Þjóðviljinn - 15.08.1976, Blaðsíða 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 15. ágúst 1976
PIOÐVIUINN
MÁLGAGN SÓSÍALISMA,
VERKALÝÐSHREYFINGAR
OG ÞJÓÐFRELSIS.
l'tgofandi: t tgáfufélag Þjóöviljans
Kramkvæmdastjóri: Kiöur Bergmann
Kitsljórar: Kjartan Olafsson
Svavar Gestsson
Kréttastjóri: K.inar Karl llaraldsson
Bmsjón með sunnudagsblaöi:
Arni Bergmann
Kitstjórn, afgreiösla, auglýsingar:
5kólavöröust. 19. Slmi 17500 (5 línur)
Prentun : Blaöaprent h.f.
• GEIGVÆNLEG UMSKIPTI
Eftir að Gunnar Thoroddsen varð hús-
bóndi iðnaðarráðuneytisins hefur rikt al-
ger stöðnun i málefnum iðnaðarins. Engar
ráðstafanir hafa verið gerðar til þess að
efla stöðu iðnaðarins. Skýringin á þessu
framferði ráðherrans er að sjálfsögðu sú
að hann og flokkur hans hafa ofsa trú á
svokölluðu einkaframtaki, þvi er ætlað að
leysa allan vanda. Engu að siður hefur sú
staðreynd legið ljós fyrir löngum að is-
lenska „einkaframtakið” hvorki getur né
vill leggja verulegt fjármagn i islenskan
iðnað og verulega eflingu hans. Þess
vegna er nauðsynlvgt að rikið komi til og
leggi sig fram um að efla islensk iðnaðar-
tækifæri með öllum tiltækum ráðum.
Meðan Magnús Kjartansson sat i iðnað-
arráðuneytinu varð gjörbreyting á afstöðu
stjórnarvalda til islensks iðnaðar. Þá voru
gerðar ráðstafanir til þess að efla ýmsar
iðngreinar sérstaklega, gerð úttekt á
stöðu iðngreina, tillögur um úrbætur og
tillögur um heildarþróun iðnaðárins. Sá
ávinningur sem náðist i valdatið vinstri-
stjórnárinnar er þeim mun athyglisverð-
ari þegar þess er gætt að verulegt skiln-
ingsleysi var og er rikjandi á stöðu og
möguleikum islensks framleiðsluiðnaðar
meðal margra ráðamanna.
Þegar stjórnarskiptin urðu áttu sér stað
geigvænleg umskipti i þessum efnum.
Hefur forustumönnum islenskra iðnrek-
enda blöskrað svo sleifarlag og aðgerðar-
leysi stjórnarvalda að þeir hafa séð sig
knúna til þess að hirta ráðherrana fyrir
aðgerðarleysi þeirra. í þeim efnum er
skammt að minnast ræðu Daviðs
Schevings Thorsteinssonar, formanns
Félags isl. iðnrekenda, en hann sagði á
ársfundi iðnrekenda sl. vor ma. á þessa
leið:
„Þegar ég byrjaði að semja þessa ræðu
‘ 'las ég yfir ræðu þá, sem ég flutti i fyrra,og
þá fannst mér að best væri að flytja gömlu
ræðuna aftur,þvi það er eins og timinn hafi
staðið kyrr i þeim málum, sem að okkur
varðar — ekkert hefur verið framkvæmt
af þvi, sem ég lagði þá til að gert yrði,
nema að reynt hefur verið að breyta
tekjuskiptingu i sjávarútvegi og sjóða-
kerfi hans hefur verið endurskoðað.
Þetta er líka það eina — engar af hinum
ýtariegu tillögum Félags isl. iðnrekenda
frá þvi i desember 1974 hafa verið fram-
kvæmdar siðan siðasta ársþing var haldið
og heldur engar af þeim tillögum, sem við
höfum komið með siðan, jafnvel þó Al-
þýðusamband tslands hafi skrifað undir
þær með okkur. Sama er að segja um til-
lögur Iðnþróunarnefndarinnar sálugi^sem
voru milli 40 og 50 taisins — engin einasta
af veigameiri tillögum hennar hefur verið
framkvæmd. Allar þessar tillögur eiga
það sameiginlegt að þær stefndu að þvi að
breyta stjórn efnahagsmála á íslandi.”
Vafamál er að nokkur islenskur stjórn-
málamaður hafi setið undir annarri eins
skammarræðu og þeirri sem Davið
Scheving hélt yfir Gunnari Thoroddsen á
ársþingi iðnrekenda.En þrátt fyrir strang-
ar umvandanir formannsins hefur ekkert
heyrst af þvi að iðnaðarráðuneytið sé að
lifna úr dáinu, Gunnarssvefninn ríkir þar
enn i hverri smugu.
Aðgerðarleysi hægristjórnarinnar i iðn-
aðarmálum á sem fyrr segir rætur að
rekja til stefnu hennar, oftrúar hennar á
einkaframtakið, sem leysi allan vanda.
Aðgerðarleysið á einnig rætur að rekja til
þess að forustumenn Sjálfstæðisflokksins
mæna einlægt á útlendinga til lausnar
öllum vanda; Þeir hafa enga trú á getu
islendinga til þess að lifa hér sjálfstæðu
þjóðlifi. Lausn þeirra á öllum vanda er
fólgin i þvi að tengja islendinga við hinar
stóru erlendu samsteypur.
Athafnaleysið i iðnaðarmálum kemur
niður á komandi kynslóðum og gerir erfið-
ara að sporna gegn ásókn erlendra auð-
fursta i islenskar orkulindir. Til þess að
efla islenskan iðnað þarf að vera i landinu
rikisstjórn sem hefur trú á getu islensks
iðnaðar, skilning á nauðsyn hans og er um
leið laus við kreppuofstæki einkafram-
takssinnanna. Þá er unnt að taka upp iðn-
þróunarstefnu eins og þá sem Magnús
Kjartansson markaði fyrstur islenskra
iðnaðarráðherra.
—s..
Ný kenning um krabbamein:
Krabbamein í brjósti tengt
áfengisneyslu og lyfjanotkun
Hugsast getur, að
regluleg neysla áfengis og
róandi lyfja geti ýtt undir
þróun vissra tegunda
krabbameins.
Sá sem hefur komist aö þessari
niöurstööu, dr. Roger Williams
frá Heilsuverndarstofnuninni
Betsheda I Maryland, talar aö
vfsu mjög varlega og segir aö hér
sé aðeins um kenningu, tilgátu aö
ræöa. En röksemdir hans væru
allavega taldar nógu alvarlegar
til aö þær væru teknar upp i
breska læknatfmaritiö Lancet. Og
ef kenningin er rétt þá getur
hún kannski komið I veg fyrir
20 þúsund tilfelli brjóstkrabba I
Bandarikjunum einum. Þaö mun-
ar um minna.
Vont samhengi
Williams haföi verið aö meta
niöurstööur af meiriháttar
krabbameinsrannsóknum sem
náöu til 7518 tilfella. Þá veitti
hann athygli samhengi, ekki
mjög áberandi aö vfsu en sam-
hengi engu aö síöur milli neyslu
alkóhóls og svo nokkurra tegunda
lyfja (einkum róandi lyfja gegn
þunglyndi og ofnæmi) og ákveö-
inna tegunda krabbameins.
Til dæmis var krabbamein I
brjósti 20-60% algengara hjá kon-
um sem drukku reglulega bjór,
vfn eöa snafs heldur en hjá
bindindiskonum. Hjá mormón-
um, sem eru bindindismenn sam-
kvæmt sinni trú, var brjóstkrabbi
sjaldgæfari en hjá meðalamri-
könum. Auk þess kom I ljós sam-
hengi milli áfengis, lyfja og
tv®ggja annarra krabbameins-
tegunda — I skjaldkirtli og húö.
Homónabúskapur
líkamans.
Williams hefur boriö fram
fremur einfalda skýringu á þessu
óheppilega samhengi: áfengi, lyf,
Blikkiðjan Garðahreppi
Önnumst þakrennusmíði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíði.
Gerum föst verðtilboð.
SÍMI 53468
VÍSINDIOG
SAMFÉLAG
Vfsindamaöurinn ber fram þá
tilgátu, aö þaö séu þrir ákveönir
hormónar sem undir áhrifum á-
fengis og lyfja safnast I ofstórum
mæli fyrir i á þrem svæöum:
prolaktin i brjósti, thyreotropin i
skjaldkirtil og hormón einn I húö-
inni sem getur veriö hagstæöur
þróun vissrar tegundar af ill-
kynjuöum húökrabba.
En tilraunir meö dýr hafa
þegar bent til þess aö þaö sé sam-
hengi milli brjóstkrabba og auk-
ins starfs mjólkurkirtla. Aðrar
athuganir benda I sömu átt. Til
dæmis hefur læknir einn I New
York komist aö þvf, aö I ófrískum
konum, sem gengu meö brjóst-
krabbamein, hafi meinsemdin
þróast örar en hjá konum sem
ekki voru þungaöar. Hugsanleg
skýring á þessu, sem gæti stutt
kenningu dr. Williams er sú aö
prolaktinframleiösla óléttra er
margfalt meiri en eölilegt er.
Afdrifarík kenning
A hinn bóginn hafa læknar tekiö
eftir þvi, aö hjá sjúklingum, sem
fengu lyf sem takmarka mjög
prolaktinstreymi (t.d. L-dopa
gegn Parkinsonveiki), aö æxli I
brjóstum minnkuöu meö merki-
legum hætti og þaö dró úr þeim
sársauka sem þau höföu I för meö
sér.
Prolaktínhormóninn, segir dr.
Williams örva frumur I brjósti til
aö skipta sér og margfaldast. Þvi
hraöar sem þessi þróun gerist
þeim mun meiri hætta er á aö
fruma veröi „illkynjuð”.
Eitthvaö svipaö telur hann gerast
I skjaldkirtli og i húö.
Þaö veröur sem fyrst aö byrja á
rannsóknum sem gætu gengiö úr
skugga um þaö hvort kenning
min er rétt eöa röng, segir dr.
Williams. Astæöan fyrir þvl aö
okkur ber aö hafa hraöan á er
fyrst og fremst sú, aö þaö heföi
mjög afdrifarikar afleiöingar ef
hún rcyndist rétt.
Visindamaöurinn hefur reiknaö
þaö út, aö I Bandarikjunum ein-
um geti áfengisneysla oröiö til aö
ýta undir þróun 16.000 tilfella
brjóstkrabba og 5.000 tilfelli eru
tengd lyfjaneyslu.
Þaö væri mikill ábyrgöarhluti,
segir hann, aö prófa ekki til fulls
kenningu sem svo niiklu skiptir
máli.
(byggt á Spiegel)
Dr. Williams: viö veröum sem
fyrst aö ganga úr skugga um þaö
hvort kenning min er rétt.
krabbamein. PiIIurnar og snafs-
arnir örva aöalkirtil manns-
likamans, heiladingulinn, til auk-
inna starfa. Meö þvi aö hann
stýrir hormónabúskap likamans,
þá framleiöa einnig aörir kirtlar
meira af hormónum en þörf er
fyrir.
Mikið úrval bóka
Marx, Engels, Lenin, tækni, visindabæk-
ur, skáldsögur, listaverkabækur, einnig
nótur og hljómplötur frá Sovétrikjunum,
Tékkósióvakiu, Póllandi og Ungverja-
landi.
ERLEND TÍMARIT
Hverfisgötu 50 v/Vatnsstig, 2. hæö. Simi
28035.