Þjóðviljinn - 11.08.1976, Síða 5

Þjóðviljinn - 11.08.1976, Síða 5
Miðvikudagur 11. ágúst 1976 ÞJÓDVILJINN — StDA 5 Suður- Afríka: óeirðir þær sem að undanförnu hafa orðið f blökkumannahverfum suður-af rískra borga gætu haft þær heimspóli- tísku afleiðingar að stefna bandaríkjastjórn- ar i málefnum Afríku sunnanverðrar missti undan sér fæturna# segir bandaríski blaðamað- Kissinger og Vorster á fundinum i Bæjaralandi i júni. Soweto breytir myndinni urinn Steve Talbot i grein sem nýlega birtist i Informatíon. Nú hafa ó- eirðirnar blossað upp aft- ur og ættu því orð Talbots síðuren svoað hafa misst gildi sitt. En hver er þá stefna Kiss- ingers og félaga i málefnum Afriku? A ferð sinni um nokkur riki blökkumanna i Afriku i vor hvatti Kissinger til þess að kom- iö yrði á meirihlutastjórnum blökkumanna i Ródesiu og Namibiu. Bandariska stjórnin hefur áttað sig á þeirri stað- reynd að forréttindastöðu hvitra manna i þessum löndum verður ekki bjargað héðan af. En um Suður-Afriku gildir öðru máli. Aö visu varar Kissinger hvita minnihlutanr: við þvi að „hundsa þau aðvörunarteikn sem birst hafa á sl. tveim árum” og biður hann að nrinda af stað „friðsamlegu afnámi hins lögbundna misréttis.” En Kissinger virðist ekki álita það timabært að blökkumenn Suður- Afriku hljóti full pólitisk rétt- indi. Að hnýta vestræna hnúta. Fyrir þvi eru ymsar ástæður. Þaö sem Kissinger er efst i huga er að hvita minnihlutastjórnin i Suður-Afriku hefji friðsamlegar endurbætur sem gætu vegið upp á móti þeim áhrifum sem marx- iskar frelsishreyfingar blökku- manna i Ródesiu, Namibiu og Suður-Afriku hafa. Hann vill þrýsta á Vorster forsætisráð- herra Suður-Afriku til að beita sinum áhrifum til þess að i Namibiu og Ródesiu komist til valda hægfara umbótastjórnir blökkumanna sem ekki eru lik- legar til að ógna hagsmunum Bandarikjanna i þessum heims- hluta. Draumur hans er að i sunnanverðri Afriku myndist fastmótað efnahagslif bundið Vesturlöndum sterkum böndum, jafnt viðskiptalegum i gegnum auðhringana sem hafa fjárfest ómældar fúlgur i þessum heimshluta, sem hern- aðarlegum gegnum Nató. Enda sagði Kissinger áður en þeir Vorster hittust að máli á heimaslóðum Franz-Joseph Strauss i Suður-býskalandi sið- ari hluta júnimánaðar: — Ég ætla að ganga úr skugga um hvort Suður-Afrika sé reiðubúin til aö stuðla að hægfara og frið- samlegri þróun mála i sunnan- verðri Afriku. Ég ætla ekki að gefa eftir gagnvart Vorster eða að samþykkja stjórnkerfi hans. Auöséð er á þeim fátæklegu yfirlýsingum sem þeir félagar gáfu eftir fundinn að litil sam- staða hefur náðst um fordæm- ingu á apartheid. Þar er bók- staflega ekki minnst á það. Mætti af þvi ætla að Kissinger Sviptir uppreisn blökkumanna stefnu Kissingers undirstöðum sínum? hefði litt gengið að ýta viö Vorster. Ekki er óliklegt að baksvið umræöna þeirra hafi haft sin á- hrif á gang þeirra. Einmitt þegar þær fóru fram stóðu yfir blóðugustu kynþáttaóeirðir i Suður-Afriku um margra ára- tuga skeiö. Þær hafa komið sér illa fyrir Kissinger sem sagðist ætla að „hrinda af stað þróun” til að afstýra „harkalegum á- rekstrum” i sunnanverðri Afriku. Áhrif óeirðanna I Soweto eru einkum þau aö aðstaða Vorsters til að hafa áhrif á erkiihalds- manninn Ian Smith i Ródesiu hefur versnað til muna. Styrkur hans i þeim efnum var einmitt sá að hann virtist hafa sterk tök á blökkumönnum i sinu eigin landi. Hann á þvi ansi erfitt með að sannfæra Smith um að honum sé nær að semja en að berjast til þrautar á sama tima og hann beitir sjálfur fullri hörku i viðureign við blökku- menn heimafyrir. Nýr baráttuandi. Af ummælum ráðamanna apartheid-stjórnarinnar i Suð- ur-Afriku má ráða að baráttu- vilji og styrkur blökkumanna kom þeim á óvart. — Við höföum ekki búist við þviliku, sagöi dóms- og lögregluráðherr- ann, James Kruger, á þinginu i Höfðaborg þegar 10 þúsund ung- ir blökkumenn börðust við lögreglumenn gráa fyrir járnum á götum Soweto. t óeiröunum kom fram aö námsmennirnir sem voru burð- arstoð uppreisnarinnar hafa öðlast nýjan og áður óþekktan baráttuvilja og eru orðnir póli- tiskt meðvitaðir. Þeir hæddust að lögreglunni, hrópuðu vigorð um „Black Power” og sungu þjóðsöng blökkumanna ,,God Bless Africa”. Þeir kveiktu i bilum, strætisvögnum, stjórn- arbyggingum, kirkjum hvitra manna, krám og skólum þar sem stjórnvöld hugðust kenna þeim stæröfræði og þjóðhag- fræði á hinu hataða máli af- rikaans sem er eitt helsta táknið fyrir kynþáttakúgun hvita kyn- stofnsins. I fyrri lotu óeirðanna eyðilögðu þeir verðmæti i eigu hvitra sem nam 34.5 miljónum dollara og það i Soweto einni saman. En uppreisnin var ekki bundin við það hverfi eitt þvi hún breiddist eins og logi yfir akur til 20 annarra blökku- mannahverfa um allt land. — Þetta er uppreisn gegn apart- heid, sagði Winnie Mandela eig- inkona Nelson Mandela leiðtoga Afriska þjóðarráðsins sem eru önnur af tveim frelsissamtökum blökkumanna i Suður-Afriku. Mandela hefur setið um langt árabil i fangelsi fyrir starfsemi Og þú líka... Það sem kemur apartheid- stjórninni kannski enn verr er að i uppreisninni kom i ljós að málstaður blökkumanna á visan stuðning langt inn i raðir hvitra ibúa landsiris. Hundruð hvitra stúdenta fóru i mótmælagöngur um miðborg Jóhannesarborgar og var þeim mætt með lögreglu- barsmiðum og mótorhjólasveit- Einnig urðu ýmsir frjálslyndir stjórnmálamenn, bæði úr stjórnarflokknum og stjórnar- andstöðunni, til að gagnrýna Vorster með óvanalega hressi- legu orðbragði. Eitt stjórnar- andstöðublaðið, Sunday Times sem skrifað er á ensku, gerði til dæmis grin að þeirri staðhæf- ingu stjórnarinnar að fámennur hópur áróðursmanna hefði stað- ið að baki uppreisninni. — Vissulega eru áróðursmennirnir til staðar, segir blaðið, þeir bera nöfn eins og fátækt, vonbrigði og grimmdarleg kynþáttalög. Lögin sem blaðið höfðaði til gera m.a. ráð fyrir þvi að hrúga blökkumönnunum — 70% þjóð- arinnar — saman á landssvæði sem ná yfir aðeins 13% af flat- armáli landsins, þau skammta blökkumönnum laun sem eru fyrir neðan opinber hungur- mörk, þau verja 41 dollara á ári hverju til að mennta hvern blökkustúdent meðan sá hviti fær 700 dollara, þau útdeila vegabréfum til blökkumanna sem gera yfirvöldum kleift að fylgjast með hverri hreyfingu þeirra og svipta blökkumenn frumstæðustu pólitiskum rétt- indum. Hvita minnihlutastjórn- in hengir sig i þessi lög og neitar að gera á þeim hinar minnstu breytingar. Valkostum gæti fækkað. Meðan svo horfir má alltaf búast við þvi að uppreisnin i Soweto endurtaki sig æ oftar og breiðist út um allt land. Ef svo fer gæti Kissinger staðið frammi fyrir þvi einn daginn að valið stæði ekki á milli harð- stjórnar hvita minnihlutans og mannúðlegri stjórn hans heldur á milli harðstjórnarinnar og blakkra ibúa landsins sem krefjast réttar sins og neita að láta halda sér lengur i skitnum. Eflaust myndi Kissinger velja fyrri kostinn en svo gæti allt eins farið að hviti minnihlutinn i Suður-Afriku færi sömu leið og sá i Angólu. Þá er ekkert eftir nema að biða og vona að allt fari vel. Nú eða blása i herlúðra... —ÞH. Haustsýning FÍM 1976 Haustsýning Félags islenskra myndlistar- manna verður haldin að Kjarvalsstöðum 28. ágúst-12. september n.k. Tekið verður á móti verkum fimmtu- daginn 18. ágúst kl. 14-19 að Kjar- valsstöðum. Æskilegt er að utanfélagsmenn sendi a.m.k. 5 verk til sýningamefndar. Mót- tökugjald fyrir utanfélagsmenn kr. 2000.00. Sýningarnefnd FÍM. Orkustofnun óskar að ráða rannsóknamaim, karl eða konu, á rannsóknastofu sina i Keldnaholti. Upplýsingar um aldur, menntun og fyrri störf óskast sendar Orkustofnun, Laugavegi 116, fyrir 18. ágúst n.k. Orkustofnun. Tilkynning til launaskattsgreiðenda Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á þvi, að 25% dráttarvextir falla á launaksatt fyrir 2. ársfjórðung 1976 sé hann ekki greiddur i siðasta lagi 16. ágúst. Fjármálaráðuneytið. Hjúkrunarfræðingar Sjúkrahús Húsavíkur óskar aö ráða nú þegar hjúkrunarfræðinga. Upplýsingar veita fram- kvæmdastjóri og forstöðukona í símum 96- 41333 og 96-41433. í Húsnvib §.f. Blikkiðjan Asgarði 7, Garðahreppi Önnumst þakrennusmíði og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmíði. Gerum föst verðtilboð. SÍMI 53468 ^ff^Blómabúðin MÍRA Suðurveri við Stigahlið 45—47, simi 82430 Miðbæ við Háaleitisbraut simi 83590 Blóm og gjafavörur i úrvali

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.