Þjóðviljinn - 11.08.1976, Page 13
Miðvikudagur 11. ágúst 1976 ÞJÓÐVILJINN — SIDA 13
Fundur um lokun
nijólknrbi'iða
í Lindarbœ annað kvöld kl. 20.30
Nokkrar umræöur hafa
orðið í fjölmiðlum um þá
ákvörðun Mjólkursamsöl-
unnar að loka öllum
mjólkurbúðum höfuð-
borgarsvæðisins 1. febrúar
nk. Nú hef ur verið stof nað-
ur starfshópur gegn lokun
mjólkurbúða og hyggst
hann efna til fundar um
málið í Lindarbæ á
fimmtudagskvöldið og
hefst hann kl. 20.30.
Um tilurö þessa starfshóp segir
svo i fréttatilkynningu sem hann
sendi frá sér i gær:
Þann 29. júli s.l. var haldinn aö
frumkvæði nokkurra neytenda
fundur gegn lokun mjólkurbúða
og voru starfsstúlkur i mjólkur-
búðum boðaðar til fundarins.
Fundarmenn lýstu einróma reiði
sinni vegna þeirrar ákvörðunar
Mjólkursamsölunnar að leggja
niður mjólkurbúðir sinar á Stór-
Reykjavikursvæðinu frá 1. febr.
’77.
Bentu fundarmenn á, að 1) viö
þessa ráöstöfun Mjólkursamsöl-
unnar munu 167 konur tapa at-
vinnu sinni og áunnum félagsleg-
um réttindum og engin von um
úrbætur, nema vilyrði um vinnu
frá Kaupmannasamtökunum,
sem verður að telja litið á að
byggja, þar sem það mundi að-
eins leysa vanda örfárra stúlkna,
og þá að öllum likindum þeirra,
sem greiðastan aðgang eiga að
vinnumarkaðnum, þ.e. yngstu
kvennanna, sem mest hafa
starfsþrekið og lægst launin.
2) Lokunin mun hafa i för með
sér verri þjónustu við neytendur,
þar sem stór svæði verða fyrir-
sjáanlega mjólkurlaus, eftirlit
með mjólkurvörum mun slævast
og verð trúlega hækka.
Þeir neytendur, sem verða
harkalegast fyrir barðinu á lok-
uninni, eru gamalt fólk og lág-
launafólk, sem býr i gömlu
Framhald á bls. 14
Bólstrun Harðar Peturssonar
í því tilefni veitum við
10% aukoafslátt
af framleiðsluvörum okkar þessa viku.
Sem dæmi: Sófasett sem kostar kr. 295.000.-
Fæst gegn staðgreiðslu fyrir kr. 238.950,-
2ja m. svefnsófi sem kostar 79.800
Fæst gegn staðgreiðslu fyrir kr. 64.638.-
nusgogn
Grensasvegi 12 - Sími 3-20-35
10% afsláttur á húsgögnum gegn
afborgunum.
10% afsláttur á húsgagnaáklæði.
10% afsláttur á húsgagnaleðri.
(SifeyatPip
7.00 Morgunútvarp.
Veöurfregnir kl. 7.00, 8.15 og
10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15
(og forustugr. dagbl.), 9.00
og 10.00. Morgunbæn kl.
7.55. Morgunstund
barnanna kl. 8.45: Ragnar
Þorsteinsson heldur áfram
að lesa „Útungunarvélina”
eftir Nikolaj Nosoff (2).
Tilkynningar kl. 9.30. Létt
lög milli atriða.
Kirkjutónlistkl. 10.25:
Gabor Lehotka leikur orgel-
verk eftir Pachelbel,
Sweelinck og Bach.
Morguntónleikar kl. 11.00:
Kenneth Gilbert leikur á
sembal Svitu i e-moll eftir
Jean Philippe Rameau /
Filharmoniusveitin i Stokk-
hólmi leikur ballettsvituna
„Kinverjana” eftir
Francesco Uttini / Jascha
Heifetz, William Primrose
og Gregor Pjatigorský leika
Serenöðu i D-dúr fyrir fiðlu,
lágfiðlu og knéfiölu op. 8
eftir Ludwig van
Beethoven.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar
13.00 Viö vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Blómið
blóðrauða” eftir Johannes
Linnankoski. Axel
Thorsteinson les (7).
15.00 Miðdegistónleikar.
Jascha Silberstein og Suisse
Romande hljómsveitin leika
Fantasiu fyrir selló og
hljómsveit eftir Jules
Massenet; Richard
Bonynge stjórnar. Suisse
Romande hljómsveitin leik-
ur Sinfóniu i d-moll eftir
César Franck; Ernest
Anermet stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Tónleikar.
17.00 Lagið mitt. Anne-Marie
Markan kynnir óskalög
barna innan tólf ára aldurs.
17.30 Minningar
austur-skaftfellings, Guð-
jóns R. Sigurðssonar,
Baldur Pálmason les fyrsta
hluta af þremur.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
Tilkynningar.
Tilkynningar.
19.35 Marflær og þanglýs.
Agnar Ingólfsson, prófessor
flytur erindi.
20.00 Einsöngur: Sigriður
Ella Magnúsdóttir syngur
lög eftir Emil Thoroddsen,
Sigvalda Kaldalóns, Eyþór
Stefánsson, Skúla Halldórs-
son, Sveinbjörn Sveinbjörns-
son, Jón Þórarinsson og Jón
Leifs. Magnús Blöndal
Jóhannsson leikur á pianó.
20.20 Sumarvaka a. úr
dagbók prestaskólamanns.
Séra Gisli Brynjólfsson seg-
ir frá námsárum Þorsteins
prests Þórarinssonar i
Berufirði:—annarhluti. b.
Kveðið i grini. Valborg
Bentsdóttir fer enn með
lausavisur i léttum dúr. c.
Suðurganga. Frimann
Jónasson fyrrum skólastjóri
segir frá gönguferð úr
Skagafirði til Reykjavikur
fyrir rösklega hálfri öld.
Hjörtur Pálsson les fyrri
hluta frásögunnar. d.
Kórsöngur: Liljukórinn
syngur fáein lög Söngstjóri:
Þorkell Sigurbjörnsson.
21.30 Útvarpssagan:
„Stúlkan úr Svartaskógi”
eftir Guðmund Frimann.
Gisli Halldórsson leikari les
(10).
22.15 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir
Kvöldsagan: „Mariu-
myndin” eftir Guðmund
Steinsson. Kristjörg Kjeld
leikkona les (2).
22.45 Nútímatónlist. Þorkell
Sigurbjörnsson kynnir.
23.35 Fréttir. Dagskrárlok.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Pappirstungl
Bandariskur myndaflokkur
i 13 þáttum, byggur á sögu
eftir Joe David Brown. 2.
þáttur. Reikningskennsla.
Þýðandi Kristmann
Eiðsson.
21.05 Nýjasta tækni og visindi.
Grefill, tæki til að grafa
jarðgöng. Akkeri með nýju
sniði. Nýjungar i tann-
viðgerðum. Boltabörur.
Umsjónarmaður Sigurður
H. Richter.
21.30 Gitarleikarinn Baden
Powell. Suður-ameriski
gitarleikarinn Baden
Powell leikur lög frá Brasil-
iu.
' 22.00 Hættuleg vitneskja.
Breskur njósnamynda-
flokkur i sex þáttum eftir
N.J. Crisp. Aðalhlutverk
John Gregson, Patrick
Allen og Prunella Ransome.
2. þáttur. Efni 1. þáttar:
Kirby, sem er á heimleið frá
Frakklandi, verður þess
var, að fylgst er með ferð-
um hans. Hann kemst i
kynni við unga stúlku,
Lauru, og með hennar
aðstoðtekst honum að kom-
ast i báti undan njósn-
urunum. En þeir eru ekki af
baki dottnir og finna bátinn
og Lauru. Þýðandi Jón O.
Edwald.
22.30 Dagskrárlok.
Blikkiðjan
Ásgarði 7,
Garðahreppi
Önnumst þakrennusmíöi og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíði.
Gerum föst verötilboö.
SIMI 53468
Mikiö úrval bóka
Marx, Engels, Lenin, tækni, visindabæk-
ur, skáidsögur, iistaverkabækur, einnig
nótur og hijómplötur frá Sovétrikjunum,
Tékkósióvakíu, Póllandi og Ungverja-
landi.
ERLEND TÍMARIT \
Hverfisgötu 50 v/Vatnsstig, 2. hæð. Simi
28035.