Þjóðviljinn - 19.02.1977, Page 1
UOWIUINN
Laugardagur 19. febrúar 1977 —42. árg. —41. tbl.
KJARAMÁLARÁÐSTEFNA ASÍ
Mikil fundahöld
til undirbúnings
Þjóðviljinn hafði sam-
band við Björn Jónsson
forseta Alþýðusambands
Islands og jnnti hann frétta
af undirbúningi að kjara-
málaráðstefnu ASI sem
hefst á fimmtudag. Björn
sagði að sl. fimmtudag
hefði verið fundur í Al-
þýðusambandsstjórn þar
sem rætt hefði verið um
undirbúning að kjaramála-
ráðstefnunni og lögð drög
að lokatillögum sem leggja
á fyrir hana.
Björn Jónsson
Ekki vildi þó Björn segja
hvað kæmi fram í þeim
fyrr en kjaramálaráð-
stefnan væri búin aðfá þau
í hendur. Þá sagði hann að
td./\Aálm-og
skipasmíðasambandið og
Verkamannasambandið
væri með sérstakar ráð-
stefnur til undirbúnings
kjaramálaráðstefnunni og
ennfremur væru mikil
fundahöld í einstökum
verkalýðsfélögum.
—GFr
• Heildarloðnuaflinn
260 þúsund lestir:
Mjög mikið aflaðist
útaf Ingólfshöfða í gœr
Flugvirkjafélagið 30 ára
Fyrir skömmu átti Flug-
virkjafélag tslands þrítugsaf-
mæli. Af þvi tilefni átti Þjóö-
viijinn viðtal við formann
féiagsins, Valdimar Sæ-
mundíson, sem sést hér á
myndinni við hreyfil einnar af
flugvélum Fiugféiags tslands.
Viðtaliðer að finna I þættinum
Vinna og verkafólk I opnu I
blaðinu i dag.
(Mynd gsp)
Verðmætið um
4 miljarðar króna
Sfðdegis i gær höfðu 37 skip til-
Viðtal við
Hort
á baksíðu
kynnt um loðnuafla, samtals
11.500 lestir og var heildarloðnu-
aflinn á vertiðinni þá oröinn 260
þúsund lestir, sem er sama magn
og á sama tima 1974 sem var
metár á loðnunni.
Verðmæti þessara 260 þúsund
tonna er um 4 miljarðar króna.
Hér er þó um nokkuð grófan út-
reikning aðræða, en mun þó held-
ur vera van en of. Úr þessum 260
þúsund tonnum ætti aö fást um
39.000 tonn af mjöli að verðmæti
um 3 miljarðar og um 15.000 tonn
af lýsi að verðmæti um einn
miljaröur.
Þau 37 skip sem fengu afla i
gær, voru öll á svæðinu útaf
Ingólfshöfða, þar sem loðnan
fannst i fyrrinótt. Þau munu
landa þessum afla i Vestmanna-
eyjum, þar sem taliö var að allt
myndi fyllast i gærkveldi, Þor-
lákshöfn, og Grindavik, þar sem
nóg þróarrými er laust.
Toppbaráttan er afar höfð milli
3ja skipa. í gær var Guðmundur
RE aflahæstur með 10.140 lestir
og varð hann fyrstur skipa til að
fá 10 þúsund lestir. En Börkur og
Sigurður RE fylgja fast á eftir og
var búist við ef vel veiddist i nótt
er leið að Börkur tæki forystuna.
—S.dór
Vfnna og verkafólk — Sjá opnu
Hovhannes I. Pilikian.
„Heimurinn er
allur kynvilltur
og valdasjúkur
— segir Hovhannes
I. Pilikian-
í vidtali við EKH
í blaðinu í dag
SJÁ SÍÐUR 13, 14 og 15
Búnaðarþing hefet á þriðjudag
Ákveðið hefur verið að
Búnaðarþing 1977 komi
saman til fundar í Bænda-
höllinni þriðjudaginn 22.
febrúar n.k., kl. 10 árdegis.
Rétt til setu á þinginu eiga 25
fulltrúar. Landbúnaðarráðherra
mun, sem áður, flytja ávarp a
fyrsta fundi þingsins.
Búnaðarþing er opin samkoma
og er öllum heimilt að fylgjast
með störfum þess.
1 fyrravetur stóð Búnaðarþing-
ið i 16 daga og má ætla að störf
þesstaki álika langan tima nú,þvi
að svipaður málafjöldi liggur fyr-
ir i þingbyrjun og áður.
—mhg
Leynilistinn birtur
Utanrikisráðherra hefur nú lát-
ið undan þrýstingi og sent til birt-
ingar leynilistann með nöfnum
umsækjenda um starf
framkvæmdastjóra hjá sölu setu-
liöseigna. Þjóðviljinn birtir list-
ann i heild hér á eftir, en tekið
skalfram að blaðinu tókstekki að
fá myndir af öllum umsækjend-
um.
Fréttatilkynning utanrikisráð-
herra fer á eftir.
Yfirlýsing.
„Enda.þótt ég telji að skilning-
ur minn á skyldu til birtingar á
nöfnum þeirra manna, sem sóttu
um starf forstöðumanns Sölu
varnarliðseigna sé réttur sé ég
enga ástæðu til annars en að birta
nöfn þeirra er sóttu og ekki höfðu
dregið umsókn sina til baka áður
en sett var i stöðuna.
Að þvi er ég best veit mimu
vera nokkur dæmi um það að nöfn
umsækjenda hafi ekki verið birt
fyrr en um leið og embættum hef-
ur verið ráðstafað.
Auk Alfreðs Þorsteinssonar
sóttu eftirtaldir menn:
Aðalsteinn P. Maack, forstöðu-
maður byggingaeftirlits rikisins.
Agnar R. Hallvarðsson, vélstjóri.
Alvar óskarsson, skrifstofustjóri.
Björn Stefánsson, fulltrdi S.t.S.
Friðrik Stefánsson, fulltrúi
rannsóknardeildar rikisskatt-
stjóra.
Franklin Friðleifsson, aðalfulltrúi
bifreiðaeftirlits rikisins.
Guðmundur Karlsson, blaða-
maður.
Guðmundur Marteinsson,
sjómaður,
Gunnlaugur M. Sigmundsson,
fulltrúi i fjármálaráðuneytinu.
Hrafn Einarsson, verslunar-
maður.
Ingi B. Arsælsson, fulltrúi i rikis-
endurskoðun.
Ingibergur Þorkelsson, sjálf-
stæður atvinnurekstur.
James A. Wilde, framkvæmda-
stjóri.
Július M. Magnús, sjálfstæöur at-
vinnurekstur.
Kári Guðmundsson, heilbrigðis-
ráðunautur.
Kristinn Gunnarsson, deildar-
stjóri i samgönguráðuneytinu.
Ólafur Karvelsson, deildarstjóri i
innflutningsverslun.
Páll Andreason, kaupfélagsstjóri
m.m.
Páll Vidalin Valdem arsson,
deildarstjóri Sindra Stál.
Ragnar Pétursson, sölustjóri
S.l.S.
Sigurður Jónsson, iðnrekandi.
Sigurður örn Ingólfsson, tækni-
maður.
Sigurjón Guöbjörnsson, fulltrúi i
Frihöfninni Keflavikurflugvelli.
Sigurjón Magnússon, sjálfstæður
atvinnurekstur.
Sigvaldi Friðgeirsson, skrifstofu-
stjóri tollstjóra.
Skúii Ólafs, sjálfstæður atvinnu-
rekstur.
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson,
stórkaupmaður.
Þröstur Sigtryggsson, skipherra.
Reykjavik, 18. febr. 1977.
Einar Agústsson."
Þá liggur það fyrir að utan-
rikisráðherra taldi Alfreð
Framhald á bls. 18