Þjóðviljinn - 14.12.1976, Side 6

Þjóðviljinn - 14.12.1976, Side 6
6 &IÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 14. desember 1976 Umrœður á Alþingi 1 8œr: Rannsóknarnefnd til að kanna verðmyndun I gær kom til fyrstu umræðu til- laga til þingsályktunar frá þeim Eðvarð Sigurðssyni, Garðari Sigurðssyni, Svövu Jakobsdóttur og Lúðvik Jósepssyni um skipan 5 manna rannsóknarnefndar skv. ákvæðum i 39. gr. stjórnarskrár- innar. Verkefni nefndarinnar séu: 1. Að rannsaka hvort innkaup á vörum til landsins séu með eðli- legum bætti og f samræmi við þjóðarhagsmuni eða hvort brögð séu að þvi, að vörur séu keyptar til landsins á óhagstæðu verði, sem leiði til hærra vöruverðs i landinu en ætti að vera. 2. Að rannsaka sérstaklega áhrif umboðslauna i vöruverði, gjald- eyrisskil á umboðslaununum og hversu öruggt eftirlit sé nú með gjaldeyrisnotkun til vörukaupa. Nefndin rannsaki aöra þætti þeirra mála sem hér um ræðir, eftir þvi sem henni þykir ástæöa til. Hún skal i störfum sinum hafa fullan rétt til allra upplýsinga frá þingsjá opinberum aðilum, einstakling- um og fyrirtækjum eftir sem nauðsynlegt reynist. Nefndin skili skýrslu til Alþing- is um rannsóknir sinar, eigi siðar en 2 mánuðum eftir að ályktun þessi er gerð. Kostnaður við störf nefndar- innar greiðist úr rikissjóði. Þrennt vekur einkum athygli. Eðvarð Sigurðsson mælti fyrir tillögunni i gær og sagði að tilefni hennar væru mjög athyglisverðar upplýsingar verðlagsstjóra i sjónvarpi nýlega um mismunandi verðmyndun á breskum vörum hér og i London. Nefndi Eðvarð sem dæmi vöru sem breskur heldsali keupir á 38 kr. en islenskur heildsali af sama aðila á 45 kr. Ctsöluverð i London er 49 kr. eða litlu hærra en inn- kaupsverð islenska heildsalans en útsöluverð i Reykjavik er 207 kr. Þrennt vekti einkum athygli i þessu sambandi: 1. Mismunur á innkaupsverði frá framleiðanda 2. Álagning i heildsölu og smásölu hér og hins vegar i London. 3. Þáttur rikissjóðs i þessari verðmyndun. Ríkjð stuðlar að mögnun verðbólgu. A umrædda vöru sem dæmið er tekið af væri heildsöluálagning 14. kr. hér, en 3. kr. i London. Smásöluálagning hér væri 48 kr. en 8 kr. i London. Rikissjóður tæki til sin 88 kr. af útsöluverðinu en breska rikið ekkert þegar varan er seld úr búð i London. Eövarð tók skýrt fram að hér væri um neysluvarning að ræða en ekki lúxusvöru. Hann sagði að ýmsar skýringar væru á þessum mikla verðmun og lægi þáttur rikisins td. i augum uppi. Á sama tima og rikisstjórnin teldi sig vera i harðri baráttu gegn verð- bólgu ætti þessi aðferð að leggja á gjöld prósentvis mikinn þátt i mögnun verðbólgunnar. Athyglisvert væri að þetta gerðist á sama tima og verötrygging á kaupi er afnumin. Þetta á sinn þátt i að ísland er orðið eitt mesta láglaunaland i Evrópu. Prósentuálagning ýtir ekki undir hagkvæm innkaup. Þá benti Eðvarð á aðrar Sjaldgæf hreinskilni íhaldsmanns: Foreldrarnir borgi sjálfir allan dagheimiliskostnað Það er sjaldgæft að ihaldsmenn játi forneskju- sjónarmiö sin eindregið núorðið. Sem betur fer kemur það fyrir þannig að fólki gefist kostur á að sjá hið rétta andlit ihaldsins. Nýjasta dæmið er úr Kópavogi. Tillaga Helgu A fundi i bæjarstjórn Kópa- vogs 16. nóvember sl. flutti Helga Sigurjónsdóttir bæjar- fulltrúi Alþýðubandalagsins eftirfarandi tillögu: „Bæjarstjórn Kópavogs gerir eftirfarandi ályktun: Eins og alþjóð er kunnugt er skortur á dagvistunarheimilum oröinn geigvænlegur um land allt, og eykst vandi foreldra og barna af þeim sökum ár frá ári. I frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 1977, er aðeins gert ráð fyrir 85 milj. kr. til þessa mála- flokks. Sú upphæð er alltof lág svo sem ljóst er þvi að um 230 milj. kr. þarf til að ljúka þeim dagvistunarheimilum, sem þegar eru inni á fjárlögum, en þau eru alls 20. Það á að vera réttur hvers barns i nútimaþjóðfélagi að dveljast á góðu dagvistar- heimili um lengri eða skemmri tima og auk þess er það for- senda fyrir jafnrétti kvenna og karla, að börnum sé séö fyrir hollum uppeldisskilyrðum meðan foreldrar eru við vinnu. Auk þess er vert að benda á þá staðreynd að eins og launa- kjörum alþýðu er nú komið er útilokað fyrir fjölskyldu að lifa af launum eins manns, enda eru yfir 60% giftra kvenna komnar út á vinnumarkaðinn. Bæjarstjóm Kópavogs skorar þvi á alþingi að hækka verulega framlagið til byggingar dag- vistunarheimila við afgreiðslu fjarlaga fyrir næsta ár. Jafn- framt harmar bæjarstjórn þá ráðstöfun, sem gerð var i fyrra að fella niður rekstrarstyrk rikisins til dagvistunarheimila. Það var stórt skref þessara heimila, ekki sist i litlum bæjar- félögum.” Bæjarstjórn samþykkti að visa tillögu Helgu til bæjarráðs með 6 atkvæðum gegn 4. Bókun Richards Tillagan kom svo til af- greiðslu i bæjarráði 30.11. sl. Var tillaga Helgu Sigurjóns- dóttur samþykkt með litils- háttar orðalagsbreytingum. Richard Björgvinsson bæjar- fulltrúi Sjálfstæðisflokksins lét þá gera þessa makalausu bók- un: ,,Ég er sammála meginefni tillögunnar um ofangreinda áskorun. Hinsvegar er ég ekki sammála ýmsum markmiðum og pólitiskum yfirlýsingum er fram komai tillögunni. Ég fellst ekki á það markmið að sérhvert barn eigi að hafa rétt til dvalar á dagvistunarheimili. Með þessu móti væri stefnt að nýju skóla- eða uppeldiskerfi frá fæðingu. Ég tel heimilin vera grundvöll islensks þjóðskipu- lags og það sé ótviræð skylda allra foreldra aðannast og móta uppeldi barna sinna, en ekki að velta þvi hutverki strax yfir á samfélagið, og að börnin komist nógu snemma i snertingu við kerfisuppeldi er þau koma i grunnskóla 6 ára að aldri. Dagvistunarheimili eiga rétt á sér á vissu takmörkuðu leyti sem neyðarúrræði vegna undantekningaraðstæðna i þjóðfélaginu. Vegna siðustu setninga til- lögunnar um að felldar hafi verið niður rekstrarstyrkur rikisins til dagvistunarheimila vil ég benda á að rikið lét sveitarfélögum i té tekjustofn til að standa undir þessum kostn- aði,auk þess sem mitt áliter að rekstur þessara stofnana ætti að öllu jöfnu að greiðast af þiggj- enduni þeirrar þjónustu, er þau láta i té.” Islandsferö J.R. Browne 1862 er ein skemmtilegasta ferðabók sem rituð hefur verið um ís- land. Það er óhætt að segia að höf undur fer á kostum í f rásögn af kynnum sínum af lanai og þjóð. Fimmtíu teikningar prýða verkið og eru þær afburðasnjallar ekki hvað síst mannlífs- myndirnar. Þær eru í senn frábærar þjóðlífslýsingar og gam- ansamar í besta lagi og má raunar kal a þær einstæðar á sínum tíma. Falla þær vel að f jörlegri og litríkri frásögninni svo að úr verður hin listilegasta heild. Þýðandi bókarinnar, Helgi AAagnússon, hefur ritað merkilegan formála um höfundinn og vandaðar og ítarlegar skýrngar þar sem gerð er grein fyrir mönnum og málefnum sem koma við sögu. Eykur það mjög gildi hennar og kemur þar margt f ram er hef ur verið lítt þekkt áður. Bókaútgáfan Hildur I Garðar Eövarð Ólafur Ellert hugsanlegar skýringar á verð- mun og sagði að prósentuálagn- ing á vöru ýtti ekki undir hag- kvæm innkaup erlendis. Þvi meira sem varan kostar þvi meira fær kaupmaðurinn i sinn hlut og reyndar rikið lika. Þetta væri mjög alvarlegt mál og þyrfti að rannsaka betur. Kaupmenn teldu að frjáls álagning væri svarið við þessu en einmitt i umræddum sjónvarps- þætti kom fram að á þeirri vöru sem frjáls álagning er þe. leik- föngum er hún 130% i stað 30% að meðaltali á öðrum vörum. Jólin gróðahátíð kaup- manna. Eðvarð sagði að jólin sem nú færu i hönd væru nefnd fæðingar- hátið frelsarans eða hátið barn- anna. En eru þau ekki fyrst og fremst orðin gróðahátið kaup- manna?, spurði hann i tengslum við álagningu á leikföng. Þá sagði Eðvarð að lengi hefði legið i landi magnaður orðrómur um að ekki væri allt með felldu með umboðslaun og gjaldeyris- skil. Lagði hann áherslu á að ekki sist yrði sá þáttur tekinn fyrir. Þetta mál varðaði allan almenn- ing mjög mikið, ekki sist i þvi verðbólguflóði sem nú er. Skýringar heildsala yfir- borðskenndar og ekki næg- ar. Garðar Sigurðsson tók næstur til máls og benti á að verðlags- stjóri hefði jafnan nefnt þá skýr- ingu fyrsta að heildsalar hefðu ekki ástæðu til að halda verði niðri. Allt i 60% munur á inn- kaupsverði islenskra og breskra heildsala væri hrikalegur og væri tilgangur tillögunnar að sannleik- urinn kæmi i ljós. Það gæti ekki verið neinum til skaða sem hefur hreinan skjöld. Garðar taldi að skýringar heildsala á þessum verðmun hefðu bæði verið yfirborðskennd- ar og ekki nægar. Sennilega þurfum við að flytja meira inn en flestar aðrar þjóðir, sagði Garðar. Þess vegna væri það hörmulegt ef klaufalegir og óheiðarlegir viðskiptahættir yllu hærra vöruverði. Lítið fer fyrir verðskyni almennings. Ólafur Jóhannesson viðskipta- ráðherra tók næstur til máls og sagði að það væri vissulega ekki» ofmælt að hér væri um málefni að ræða sem varðaði allan almenn- ing. Þess vegna væri ástæða til að hann fylgsist betur með og hefði meira verðskyn. En þvi miður hefur i reynd farið litið fyrir þvi, sagði ráðherrann. Könnun verðlagsstjóra að- eins fyrsta skrefið. Ólafur kvað nýbreytni verðlags- stjóra mikilvæga og þessi könnun i London væri aðeins fyrsta sporið sem þarf að stiga i þessum efn- um. Varlegt væri að draga of miklar ályktanir af þessari könnun einni út af fyrir sig. Fleira þyrfti að athugá til að traustur grundvöllur næðist. Ráðherra sagði að könnuninni yrði haldið áfram og næsta skref væri að fara til Norðurlanda og gera samanburö á vörum fluttum þangað frá Bretlandi. Viðskiptaráðherra varaði við að alhæfa nokkuð i þessum efnum og sagðist ekki hafa trú á að heildsalar kaupi dýrar inn til að fá hærri álagningu. Þá sagði hann það vera heimilt i lögum að láta Framhald á bls. 18

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.