
markteig/
KR-ingar hefðu verðskuld-
að sigur i jtessum leik, þeir
börðust af krafti allan leik-
inn og gáfu ekkert eftir.
Bestu menn voru þeir Björn
Pétursson, Halldór björns-
son og Magnús i markinu.
Þetta var einn lélegasti
leikur Vals i l.'deild i sumar.
Hin margrómaða framlina
var bitlaus og áreiðanlega
hefurenginn þeirra leikið sig
i landsliðið ef hægt er að
komast svo að orði. Vörnin
var óörugg og Ólafur mark-
vörður eðlilega óstyrkur i
þessum fyrsta leik sinum i
deildinni.
Dómari var Þorvarður
Björnsson og sýndi hann
tveim gula spjaldið i leikn-
um, Inga Birni og Guðjóni
Hilmarssyni.
—Hj.G.
Völsungur náði
stigi af ÍBV
Vestmannaeyingar töpuðu húsvikingar áttu þó mudu I liði IBV voru bestir
öðru stigi slnu I 2. deild á fleiri og hættulegri mark- markvöröurinn Arsæll
Húsavik um hclgina og töldu tækifæri, og svipaða sögu er Sveinsson og Þórður, sem
sig eftir leikinn heppna aö að segja um seinni hálfleik. hélt Hermanni alveg niðri i
bjarga þó ööru stiginu i Vestmannaeyingar voru þó leiknum. í liöi Völsungs var
leiknum. enn ágengari, en vörn Völs- vörnin sterkasti hluti liðsins
. ungs var traust. A 20. min meö þá Guðmund Jónsson og
Sveinn Sveinsson skoraði tókst IBV loks að skora, Gisla Haraldsson sem bestu
fyrsta martað fyrir IBV á 4. siguröur markvöröur varði menn og hafði Gisli full tök á
min.uppúr fallegu samspih. skot af stuttu færi en missti hinum marksækna fram-
Á 20. min. jafnaöi Hafþór b0itann frá sér til Tómasar herja IBV, Erni Óskarssyni,
Helgason fyrir Völsung, lyfti Pálssonar sem renndi bolt- sem skoraði ekki mark.
boltanum yfir markvörð sem anum i markið. Um 350áhorfendur voru að
hljóp út úr markinu. Hreinn leiknum,og dómari var Guð-
Elliöason færði Völsungi svo Tvívegis björguðu mundur Haraldsson. Segja
forystu á 30. min. úr send- vestmannaeyingar á linu, og húsvikingar að hann sé besti
ingu frá Helga Helgasyni. markvörður þeirra bjargaði dómari sem þangaö hafi
Vestmannaeyingar áttu snilldarlega skallabolta frá komiö á þessu keppnistima-
öllu meira i fyrri háifléik.en Hreini. bili.
Þriðjudagur 20. júli 1976. ÞJÓÐVILJINN — StDA 9
Montreal ’76
A-þjóðverjar
fengu fyrsta
gullið á ÓL
i Montreal
Það veröur ekki annað sagt
en að keppnin I sundi ætli að
verða glæsileg á Ólympiu-
leikunum I Montreal. Hvert
heimsmetiðá fætur öðruhefur
séð dagsins ljós þessa tvo
daga sem keppnin hefur stað-
ið.
Þar skal fyrst nefna Mike
Bruner I 200 m. flugsundi,
hann varð aö setja heimsmet
til að sigra i þessari grein, og
annarsstaðar er sagt frá þvi
meti hér á siðunni.
Þá setti John Naber frá USA
heimsmet I 100 m baksundi I
síðari milliriðlinum I þessari
grein, synti á 56,19 sek. og I
milliriðlakeppninni I 100 m
bringusundi synti John
Hencken frá USA á nýju
heimsmeti, 1:03,88 min.
Það þarf ekki að taka það
fram aðfjöldinn allur af sund-
mönnum syndir á betri tima
en gamla ólymplumetið er.
Uwe Potteck.
— þegar hún hlaut 10 fyrir æfingar
á tviré i flokkakeppni i fimleikum
Rúmenska stúlkan Nadia
Comaneci, sem er aðeins 14 ára
gömul, hlaut hæstu einkunn sem
gefin hefur verið og raunar hægt
er aðfá I fimleikum, er hún hlaut
einkunnina 10 fyrir æfingar sinar
á tvirá I flokkakeppni kvenna I
fimleikum á ÓL I Montreal um
helgina. Þessi einkunnargjöf hef-
ur að vonum valdiö deilum, enda
vafasamt að æfing hennar hafi
verið algerlega fullkomin, eða að
ekki sé hægt að gera betur. Ef svo
er, hvaða einkunn á þá að gefa?
Hitt kemur engum á óvart, þó að
Comaneci gengi vel, hún er
Evrópu meistari I fimleikum
kvenna og sögð besta fimleika-
stúlka sem nokkru sinni hefur
komið fram.
t flokkakeppninni leiðir lið
Sovétrikjanna með 194,20 stig, lið
Rúmeniu er I 2. sæti með 192,70
st., a-þýska Uðið er I 3. sæti með
191,60 stig, i 4. sæti er lið Ung-
verjalands með 188,65 stig, og I 5.
sæti er liö USA með 187,65 stig.
Baráttan mun þvi standa á milli
Sovétrlkjanna, Rúmeniu og
A-Þýskalands.
Comaneci sigraði sem áður
segir i keppni á tvlrá, Ludmila
Turischeva, frá Sovétr., sigraði i
gólfæfingum, hlaut 9,90. Nelli
Kim, frá Sovétrikjunum og Lud-
mila Turischeva sigruðu i æfing-
um á hesti, hlutu 9,80, og Nadia
Comaneci sigraði i æfingum á
jafnvægisslá, hlaut 9,90, en I þess
ari grein varð hin vinsæla Olga
Korbut I 2. sæti, en annars gekk
henni ekki sérlega vel að þessu
sinni.
Þarna varum skylduæfingar að
ræða, en keppnin I frjálsum æf-
ingum fór fram I gærkveldi og
stóð fram á nótt þar sem 4ra tima
munur er á tima hér og I Kanada.
Heimsmet 1200 m.
flugsundi karla
Vilborg setti nýtt tslandsmet i 100 m. skriðsundi.
— þegar banda
rikjamaðurinn
Mike Bruner sigraði
óvænt i þessari grein
Bandarlkjamaðurinn Mike
Bruner sigraði mjög óvænt i 200
m flugsundi, er hann synti á nýju
heimsmeti i úrslitasundinu,
1:59,23 min. Og það sem kom
kannski mest á óvart var að
a-þýski heimsmethafinn, Roger
Pyttel, sem flestir bjuggust við aö
myndi sigra, enda ekki nema
mánuður siöan hann setti heims-
metið, varö að láta sér nægja 4.
sætið. Honum tókst ekki að rjúfa
bandarlska trlóið i þessari grein.
Annars uröu úrslit þessi:
1. Mike Bruner USA
1:59,23 min.
2. Steven Gregg, USA
1:59,54 min.
3. Bill Forrester, USA
1:59,96 min.
4. Roger Pyttel, A-Þýskal.
2:00,02 min.
5. Michael Kraus, V-Þýskal.
2:00,46 min.
Vilborg setti nýtt
Islandsmet í 100
metra skriðsundi
— en varð samt 42ja af 45 keppendum i greininni
Þaö sýnir kannski betur en
nokkuð annað hve aftarlega viö
erum I sundi á heimsmælikvarða,
aö þrátt fyrir að Vilborg Sverris-
dóttir, sundkonan unga úr Hafn-
arfirði, setti gott nýtt Islandsmet
i undankeppninni i 100 m. skriö-
sundi á ÓL, synti á 1:03,26 min.,
hafnaði hún I 43. sæti af 45.
Vilborg átti sjálf eldra tslands-
metið, 1:04,00 min. og það var
einmitt þaö met sem kom henni á
Ólympiuleikana fyrr i sumar.
Þaö dugði hinsvegar skammt að
bæta það þegar á sjálfa ólympiu-
leikana var komiö? flestar stúlk-
urnar syntu vel undir minútu i
undanrásunum.
Þaö þarf vartað taka þaö fram,
aö Vilborg komst ekki I milliriöla.
Heimsmetin
hrynja
i sundinu
A-þjóöverjar urðu fyrstir til
að vinna gull á Ólympiuleik-
unum I Montreal, það var
skyttan Uwe Potteck, sem
sigraði i skotkeppni með
skambyssu, fékk573súgaf 600
mögulegum.
I öðru sæti varð landi hans
Harald Vollmar, Evrópu-
meistarinn I þessari grein
maðurinn sem flestir bjuggust
við að myndi sigra i greininni.
I 3. sæti varö austurrlkismað-
ur, Rudolf Dollinger aö nafni.
A-þýska sveitin sigraði
A-þýska sveitin i 4x100 m fjór-
sundi kvenna sigraöi meö yfir-
burðum I úrslitakeppninni I þess-
arigreiná óLum helgina. Sveitin
synti á 4:07,95 min. en I henni
voru þær Ulrike Richter, Hanne-
lora Anker, Andrea Pollack og
Kornclia Ender. t 2. sæti varö
sveit Bandarikjanna á 4:14,55
min. (sjáið timamuninn) 13. sæti
sveit Kanada á 4:15,22 min. I 4.
sæti sveit Sovétr. á 4:16,05 min.
oe 15. sæti sveit Hollands á 4:19,93
Sigurður á nýju ís- “ • |I|g
landsmeti í 1500 m.
Sigurður Ólafsson setti nýtt íslandsmeti 1500m skriðsundi á Ólympiuleikunum I gær, hann synti á 17:25,10 mln, en eldra metið átti Friðrik Guö- mundsson, 17:28,00 mln. Þetta met dugði Siguröi þó skammt, hann var siöastur I sinum riðli, nærri hálfri min- útu á eftir næsta manni og nærritveimur minútum á eftir þeim bestu i greininni. aIBW w „ wi’' ^ Ji • m' u
Sigurður ólafsson.
a
LJ
o
0
A
\ZL1
a
a
O
D
Rúmenska stúlkan Nadia Comaneci fékk
Hæstu einkunn
sem gefin
hefur verið
í fimleikum