Þjóðviljinn - 14.12.1976, Síða 9
Þriðjudagur 14. desember 1976 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
SEXTÍU ÁRA BARÁTTA
Úr ávarpi
Björns
Jónssonar
forseta
ASÍ
Hinn 12. mars 1916 komu
saman i Bárubúð i Reykjavik
fulltrúar nokkurra verkalýðsfé-
laga og ákváðu stofnun Alþýðu-
sambands Islands og hinn 19.
nóv, sama ár var fyrsta sam-
bandsþing þess háð á sama
stað. Þetta er þvi afmælisár
heildarsamtaka islenskrar
verkalýðshreyfingar.
Þeir sem saman komu í Báru-
húsinu, höfðu ekki neinn stóran
liðsafla sér að baki, en þeir áttu
sér sterka hugsjón, tendraða af
eldi jafnaðarstefnunnar, sem
um þessar mundir lýsti þjáðum
verkalýð braut baráttunnar. Og
þeir völdu einnig hið rétta
augnablik til aðgerða sinna,
timamót, þegar þjóðfélagið var
að breytast úr svo til hreinu
bændasamfélagi i stéttaþjóð-
félag, þar sem átök vaxandi
verkalýðsstéttar og stórauvalds
i kjölfar togarautgerðar og
Björn Jónsson
vélvæðingar hlutu að marka
þjóðf élagsgerðina.
Stéttaþjóðfélag
1 baráttunni hafa skipst á skin
og skúrir, sigrar og á stundum
undanhald, en áfram hefur
verið brotist og um flest er óiiku
saman að jafna það hlutskipti,
sem vinnandi fólk bjó við fyrir
60 árum og nú. Þann mun sjá
allir heilskyggnir og dylst ekki
að margt og mikiö hefur á
unnist, þótt þvi fari fjarri að
brautin sé brotin til enda. Við
búum enn i stéttaþjóðfélagi, þar
sem þrifst margvislegt misrétti,
auðsöfnun fárra og fátækt og
umkomuleysi margra. Lögmál
stéttabaráttunnar eru þvi i fullu
giidi eftir 60 ára strið og henni
mun ekki linna fyrr en alþýða
manna og samtök hennar, hinn
stóri meirihluti þjóðarinnar,
skilur jafnvel og frumherjarnir
að vandamál verkalýðsstéttar-
innar og verkalýðshreyfingar-
innar verða ekki leyst nema fyr-
ir barátþj þessara afla, sem
geta þéfar þau vilja að hætta að
láta villa sér sýn, orðið það
vald, sem mótar þjóðfélagið og
það lif, sem i þvi er lifað.
„Afmælisgjafir”
Hin fámenna sveit frá 1916 er
orðin að skipulögðum en.lýð-
ræðislega uppbyggðum her,
sem ekkert fær staðist, ef hann
sækir fram jafnt á faglega svið-
inu, sem hinu stjórnmálalega.
Faglega er hreyfingin sterk en
stendur en höllum fæti er að þvi
kemur að verja faglega sigra
sina með stjórnmálálegum að-
gerðum og valdi. Það að ná
þeim áhrifum og valdi, hlýtur
að vera stærsta mál hennar á
komandi árum.
Þetta hefur sjaldan verið ljós-
ara en á allra si'ðustu árum og
einnig nú á afmælisárinu. Þrátt
fyrir miklar kauphækkanir i
krónum og aurum taldar, hafa
lifskjör alis almennings farið
hriðversnandi og ofan á svarta
kjaraskerðinguna hafa stjórn-
völd uppi ráðagerðir um að
bæta skerðingu á helgasta rétti
hreyfingarinnar — verkfalls-
réttinum — og þrengja þannig
að á vigstöðvum frjálsra samn-
inga á vinnumarkaðinum. Það'á
vist að verða afmælisgjöf lands-
feðranna til verkalýðsfélaganna
á merkisári heildarsamtaka
þeirra. „Vituð þér enn eða
hvað?”
Stjórnmálabarátta
En alþýðan á Islandi getur
lika gefið sjálfri sér og samtök-
um sínum afmælisgjafir, sem
verða henni þvi heilladrýgri
sem timar liða. Hún getur
a.m.k. lagt drög að þvi að efla
enn faglega einingu sina og
styrkja hinar stjórnmálalegu
greinar sinar. Fyrsta skrefið til
þeirrar áttarer það að draga Is-
land á sem skemmstum tima
upp úr þvi láglaunafeni, sem
það er nú sokkið i, þrátt fyrir
einar hæstu þjóðartekjur á
mann, sem þekkjast i heimin-
um. Baráttan fyrir þvi getur
ekki aðeins verið reiptog um
krónur, sem áður en varir eru
orðnar að einseyringum i
heimatilbúinni óðaverðbólgu.
Sú barátta verður að samtvinn-
ast striðinu fyrir réttindum
verkalýðsstéttarinnar á öllum
sviðum, og umfram allt eilifri
baráttu verkalýðsstéttarinnar
fyrir réttlátu og betra þjóðfélagi
— þjóðfélagi frelsis, jafnréttis
og bræðralas.
(Mi11 i fyrirsagnir eru
Þjóðviljans)
SKUGGSJÁ
Saga þolgæðis og þrautseigju,
karlmennsku og dirfsku, saga
mannrauna og mikilla hrakninga,
heillandi óður um drýgðar dáðir
íslenzkra sjómanna á opnum
skipum í ofurmannlegri aflraun
við Ægi konung.
Fjölbreytt og þjóðlegt efni, m.a.
þættir um listamennina Finn
Jónsson og Kjarval, dr. Stefán
Einarsson og . Margréti móður
hans, húsfreyju á Höskulds-
stöðum, ábúendatal Dísastaða í
Breiðdal, lýsing Fossárdals, upp-
haf prentlistar og blaðaútgáfu á
Austurlandi.
Bergsveinn
Skú/ason
Gamlir
grannar
SKíIOGSjá
Stórskemmtiiegir og fróðlegir
þjóðlífsþættir frá liðinni tíð, frá-
sagnir af körlum og konum úr
alþýðustétt, raunsönnum aðals-
mönnum og höfðingjum eins og
þeir gerast beztir.
ELlNBORG lárusdóttir
SÁNNAR
DYRASOGUR
Hin mikilvirka, nýlátna skáld-
kona lauk rithöfundarferli sínum
með þessari fallegu bók, frá-
sögnum af þeim dýrum sem hún
umgekkst og unni í bernsku
heima í Skagafirði og eins hinum,
sem hún síðar átti samskipti við
árin sem hún bjó á Mosfelli.
Gunnar
Benediktsson
m m
Kl flw £ £
FiEMAE
DÉMfö
HU Imlit
Snjallar ritgerðir í sambandi við
frásagnir fornra rita íslenzkra.sem
varpa nýju Ijósi á lif stórbrotinna
sögupersóna. Gagnmerk bók,
sem á sess við hlið íslendinga-
sagna á hverju bókaheimili.
Stórkostleg bók um undraaflið
ESP. - Einnig þú býrð yfir ótrú-
legri hugarorku, yfirskilvitlegum
hæfileikum, sem gjörbreytt geta
lífi þínu og lífsviðhorfum. Allir,
sem leita aukinssjálfsþroska,ættu
að lesa þessa bók og fara að ráð-
um hennar.