Þjóðviljinn - 29.10.1976, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 29.10.1976, Qupperneq 1
DIOÐVIUINN Föstudagur 29. október 1976 — 41. árg. — 243. tbl. Ríkið á götunni Hætta á að ríkisstofnanir verði bornar út úr leiguhús- næði á þremur stöðum á landinu — Ríkið greiðir á milli 200 og 220 milj. kr. í húsaleigu á þessu ári A þremur stöðum á landinu standa mál nú þannig, að hætta er á að rikisstofnanir verði bornar útúr þvi leiguhúsnæði, sem þær eru i. A Selfossi var þess krafist að vegagerðin væri borin útur þvi húsnæði, sem hún leigir þar og var fallist á þessa kröfu i héraði, en rikið hefur áfrýjaö málinu til Hæstaréttar. 1 Kópavogi er sömu sögu að segja. Þar hefur leigusali krafist þess að bæjarfógeta- embættið verði borið úr og er það mál nú fyrir héraðsdómi. I Borgarnesi er einnig von á út- burðarkröfu á sýslumanns- embættiið, en þar er talið að beðið verði eftir niðurstöðu kröfunnar i Kópavogi. Astæðan fyrir þessu, kröfum er sú, að leigusalar telja sig ekki fá þær visitölubætur á leiguna sem þeir telja sig eiga rétt á, en sem kunnugt er var hækkun á húsaleigu bönnuð með verð- stöðvunar1ögum rikis- stjórnarinnar, en þeir einu sem fóru eftir þessum lögum voru rikisstofnanirnar, öll önnur húsaleiga hækkaði. En sl. sumar var ákveðið að leyfa visi- tölubætur á húsaleigu, en þeir sem leigja rikinu húsnæði og hafa nú krafisl útburðar vilja ekki una þeirri hækkun, sem þeim er skömmtuð. Þess má að lokum geta, að rikið mun greiða i húsaleigu milli 200 og 220 milljónir kr. á þessu ári. —S.dór RAFHA 40 ára Alfreð Matthiasson, starfs- maður hjá Kafha, var að skrúfa siðustu skrúfuna i eldavél, þegar ljósm. Þjóðviljans, EIK, leit inn i verksmiðjunai Hafnarfirði. Gengið um verk- smiðju H.F. Raftækjaverksmiðjan i Hafnarfirði, sem i daglegu tali gengur undir nafninu RAFHA á 40 ára afmæli i dag. Fyrir- tækið var stofnað árið 1936 og var einn af ávöxtum fyrstu stórvirk jananna sem miðuðust meðal annars við að útvega rafmagn til heimilis- nota. Til þess að hægt væri að nýta rafmagn til þessara þarfa þurfti heimilistæki og rikisvaldið reyndi m.a. vegna þess og vegna viðvarandi atvinnuleysis að stuðla að isl. iðnaði á þessu sviði. Upp úr þvi var Raftækjaverksmiðjan stofnuð. A 25 ára afmæli verk- smiðjunnar var yfirgnæfandi meirihluti heimilistækja I landinu framleiddur hjá RAFHA. Nú er meirihluti framleiðslunnar hinar kunnu Rafha eldavélar, en fyrirtækið á i harðnandi samkeppni við innfiutning. Þjóðviljinn heimsótti RAFHA á 40 ára afmælinu og birtir i opnu svip- myndir af starfsfólki hennar að störfum, en þar vinna nú 65- 70 manns. SJÁ OPNU Drekkum sunnudagskaffið hjá Þjóðviljanum Hittumst á hátíðisdegi Þjóðviljinn hefur boð inni í nýja húsinu á sunnudaginn fyrir vini, velunnara og stuðnings- menn. Þetta verður ,,eins og hvert annað afmælis- boð" sagði ólafur Jónsson i Þjóðviljanum í fyrradag — kaffiveitingar og bakk- elsi. Listamenn líta við og flutt verða stutt ávörp. 1936197t Þarna verður opið hús í f jóra tíma frá kl. hálfþrjú til klukkan hálfsjö um kvöldið.Komið og skoðið ný heimkynni Þjóðviljans — sem þið hafið byggt með sameiginlegu átaki. Hittið gamla og nýja kunningja. Alþýðubankinn snýr vörn 1 sókn Fyrsti liðurinn í þeirri sókn er 30 milj. kr. hlu 1 afjárauknitig sem verið er að bjóða út Forráðamenn Alþýðubankans h.f. boðuðu til blaðamannafundar i gær þar sem þeir skýrðu ma. frá þeirri ákvörðun bankaráðs, að bjóða út 30 milljón króna hluta- fjáraukningu, sem fyrsta lið i nýrri sókn bankans fram á við, eftir þá lægð sem hann lenti i eftir að „Alþýðubankamálið” svo nefnda kom upp. Hinn nýi banka- stjóri Alþýðubankans, Stefán Gunnarsson og formaður nýs bankaráðs, Benedikt Daviðsson, sögðu að það hefði verið niður- staða hluthafafundar Alþýðu- bankans að snúa nú vörn i sókn efjjr þann álitshnekk, sem „AJþýðubankamálið” varð bankanum eftir að það kom upp á sl. vetri. Stefán Gunnarsson sagöi, að lausafjárstaða bankans væri ekki nógu góð, sem stæði og það væri aðal ástæðan fyrir þvi að þessi hlutafjáraúkning væri boðin út nú. Hann sagði það ekkert launungarmál að fjárstreymi hefði verið úr bankanum fyrst eftir að málið kom upp, en það hefði staðið tiltölulega stutt yfir, en samt sem áður hefur ekki verið hægt að snúa þróuninni við, bankanum i hag, enn sem komið er. Nefndi Stefán i þvi sambandi að innleggsaukning hinna bankanna hefði verið um 30% það sem af er þessu ári, en hjá Alþýðubankanum hefði ekki verið um aukningu að ræða, hann hefði staðið i stað. Benedikt Daviðsson formaður Alþýðubankans sagði aö viðbrögð margra verkalýðsfélaga um að kaupa fleiri hlutabréf og að auka viðskipti þeirra við bankann hefðu verið jákvæð, en hann benti jafnframt á, að Alþýðusamband Islands stæði i fjárfrekum fram- kvæmdum, þar sem væri bygging nýs húsnæðis fyrir ASl og listasafn þess, þannig að lausa- fjárstaða þess væri ekki sem best um þessar mundir. Þeir Stefán Gunnarsson, Benedikt Daviðsson og Ingi R. Helgason, lögfræðingur bankans sögðu á fundinum að timi væri kominn til að bankinn, sem stofnun hætti að liða fyrir hugsanlegar misgjörðir satrfsmanna og að það væri járn- fastur vilji forráðamanna hans að hefja hann til þess vegs i banka- kerfinu, sem honum bæri sem banka verkalýðshreyfingarinnar og þvi um leið alls almennings i landinu. —S.dór. «1 Hækkun söluskatts og vörugjaldið 700 þús.á 5 manna fjölskyldu Frá 1. umrœðu fjárlaga á Alþingi í gær Fyrsta umræða fjárlaga fór fram á Alþingi i gær. Matthias A. Mathiesen, fjármálaráðherra, mælti fyrir fjárlagafrumvarpinu, cn siðan tóku til máls fulltrúar þingflokka stjórnarandstöðunnar þeir Geir Gunnarsson, Jón Ar- mann Héðinsson og Karvel Pálmason. I ræöu fjármaálráðherra kom m.a. fram, aðá næstu vikum mun rikisstjórnin leggja fram á Alþingi nýtt frumvarp til laga um tekjuskatt og eignaskatt. 1 hinu nýja frumvarpi verður m.a. lagt til, að skattlagningu hjóna verði breytt á þann veg, að tekin verði upp tekjuhelmingaskipti milli hjóna og skattur lagður á hjónin hvort i sinu lagi. Sérstakur skatt- afsláttur yrði þá veittur fyrir kostnað vegna útivinnu eigin- kvenna, sem miöaður verður við unnar vinnuvikur utan heimilis. Afsláttur þessi kæmi annars vegar fram i barnabótaauka og hins vegar i auknum persónuaf- slætti óháð barnafjölda. Þá boð- aði ráðherrann að samkvæmt hinu nýja frumvarpi yrði at- vinnurekendum áætluð laun fyrir starf að eigin atvinnurekstri, og reglum um söluhagnað og fyrn- ingar verði breytt. t ræðu sinni gerði fjármálaráð- herra einnig grein fyrir rikis- reikningi siðasta árs og skýrði m.a. frá þvi, að i innheimtar tekjur rikisins hafi á árinu 1975 farið 3,6% fram úr f járlagaáætlun þess árs, en ríkisútgjöldin hafi hins vegar farið 24% fram úr tölu fjárlaganna og orðið 58.577 inilj- ónir í stað 47.226 miljóna, sem gert var ráð fyrir á fjárlögum. Rikisútgjöldin fóru sem sagt yfir ellefu miljarða fram út áætlun á siðasta ári!! Geir Gunnarssonflutti ýtarlega ræðu. Hann benti m.a. á, aö frá fjárlögum ársins 1974 til fjárlaga ársins 1976 þá hafi hækkun inn- flutnlingsgjalda, söluskatts og tckjuskatts einstaklinga numiö samtals 22.400 miljónum króna en á sama tima hafi tekjuskattur fyrirtækja hækkað um 148 milj- ónir. Og enn mun skattheimtan aukast verulega á næsta ári sant- kvæmt fruntvarpinu. Frá fjár- lögum árs 1974 til fjárlagafrum- varpsins nú nemur bara hækkun söluskatts og hið nýja vörugjald yfir 30 miljörðum króna en það svarar til um 700 þúsund króna á Fjármálaráöherrann hverja fimm manna fjölskvldu i landinu. A sama tima hafa framlög til verklegra framkvæmda verð skorin stórlega niður að raungildi en hvers kyns rekstrargjöld og vaxtagreislur þanist út. Nánar er greint frá ræöu Geir Gunnarssonar. —Sjá síðu 6

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.