Þjóðviljinn - 29.10.1976, Síða 9
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 29. október 1976
Föstudagur 29. október 1976 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 9
Kjartan Ellasson sprautar tilvonandi eldavélar hluta
íslensk framleiösla
stendur höllum fæti
— vegna samkeppni við innflutning
og óréttlætis í tollamálum
H.F. Raftækjaverk-
smiöjan i Hafnarfirði,
öðru nafni RAFHA, er
fjörutíu ára i dag. Hjá
RAFHA starfa nú 65-70
manns, flest iðnverkafólk,
en þar starfa auk þess sér-
menntaðir verkstjórar raf-
virkjar og járniðnaðar-
menn. Framleiðsluvörur
RAFHA eru eins og í upp-
hafi aðallega eldavélar.
Allir þekkja RAFHA elda-
vélarnar og sú fyrsta sem
framleidd var frá verk-
smiðjunni og fékk fram-
leiðslumerkið nr. 1 var
tengd í Reykjavfk 7. októ-
ber 1937. Kaupandi hennar
hét Aðalbjörg Albertsdóttir
og var vélin tengd i húsið
nr. 4 við Amtmannsstíg.
Hún varð ekki langlíf og
hefur ekki varðveist, þvi
eldur kom upp i húsinu ári
siðar.
Auk eldavéla annast RAFHA
allskonar sérsmfði, svo sem á
stórum eldavélum steikar-
pönnum, hitaskápum, afgreiöslu-
borðum fyrir mötuneyti, lömpum
og ýmsum tækjum fyrir skip og
einnig framleiðir verksmiöjan
málmglugga og hurðir eftir
óskum kaupenda.
Það er misskilningur að flestar
af framleiðsluvörum RAFHA séu
innfluttar og samsetning fari
aðeins fram hér á landi. Einungis
hellur, rofar og ýmsir smáhlutir
eru aðkeyptir i eldavélafram-
leiðsluna og er það algengt að
slikir hlutir séu keyptir að.
Hjá RAFHA starfa eins og áður
sagði 65-70 manns. Yfirstjórn
verksmiðjunnar er i höndum
framkvæmdastjóra en stjórn
framleiðslu annast tæknifræð-
ingur og verkstjórar. Undir
þeirra stjorn eru reknar eftir-
taldar deildir: vélasalur, emal-
ering, málningardeild, lampa-
deild, sérsmiðadeild, málm-
gluggadeild og samsetningar-
deild.
20 umboðsmenn fyrirtækisins
starfa viðsvegar um landið, en
RAFHA rekur eina söludeild við
Óöinstorg i Reykjavik.
Salarkynni verksmiðjunnar i
Hafnarfirði eru nú 6000 fermetrar
að gólffleti en 24000 rúmmetrar
að stærð. Flest af verksmiðju-
fólkinu er iðnverkfólk, en þar
starfa auk þess sérmenntaðir
verkstjórar og iðnlærðirrafvirkjar
og járniðnaðarmenn. I frétt frá
RAFHA á 40 ára afmælinu segir:
,,NU blasa margvisleg vanda-
mál við I rekstri fyrirtækisins.
Aðild Islands að EFTA hefur gert
það að verkum, að innflutt eru
tæki i stil við þau er RAFHA
framleiðir og nú i ár greiddur þar
af 30% innflutningstollur en
verður 20% á næsta ári og fellur
alveg niður 1. jan. 1979. Þess eru
hins vegar dæmi, að tollur af inn-
fluttu efni til framleiðslu RAFHA
sé 35%. Auk þess eru flutnings-
gjöld af iðnvöru til Islands hærri
en sambærilegar erlendar verk-
smiöjur þurfa að greiða fyrir sinn
flutning, svo ekki sé talað um raf-
magnsverð til iðnaðar hér, sem er
margfallt hærra en i þeim löndum
sem RAFHA á i samkeppni við.
Innkaup rikisstofnana og opin-
berra aðila á vélum og tækjum
sem RAFHA er framleiðandi aö
eru einnig athugaverð ef skoða á
þau i ljósi þess að byggja eigi upp
islenskan iðnað og styðja að
framgangi hans.
Þaðer lágmarkskrafa að leitað
sé til innlendra framleiöenda,
þegar um slik innkaup er að ræða
en á þvi er mikill misbrestur og
þyrfti að ráða bót á sem fyrst.
RAFHA hefur frá upphafi getað
boðið sinar framleiðsluvörur á
verði, sem i öllum tilfellum er
lægra en verð sambærilegrar
framleiðslu erlendis, sé miðaö við
stærð og gæði. Þó hefur borið á
þvi að erlendar eldavélar hafa
verið boðnar hérlendis á lægra
verði upp á slðkastið en þar er
um að ræða söluaðferðir sem
fyrirtækiö að eigin sögn segist
ekki geta keppt við.”
Jakob Þorsteinsson við glerhúðum á eldavélum
if 1 ..j % i | ,
’í 1 J
K j j
. • .A I , ,1 t 1 ■ f-
■>W 1 1 -d 'I 11
Kjartan, verkstjóri hjá RAFHA
eránægðurá afmælinu þráttfyrir
að horfurnar hjá fyrirtækinu séu
ekki sem bestar.
Jóhann Björnsson punktsýður eldavélarhluta
,,Ég var með EFTA á sinum
tlma, en nú er ég á móti. Sam-
keppni er ekki góð nema i hófi”,
segir Axel, forstjóri i Rafha.
Arni Brynjólfsson við rafsuðu I Raftækjaverksmiðjunni.
Halldór Jónsson við „stönsun’* á járnhlutum.
Þorbjörg Georgsdúttir var eina konan sem ljósmyndari Þjóðviljans sá við framleiðslustörf,
Gestur Sveinsson baðar eldavélarhluta upp úr saltsýru áður
en þeir eru glerhúðaðir.
Unnið að samsetningu á spennum. A myndinni má meðal
annars sjá Valtýr Sæmundsson og Guðstein Þorbjörnsson.
Aðalsteinn Sigurðsson fiskifræðingur
Magnús Guðjónsson við „stönsun”.
Skarkolastofninn
viö ísland er að-
eins hálfnýttur
á meöan flestir aðrir fiskistofnar eru ofnýttir,
segir Aðalsteinn Sigurðsson fiskifræðingur
í samtali við Þjóðviljann. — Ástæðan er
fordómar manna í garð dragnótar, sem nálgast
að vera eins og trúarbrögð
„Það er staðreynd, aö á meðan
flestir fiskstofnar viö tsland eru
ofnýttir, er skarkolastofninn hér
við land tæplega hálfnýttur. A
siðasta ári veiddum við aðeins
4.400 lestir af skarkola, en ég tel
aö óhætt sé að veiða 10 þUsund
lestir árlega. Astæðan fyrir þvi
hve lítið er veitt af skarkola er
fyrst og fremst sU, aö fordómar
manna á dragnót, sem veiðarfæri
ganga Uti öfgar, nálgast aö vera
trUarbrögð”, sagði Aðalsteinn
Sigurðsson, fiskifræðingur, er
Þjóðviljinn ræddi við hann um
dragnótaveiði og fleira henni við-
komandi, en Aöalsteinn hefur
rannsakað þetta veiðarfæri og
veiðar með þvi i sumar.
Ekki sá skaðvaldur
sem af er látið
„Ég fullyrði að dragnótin er
ekki sá skaðvaldur, sem af er lát-
ið og allra sist nU, eftir að
möskvastærð á poka verður að
vera 170 millimetrar, i stað 120
mm áður. Þess ber einnig að
gæta, að hér áður var veitt með
dragnót allt uppað 3 milum og þá
allt árið og meö ennþá minni
möskva. Þegar svo var má segja
að flest sem á vegi dragnótarinn-
ar varð hafi i hana komiö. En i
sumar þegar viðgerðum tilraunir
með dragnótaveiði i Faxaflóan-
um og viöar, með 170 mm
möskvastærð kom i ljós, aö ein-
ungis 9% af kolaaflanum i Faxa-
flóa var undir þeirri stærö' sem
leyfilegt er aðveiöa, eða undir 34
sm. Og ég veit að nokkuö af kola
yfir 34 sm sleppur Ut meö þessari
möskvastærð, eða um þaö bil 50%
af kola af stæröinni 34 til 36 sm.
Hvaö við kemur bolfiski sleppur
allt Ut nema stór fiskur. Sáralitið
fékkst af þorski og ýsu i dragnót i
Faxaflóa um mánaðamótin ágUst
og september og i fyrri hluta
október.
— Skemmir dragnótin ekki
botninn og spillir fyrir klaki
fiska?
„Dragnót er ekki hægt að nota
nema á rennisléttum botni og
vissulega hreyfir hUn við botnin-
um, en ekki til skaða að minum
dómi. Hvaö viö kemur klaki, þá
eru það ekki nema sild, loðna og
hrognkelsi, sem klekja Ut á botni
og klak þeirra og dragnótaveiðar
munu ekki rekast á i tima og
svæðum. Þess vegna tel ég enga
hættu þvi samfara að leyfa drag-
nótaveiðar yfir sumarið til kola
veiða. Erlendar rannsóknir hafa
sýnt, að það er sist minni fiska-
fæöa, þar sem dragnótaveiðar
eru Ieyfðar en þar sem þær eru
bannaðar. Sum dýr verða fyrir
einhverjum áföllum en ég tel ekki
að dragnótin raski þar svo miklu
að það sé til nokkurs skaða þegar
um er að ræða framleiðslu fiska-
fæðu á botninum. Við dragnóta-
veiðar eru heldur ekki notaðir
hlerar sem plægja botninn né
heldur bobbingar, sem slétta
hann, þannig að dragnótin er að
þvi leyti mun saklausara veiðar-
færi en botnvarpa.
Dragnótinni kennt
um alla ofveiði
„Eins og ég sagði áöan hefur
andstaða margra gegn dragnót
likst ofstæki i trUarbrögðum.
Menn hafa kennt henni og botn-
vörpunni um alla ofveiði. Ég held
að þeir sem þannig tala ættu aö
skoða samsetningu afia
línu og jafnvel handfæra-
báta sumstaðar viö landið.
Það er ekki ósjaldan sem maður
hefur t.d. séðkóð, sem uppistööu i
af!a handfærabáta. Þá hafa menn
einnig borið þvi við, eftir að
möskvastærðin var stækkuð uppi
170 mm i pokanum, en varpan
sjálf með 135 mm. möskvastærð,
sem er enn, vegna þess að menn
fengu aðlögunartima til að breyta
möskvastærðinni, að menn hnýti
bara fyrir ofan pokann og nái
þannig smáfiski i vörpuna. Vel
má vera að þetta sé hægt, en þvi
þá aöeins að eftirlit með veiðun-
um sé slakt. Við sáum hvaö gerð-
ist sl. sumar þar sem eftirlit var
gott. Þeir bátar sem komu meö of
smáan fisk að landi voru settir i
bann. Þetta gerðist bæði á Snæ-
fellsnesi og eins fyrir norðan. Við
vitum að það er hægt að fara i
kringum allar reglur, sé eftirlit
ekki gott og því miður hefur verið
alltof mikiö meinleysi rikjandi i
eftirlitinu á undanförnum árum.
Menn hafa jafnvel gengið svo
langt að lýsa þvi yfir i Utvarpi aö
þeir hafi og veröi að stunda veið-
ar i landhelgi til að geta komist
af, eins og vestmannaeyingar
gerðu á sinum tima. Svona var
móralsieysið þá, en sem betur fer
er þetta ástand að breytast, eins
og vel kom i ljós sl. sumar þegar
veiðileyfin voru tekin af drag-
nólabátum, sem ekki fóru eftir
settum reglum.”
Skarkolastofninn
vannýttur:
„Þar sem hægt er að veiöa
skarkola með dragnót, án þess aö
skaða aðra fiskistofna er þaö til
skammar fyrir okkur að vannýta
hann, á sama tima og um ofveiði
er að ræða á flestum öðrum
nytjafiskum innan islenskrar
fiskveiðilögsögu og við verðum að
banna öörum þjóðum að veiöa á
miðunum kringum landið. Við
urfum heldur ekki að bUast við
vi að slikt verði látið óátalið og
jafnvel gæti það orðiö notað gegn
málstað okkar á alþjóðavett-
vangi.
Ar árinu 1969 veiddum við um
11 þUsund lestir af skarkola, en
aflinn hefur farið stórlega minnk-
andi siðan og i fyrra veiddum við
aðeins 4.400 lestir, sem er tæpur
helmingur þess afla, sem ég tel að
óhætt sé að veiða af skarkola hér
við land. Þeir fordómarsem ráðið
hafa ferðinni hvað dragnótaveið-
um viðkemur verða aö vikja að
minu áliti svo unnt sé að nýta
stofninn til fulls.”
— Eru einhver mið öörum betri
til skarkolaveiði hér við land?
— „Skarkoli veiðist allt i kring-
um landið. Kannski eru miðin i
Faxaflóa einna best, en það eru’'
lika ágæt skarkolamiö við Vest-
firði og i svo til hverjum firöi fyrir
norðan og n-austan. Það eru til að
mynda afar góö kolamiö i Skjálf-
andaflóa og viða meö Suöur-
ströndinni eru góö kolamiö”.
— Attu von á þvi Aðalsteinn að
sjónarmiö manna hvað viðkemur
dragnótaveiði fari að breytast,
hefurðu oröið var við þaö?
„Þvi miður verður maður litið
var við það enn, en það hlýtur að
koma að þvi. Menn veröa aö fara
aö lita raunsætt á málin og hætta
fordómum. Þaö er ekki það sama
og veiða með 120 mm möskva-
stærð og þaöan af smærri og 170
mm möskvastærö. Og þegar
maður getur sannað muninn jafn
áþreifanlega og ég tel aö við höf-
um gert með tilraunum okkar
i sumar vona ég aö málin fari aö
breytast.” —S.dór
Skarkolaafli a svœdinu
Va
Allor Fjódir
1967 68 70 72 74 76
Hér sést hvernig skarkolaveiöi is-
lendinga hefur minnkaö sl. 6 ár.
Ariö 1970 var hún um 11.000
lestir, i fyrra hinsvegar aöeins
4.400 lestir. Brotna línan sýnir
veiöar islendinga.