Þjóðviljinn - 16.02.1977, Síða 16
PWDVium
Miðvikudagur 16. febrúar 1977
Aðalsfmi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-21 mánudaga til föstu-
daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum.
Utan þessa tima er hægt að ná I blaðamenn og aðra starfs-
menn blaðsins I þessum simum; Ritstjórn 81382, 81527,
81257 og 81285, útbreiðsla 81482 og Blaðaprent 81348.
@81333
Einnig skal bent á heima-
slma starfsmanna undir
nafni Þjóðviljans I slma-
skrá.
Loftskeytamenn á Höfn argir út í Póst og síma
Gefast upp á að sinna
endurvarpsþjónustu
— Þaö er algjörlega óþolandi
að mega ekki svo mikiö sem
lækka niður I útvarpinu rétt á
meðan við erum I e.t.v. mjög
ógreinilegu sambandi við bát
einhvers staðar úti á sjó og á
meðan óbreytt vinnuaöstaða er
hér á Höfn er ekki nokkur leið
fyrir okkur loftskeytamennina
að halda áfram störfum, sagði
Björn Júliusson loftskeyta-
maður á Höfn i Hornafirði, en I
gær stóð til að loka jafnvel al-
gjörlega fyrir endurvarpsstöð
hljóðvarps á Austurlandi vegna
óánægju loftskeytamanna. Þeir
hafa nú í þrjú ár séö um endur-
varpsstöðina og þurfa að hlusta
stanslaust á útsendingar vegna
þess, að viðvörunarbúnaöur,
sem átti að koma strax I upphafi
þessa aukaálags á loftskeyta-
mennina, hefur ekki sést ennþá.
Björn sagði að á slnum tima
hefði það verið algjör forsenda
þess aukaálags að viðvörunar-
kerfi, sem gæfu til kynna með
ljds- eða hljóðmerkjum þegar
eitthvað fer úrskeiöis I útsend-
ingu, yrði sett upp. ítrekuðum
óskum þar að lútandi hefði hins
vegar ekki verið sinnt og þaö
væri fyrst nú, eftir þriggja ára
bið að loftskeytamennirnir á
Höfn hefðu gefist upp og hótað
að hætta að skipta sér af út-
varpsmálefnum.
Björn benti á það til dæmis
um ófriðinn af látlausri hlust-
unarskyldu að I loftskeyta-
stöðinni á Neskaupstaö væri t.d.
stranglega bannað að svo mikið
sem kveikja á útvarpi, en þeim
á Höfn væri hins vegar strang-
lega bannað aö slökkva á þvl!!!
Þannig er nú samræmið á milli
rekstrarreglna þessara
tveggja stöðva.
— Jú, viö hótuðum aö kveikja
ekki á útvarpssendinum frá og
með deginum I dag, sagði Björn
I samtali við Þjv. igær.— Þess-
ir herrar fyrir sunnan sáu hins
vegar ekki ástæðu til þess að
hafa samband við okkur fyrr en
I gærkvöldi og vitnuðu þá eins
og venjulega af mikilli f imi I lög
og reglugerðir. Fullyrtu þeir aö
lokunin yröi meö öllu ólögleg og
við ákváðum þvl að blða og
kanna rétt okkar til fulls, t.d.
meö þvi að hafa samband við
okkar stéttarfélag, en skrifstof-
Endurvarpsstööin á Höfn I Hornafiröi sést til vinstri á myndinni.
ur þess voru lokaðar er loksins
var haft samband við okkur.
Björn gat þess jafnframt að
ekki hefði verið um að ræöa
neinar aukagreiðslur til starfs-
fólks loftskeytastöðvarinnar
fyrir þessa vinnu I kringum
endurvarpsstöðina og er fyrir-
hugað að leita einnig réttar sfns
á þeim vettvangi.
— Annars er manni skapi
næst að loka bara öllu þessu
draslihérna, sagði Björn aö lok-
um. — Við hér á Höfn borgum
t.d. fullt afnotagjald af sjón-
varpi, en sjáum ekki útsend-
ingar þess nema með mestu
höppum og glöppum, og
viögeröarþjónusta fyrir hljóö-
varp, sjónvarp, sima og allt
þetta dót er fyrir neðan allar
hellur.... Enþetta ernú útúrdúr,
sagði Björn að lokum og var
hinn viðræðuþýöasti þrátt fyrir
allt karpið og „pirringinn”
þarna fyrir austan.
—gsp.
KRON hyggst gera fokhelt fyrir haustiö
Syrjað að grafa fyrir stórhýsi
en ennþá er beðið eftir svari um lóð fyrir innan Elliðaárnar í Reykjavík
Kaupfélag Reykjavlkur og
nágrennis, KRON, hefur nú hafið
byggingaframkvæmdir I Kópa-
vogi og hefur að mestu leyti veriö
grafinn grunnur fyrir stórhýsi
fyrirtækisins við Skemmuveg
númer 4a. Aö sögn Ingólfs Olafs-
sœiar kaupfélagsstjóra er þarna
um að ræöa sex þúsund fermetra
lóð og húsiö verður tvö þúsund
fermetrar að grunnflatarstærð,
reist á tveimur hæðum.
Sannarlega engin smábygging
a-tarna, en engu að slöur sagði
Ingólfur lóðina helsttil litla og hið
sama væri raunar að segja um
bygginguna sjálfa. Aöspuröur
sagði hann að lóðarumsókn
KRON i landi Reykjavíkur fyrir
innan Elliðaár væri enn I fullu
gildi, en þar sem skjót svör hefðu
borist frá Kópavogsbæ hefði engu
aö slður þótt rétt aö ráðast I
framkvæmdir þar tafarlaust.
Ingólfur sagði að vegna þess
hve húsið stæði I miklum halla og
aögöturlægjubeggja vegna þess,
væri jafnslétt inn á báöar hæðirn-
ar. A neðri hæð veröur efnagerðin
Rekord með sina starfsemi auk
þess sem bilastæöi eru undir
hluta efri hæöarinnar. ótalið er
þó talsvert rúm niðri, sem enn
hefur ekki veriö ráðstafað.
Á efri hæðinni veröur hins
vegar verslunin sjálf. Þar hefur
KRON tvö þúsund fermetra gólf-
rými til umráöa og verður vænt-
anlega hægt að lækka vöruverð
enn frekar með aukinni rekstrar-
hagkvæmni i kjölfar þessarar
nýju byggingar.
—gsp.
Ingólfur ólafsson.
Islendingar fengu tvo geisla
Sandgerð-
ingar fengu
loðnuí gær
Afram heldur velgengnin i
loðnuveiðunum og I gær
klukkan 18.00 höfðu 14 skip
tilkynnt afla upp á samtals
4.090 tonn. Landað var víða á
Austf jörðum, en einnig stlmt
I vesturátt, m.a. til
Vestmannaeyja, Þorláks-
hafnar, Grindavikur og
Sandgerðis, en þar fengu
sandgeröingar slna fyrstu
loðnu á þessari vertlð.
Aflinn er þá kominn I um
230.000 tonn. —gsp.
Nokkrar umræður hafa oröið i
fjölmiðlum að undanförgu um
samnorrænan sjónvarps- -og
hljtíövarpsgervihnött. Nú hefur
blaöinu borist frétt um þetta mál
frá menntamálaráðuneytinu.
Reyndarkemur fáttnýttfram I
sjálfu gervihnattarmálinu, enda
verður lokaskýrsla um það ekki
lögð fram fyrr en I júnlmánuöi
n.k. Hins vegar er sagt frá úrslit-
um ráðstefnu þeirrar I Genf sem
haföi það hlutverk aö úthluta
bylgjusviöum og rásum fyrir
fjarskipti I heiminum.
1 frétt ráðuneytisins segir að
ekki sé hagkvæmt aö nota sama
sjónvarpsgeisla úr áöurnefndum
gervihnetti til Islands og hinna
Norðurlandanna. Þá eru tveir
möguleikar fyrir hendi: annars
vegar að senda annan geisla úr
sama hnetti og hins vegar að
skjóta upp öörum hnetti sem yröi
vestar á himinhvolfinu og næöi til
Islands, Grænlands og Færeyja.
Með tilliti til þessara kosta
sóttu islendingar um tvær stað-
setningar og fengu þær. lslend-
ingum var úthlutað 3 rásum frá
gervihnetti sem staösettur yrði
yfir miöbaug og 5. gráðu aust-
lægrar lengdar og 5 rásum frá
hnetti sem yrði einnig yfir
miöbaug en yfir 31. gráðu vest-
lægrar lengdar. Um slöamefnda
staðinn gildir það að danir myndu
fá afnot af tveimur rásum.
Akvarðanir ráðstefnunnar, sem
lauk á sunnudag, taka gildi 1.
janúar 1979 og munu gilda f amk.
15 ár.
Fulltrúar Islands á ráðstefn-
unni I Genf voru Gústav Arnar
deildarverkfræðingur hjá Pósti
og Sfma og Hörður Frimannsson
yfirverkfræðingur hjá Rlkisút-
varpinu. —ÞH
SVONA ER KJARASKERÐINGIN
Viö birtuin i dag 17. dæmið um kjaraskeröinguna slöustu þrjú ár.
Dæmin sýna hversu miklu lengur en áöur verkamaður er nú aö
vinna fyrir sama magni af vörum. — Viö tökum eina vörutegund á
dag.
Upplýsingar um vöruverö höfum viö frá Hagstofu tslands en upp-
iýsingar um kaupiö frá Verkamannafélaginu Dagsbrún, og er miö-
aö víö byrjunarlaun samkvæmt 6. taxta (ekki 7. taxta, eins og sagt
var vegna prentvillu I Þjóövíljanum f gær).
17. dœmi:
10 litrar bensin
Verö: Kaup:
Febrúar 1974 .............kr. 26,- kr, 166,30
Maí 1974 kr. 31,- kr. 205,40
I dag, febrúar 1977.......kr. 80,- kr. 414,80
NIÐURSTAÐA:
1. 1 febrúar 1974 (fyrir kjarasamningana þá) var verkamaöur 94
minútur aö vinna fyrir 10 litrum af bensini.
2. t mai 1974 var verkamaöur 91 minútu aö vinna fyrir 10 litrum af
bensfni.
3 1 dag, 16. febrúar 1977, er verkamaöur 116 minútur aö vinna fyrir
sama magni af bensini.
Vinnutlminn hefur lengst um 22 mfnúvur, þaö er 23 - 24%, sé miöað
viö febrúar 1974, en um 25 minútur, eöa 27 - 28%, sé miöað viö mai
1974.
10 litrar bensin