Þjóðviljinn - 11.08.1976, Síða 11

Þjóðviljinn - 11.08.1976, Síða 11
Mi&vikudagur 11. ágúst 1976 ÞJÓÐVILJINN —SIÐA 11 Lokadagur Meistaramótsins i frjálsum Þráinn sigraði í fimnitarþrautinni Valbjörn Þorláksson, sá gamalreyndi frjálsíþrótta- garpur, leikur félaga sína f boöhlaupssvpit KR heldur en ekki grátt 'pessa dag- ana. i 40x100 m boð- hlaupinu gleymdi hann keflinu sinu er hann lagði af stað sl. laugardag en KR-sveitinni var gefið annað tækifæri sl. mánu- dagskvöld. Þá mætti Val- björn hins vegar ekki til leiks og félagar hans þrír í boðhlaupssveitinni urðu þvi aftur að sjá af örugg- um gullverðlaunum, því þeir voru eina sveitin sem hugðist hlaupa þetta hlaup þótt skráðir væru mun fleiri keppendur. En i fimmtarþrautinni hjá körlum, sem háö var i fyrrakvöld, sigraði Þráinn Hafsteinsson eftir harða keppni við Hrein Jónasson sem hafði 300 stiga forystu eftir þrjár greinar af fimm. Stigin til keppenda i fimmtarþraut skiptust þannig: Þráinn Haf- steinsson HSK 3122 stig, Hreinn Jónasson Breiðabliki varö annar en þriðji varö Hafsteinn Jó- hannesson Breiðabliki meö 2804 stig. Bróðir Þráins, Vésteinn Haf- steinsson, varð fjórði og setti hann nýtt sveinamet er hann náði sér i 2701 stig. —gsp Úrslitakeppnm í 3. og 4. flokki hefst annað kvöld Annað kvöld, fimmtu- dag, hef st úrslitakeppni i 3. og 4. flokki, en þegar hafa vestmannaeyingar tryggt sér sigurinn í 5. flokki Islandsmótsins í knatt- spyrnu. Leikirnir í 3. f lokki munu allir fara fram í Reykjavik, Kópavogi og Hafnarfirði en i 4. flokki fara allir leikirnir fram á Akranesi. I 3. flokki hafa eftirtalin lið sigrað í sínum riðli og því tryggt sér þátttökurétt i úrslitakeppninni: Leiknir Fáskrúðsf irði, Þróttur Reykjavík, Fram, Leiknir Reykjavík, Tindastóll Sauðárkróki. Leikdagar hafa verið ákveðnir þessir: Fimmtudagur 12. ágúst: Melavöllur kl. 18: Leiknir F. — Þróttur R. Melvöllur kl. 19: Fram — Leiknir R. Föstudagur 13. ágúst: Vallagerðisv. Kóp. kl. 18: Tindastóll — Fram Vallagerðisv. kl. 19: Leiknir R. — Leiknir F. Laugardagur 14. ágúst: Kaplakrikav. Hf. kl. 14: Leiknir F.— Tindastóll - Kaplakrikav. Hf. kl. 15.30: Þróttur — Leiknir R Sunnudagur 15. ágúst: Melavöllur kl. 14: Leiknir F. — Fram Melavöllur kl. 15:30: Tindastóll — Þróttur Mánudagur 16. ágúst: Vallargerðisv. kl. 18: Leiknir R. — Tindastóll Vallargerðisv. kl. 19:30: Þróttur — Fram I 4. flokki verður keppt í tveimur riðlum og hafa liðin dregist þannig saman i riðlana: A-riðill: Bolungarvik Þróttur Reykjavik Leiknir Fásktúðsfirði Selfoss B-riðill: Þór Akureyri Austri Eskifirði Breiðablik Kópavogi Framhald á 14. siðu. Valbjörn Þorláksson — enn i landsliði tslands þrátt fyrir að hann sé kominn á fimmtugsaldur. Hann keppir i stangarstökki og grinda- hlaupi. Búið að velja lands liðið í frjálsum íþr. Landslið tslands i frjálsum 21. og 22. ágúst hefur verið iþróttum, sem á að keppa valið og er það þannig skipað: gegn skotum og irum dagana Sigurður Sigurðsson A 100 m, 200 m, boðhlaup Vilmundur Vilhjálmsson KR 100 m, 200 m, 400 m, boðhl. Bjarni Stefánsson KR 400 m, boðhlaup Agúst Asgeirsson 1R 800 m, 3000 m hindrunarhl. Gunnar P. Jóakimsson IR 800 m, 1500 m Sigfús Jónsson IR 5000 m, Valbjörn Þorláksson KR 110 m grindahl. stangarst. Jón S. Þóröarson IR lio m grindahl. 400 m grindahl. hástökk Þorvaldur Þórsson UMSS 400 m grindahl. Jón Diðriksson UMSB 3000 m hindrunarhl. Emil Björnsson ÚIA 1500 m, 5000 m. Elias Sveinsson KR hástökk, stangarstökk, spjótkast Friðrik Þór Öskarsson IR langstökk, þristökk Jóhann Pétursson UMSS langstökk, þristökk Hreinn Halldórsson KR kúluvarp Guðni Halldórsson KR kúluvarp sleggjukast Erlendur Valdimarsson KR kringlukast, sleggjukast Öskar Jakobsson 1R kringlukast, spjótkast Magnús Jónasson A boðhlaup. Vilmundur Vilhjálmsson vann flest gullverðlaun á meistaramótinu eóa fimm samtals. Enn ekki ákveð- ið hvort úrslit- in í 3. deild fari fram í riðlum Enn hefur fyrirkomulag úrslitakeppni 3. deildar ekki veriö ákveðið, en hún fer fram á Akureyri um aðra helgi. Ekki hefur verið ákveöið hvort liðin sjö, sem þar leiöa saman hesta sina, leiki öll saman eða hvort keppt veröi i riðlum. Eftirtalin liö sigruðu i sin- um riðlum i undankeppninni: A-riöill: Fylkir Rvik. B-riðill: Reynir Sandg. C-riðill: Afturelding Mosf.sv. D-riðill: Skallagr. / Vikingur öl.?? E-riðill: KS Siglufirði F-riðill: Þróttur Neskst. G-riðill: Leiknir / Austri Eins og sjá má eru öll mál ekki útkljáð. Um helgina léku t.d. Skallagrimur úr Borgar- nesi og Vikingur Ölafsvik úrslitaleikinn um hvort liðið færi i úrslitakeppnina en jafn- tefli varð i þeirri viöureign, 1- 1. Verða liöin þvi að mætast að nýju. I g-riðli er kærumál komið upp á milli tveggja efstu lið- anna. Austri hefur eins stigs forskot á Leikni en Leiknir hefur kært siöasta leik þeirra, sem Austri vann. Fyrir Héraösdómi vann Leiknir kæruna og náöi þvi eins stigs forskoti á Austra sem hefur hins vegar áfrýjað dómnumtil dómstóls KSÍ og þar situr málið fast i bili. — gsp Mótanefnd KSI mun væntanlega mjög fljótlega taka ákvörðun um fyrirkomu- lag úrslitakeppninnar og raða niöur leikjunum á ákveðna daga. Ekki er seinna vænna. —gsp £**

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.