Þjóðviljinn - 29.10.1976, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 29.10.1976, Blaðsíða 6
6 SIOA — ÞJÓÐVI LJINN Föstudagur 29. október 1976 Úr ræðu Geirs Gunnarssonar við 1. umræðu fjárlaga Hækkun gjalda sem ber 24,4 miljarðar á Hœkkun tekjuskalts félaga 0,15 miljarðar á sama tíma almenningur tveimur árum Aö lokinni ræöu fjármalaráð- herra við fyrstu umræðu fjárlaga á Alþingi i gær, tók til máls Geir Gunnarsson, annar tveggja fuli- trúa Alþýðubandalagsins i fjár- veitinganefnd. Hér verður greint nokkuð frá fyrri hluta ræöu Geirs, en siðari hlutinn biöur fram yfir helgi. — sumt er endursagt en annað orð- rétt. Verðbólgan — Ekkert að þakka. t upphafi máls sins ræddi Geir Gunnarsson nokkuð um verðbólg- una og viðskiptahallann. Hann sagði að árið 1974 hafi fram- færslukostnaður samkvæmt visi- tölu hækkað um 48%. Þá hafi er- lent verð á innfluttum vörum hækkaö um 35%, og verðbólgu- vöxturinn i OECD löndunum hér i kring verið 68% að meðaltali. A árinu 1975 hafi erlent verð inn- fluttrar vöru hins vegar aðeins hækkað um 5% að jafnaði og á þessu ári sé talið að hækkunin verði 6-7%. Samt er talíð að fram- færsluvisitalan hér á landi muni hækka i ár um 25-30%, og frá ágúst 1975-ágúst 1976 hafi hækkun framfærlsuvisitölunnar hér verð 31.8% samkvæmt alþjóðlegum skýrslum. A þessu 12 mánaða timabili hafi hér dregið úr verð- bólguhraðanum um aðeins 25% miöað við árið 1974, en um 40% i OECD löndunum til jafnaðar. Það er alþjóðleg þróun, sem veldur þvi, að hraði verðbólg- unnar er hér nú nokkru minni en fyrir tveimur árum, en stjórn- leysi islensku rikisstjórnarinnar hefur beinlinis komið i veg fyrir að dregið hafi úr verðbólguvext- inum i þeim mæli, sem ytri að- stæður hafa gefið tilefni til. Viðskiptahallinn — Ekk- ert að þakka Viðskiptahallinn við útlönd var i fyrra um 20 miljarðar en menn gera sér vonir um að hann geti orðið 8-10 miljörðum minni i ár. Þetta er þó engan veginn að þakka stefnu’ rikisstjórnarinnar nema siður sé. Stefna hennar er hömlulaus eyðsla gjaldeyris i hvers kyns neysluvörur, sem margar væri auðvelt að fram- leiða hér á landi. Astæður minnkandi viðskipta- halla eru: 1 fyrsta lagi batnandi viðskiptakjör og i öðru lagi má nefna þrjá þætti sem einir út af fyrir sig skýra að mestu þá minnkun viðskiptahallans, sem riidsstjórnin gumar af. Þessir þættir eru: 1. 1 júlilok hafði innflutningur skipa dregist saman um 2400 miljónir. 2. A sama tima hafði innflutningur hráefnis til álverksmiðjunnar minnkað um 2874 miljónir. Þetta gerir samtals 5274miljónir króna. 1 þriðja lagi hafði svo útflutningur á áli aukist i júlilok um kr. 4.149 miljónir. (1 fyrra varsölutregða á áli, en nú er verið að vinna úr og flytja út úr efni, sem þá var flutt inn.) Samtals bæta þessar þrjár stærðir viðskiptajöínuðinn um kr. 9.423 miljónir, eða um álika upp- hæð og gert er ráð fyrir að víð- skiptahallinn lækki i ár. Hér er þvi ekkert að þakka rikisstjórn- inni, nema ef menn vilja þakka henni fyrir að takmarka innflutn- ing á framleiðslutækjum á sama tima og erlendar neysluvörur flæða óhindrað inn i landið til samkeppni við innlenda fram- leiðslu. Afkoma rikissjóðs — Hallinn tifaldaðist. Geir G'unnarsson ræddi siðan um afkomu rikissjóðsá þessu ári, og benti á, að þegar fjárlaga- frumvarp ársins 1976 hafi verið lagt fram i fyrrahaust þá hafi verið gert ráð fyrir halla upp á 770 miljónir króna. Nú væri hins vegar reiknað með, að þessi sami halli veröi 7.533 miljónir eða um tifalt meiri en ráð var fyrir gert fyrir rúmu ári siðan. Þegar fjárlagafrumvarpið var lagt fram i fyrrahaust var reyndar ekki aðeins reiknað með aðeins tiunda hluta þess halla, sem nú er orðinn, heldur var þá boöuð „umtalsverð skattalækkun með niðurfellingu sérstaks vöru- gjalds”. En það sem gerðist var að 12% vörugjaldið sem samkv. íjárlagaírv. átti að falla niður i árslok 1975 en yar við afgreiðslu fjárlaga ákveðið 10% til 1. sept. og 6% frá þeim tima til áramóta var i maf hækkað í 18% og skyldi sú hækkun vera i gildi til næstu áramóta. 1 höndum hæstv. fjármálaráðherra hafði vöru- gjaldið sem hann sleppti lausu i júli 1975 nú fengiö eðli ófreskj- unnar i þjóðsögunum. Sá haus, sem högginn var af i des. varð að tveimur i mai. Þrátt fyrir allt þetta hefir ekki verið sýnt fram á, á þessari stundu,að yfirdráttarskuld rikis- sjóös við Seðlabankann verði lækkuð um 1450 milj. kr. eins og gert var ráð fyrir við afgreiðslu fjárlaga og skattheimtan rnið- aðist við. Frá siðustu áramótum og til loka ágústmán. hefir skuldin hækkað um 1945 rnilj. kr. eða nokkru meir en á sama tlma- biii i fyrra og nam i lok sept. 12.774 miij. kr. Aður afsakaði hæstv. rikis- stjórn skattpininguna, halia- reksturinn og kjaraskerðinguna rneð versnandi ytri abstæðum, en nú herðir hún á þessu ári enn skattheímtuna og kjararýrn- unina, þegar ytri aðstæöur hafa verulega batnað. Söluskattur og innflutn- ingsgjöld hækkuðu um 23 miljarða, en tekju- skattur félaga um 0,15 miljarða. Það er fróðlegt fyrir launafólk sem hefir búið við stórlega skert lifskjör á stjórnartima hæstv. núv. rikisstjórnar að sjá hvernig hin stóraukna skattheimta rikis- sjoðs birtist i samanburði nokk- urra skattstofna annars vegar á fjárl. ársins 1974 og hins vegará fjárl. ársins 1976. Innflutningsgjöld hafa á þessum 2 árum hækkað úr 8.500 i 15.500 milj. kr. eða um 7.000 milj. kr. Söluskattur hefir hækkað úr 7.300 m. i 23.300 eða um 16.000 milj. kr. Tekjuskattur einstaklinga hefir Þingsjá hækkað úr 5.800 m.kr. i 7.200 eða um 1.400. Tekjuskattur félaga hefirhækkaðúr922milj.kr. i 1.070 eða um 148 milj. kr. Sé tekin saman hækkun inn- flutningsgj., söluskatts og tekju- skatts einstaklinga á fjárl. þess- ara 2ja ára nemur hún samt. 24.400 miljónum en hækkun á tekjuskatti félaga 148 miljónum. Þessar tölur segja nokkra sögu um skattastefnu hæstv. rlkis- stjórnar. Mjög verulegur þáttur i stór- hækkuðu vöruverði siðasta árs og i þvi hve launafólki veitist æ erfiðara að láta tekjurnar duga fyrir nauð- synjurium, eru hinir stórauknu neysluskattar. Ofan á hverja vöruverðshækkun og þjónustu- gjaldahækkun bætist 20% i sölu- skatt til rikissjóðs. Frá fjárl. 1974 til fjárlfrv. fyrir árið 1977 nemur hækkun söluskatts og hið nýja vörugjald 30.600 milj. kr. Hækk- unin nemur um 700 þús. á hverja fimm manna fjölskyldu. Nú á vörugjaldið að hækka úr 2330 miljónum i 5250 miljónir. Og enn hefir hæstv. fjármála- ráðherra lagt fram fjárlagafrv.. Nú hafa ytri aðstæður batnað á þessu ári og það er gert ráð fyrir aö þær batni enn frekar á næsta ári og gert ráð fyrir, að þjóðarút- gjöld aukist um 2%. Þessi aukn- ing gæti þýtt 1200-1300 milj. kr. i auknar tekjur fyrir rikissjóð. Þessar bættu aðstæður eiga þó greinilega ekki að verða til þess að slakað verði á i skattheimt- unni. Hún er þvert á móti aukin. í stað þess að 10% vörugjald var gildi riflega þriðjung þessa árs, á nú að innheimta 18% vörugjald allt næsta ár. Sé miðað við fjárlög ársins 1976 var áætlað að 10% vörugjald i8 mánuðiog 6% gjald i 4 mánuði færði rikissjóði 2.330 milj. kr. Það svarar til riflega 2.500 milj. kr. árið 1977 vegna verðlagshækkana. Nú er áætlað að 18% vörugjaldið allt árið færi rikisstjóði 5.250 milj. kr. Þar munar nær 2.800 og auk þess má áætla að muni um 700 milj. kr. i auknum útgjöldum neytenda vegna söluskatts á gjaldið. Toll- tekjur lækka hins vegar um 600 milj. kr. Sé miðað við raunverulega inn- heimtu vörugjalds i ár 10% gjald i 4 mán. og 18% gjald i 8 mánuði er' hér um að ræða aukin útgjöld neytenda sem gætu numið um 1200 milj. kr. með söluskatti sem leggst á vörugjaldið og einnig á verslunarálagningu á vörugjald. Til þess að koma fjárlagafrv. saman gerir hæstv. rikisstjórn ennf remur ráð fyrir að hækka um 370 milj. kr. það gjald, sem sjúk- lingar greiða einir, þ.e. gjald v/læknishjálpar og lyfjakaupa. Samdráttur verklegra framkvæmda. Enn ein ráðstöfunin til að berja saman fjárlagafrv. er sú að halda enn áfram á þeirri braut sem hefir verið ein aðalstefna hæstv. rikisstjórnar við fjárlagagerð að skera niður að raungildi þær samfélagsframkvæmdir, sem mestu varða almenning i landinu, þegar rekstrarliðirnir hækka enn umfram almennar verðlags- hækkanir. Framkvæmdir i raforkumálum eru nú á þvi stigi að framlag til þeirra minnka verulega. Það verður þó ekki til þess að auka raungildi fjárframlaga til ann- arra framkvæmda sem mestu skipta um viðgang byggðarlaga, heldur minnka þau framlög enn að raungildi. Framlög til flugvallagerðar t.d. um io% héraðsskóla ur*i 23% hafnarmannv. sveitarfélaga t*P 6% framkvæmda rikisspitala 20% og séu tekin saman framlög rikis- sins til hafnarframkvæmda sveitarfélaga og til landshafna lækkar framlag til þeirra frkv. að raungildi um fjórðung. Framlag til landshafna lækkar um 450 millj. kr. I 100 millj. og er þó allt tekið að láni. Forsvarsmenn hafnarsjóða um allt land hafa án efa átt von á þvl, að þegar lyki hinum sérstöku hafnarframkvæmdum i Þorláks- höfn og Grindavik þá yrði tilsvar- andi upphæð eöa a.m.k. nokkrum hluta jafngildrar upphæðar varið til að auka fjárveitingu til al- mennra hafnaframkvæmda í landinu. Grundartangi fær 53% af hafnafé Ég er ekki frá þvi að yfirvöld hafnarmála hafi jafnvel látið sveitarstjórnarmenn sem kvört- uðu yfir að of lítið væri veitt til al- mennra hafnarframkvæmda meðan á þessum sérstöku fram- kvæmdum stóð, standa i þeirri trú að til hinna almennu hafnar- framkvæmda sveitarfélaga yrði beint auknu fjármagni, þegar létti.greiðslu til Þorlákshafnar og Grindavfkur. En nú er þess í stað enn rýrt framlag til sveitarfélag- ahafnanna en 450 millj. kr. á að verja til hafnarframkvæmda við Grundartanga til viöbótar 60 millj. á þessu ári. Upphæðin á fjárlagafrv. til Grundartanga er 53% af þeirri heildarupphæð sem varið er til allra annarra hafnar- framkvæmda sveitarfélaga i landinu. Það er enn ein staðfest- ing á þvi, að hæstv. rikisstjórn tekur stóriðju i eigu eða með þátt- töku útlendinga fram yfir þá framleiðslustarfsemi sem er að öllu leyti i höndum landsmanna sjálfra. Framlög til stofnkosnaðar menntaskóla annarra en mennta- skóla á Austurlandi nema einung- isum 50millj. kr. og ekki ein ein- asta kr. er veitt til stofnkosnaðar þar á meðal tækjakaupa, til eins einasta fjölbrautaskóla I landinu. Er það i samræmi við það sinnu- leysi, sem hæstv. rlkisstjórn hef- ur jafnan sýnt verknámi i land- inu. Fleira mætti nefna af mikil- vægum þáttum, sem rýra veru- lega að raungildi frá núgildandi fjárlögum, t.d. framlag til jöfn- unar námskostnaðar og framlag til lánasjóðs isl. námsmanna. Ég mun ekki hafa frekari orð um þau mál fyrrenséðverður hvaða afgreiðslu þessi hagsmunamál nemenda fá i fjárveitinganefnd. Rætt um þingnefnd er kanni gang dómsmála Gylfi krefst óhlutdrægni í fréttaflutningi i fyrradag fór fram á Alþingi umræða um þings- ályktunartillögu Sighvatar Björgvinssonar og fleiri Alþyðuf lokksmanna um skipan sérstakrar þing- nefndar, samkvæmt 39. grein stjórnarskrárinnar til þess að „kanna gang og framkvæmd dómsmála". Sighvatur Björgvinsson mælti fyrir tillögunni og deildi hart á seinagang i meðferö saka- mála og ræddi um þann „prest- konumóral”, er hann nefndi svo, sem hér rikti viða, og kæmi m.a. fram i þvi, að fólk teldi að ýmis meiriháttar afbrot svo sem eitur- lyfjasmygl i stórum stil gæti ekki átt sér stað hér á landi. Ólafur Jóhannesson, dóms- málaráöherra kvaðst siður en svo hafa á móti þvi, að slik nefnd væri skipuö, en kvaðst búast við að þeir, sem tækju sæti i nefndinni þyrftu að leggja býsna hart að sér, ef þeir ætluðu að ljúka verk- efninu fyrir vorið, svo sem tillagan gerði ráð fyrir. Taldi Ólafur að rétt hefði verið að marka verksviö slikrar nefndar nánar. Ráðherrann minnti á, að slikar þingnefndir samkvæmt 39. grein stjórnarskrárinnar hefðu aðeins verið kosnar hér tvisvar sinnum, það er Landsbanka- nefndin fræga um 1910 og svo Okurnefndin siðar. Slikar rannsóknarnefndir tiðkuðust yfirleitt ekki heldur i ná lægum Evrópulöndum, en hins vegar mjög mikið i Banda- rikjunum. Astæðan væri sú, að i Bandarikjunum rikti ekki þingræði i sama skilningi og hér og i Vestur-Evrópurikjunum. Ólafur minnti á, að i Banda- rikjunum heföu ýmsir svo sem Nixon og Mac Carthy á sínum tima auglýst sjálfa sig mjög sem formenn fyrir rannsóknar- nefndum, og ekki væri ólíklegt aö eitthvað svipað vekti fyrir flutningsmönnum þessarar tillögu. ólafur Jóhannesson rakti siðan ýmsa galla, sem hann taldi vera á tillögunni. A fundi Sameinaðs þings i gær dró svo til nokkurs eftirleiks i framhaldi af þessum umræðum. Gylfi Þ. Gislason kvaddi sér þá hljóðs utan dagskrár, og kvartaði yfir fréttaflutningi rikisút- varpsins af umræðum þessum daginn áður. Samkvæmt frásögn Gylfa var komist svo að orði i frétt rikisútvarpsins: — ,,og má segja, að litið hafi staðið eftir af ágæti hennar (þ.e. tillögunnar), að ræðu dómsmálaráðherra lokinni”. Las Gylfi upp bréf, sem þing- flokkur Alþýðuflokksins hafði ritað útvarpsstjóra af þessu tilefni, þar sem þess er farið á leit, „að tafarlausar ráðstafanir verði gerðar tii þess, að frétta- flutningur Rikisútvarpsins frá umræðum á Alþingi verði endur- skoðaður og það vandlega tryggt, að hann verði i samræmi við gildandi reglur um óhlutdrægni.”

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.