Þjóðviljinn - 20.07.1976, Síða 16
UOWIUINN
Dómsrannsókn á skipakaupum íslendinga erlendis
Þriöjudagur 20. júli 1976.
Vélverkuð
koknunna-
skreið til
Nígeríu?
,,í Garðinum eru til afkasta-
miklar þurrkfiskverkunarvélar,
sem væntanlega veröur gerö til-
raun með að vinna i kolmunna i
skrcið nú i vikulokin”, sagði
Jakob Jakobsson, fiskifræð-
ingur i samtaii við blaðið I gær.
Sagði hann, að togarinn Run-
ólfur, sem nú stundar tilrauna-
veiðar á kolmunna i flotvörpu
undir leiðsögn Sveins Svein-
björnssonar, fiskifræöings,
hefði fengið 70tonn af kolmunna,
sem landað yrði á Hornafirði og
i Neskaupstað. Tilrauna-
vinnsla hefur farið fram i Nes-
kaupstað á kolmunna, og var
hann flakaður i gömlum sildar-
flökunarvélum og gafst vel. Var
siðan búinn til marningur úr
flökunum og verður hann send-
ur á markað erlendis.
Jakob sagði, að ætlunin væri
sú, að á miðvikudag og fimmtu-
dag aflaði Runólfur kolmunna,
sem landað yrði i borlákshöfn,
en gerð yrði tilraun með að
vinna i skreið i þurrfiskverkun-
arvélum, eins og að framan get-
ur. Kolmunnaskreiðin yrði sið-
an send til kynningar á Nigeriu-
markað. —úþ
Alþýðubanda-
lagsfélag
stofnað
á Flateyri
Sl. sunnudag þann 11. júli var
stofnað nýtt alþýðubandalags-
félag á Flateyri.en þar hefur ekki
áður starfað flokksfélag Alþýðu-
bandalagsins. Félagið heitir
Alþýðubandalagið önundarfirði
og starfssvæði þess nær yfir
önundarfjörð.
1 stjórn voru kjörnir Guðvarður
Kjartansson, sem er formaður,
og auk hans Helgi Sveinn
Sigurðsson og Guðmundur A.
Oddsson. Varamenn i stjórn voru
kjörin Ragna Eyjólfsdóttir og
Sigurður Hafberg. Endurskoðandi
félagsins var kjörinn Sigmar
ólafsson.
Á fundinum voru eínnig kjörnir
fulltrúar hins nýja alþýðubanda-
lagsfélags á kjörfæmisráðste&iu
Alþýðubandalagsins á Vest-
fjörðum sem haldin verður að
Núpi i Dýrafirði dagana 4.-5.
september nk.
Reytingsafli
„Það hefur verið reytingsveiði,
en ekki þó meira,” sagði Jakob
Jakobsson, fiskifræðingur um
loðnuveiðarnar um helgina.
Sagði hann að norð-austan
strekkingur hefði verið á mið-
unum og loðnan stygg. Einn og
einn bátur hefði fengið sæmi-
legan afla, aðrir minna. Lo'ðnan
var misjöfn.
Rannsóknarskipið Bjarni
Sæmundsson fann stóra og góða
loðnu um 50 milur austur af veiði-
svæði bátanna, en er þeir komu
að var loðnan farin niður. Sú
loðna er stærri og jafnari en sú,
sem fengist hefur allra siðustu
daga. —úþ.
Skipstjórinn dæmdur í
eins mánaðar fangelsi
Sakadómur Sna?fells- og
Hnappadalss. hefur kveðið upp
dóm yfir skipstjóranum á Lárusi
Sveinssyni SH 126 frá Ólafsvik.
Var skipstjórinn dæmdur 1
þriggja mánaða fangelsi, 1 milj.
kr. sekt og 4 mánaða varðhald ef
sektin verður ekki greidd innan 4
vikna frá birtingu dómsins. Afli
og veiðarfæri var gert upptækt til
landhelgissjóðs Islands.
Skipstjórinn var staðinn að ó-
löglegum veiðum sl. þriðjudag
norðvestur af Garðskaga 2,9 sjó-
milur innan svæðis sem friðað er
frá 2. til 25. júli vegna sildar-
hrygningar. Það var landhelgis-
flugvélin Sif sem kom að bátnum
á togveiðum á þessu svæði.
Jón Magnússon fulltrúi saka-
Framhald á bls. 14
Skákmótið í Manila
Torresl 1/2 y.
yfir Karpoff
Eugene Torre frá Filipseyjum
hefur komið mjög á óvart á fjög-
urra manna skákmóti sem nú
stendur yfir á Manila. Hann er I
efsta sæti með 3 1/2 vinning eftir
fjórar umferðir. Heimsmeistar-
inn Karpof er 11/2 vinning á eftir
með 2 vinninga i 3. sæti er Browne
frá Bandarikjunum meö 1 1/2 v.
og i neðsta sæti er Lubojevic frá
Júgóslavíu með 1 vinning.
Torre vann Lubojevic i 4. um-
ferð, en áður hafði hann sigrað
Karpov. Aðeinstværumferðir eru
eftir i mótinu og er óhætt að full-
yrða að þessi frammistaða
Torres eru ein mestu skáktiöindi
á þessu ári, þar sem keppinaut-
arnireru iallra fremstu röð skák-
manna i heiminum.
Millisvœðamótið
í Sviss
Byme,
Smysloff
og Híibner
í efsta sæti
Staðan að loknum sex umferð-
um á millisvæðamótinu I skák 1
Bienne i Sviss er þannig: Byrne
(Bandarikjunum), Smysloff
(Sovétrikjunum) og Húbner
(V-Þýskalandi) eru með 4,5 v.,
Larsen (Danm.), Portisch (Ung-
verjalandi), Czom (Ungverjal.),
Smejkal (Tékkósl.). og
Matanovvic (Júgósl.) erumeö3,5
v. Liberzon (Israel) og Sosonko
(Hollandi) 3 v. Geller (Sov.), Tal
(Sov.), Gulko (Sov.) og Sanguieti
(Argentinu) 2,5 v. Anderson
(Sviþ.) og Castro (Colombiu) 2 v.
Lombard (Sviss) 1/2 v. Diaz
(Kúbu) rekur lestina mð engan
vinning. Þeir Anderssonog Geller
eiga ólokna biðskák.
Petrosjan fyrrverandi heims-
meistari er meðal þátttakenda i
mótinu, en þess er ekki getíð i
fréttfrá Reuther hve marga vinn-
inga hann hefur hlotið; þó er vitað
að hann gerði jafntefli við
Portisch I 5. umferð.
1 dag hefst útsending skattseðla, álagningarseðla og innheimtuseðla i einu lagi. Verða seðlarnir send-
ir út næstu dagana en á föstudaginn veröur skattskráin gerð opinber. Geysilegt verk er við frágang
skattseðlanna og framtöl og skattaútreikning. Hér vinnur starfsmaðurskattstofunnari Reykjavfkvið að
leggja siðustu hönd á verkið á skattstofunni i gær, hún heitir Astrós Arnadóttir, og var hún ásamt
mörgum öðrum að ganga frá seölunum.
Margir hafa vafalaust reiknað út skattana sina I meginatriðum þegar talið var fram og framtölunum
skilað i vetur, en æði margir verða nú sem fyrr undrandi á skattinum sinum. Forsendur skattlagningar-
innar eru littbreyttar I öllum meginatriðum,nema að þvi er varðar eignaskattinn eins og frá hefur verið
greint. Ennfremur var nokkrum minni háttar iiöum breytt við álagninguna i ár, eins og viðhaldi eigin
húsnæðis, sem að þessu sinni færist á frádráttarlið að fullu,cn var i fyrra prósenta af fasteignamatinu.
Helmings verð-
mœtaaukning
með fullvinnslu grásleppuhrogna
,,Ég held að við gætum full-
unnið öll grásleppuhrogn hér
heima og aukið þar með út-
flutningsverðmæti þeirra um
amk. helming frá þvi sem nú
er,” sagði Jón ögmundsson,
matvælaverkfræðingur, en
hann starfar hjá Rannsóknar-
stofnun fiskiðnaðarins.
Jón sagði að fullvinnsla á grá-
sleppuhrognum yfir i það að
verða kaviar væri mjög einföld
og breytingakostnaður væri
sáralitill á verksmiðjum hér.
Verksmiðjurnar gætu siðan not-
að dauða timann, sem nú mynd-
ast hjá þeim ár hvert og stendur
kannski hálft árið hjá sumum,
til þess að fullvinna grásleppu-
hrognin.
1 sambandi við umbúðir sagði
hann að nota mætti hart plast
utan um kaviarinn i stað glers,
og til væru verksmiðjur hér
heima sem unnið gætu slikar
umbúðir.
Þá sagði Jón, að kaviar
unninn úr grásleppuhrognum
væri allur litaður, ýmist ráuð-
ur eða svartur, og vissi hann
ekki til að litaður kaviar væri
bannaður á markaðssvæði okk-
ar.
Um það hvort aðrar þjóðir
gætu aukið hráefnisöflun sina ef
við ykjum fullvinnslu, sagði
Jón, að það væri rétt hugsan-
legt, en þó aldrei i þeim mæli að
við réðum ekki yfir markaðnum
samt sem áður. — úþ
Er kaupverð skipa
falsað í stórum stíl?
— Það fer fram dómsrannsókn
á þvi hvort kaupverð cr rétt eða
ekki, sagði Björn Tryggvason að-
stoðar Seðlabankastjóri er blaða-
maður spuröi hann að þvi hvort
rétt væri, að hafin væri rann-
sókn á þvi hvort keypt væri til
landsins skip á þann hátt að gefið
væri upp hærra verð við innkaup
en hið raunverulega verð væri.
Björn sagðist vilja taka fram,
að þótt þessi rannsókn væri til-
komin vegna kaupa á ákveðnu
skipi, Grjótjötni, væri grunur
manna, að rangt innkaupsverð
hefði verið gefið upp við innkaup
annarra skipa einnig, en þó væri
sá grunur ekki bundinn neinum
einum ákveðnum innkaupum,
heldur væri unnið að þvi af Seðla-
bankanum að kynna sér þessi
innk. almennt. Sagði Björn enn-
fremur að vegna betri samskipta
og nánari við erlendar stofnanir
væri auðveldara að rannsaka
þessi mál nú en verið hefði.
Eins og kunnugt er þurfa inn-
lendir kaupendur skipa erlendis
frá að leggja fram eigið fé, sem
nemur yfirleitt 20% af kaupverði
skipa. Grunur leikur nú á, að
kaupverð erlendis hafi ekki verið
svo hátt, sem látið er i veðri vaka,
og upp gefið hærra til þess að
mæta 20% eiginfjárframlaginu og
ná þannig út i gjaldeyri i lánum
hér og erlendis nær öllu raun-
verulega kaupverðinu eða öllu.
Þá leikur grunur á.að annars
konar falsanir hafi átt sér stað i
sambandi við skipakaup islend-
inga erlendis frá, svo sem i sam-
bandi við kaup á rekstrarvörum
til útgerðar nýrra skipa.
Af annarri rannsókn Seðla-
bankans á viðskiptum islendinga
erlendis má nefna, að ýtarleg
rannsókn á fasteignakaupum
þeirra fer nú fram á vegum bank-
ans.
—úþ
I
I
I
I
BARUM
BREGST EKKI
Fólksbíladekk
Kynnið ykkur
hin hagstæðu verð.
TÉKKNESKA BIFREIÐAUMBOÐIÐ
Á ÍSLAND/ H/E
AUÐBREKKU 44—46 KÓPAVOGI SÍMI 42606