Þjóðviljinn - 11.08.1976, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 11.08.1976, Blaðsíða 1
 Miðvikudagur 11. ágúst 1976. —41. árg. —175. tbl. Kröflusvœðið: Almannavarnir auka viðbúnað sinn nyrðra Sjá viðtal við Pál Einarsson á baksíðu 16 tekjuskattsleysisfyrirtœki: 44% f járimmavelta 511 skattleysisf yrirtækj a Tekjuskattsfrjáls velta Flugleiða einna mun vera tœpir 11 miljarðar Sextán tekjuskattleysis- fyrirtæki í höfuðborginni velta um 44% þess fjár, sem 511 skattleysisfyrir- tæki i borginni velta. Að- stöðugjöld þessara 16 fyrirtækja nema 161.282.300 krónum af um 370 miljónum króna, sem öllum skattleysisf yrir- tækjunum 511 var gert að greiða í aðstöðugjald. l>essi 16 fyrirtæki eru: Nafn fyrirtækis Aöstööugj. kr. Almennar tryggingar hf. 6.763.200 Breiöholt hf. 13.385.800 Brunabótaféi. Isi. 7.361.500 Flugleiöir hf. 32.834.900 Glóbus hf. 5.552.400 Hafskip hf. 5.386.600 Kassagerö Rvfk 6.929.600 KRON 5.385.200 Samáb. isl. fiskiskipa 5.000.000 Samvinnutryggingar 15.416.400 Sindrastál hf. 6.589.200 Sjóvá 10.659.200 Sláturfélag Suöurl. ^SS) 20.753.000 Sveinn Egilsson hf. 6.843.600 Sölumiöst. hraöfrystih. 7.149.500 Veltirhf. 5.272.200 Samtals reiknast til aö aöstöðu- gjöld þessara fyrirtækja séu 161.282.300 krónur eöa um 44% af heildaraöstööugjaldsgreiöslum 511 fyrirtækja i höfuðstaönum, sem greiða aöstööugjald yfir 10 þúsund krónur en engan tekju- skatt greiöa til rikissjóös. Sé reiknuð út peningavelta þessara fyrirtækja samkvæmt þvi, aö þau greiði 1% aö meöaltali i aöstööugjald af veltunni, sýnast þau hafa haft rúmlega 16 mil- jarða i peningaveltu á siðasta ári. Þessi meðaltalsprósenta er þó ekki einhlit né heldur gjörsam- lega rétt jafnvel þótt aðstöðu- gjaldsstiginn sé frá 0,2% upp i 1,30% af veltufjármunum, þvi lögin mæla svo fyrir, aö af flug- rekstri sé greitt 0,33% aöstööu- Framhald á 14. siðu. Veit ekkert hvað verður þegar sam- komulagið við breta rennur út 1. des. — segir Einar Agústsson „Ég hef ekki hugmynd um hvaö veröur þegar samningarn- ir viö breta renna út. Ég geri ráö fyrir aö þeir fari úr fisk- veiöilögsögunni sjái fslensk stjórnvöld sér ekki hagkvæmt aö þeir veröi lengur.” Þetta sagöi Einar Agústsson, utanrikisráöherra, er Þjóövilj- inn spuröi hann hvaö tæki viö þegar bráöabirgöasamkomu- lagiö viö breta rynni út 1. desember. „Okkar stefna er aö biöa átekta, þangaö til séö veröur hver niöurstaöa veröur á Haf- réttarráöstefnunni og hvaö verður um bókun sex. Ég held aö þaö þurfi fulla samstööu inn- an ráöherranefndar Efnahags- bandalagsins til þess aö láta hana taka gildi á ný og setja tollaálögur aftur á sjávarafurð- ir okkar. Ég er ekki trúaöur á aö slik samstaða náist. En þetta eru nú allt ágiskanir og erfitt aö spá um þróunina.” A komandi vetri munu nemendur skólanna I Breiöholti III væntanlega fá fulla sundkennslu. Hingaö til hcfur sundkennslu þar veriö á þann veg háttaö, aö nemendur hafa veriö fluttir i önnur skólahverfi til þess aö fá notiö hennar, og þá einvöröungu elstu nemendurnir. Þessa mynd tók Einar Karlsson, ijósmyndari Þjóöviljans af hinni nýju sundlaug i gær, Inni var unniö viö aö flisaleggja, en endanlegum frágangi veröur væntanlega lokiö fyrir þaö, aö skólarnir hefjást. Þessi laug er hluti af fjölbrautarskólanum þar efra, en I námunda viö hana mun siöan veröa grafin og upp komiö útilaug. En hvenær þeirri framkvæmd veröur lokiö er ekki á okkar færiaö spá um. —úþ Enn er Kortsnoj í felum í Hollandi Sovéski stórmeistarinn i skák, Viktor Kortsnoj, fer enn huldu höföi 1 Hollandi eftir aö hann ósk- aöi þar hælis sem flóttamaöur. Hollenska skáksambandiö lét birta I dagblööum yfirlýsingu þar sem Kortsnoj var opinberlega boöiö aö þjálfa bestu skákmenn Hollands fyrir riflega þóknun ef hann vildi setjast aö i landinu. Sögöust forráöamenn skáksam- bandsins ekkihafa neina aöra leiö til þess aö ná sambandi viö Kortsnoj en dagblööin og sögöust vona aö einangrun hans væri ekki meiri en svo, aö hann sæi a.m.k. blööin endrum og eins. Eitt hollensku dagblaöanna kom mjög á óvart er þaö birti i gær örstutt viðtal viö Kortsnoj og virðist þvi þannig hafa tekist aö hafa upp á honum. Voru spurn- ingar og svör borin skriflega á milli að sögn blaösins og svar- aöi Kortsnoj ansi stuttaralega: — Hvenærhugsaöiröu fyrst um aö flýja Sovétrikin? — Ariö 1974. — Hvers vegna? — Vegna þess aö ég haföi lent upp á kant viö sovéska skáksam- bandiö. — Hvers eölis voru þær deilur? — Eg vonast til þess aö geta svarað þessum spurningum og fjölmörgum öörum mjög ýtarlega einhvern timann á næstunni en I bili veröur þetta aö nægja. Þannig hljóöaöi viötal hol- lenska blaösinsi stórum dráttum, en sambandinu viö Kortsnoj tókst aö koma á meö milligöngu eins af þekktustu skákmönnum hollend- inga. — gsp I Benedikt Gröndal, um fé frá sœnskum sósíaldemókrötum: Ekki enn vitað hvern ig, né hversu mikið ,,Þaö er rétt, aö fram- kvæmdanefnd Alþýöuflokksins samþykkti aö þiggja þaö, aö jafnaðarmánnaflokkarnir á Norðurlöndum greiöi hluta kostnaöar af launum fræöslu- fulltrúa Alþýöuflokksins hér. En hversu mikinn hluta þeir koma til meö aö greiöa er algjörlega ófrágengiö og eins hvernig sú greiösla fer fram.” Þetta haföi form. Al- þýöuflokksins um þaö aö segja, aö Alþýöuflokkurinn muni fá til starfa mann, sem vinna á viö fræðslustarf á vegum flokksins, en þiggja laun sin frá erlendum aöiljum. Fræöslufulltrúi mun taka til starfa meö haustinu. Við spurðum formanninn aö þvi, hvort þetta gæti þýtt þaö, aö Alþýöuflokkurinn færi i æ rikari mæli aö þiggja fé erlendis frá til reksturs sins og stjórnmála- legra umsvifa hér á landi. „Nei” sagöi Benedikt. „Þaö er varhugavert aö draga þá ályktun af þessu. Við teljum aö Noröurlöndin hafi hér algjöra sérstööu þvi verkalýösflokkarn- ir þar hafa hér ekki neinna hagsmuna aö gæta. Viö litum td. allt öðru visi á þaö, ef fé væri fengiö hingaö til stjórnmála- starfsemi frá löndum, sem hér heföu hagsmuna aö.gæta.” „Hefur Alþýöuflokkurinn þegiö fé utanlands frá áður og þá til hvers konar starfsemi? „Þaö hefur komiö fram áöur, aö norrænu flokkarnir hafa tekiö þátt i aö greiöa fargjöld þeirra islensku fulltrúa, sem sækja samnorræna fundi jafn- aöarmannaflokka, þvi Alþýöu- flokkurinn islenski hefur ekki fjárhagslegt bolmagn til þess að greiöa slikan kostnaö”. —úþ

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.