Þjóðviljinn - 16.02.1977, Side 10
10 — SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 16. febrúar 1977
m
Stöður
í Kenya
Danska utanrikisráðuneytið hefur óskað
eftir þvi að auglýstar yrðu á Norðurlönd-
um öllum eftirfarandi 9 stöður við
norræna samvinnuverkefnið i Kenya:
Tvær stöður ráðunauta um stofnun og
rekstur kaupfélaga.
Tvær stöður ráðunauta um stofnun og
rekstur byggingarsamvinnufélaga.
Tvær stöður ráðunauta um stofnun og
rekstur iðnfyrirtækja með samvinnusniði.
Ein staða ráðunautar um samvinnurekst-
ur á sviði fiskveiða.
Tvær stöður ráðunauta um stofnun og
rekstur sparisjóða með samvinnusniði.
Góð enskukunnátta er öllum umsækjend-
um nauðsynleg. Umsóknarfrestur er til 5.
mars n.k. Nánari upplýsingar um störfin,
launakjör o.fl verða veittar á skrifstofu
Aðstoðar Islands við þróunarlöndin,
Lindargötu 46 (herbergi nr. 8), en hún er
opin mánudaga kl. 3—4 e.h. og miðviku-
daga 4—5 e.h.
Blikkiðjan Garðahreppi
önnumst þakrennusmíöi og
uppsetningu —ennfremur
hverskonar blikksmíöi.
Gerum föst verötilboö.
SÍMI 53468
Gólfteppahreinsunin
Hjallabrekku 2
Tek í hreinsun og þurrkun allskonar teppi og
mottur. Fer í heimahús ef óskað er. Símar
41432 og 31044.
| TILBUNAR A 3 III.!
!FASSAM¥MBim
— OFKB I 3BÍA3D]EGIMU —
Lj ósmyndastofa AMATÖR
LAUGAVEGI 55 ® 2 27 18
Húsbyggjendur
EINANGRUNARPLAST
Getum afgreitt einangrunarplast á Stór-
Reykjavikursvæöið með stuttum fyrir-
vara. Afhending á byggingarstað.
Borgarplast hf.
Borgarnesi
Slmi 93-7370
Helgar- og kvöldsimi 93-7355.
vor,
Umsjón: Magnús H. Gíslason.
Frá Eskifiröi
Útflutniiigsverð-
mæti sjávarafl-
ans 1,150 millj.
Helstu framkvæmdir,
sem unnar voru á vegum
Eskif jarðarbæjar árið
1976 voru þessar, að sögn
Hrafnkels Jónssonar:
Byggingar
Unnið var að byggingu barna-
- og gagnfræðaskólahúss, en
bygging þess hófst sumarið
1975. A sl. sumri var steypt upp
fyrsta hæð hússins af þremur.
Kostnaður við þann áfanga, sem
unnið var að i sumar var um 12
millj. kr.
Ahaldahús og slökkvistöð, sem
hafin var bygging á sumarið
1975 var gert fokhelt.
Bygging var hafin á 6 ibúðar-
húsum og fiskvinnsluhúsi fyrir
Þór h/f.
Auk þess voru steyptar upp
þrjár hæðir af fjórum i átta
ibúða blokk, sem byggð er af
Byggingarsjóði verkamanna.
Gatnagerð
Nýlagning vega var veruleg á
sl. sumri, vegna óvenjumikillar
eftirspurnar eftir lóðum, en alls
mun hafa verið úthlutaö 18
lóðum undir ibúðarhús og iðn-
aðarhúsnæði. — Þá var og unnið
að holræsaframkvæmdum fyrir
um 8 millj. kr.
Fjárhagsáætlun
fyrir árið 1977
Fjárhagsáætlun Eskifjarðar
fyrir áriö 1977 var lögð fram um
miöjan des. Áætlunin hefur enn
ekki verið endanlega afgreidd,
þar sem komið hefur upp
ágreiningur á milli meirihluta-
flokka bæjarstjórnar um af-
greiöslu áætlunarinnar en meiri
hlutann skipa fulltrúar Fram-
sóknarfl., Sjálfstæðisfl. og
Alþýðufl.
Niðurstööutölur fjárhags-
áætlunar hafa hækkað um ca
30% frá fyrra ári, en þrátt fyrir
það verða verklegar fram-
kvæmdir skornar verulega
niður. Er svo að sjá að núver-
andi rikisstjórn stefni beinlínis
að þvi að gera sveitarfélög
algjörlega ófær um að halda
uppi þeirri þjónustu við ibúa
sina sem þeir eiga sjálfsagða
kröfu á. Framkvæmdir eins og
lagning varanlegs slitlags á
götur verða sjáanlega ófram-
kvæmanlegar án verulegs
stuðnings frá ríkinu.
Fyrirhugaðar
f ra mkvæmdir
Framkvæmdir sem áætlaðar
eru á vegum Eskifjarðar fyrir
árið 1977 eru þær helstar, að
haldið verður áfram byggingu
skólans og eru lagöar til hans 10
milj. kr. Hugmyndin er að
steypa upp svipaðan áfanga og
á siðasta ári. Verður þá eftir að
steypa upp þriðju hæðina og viö-
byggingu, sem m.a. er ætluö
fyrir bókasafn.
Þá var áætlað að vinna að
hafnarframkvæmdum fyrir um
40 millj. Voru þær áætlanir
byggðar á tillögum frá sam-
starfsnefnd um hafnarmál og
með samþykki vita- og hafnar-
málastjórnar. Þessar áætlanir
voru stöövaðar af fjárveitinga-
nefnd Alþingis, en ekki fékkst
ein einasta króna i þessa fram-
kvæmd. Er ekki laust við að við
teljum að okkar skerfur i
þjóðarframleiðslunni sé litils
metinn. Eins skýtur þetta
skökku viö þá staðreynd, sem
við blasir, að stjórnvöld eru með
hafnarframkvæmdir upp á
nokkra milljarða á uppboði, en
að visu með því að taka við stór-
iðjunni, sem fylgir.
Hraðfrystihúsið
Burðarás atvinnullfs á Eski-
firði er Hraðfrystihús Eski-
fjarðar. Hjá þvl fyrirtæki einu
störfuðu á s.l. ári frá 130-180
manns. Launagreiðslur fyrir-
tækisins námu á sama tima 250
millj. kr.
Hraðfrystihúsið gerir út tvo
togara, annan þó að hálfu á móti
Kaupfélagi Héraösbúa. Afli
Hólmaness var s.l. ár 2.708 tonn
og aflaverömætið ca. 157 millj.
kr. bess ber að geta með
Hólmatind að hann var frá
veiðum s.l. haust vegna klöss-
unar.
Alls voru framleiddir hjá
Hraðfrystihúsi Eskifjaröar
63.500 kassar af freöfiski, 585
Slæmt stjórn-
arfar og
slæmt veður
fer aldrei
saman
er haft eftir
Ólafi Thors
1 einkabréfi til Landpóstsins frá
Jenna R. Ölasyni i Borgarnesi
segir m.a.:
„Annars er veðurlagið búiö að
vera einstaklega gott i vetur og á
dögunum, þegar ég hitti góðah
kunningja minn, sjálfstæðis-
mann, og það bar á góma ásamt
stjórnmálunum, setti hann fram
einstaklega ihugunarverða at-
hugasemd.
Hann sagðist nú ekki um sinn
hafa tekið verulegan þátt i stefnu-
mótun sins flokks, en þegar þessi
mál bæri á góma, ásamt veður-
farinu, rifjaðist það upp fyrir sér,
að Ölafur Thors mundi einhvern-
tima hafa sagt, að guð legði aldrei
á þjóðina samtlmis slæmt stjórn-
arfar og slæmt veðurfar”.
tonn af saltfiski, 80 tonn af
skreið, 2.500 tonn af mjöli og 900
tonn af lýsi. Aætlað útflutnings-
verðmæti framleiðslunnar er
um 950 millj. kr.
Saltfiskur var verkaður hjá
nokkrum öðrum aðilum á Eski-
firði, alls um 415 tonn, að verð-
mæti um 100 millj. kr.
Þá var saltað I 7000 tunnur af
sild á tveimur söltunarstöðvum
og má áætla’ útflutnings-
verðmæti hennar á um 100 millj.
kr. Alls má þvi gera ráð fyrir að
útflutningsverðmæti þess
sjávarafla, sem unninn var á
Eskifirði s.l. ár sé um 1.150
millj. kr.
hj/mgh
Eskifjörður.