Þjóðviljinn - 29.10.1976, Side 14
14 StÐA — ÞJÖÐVILJINN Köstudagur 29. október 1976
Kópavoiskiupstaiur G!
iWj
F élagsráðgjafi
Staða félagsráðgjafa við félagsmála-
stofnun Kópavogskaupstaðar er laus til
umsóknar. Laun samkvæmt kjarasamn-
ingi Starfsmannafélags Kópavogskaup-
staðar. Umsóknum er greini frá menntun,
aldri og fyrri störfum, sé skilað til undir-
ritaðs fyrir 15. nóvember næstkomandi,
sem jafnframt veitir nánari upplýsingar á
Félagsmálastofnunin Álfhólsvegi 32 simi
41570.
Félagsmálastjórinn i Kópavogi.
i Heilsuræktinni HEBU opnaði
fimmtudaginn 28. október
Hárgreiðslustofan
HRUND
Pantanir teknar í slma 44088. Veriö velkomnar.
Opið verður i Hebu I sauna og nuddi alla föstudaga frá kl. 2
fram til jóla.
eba
SIMI 42360
Heilsurœktin HEBA Auðbrekku 53 sími 42360
Breytt símanúmer
Skrifstofa
ríkisspítalanna
Frá og með mánudeginum 1. nóvember
verður simanúmer Skrifstofu Rikisspit-
alanna 24160.
Gjaldkeri, launadeild og innkaupastjóri
verða þó áfram með sima 11765.
Styrkur til
háskólanáms
í Svíþjóð
Sænsk stjórnvöld hafa tilkynnt að þau
bjóði fram i löndum sem aðeild eiga að
Evrópuráðinu tiu styrki til háskólanáms i
Sviþjóð háskólaárið 1977-78. — Ekki er
vitað fyrirfram hvort einhver þessara
styrkja muni koma i hlut islendinga. —
Styrkir þessir eru eingöngu ætlaðir til
framhaldsnáms við háskóla. Styrkfjár-
hæðin er 1.555.- sænskar krónur á mánuði i
niu mánuði en til greina kemur i einstaka
tilvikum að styrkur verði veittur til allt að
þriggja ára.
Umsækjendur skulu hafa lokið háskóla-
prófi áður en styrktimabilið hefst.
Umsóknir um styrki þessa skulu sendar
til:
Svenska Institutet, P.O. Box 7072,
S-103 82 Stockholm 7, Sverige,
fyrir 28. febrúar 1977, og lætur sú stofnun i
té frekari upplýsingar.
Menntamálaráðuneytið,
26. október 1976.
Vélskóli
Framhald af bls. 10.
ur verið í fjárhagslegu svelti
undanfarin ár og verkefni þau
sem biöa hafa þurft úrlausnar
hafa hrannast upp, bæði vegna
hinnar öru þróunar i tæknimálum
svo og vegna mikillar fjölgunar
nemenda i skólanum.
Hver er skýringin?
En hver skyldi skýringin vera á
þessu áhugaleysi stjórnvalda fyr-
ir Vélskólanum og fyrir verk- og
tæknimenntun i landinu almennt?
Eða hver er skýringin á þvi
hvers vegna „helsti stuðnings-
maður verkmenntunar í landinu”
sjálfur menntamálaráðherrann,
gaf út þá fyrirskipun i vor sem
leið að skera niður kennslu-
stundafjöldann i Vélskólanum
vegna of mikils vinnuálags nem-
enda á sama tima og vinnuálagið
er miklu meira i sumum öðrum
skólum? Hvað seinni spurnfng-
una varðar væri fróðlegt að vita
hvað rikissjóður sparar mikið fé
með minnkandi kennslu i skólan-
um.
Þess verði krafist
I ljósi þess, sem áður hefur ver-
ið sagt, finnst mörgum sem
harkalegri aðgerðir þurfi að
koma til en áður, til þess að bætt
verði úr þvi ófremdarástandi sem
rikir i skólanum og þá ekki sist
eftir að hóflegar fjárveitingar-
beiðnir hafa verið hunsaðar jafn
freklega og raun ber vitni. Má þvi
segja að nú sé kominn timi til
þess að leggja allar beiðnir og
snikjur á hiiluna, en þess i stað
verði þess KRAFIST að eftirfar-
andi verði framkvæmt þegar i
stað:
1. Tækjabúnaður skólans veröi
bættur tii samræmis við þá
fjáriagabeiðni sem liggur fyrir
fjárveitinganefnd og að sér-
stakt tillit skuli i þvi efni tekið
til hinnar öru tækniþróunar
sem nú á sér stað i heiminum.
2. Byggingarframkvæmdir verði
hafnar á ný af fullum krafti og
þá ekki að beöið verði með þær
fram á næsta ár eða þarnæsta
heldur skuli þær hafnar tafar-
laust, strax á þessu hausti svo
að einhver von verði til þess að
unnt verði að mæta fjölgun
nemenda á næsta ári.
3. Séðverðitil þess að fjárveiting
til viöhalds húsnæðis og tækja
verði aukin til samræmis við
þörfina.
4. Hafnar verði byggingafram-
kvæmdir við nýtt heimavistar-
húsnæði á skóialóðinni fyrir
nemendur utan af landi.t þessu
sambandi má geta þess að með
nýrri heimavist mætti nýta nú-
verandi heimavistarhúsnæði
undir þakskeggi skólahússins
sem vinnustofur fyrir kenn-
arana svo og aðra þá sem á sér-
stakri vinnuaðstöðu þurfa að
halda.
Verkmenntun
í skítnum
Viðbúið er að verði ekki farið
eftir hinum sjálfsögðu kröfum,
muni ekki liða á löngu uns sjó-
mannamenntun i landinu verði
einskis virt og þá er hætta á aö
hrikta fari í máttarstólpum þessa
þjóðfélags sem þó eru ekki of
beysnir fyrir, en grun hefi ég
samt um að þolinmæði þeirra er
hér hafa mestra hagsmuna að
gæta, verði þrotin löngu áður og
þá veröa vart orðin ein látin
nægja til þess að koma i veg fyrir
það að ráðamönnum þessarar
þjóðar takist að koma verk-
menntun i landinu alveg niður i
skitinn.
Að lokum vil ég segja eftirfar-
andi sögu sem sýnir kannski bet-
ur en nokkuð annað hvað hinir
háu herrar i ráðuneytunum vita
litið um það hvað verkmenntun er
og hvernig hún er uppbyggð...
Á siðastliðnu sumri kom einn af
embættismönnum menntamála-
ráðuneytisins upp i Vélskóla til
þess að kynna sér af eigin raun
hversu tækjaskorturinn i skólan-
um er bagalegur. Er hann var
staddur i vélasal skólans hóf hann
allt i einu að telja vélagarmana
sem þar eru: „Ein, tvær, þrjár,
fjórar, fimm sex, sjö, átta. Átta
vélar, og hvað hafið þið með fleiri
tæki að gera?”
ÞJÓDLEIKHÚSID
SÓLARFERÐ
i kvöld kl. 20. Uppselt
20. sýn. laugardag. kl. 20.
Uppsei^
sunnudag kl. 20. Uppselt
LITLI PRINSINN
sunnudag kl. 15
Litla sviðið:
NÓTT ASTMEYJANNA
eftir Per Olov Enquist.
Leikstjóri: Helgi Skúlason.
Leikmynd: Birgir Engilberts.
Frumsýning þriðjudag kl.
20.30.
2. sýning miðvikudag kl. 20.30.
Miðsala 13,15-20.
Auglýsingasíminn er
1 7500’Þjóðviljinn
LEIKFÉLAG ^2
REYKIAVÍKUR
ÆSKUVINIR
eftir: Svövu Jakobsdóttur.
Leikstjórn: Briet Héðinsdótt-
ir.
Leikmynd: Steinþór Sigurðs-
son.
Leikhljóð: Gunnar Reynir
Sveinsson
Lýsing: Daniel Williamson.
Frumsýning i kvöld. — Upp-
selt.
2. sýn. sunnudag kl. 20,30.
3. sýn. miðvikudag kl. 20,30.
Rauö áskriftarkort gilda.
SKJALDHAMRAR
100. sýn. laugardag. — Upp-
selt.
SAUMASTOFAN
þriðjudag kl. 20,30.
STÓRLAXAR
fimmtudag kl. 20,30.
Miðasalan i Iðnó er opin kl. 14-
20,30. Simi 1-66-20.
LEIKHÚSGESTIR
í vetur getið þið byrjað leikhúsferðina hjá okkur.
því um helgar, á föstudögum, laugardögum og
sunnudögum munum við opna kl. 18.00. Sérstaklega
fyrir leikhúsgesti. Njótið þess að fá góðan mat og
góða þjónustu í rólegu umhverfi áður en þið farið í
leikhúsið.
HÓTELHOLT
Sími 21011.
Hjúkrunarfræðingar
Sjúkrahús Húsavikur óskar að ráða nú
þegar hjúkrunarfræðinga. Húsnæði i boði.
Upplýsingar veita framkvæmdastjóri og
forstöðukona i simum 96-4-13-33 og
96-4-14-33.
Sjúkrahúsið á Húsavik s.f.
BASAR
l
Kvenfélagið Hringurinn heldur handa-
vinnu- og kökubasar að Hallveigarstöðum
laugardaginn 30. október klukkan 2.
Allur ágóðinn rennur til Barnaspitalans.
Tilboð óskast
i nokkrar fólksbifreiðar, Pick-Up og
sendiferðabifreiðar, er verða sýndar að
Grensásvegi 9 þriðjudaginn 2. nóvember
kl. 12-3. — Tilboðin verða opnuð i skrif-
stofu vorri kl. 5.
Sala varnarliðseigna.