Þjóðviljinn - 26.07.1979, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 26. júll 1979. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3
Hæstu
heildargjöld
félaga í
Reykjavík
SÍS efst
á blaði
Samband Isl. samvinnu-
félaga er gert að greiða
hæstu opinberu gjöldin i
Reykjavík fyrir árið 1979 eða
598.9 miljónir króna. Þar af
er aðstöðugjald 314.934
krónur.
Næst i röðinni koma Flug-
leiðir (287,3 milj.), Eimskip
(247.354 milj.) og Oliufélagið
(201.837 milj.)
Hæstu landsútsvör greiða
hins vegar ATVR 630 milj.
kr., Oliufélagiö 227 milj.,
Skeljungur 166 milj. kr og
Oliuverslun íslands 146
milj. kr.
Hæstu greiðendur sölu-
gjalds 1978 eru ATVR 3,4
miljarðar kr. Ollufélagið 1,6
miljarð, Póstur og simi 1,4
miljarð, Skeljungur 1,3
miljarður, Olluverslun
íslands 1,1 miljaröur og SÍS 1
miljarður.
Sjá nánar á bls .5.
-GFr
Stóreignamenn
í Reykjavík:
Þorvaldur í
Síld og flsld
og Sílla og
Valda-
fjölskyldan
Eignaskattur er greiddur
af hreinni eign en 22 gjald-
endur I Reykjavlk greiða
meira en 2 miljónir I eigna-
skatt. Efstur á blaði er Þor-
valdur Guðmundsson I Sild
og fisk með 8,1 miljón en
næsta koma I röðinni 3 börn
Valdimars Þórðarsonar
(Silli og Valdi) þau Sigurður
bankaritari með 6.3 milj.,
Þorkell með 6 milj., og
Sigriður með 5,8 milj. kr.
Gunnar B. Jensson eigandi
Selássins er fimmti I röðinni
með 4,1 milj. kr. I eignaskatt,
þá Emil Hjartarson (TM-
húsgögn) með 4 miljónir en
nr. 7 er Hannes Guðmunds-
son sendiráðunautur i
varnarmáladeild utanrikis-
ráðuneytisins. Hann borgar
rúmar 4 miljónir af eignum
sinum.
Nr.8 er Hjalti Geir
Kristjánsson (Kristján Sig-
geirsson) með 3,8 milj. kr.,
nr. 9 er Sveinn Valfells iðn-
rekandi (Steypustöðin o.fl.)
með 3,8 milj., nr 10 er Guðni
Þórðarson fyrrverandi for-
stjóri Sunnu meö 3,2 milj.
kr.i eignaskatt. Sjá nánar á
siðu 5.
—GFr
f stuttu
máli
Fréttabréf Kj ararannsóknamefndar:
Kaupmáttur launa
með hæsta móti
Kaupmáttur launa var með þvi
allra hæsta sem hann hefur nokk-
urn tima verið á fyrsta ársfjórð-
ungi þessa árs.
Þetta kemur fram i nýútkomnu
fréttabréfi. Kjararannsóknar-
nefndar. Abyrgöarma&ur þess er
Þorsteinn Pálsson, fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitenda-
sambandsins. Kjararannsóknar-
nefnd er skipuö fulltrúum
Alþýðusambandsins og Vinnu-
veitendasambandsins og er ætlað
aö standa fyrir hlutlausum athug-
unum á launum og launakjörum i
landinu.
Sem fyrr segir var kaupmáttur
launa einhver hinn allra hæsti á
fyrsta ársfjórðungi þessa árs.
Aðeins á fjórða ársfjóröungi sið-
asta árs var hann herslumun
hærri en eftir „sólstöðusamning-
ana” árið 1977.
Hjá verkamönnum sýndi kaup-
máttarvisitala fyrir timakaup i
dagvinnu 131,3 stig á fyrsta árs-
fjórðungi þessa árs og 131.9 stig á
fjórða ársfjórðungi s.l. árs. Til
samanburöar má nefna að á
fyrsta ársfjórðungi 1977 var vlsi-
tala þessi 112.5 stig, eða um 14%
lægri. A sama tima stjórnar Geirs
Hallgrimssonar komst hún hæst i
129.7 stig, en siðan fór hún lækk-
andi vegna svonefndra „kaup-
ránslaga” og hækkaði ekki að
nýju fyrr en eftir kosningarnar á
siðasta ári.
Er þarna þvi hleypt stoðum
undir þær fullyrðingar að kaup-
mátturinn sé jafnan hæstur undir
vinstri stjórn.
Aðurnefndar tölur eru um
timakaup verkamanna. Alveg
sama verður uppi á teningnum
ef skoðaðar eru upplýsingar um
laun verkakvenna eöa iðnaðar-
manna.
eng.
Gufuskortur hefur hamlað starfsemi Kisiliöjunnar við Mývatn. Hinsvegar mun verksmiðjan ekki hafa
starfsleyfi sitt I lagi.
Kísilidjan án starfsleyfis?
Samkvæmt þeim fréttum er
Þjóðviljinn hefur aflað sér er
Kisiliðjan við Mývatn ekki með
gilt starfsleyfi.
Ekki tókst blaðinu að fá þetta
staðfest hjá Heilbrigðiseftirliti
rikisins. Sú stofnun er nú lokuð
vegna sumarleyfa, enda mjög
vanmönnuð eins og fram hefur
komið áður.
En þótt Kisiliðjan hafi getað
starfað þrátt fyrir ekkert starfs-
leyfi þá, hafa þau náttúruöfl sem
starfsleyfinu er ætlað að taka til-
lit til, gert sinar eigin ráðstafanir.
Þannig hefur gufuskortur hamlað
mjög framleiðslu verksmiðj-
unnar. A stundum hafa þvi afköst
verksmiðjunnar dottið niður fyrir
helming afkastagetu.
Það er rikið sem á aö sjá Kisil-
iöjunni fyrir gufu, en eftir jarö-
hræringarnar I Bjarnarflagi fyrir
# Gufuskortur
dregur mjög
úr jramleiöslu
% Borað er i
Bjamarfiagi eftir
meiri gufu
tveimur árum hefur það ekki
gengið ýkja vel.
Nú er verið að hreinsa holu i
Bjarnarflagi og I áætlunum
iðnaðarráðherra um oliu-
sparnaðaraögerðir er gert ráð
fyrir aö boruð verði þar ein hola
til viðbótar ef ekki fæst næg gufa
við hreinsunina.
Náttúruöflin hafa eyðilagt
fleira en gufuholurnar. Hráefnis-
þrær verksmiðjunnar hafa einnig
farið mjög illa. Hafa þær sprung-
ið svo illa að notkun þeirra hefur
verið hætt með öllu. Var þess i
stað byggð ný þró utan við jarð-
skjálftasvæðið og það hátt að
hraunflóö eiga ekki að geta náð til
hennar.
Hin nýja þró er mikið mann-
virki og mun hafa kostað um 400
miljónir I byggingu. Hún tekur
um 300 þúsund rúmmetra. Þyki
mönnum það mikið er þess að
gæta að vetrarbirgðir þurfa að
vera fyrir hendi þvi ekki er hægt
að afla hráefnis af botni Mývatns
yfir veturinn.
Við full afköst framleiðir verk-
smiðjan um 24000 tonn á ári og við
hana starfa um 60 manns.
eng.
Einka-
flugvél
týndist
á leið til íslands
Litil einshreyfilsvél frá
Bandarikjunum á leið til Is-
lands hefur verið týnd siðan i
gær, en hún hafði aðeins
flugþol til 21.22 I gærkvöldi.
Vélin er eins hreyfils Cessna
172 og er eigandi hennar einn
I vélinni. Samband við vélina
rofnaði fljótlega eftir að hún
lagði af stað frá Kanada i
gær og hafa skip og flugvélar
svipast eftir vélinni. Blaöið
fékk þær upplýsingar hjá
flugstjórn á Reykjavlkur-
flugvelli aö vélarinnar hefði
veriö leitað I gær frá Halifax,
en án árangurs. þs
Inn- og
útláns-
vextir
hœkka
ekki
Einsog Þjóðviljinn greindi
frá I gær, hefur lánskjara-
visitalan fyrir ágústmánuð
verið ákveðin 107 stig, en hún
var 100 stig i júni.
Þrátt fyrir þessá hækkun
munu inn- og útlánsvextir
ekki hækka, að sögn Bjarna
Braga Jónssonar hjá Seðla-
bankanum, þarsem slikir
vextir eru óháðir lánskjara-
visitölunni. Einu lánin sem
munu verða fyrir áhrifum
beinlinis vegna lánskjara-
visitölunnar, eru þau lán,
sem eru bundin henni við
töku. —ÖS
Fjárfestingarlána-
sjóðirnir:
Hluturlíf-
eyrissjóða
eykst
Hlutdeild lifeyrissjóöanna
I landinu I fjármögnun fjár-
festingalánasjóða hefur fariö
mjög ört vaxandi á undan-
förnum árum. Um slðustu
áramót námu lántökur
fjárfestingalánasjóðanna
hjá lifeyrissjóðunum alls um
22,5% af heildarlánum en i
árslok 1973 var þetta hlutfall
aðeins um 5%.
Flugvél brotlenti
á Hveravöllum
ísfirskir sjómenn:
Kærðu norskan hrefnubát
fyrir landhelgisbrot
Klukkan 22 i fyrrakvöld kom
norskur hrefnubátur inn til tsa-
fjarðar og veittu islenskir sjó-
menn þvl athygli að nýskorið
hrefnukjöt var á dekki sem virtist
vera volgt viðkomu. Töldu þeir
vlst að hrefnan væri veidd I land-
helgi og jafnvel inni I Djúpinu og
kærðu fyrir sýslumanni. Var haf-
in formleg rannsókn á málinu og
lauk réttarhöldum kl. 5 i fyrrinótt
meö þvi að málinu var vlsaö frá á
grundvelli ónógra sönnunar-
gagna.
Það var Guðmundur Sigurjóns-
son fulltrúi sem hafði með rann-
sókn málsins aö gera og sagði
hann I samtali við Þjóðviljann i
gær að skipstjórinn hefði borið
fyrir rétti að hrefnan væri veidd
langt utan landhelgi fyrir 3 sólar-
hringum. Voru dómkvaddir menn
til að kanna kjötið á dekkinu og
eins niður I lest en eins og fyrr
sagði var málinu visað frá I sam-
ráði við rikissaksóknara. — GFr
Eins hreyfils vél brotlenti I
gærmorgun á Hveravöllum meö
fjórum mönnum og slasaöist einn
þeirra. Vélin er talin gerónýt, en
menn frá loftfcrðaeftirlitinu fóru i
gær upp á Hveravelli til að kanna
slysstaöinn. Flugmaðurinn og
þrlr útlendingar sem voru I vél-
inni voru fluttir til Reykjavíkur
eftir hádegið I gær og var einn
útlendinganna fluttur á sjúkra-
hús. Var það kona sem hafði
skorist á fæti og átti að rannsaka
meiðli hennar nánar, en þau voru
þó ekki talin alvarleg.
Hjálmar Diego Arnórsson á
flugst jórnarmiðstööinni á
Reykjavikurflugvelli sagði i við-
tali við blaðiö i gær að flug-
maðurinn hefði sagt sér aö hann
hefði lent I snöggum misvindum,
en útlendingarnir voru að taka
ljósmyndir af Langjökli og
Kili. Það var flugvél Flugmála-
stjórnar sem fann vélina.
þs