Þjóðviljinn - 11.08.1976, Side 12

Þjóðviljinn - 11.08.1976, Side 12
12 StÐA — ÞJ6ÐVILJINN Miðvikudagur 11. ágúst 1976 Manuela og Snorri í Norræna húsinu í Norræna húsinu verður „ opið hús" fimmtudags- kvöldið 12. ágúst. A dag- skrá verða tónleikar og kvikmyndasýning. Kl. 20.30 leika Manuela Wiesler og Snorri S. Birgisson islensk og erlend verk fyrir flautu og pianó, og má þar nefna m.a. Xanties (1975) eftir Atla Heimi Sveins- son og fjögur isl. þjóðlög, sem Arni Björnsson útsetti fyrir flautu og pianó. Snorri S. Birgisson á þar pianóverkið „Slagbrandur” og Manuela Wiesler leikur ein- leiksverk fyrir flautu eftir Jean Rivier, „Oiseaux tendres”. Kl. 22.00 verður sýnd kvik- myndin „ Sveitin milli sanda” gerð af Osvaldi Knudsen með tón- list eftir Magnús Bl. Jóhannsson. í bókasafni er nú sýning á bók- um um Isiand. Ennfremur sýnir þar Dagmar Martas frá Sviþjóð vatnslitamyndir. 1 sýningarsölum i kjallara • stendur enn yfir Sumarsýningin með málverkum eftir Hjörleif Sigurðsson, Ragnheiði Jónsdóttur Ream, og Snorra Svein Friðriks- son. Sýningin er opin alla daga fram til 15. ágúst frá kl. 14.00 til 22.00. — Nei nú hef ég aldrei heyrt —Eftir þvi sem mér skildist þá eru nýju nágrannarnir okkar við annað eins ...það er aldeilis að sirkusinn. þessi kjaftasaga hefur breyst frá þvi að ég kom henni á stað... — Það eina sem ég veit er að þeir koma að norðan.... — Vonandi hafið þér ekkert á móti þvi, frú min góð, þótt ég fái tréð yðar lánað? HUNDALÍF — A hvern djö.... ert þú að sussa...? — Já, en ég er úti með hundinn. — Ég er ekki aö kvarta yfir geltinu f hundinum yðar — ég er að kvarta yfir sffelldum öskrum mannsins yðar ailar nætur, þeg- ar hann er að skipa honum að þegja. — Hættu þessu ýifri.... gestirnir eru að fara eftir tvær minútur og þá færð þú plássið þitt... . ! (Jr verksmiðjuhúsnæði Ramma h.f. I Njarðvikum Hægt að lækka verð á gluggum og hurðu m Glugga- og hurðaverksmiðjan Rammi h.f. i Njarðvikum hefur um þess. mundir starfaö i 10 ár og vinna nú 25 manns hjá fyrir- tækinu. Megintilgangur fyrir- tækisins hefur verið að fjölda- framieiða glugga og hurðir þann- ig að lækka mætti verð á þessum vörum. Undanfarin ár hefur verð á gluggum frá Ramma h.f. staðið í stað þrátt fyrir almennar verð- hækkanir. Þetta er hægt með góð- um vélakosti og hagkvæmri nýtingu hans. Egill Jónsson, for- stjóri Ramma h.f., segir að ekki sé þó allt fengið með fullkomnum vélabúnaði og tölvustýrðum: „Ef arkitektar, verkfræðingar, húsbyggjendur og framleiðendur tækju höndum saman og stuðluðu að samræmdum glugga- og hurðastærðum, gætum við lækkað framleiðslukostnaðinn með magnvinnslu og aukinni hagræð- ingu.” 1 dag selur Rammi h.f. um það bil 25% af gluggum, sem seldir eru á innanlandsmarkaði. Neyðarhúsnœði fyrir einstœða foreldra Félag einstæðra foreldra hefur nýverið gengið frá kaupum á hús eigninni að Skeljanesi 6 i Reykjavik. Er ætlunm að þar verði rekið eins konar aeyðarhus- næði fyrir einstæða foreldra með börn, er standa uppi húsnæðis- leusir um tima af ótal ástæðum. Einstæðir foreldrar i námi munu einnig fá aðgang að húsnæði þessu. bað hefur lengi verið mikið og eriftt úrlausnarefni FEF hversu húsnæðisvandi ein- stæðra foreldra er gifurlegur. M.a. með það I huga var sótt um lóð i 2. áfanga Eiðsgrandaskipu- lags i Reykjavik. Vegna tafa á framkvæmdum þar taldi stjórn FEF nauðsynlegt að reyna að Ieysa nokkurn vanda með kaupum á þessuhúsi.sem er stórt og býður upp á ýmsa kosti sem neyðarhúsnæði. A næstunni hefjast viðgerðir og endurbætur á húsinu og hefur fjáröflunarnefnd FEF sent út all- margar beiðnir til fyrirtækja um fjárstuðning, þar sem endur- bætur, sem aðkallandi er að gera, eru mjög fjárfrekar. Einnig verður óskað eftir stuðningi ein- staklinga. Húsið verður afhent FEF þann 15. október nX. og er vonasttilaðhægtverðiað taka að minnsta kosti hluta þess fljótlega upp úr þvi i gagnið. Velunnarar FEF geta lagt framlög inn á sparisjóðsreikning þess i Vagamótaútibúi Lands- bankans 10265 eða haft samband við stjórn félagsins. Framlögin eru frádráttarbær frá skatti. Leiðrétt Ranghermtvarifrétt Þjv. fyrir helgi að gæslukonur á barnaleik- völlum og dagheimilum i Reykja- vik fengju greitt samkvæmt Sóknartaxta. Þær fá greitt eftir launakerfi borgarstarfsmanna. —gsp ÚTSALA ÚTSALA Látið ekki verðbólguúlfinn gleypa peningana ykkar i dýr- tiðinni. Allar vörur verslunarinnar seldar með miklum af- slætti. Allt nýjar og fallegar vörur á litlu börnin. Barnafataverslunin Rauðhetta Iðnaðarmannahúsinu Hallveigarstig 1.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.