Þjóðviljinn - 18.09.1976, Page 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJJNN Laugardagur 18. september 1976.
Merkjasala
Kvennréttinda-
félagsins er í dag
t dag er hin árlega merkjasala
á vegum Kvenréttindafélags ís-
lands til eflingar Menningar- og
minningarsjóði kvenna.
Stofnandi sjóðsins var Briet
Bjarnhéðinsdóttir og var stofnfé
hans dánargjöf Brietar, að upp-
hæð 2.000.- kr., sem afhent var af
börnum hennar á 85 ára afmæli
hennar 27. september 1941, og
telst sá dagur stofndagur sjóös-
ins.
Tilgangur sjóösins er m.a. að
styöja konur til framhaldsmennt-
unar innanlands og utan, til rann-
sókna- og visindastarfa að námi
loknu, og að veita konum styrk til
ritstarfa, einkum um þjóðfélags-
mál.
Sjóöurinn starfar samkvæmt
sérstakri skipulagsskrá, og þar
segir m.a. i 4. grein:
„Komi þeir timar, að konur og
karlar fái sömu laun fyrir sömu
vinnu og sömu aðstæöur til
menntunar, efnalega, lagalega og
samkvæmt almenningsáliti, þá
skulu bæöi kynin hafa jafnan rátt
til styrkveitinga Ur þessum
sjóöi”.
Styrkveitingar úr Menningar-
og minningarsjóði kvenna fara
fram i lok nóvember ár hvert, og
þurfa umsóknir að hafa borist
sjóðsstjórninni að Hallveigar-
stöðum fyrir 15. nóvember.
Styrkur úr sjóðnum var fyrst
veittur áriö 1946, og eru þær ófáar
konurnar, sem hlotið hafa styrk
úr honum til þessa. Árið 1975
fengu fimm konur styrk úr sjóðn-
um.
Menningar- og minningarsjóð-
ur kvenna hefur nokkrar tekjur af
minningargjöfum, sölu minning-
arkorta og æviminningabókanna
fjögurra — en aðaltekjulind
sjóðsins er hin árlega merkja-
sala. Það er þvi undir þvi komið
hvernig til tekst með þessa fjár-
öflun, hversu mikið fé sjóðurinn
hefur handbært til styrkveitingar
hverju sinni.
Merkin verða afgreidd til sölu-
barna i barnaskólum borgarinnar
frá klukkan 10.00 i dag. Verð
merkjanna er óbreytt frá þvi sem
verið hefur tvö siðastliðin ár: 50,-
kr.
800
Framhald af 3. siðu.
friðar en sem nemur kilómetra
meðan athöfnin fer fram. Einn
fréttamaður kallar þetta mestu
sorgarstund i 27 ára sögu kin-
verska alþýðulýðveldisins.
A öllum vinnustöðum og i öllum
stofnunum hefur fólk verið hvatt
til þess að fylgjast meö minning-
arathöfninni i útvarpi eða sjón-
varpi. Meðan þriggja minútna
þögnin stendur yfir, munu öll
skip, járnbrautarlestir og verk-
smiðjur þeyta flautur sinar af
fullum krafti. Ekki er vitað hvort
lik Maós veröur brennt, eins og
gert hefur verið við lik sumra
félaga hans úr flokksforustunni,
eða hvort það verður jarðsett.
Orðrómur er á kreiki meðal er-
lendra fréttamanna i Peking um
að likið verði lagt i grafhýsi.
Pallur hefur veriö reistur við
hlið Forboðnu borgarinnar á
sama stað og Maó Tse-túng lýsti
yfir stofnun kinverska alþýðulýð-
veldisins 1. október 1949. Ekki er
vitað hver minningarræðuna flyt-
ur, en erlendir fréttamepn telja
liklegast að það verði Húa
Kúó-feng, forsætisráðherra og
eftir lát Maós fremsti forustu-
maður rikis og flokks. Hann er
aðalformaður undirbúnings-
nefndarinnar að útför Maós, og
telja kinafræðingar að athyglin,
sem beinst hefur að honum af þvi
tilefni, hafi styrkt aðstöðu hans.
Alþingi
Framhald af bls. 1.
an, heldur en sú niðrun sem ný-
sett bráðabirgðalög eru.
Lögin eru einnig aðför að samn-
ingsrétti alls vinnandi fólks. Þvi
ef rikisvaldið kemst upp með slik
afskipti af vinnudeilum er samn-
ingsréttur allra stéttarfélaga i
hættu, og enginn veit hver verður
fyrir næsta höggi.
Þeir sem standa að þessari
undirskriftasöfnun eru:
Björn Ingólfsson.
Sandgerði,
Elias Björnsson,
Vestmannaeyjum,
Gestur Kristinsson
Súgandafirði,
Guðmundur Jónsson,
Vesturvangi 13, Hafnarfirði,
Jón Marteinn Guðröðsson,
Reykjavik*
.Ragnar Elbergsson,
Grundargötu 26, Grundarfirði,
Sigurgeir Jónsson,
Vestmannaeyjum,
Sigurpáll Einarsson,
Staðarvör 12, Grindavlk,
Sverrir Hákonarson,
Elliðavöllum 19, Keflavik,
Þórður ólafsson,
Setbergi 19, Þorlákshöfn,
Þorsteinn Villhelmsson,
Vallargerði 4, Akureyri,
Hjalti Björnsson,
Siglufirði.
Þeir sem vilja taka að sér aö
safna undirskri ftum eru beðnir
að snúa sér til ofangreindra
manna.”
Sjónvarp
Framhald af bls. 16
starfa sem aukagetu við aðal-
störf.
Tröllasögur hafa gengið um
yfirvinnutekjur sjónvarpsmanna,
og sögðu þeir að þær hefðu haft
við rök aö styðjast fyrstu 3 til 4
árin, sem sjónvarpið starfaði, en
yfirvinna hefði minnkað verulega
frá þvi sem þá var. Nú eru um
80% af starfsmönnum sjón-
varpsins vaktavinnufólk.
— Ég er sannfærður um að
stofnunin á eftir að liðast i sundur
innan tiðar ef svo heldur fram til
lengdar með kjör starfsmanna.
Þaö hafa 10% starfsmanna hér
hætt á siðustu 4 mánuðum vegna
launamála, sagði einn nefndar-
manna, Eiöur Guðnason, frétta-
maður.
Hvort eitthvert sjónvarp yrði
um helgina?
— Ef eitthvað verður við okkur
talað gætum viö hafiö vinnu á
nýjan leik, en við sjáum ekki að
svo verði, amk. ekki eins og
stendur, var svar þeirra sjón-
varpsmanna, svo fólk getur búið
sig undir aö allt eins verði ekki
mikið um sjónvarpsútsendingar
um helgina, þvi fáar sögur hafa
enn fariö af viðbragðsflýti
ráðuneytismanna islenskra þegar
lcysa þarf úr vandamálum.
-úþ
Dularfullt skjalahvarf
BONN 17/9 Reuter — Mikd-
væg skjöl varðandi flugvéla-
kaup Vestur-Þýskalands af
þeim fræga bandariska auð-
hring Lockheed eru horfin úr
skjalasafni varnarmála-
ráöuneytisins i Bonn, sam-
kvæmt tilkynningu ráðu-
neytisins sjálfs.
Missir skjalanna mun hafa
komist upp er taka átti til
þeirra vegna ásakana þess
efnis, að vestur-þýskum
ráðamönnum hefði verið
mútað tii að greiða fyrir
kaupum á orrustuflugvéla-
tegundinni F-104 Starfight-
ers, sem vesturþjóðverjar
keyptu snemma á siðasta
áratug. Þá var varnamála-
ráðherra Franz-Josef
Strauss, leiðtogi hins ihalds-
sama CSU-flokks i Bæjara-
landi. Samkvæmt tilkynn-
ingunni hafa þau mikilvæg-
ustu af hinum horfnu skjöl-
um gufaö upp úr skrifstofu
hans sjálfs.
Lögregluþ j ónsstaða
Laust er til umsóknar starf lögregluþjóns
Kópavogi.
Nánari upplýsingar gefur yfirlögreglu-
þjónn.
Umsóknarfrestur er til 20. október n.k.
Málaskólinn Mimir
Lifandi tungumálakennsla. Mikið um nýjung-
ar. Kvöldnámskeið — síðdegisnámskeið. Sam-
talsflokkar hjá englendingum. Léttari þýska.
fslenska fyrir útlendinga. Franska. Spánska.
ítalska. Norðurlandamálin. Enskunámskeið
barnanna. Unglingum hjálpað fyrir próf. Inn-
ritun ísíma 10004 og 11109 k1.1-7 e.h.
Málaskólinn Mímir
Hveragerði
Þjóðviljinn óskar að ráða umboðsmann til
að annast dreifingu blaðsins i Hveragerði.
Upplýsingar gefur útbreiðslustjóri, simi
17505.
Þjóðviljinn
Bankarnir
Framhald af bls. 1
einn hinna yfirheyrðu hefur játað
að hafa fariö allt að 6 miljónir,
sex miljónir króna,yfir innistæðu
á ávisanareikningi sinum, og
annar sagðist hafa greitt 400 þús-
und krónur i refsivexti á einu ári.
Þessir kunningjar segjast svo
oft hafa lánað hverjir öðrum,
stundum stórar upphæðir endur-
gjaldslaust i formi ávisunar.
Ávísunin hafi bá verið greidd
siðar, stundum meö annarri
ávisun. Það hafi komið fyrir að
þeir skiptust á ávisunum, en þá
hafi alltaf önnur verið heimil, en
með hina hafi átt að fara i banka
siðar.
Hrafn sagði að ljóst væri að ein-
hverjir bankastarfsmenn yrðu
teknirtil yfirheyrslu, en ekki vildi
hann fullyrða að bankastjórar
yrðu yfirheyrðir.
Þess má að lokum geta aö nær
allir aöilar þessa ávisanasvika-
hrings fóru afar illa útúr skyndi-
könnun Seðlabanka tslands 7.
nóvember 1975. Enn sem komið
er sagðist Hrafn ekki vilja birta
nöfn þessara manna, en um leið
og yfirheyrslum væri lokið sæi
hann enga ástæðu til að leyna
þeim iengur.
—S.dór
Auglýsing
um breytingu á staðfestu
aðalskipulagi Reykjavikur
1962 - ’83.
Með tilvisun til 17. og 18. gr. skipulagslaga nr. 19/1964,
auglýsast hér meö breytingar á staðfestu aðalskipulagi
Reykjavikur.
Breytingarnar eru sem hér segir:
1. Breyting á legu Hringbrautar — Miklu-
brautar, sbr. uppdrátt Þróunarstofnun-
ar Reykjavikurborgar, merktur nr. 2,
m. 1:2000, dags. i október 1975.
2. Skipulag Reykjavikurflugvallar, að þvi
er varðar legu flugbrauta og staðsetn-
ingu flugstarfsemi, tillaga 2, m. 1:5000,
dags. i desember 1975.
Ofangreindir uppdrættir, ásamt greinargerðum, eru til
sýnis á skrifstofu borgarverkfræðings, Skúlatúni 2, 3. hæð,
næstu 6 vikur frá birtingu þessarar auglýsingar, og at-
hugasemdir ef einhverjar eru, skulu hafa borist borgar-
verkfræðingi, skipulagsdeild, Skúlatúni 2 innan 8 vikna frá
birtingu hennar, sbr. 17. gr. áminnstra laga.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests,
teljast samþykkir breytingunum.
Borgarverkfræðingurinn i Reykjavik
— skipulagsdeild —
Reykjavik, 17. september 1976
Aðalsteinn Richter,
skipulagsstjóri Reykjavikurborgar.
Tilboð óskast i jarðvinnu — gröft,
sprengingar, malbikun o.fl. — á lóð Land-
spitalans sunnan Hringbrautar. útboðs-
gögn verða afhent á skrifstofu vorri gegn
10.000.- kr. skilatryggingu.
Verkinu sé að mestu lokið 15. mars 1977,
en malbikun 15. júli 1977.
Tilboðin verða opnuð á sama stað föstu-
daginn 15. okt. 1976 kl. 11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844
J O.
EWí
ÞJÓDLEIKHÚSIÐ
SÓLARFERÐ
eftir Guðmund Steinsson
Leikmynd: Sigurjón Jóhanns-
son
Leikstjóri: Brynja Benedikts-
dóttir
Frumsýning i kvöld kl. 20.
Uppselt
2. sýning sunnudag kl. 20.
3. sýning miðvikudag kl. 20.
Miðasala 13,15-20.
Sala aðgangskorta stendur yf-
ir og lýkur um 20. þ.m.
Stórlaxar
frumsýning þriðjudag kl.
20,30.
2. sýning fimmtudag kl. 20,30.
3. sýning föstudag kl. 20,30.
Rauð kort gilda.
Áðgöngumiðasalan I Iðnó kl.
14-19. Simi 1-66-20.