Þjóðviljinn - 19.02.1977, Side 5
Laugardagur 19. febrúar 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA — 5
Starfsmannafélagið Sókn
Hvikum hvergi frá
stefnu ASI-þings
Starfsstúlknafélagiö Sökn
breytti nýlega um nafn og heitir
nú Starfsmannafélagið Sókn.
Þetta félag hélt félagsfund á miö-
vikudagskvöldiö var i Hreyfils-
húsinu. Húsfyllir var og fundar-
menn um 300 talsins.
A fundinum var einkum rætt
um kjaramálin i ljósi boðaðrar
kjaramálaráöstefnu ASI sem
haldin verður i næstu viku,en þar
verður mörkuð stefna verkalýðs-
hreyfingarinnar i kjaradeilum
þeim sem fyrirsjáanlegt er að
hefjist á næstunni.
Fundurinn samþykkti þrjár
ályktanir. Tvær þeirra fjölluðu
um kjaramálaráðstefnuna og
birtast þær hér á eftir. Sú þriðja
fjallar um skattamálin og mun
Þjóðviljinn birta hana eftir helg-
ina.
„Fundur i Starfsmannafélag-
inu Sókn haldinn i Hreyfilshúsinu
16. feb. 1977 skorar á væntanlega
kjararáðstefnu A.S.l. að hvika
hvergi frá kjaramálaályktun 33
þings A.S.l.
Jafnframt skorar fundurinn á
kjaramálaráðstefnuna að gera
það að einni höfuðkröfu sam-
takanna að framfærsluvisitalan
sé reiknuð mánaðarlega þar sem
það hefur sýnt sig á samnings-
timabilinu að verðbólguskriðan
skellur harðast á þegar búiö er að
reikna út rauðu strikin.
Þá skorar fundurinn á A.S.l. að
beita sér fyrir þvi að ófaglært
fólk sem vinnur á sjúkrahúsum
hvar sem er á landinu fái sama
vaktaálag og laun án tillits til
kynsæða stéttarfélags.”
Félagsfundur Starfsmanna-
félagsins Sóknar haldinn i
Hreyfilshúsinu 16. feb. 1977. Skor-
ar á stjórn A.S.l. að sjá til þess.að
kjaramálaráðstefna A.S.I. sem
hefst 24. þ.m. verði opin öllum al-
mennum félögum verkalýðs-
hreyfingarinnar.”
—ÞH
Rækjuveiðar
á Öxnafirði
Rækjuveiðin er nú hafin i
öxarfirðinum á ný, en hún
var stöövuð i tvo mánuði i
vetur, vegna þess hve mikiö
var af þorskaseiðum i firðin-
um.
Kristján Armannsson,
framkvæmdastjóri Sæbliks á
Kópaskeri,sagði okkur i gær
að fjörðurinn hefði verið
rannsakaður á föstudaginn
var og kom þá i ljós aö seiðin
voru þvi ekki lengur til fyrir-
stöðu aö veiðar gætu byrjaö
og hófust þær þá þegar. Hafa
þær gengiö ágætlega og er
rækjan stór og góð.
Þrir bátar frá Kópaskeri
stunda veiðarnar og svo eru
einir sjö bátar frá Húsavik.
Að rækjuvinnslunni á Kópa-
skeri starfa 15-20 manns.
Veiöikvótinn i öxarfirðin-
um var 500 tonn. Af honum er
ekki búið að veiða nema eitt-
hvað á milli 100 og 200 tonn,
sagði Kristján, — og við
komum ekki til meö að ná
leyfilegu aflamagni á þessa
báta, bætti hann við. Veiði-
timinn er útrunninn i mai-
lok.
Kristján Ármannsson
bjóst ekki við að fjölgað yrði
bátum við veiðarnar. A
Kópaskeri hefðu þeir a.m.k.
ekki fleiri báta en þessa þrjá.
—mhg
Nagjadekk
engin
Rannsóknastofnun byggingar-
iðnaðarins hefur komist að þeirri
niðurstöðu aö miðað við hinn
geysilega kostnað sem fylgir
notkun negldra snjóhjólbarða
veiti þeir ekki það öryggi sem
skyldi þegar hálka er á götum
borgar og bæja. Er bent á þá
staðreynd, að endingartimi mal-
biks sé jafnvel helmingi minni nú,
heldur en fyrir tima hinna negldu
hjólbarða.
Viðgerðir á götum Rvikur
nema árlega 200 miljónum króna
vegna slits af völdum hinna
negldu snjóhjólbarða, segir i
stuttri greinargerð frá rann-
sóknastofnuninni. Giskað er á að
útgjöld bileigenda höfuðborgar-
innar nemi 120 miljónum vegna
negldu hjólbaröanna og fyrir
þessar samtals 320 miljónir fæst
tiltölulega litið aukaöryggi, ef
marka má rannsóknir bæði hér
heima og erlendis.
Hér á Islandi hafa yfirvöld i
Reykjavik og viðar reynt að
draga úr notkun nagladekkjanna
og i staðinn ausið salti i miklum
mæli á göturnar... i mikilli óþökk
flestra gangandi vegfarenda, sem
á meðan vaða slabbið upp i ökkla.
Ekki hafa bileigendur heldur ver-
lausn
ið hrifnir, þvi þeir álita saltið
auka ryðm>ndun verulega.
En rannsóknastofnun bygg-
ingaiðnaðarins er á öðru máli.
Segir hún að ryðmyndun geti að
visu tvöfaldast i þurru og hreinu
lofti, en við sjó og þar sem lofts-
lag er rakt og saltmengað sé
aukning ryðmyndunar óveruleg.
Viðurkennt er i greinargerðinni
að óbeint ýti saltnotkun undir slit
á götum, þar sem umferð á negld-
um hjólbörðum sé mikil. Orsökin
er sú, að blautt malbik slitnar
hraðar en þurrt. Þó er tekið fram,
að þær fullyröingar að salt leysi
upp asfalt eigi ekki við rök að
styðjast, en á hinn bóginn veiti
saltið ákaflega mikið öryggi i um-
ferðinni, þar sem þaö eyðir hálku
og snjó svo fljótt.
Benda má á aölokum að viða er
lagt blátt bann við saltaustri á
götur, ekki sist af tillitssemi við
gangandi vegfarendur, sem
missa ófá skópörin annars árlega
I klær saltsins. Akureyringar
skipa þann flokk sem lætur sér
nægja að bera sand á götur, og i
Bergen i Noregi er farið eins að,
enda þótt veðurlag þar sé ákaf-
lega svipað þvi sem almennt ger-
ist i Reykjavik. —gsp
Afmælisviðtöl við
fjörutíu skagamenn
sem allir hafa starfað hjá H.B. sem nú er sjötíu ára
,,Til fiskiveiöa fóru” heitir
nýútkomin bók sem vafalaust
skapar sér vissa sérstöðu hér á
landi. Byggist hún upp á viðtölum
við núverandi og fyrrverandi
starfsmenn Haralds Böðvars-
sonar og Co., á Akranesi, en i
nóvembermánuði siðastliðnum
átti þetta stórfyrirtæki á Skag-
anum sjötlu ára afmæli.
Þaö var einmitt af þvi tilefni að
H.B. og Co., fékk Sigurdór Sigur-
dórsson blaöamann til þess að
skrá viðtöl við starfsfólkið, og
ræddi hann við fjörutiu
starfsmenn um ævi þeirra og
starf. Með honum safnaði
Haraldur Sturlaugsson efni i
bókina, sem auk viötalanna hefur
aö geyma úrdrátt úr minningar-
grein um Sturlaug H. Böövarsson
og f jölmargar myndir úr atvinnu-
lifi akurnesinga siðustu ára-
tugina.
Með bókinni „Til fiskiveiða fóru
— sjötiu ár á sjó og landi” hefur
ekki einasta komist á prent hin
skemmtilega saga fyrirtækisins,
sem hóf starfsemi sina er Harald-
ur Böðvarsson ýtti i fyrsta sinn á
flot sexæringi frá Akranesi, þá
aðeins sautján ára gamall. I
öllum þessum viðtölum við
skagamennina er nefniiega um
leið skráð atvinnusaga bæjarins
og hins harðduglega fólks, sem
þar hefur búiö.
Fyrirtækiö sjálft, Haraldur
Böövarsson og Co„ gefur bókina
út, og formála ritar Haraldur
Sturlaugsson, núverandi fram-
kvæmdastjóri þess, en hann er
sonarsonur Haralds Böövars-
sonar. Jóhann Guðmundsson tók
margar myndanna sem bókina
prýða, en fjölmargar eru þó
fengrtar annars staðar að.
Bókin er 370 blaðsiður að stærð,
prentuð i Prentverki Akraness hf.
Sigurdór Sigurdórsson blaða-
maður skráði öll viðtölin.
Loðnuleitin útaf Vestfjörðum:
Þriðji leiðangur
á sunnudaginn
Sem kunnugt er biða allir meö
óþreyju eftir þvi hvort loðna mun
ganga suður fyrir land vestan að,
en Hjálmar Vilhjálmsson fiski-
fræðingur spáir því,að svo verði.
Farnir hafa verið tveir leiðangrar
vestur fyrir landið að leita að
loönu, og gaf siðari leiðangurinn
góðar vonir.
A morgun, sunnudag, leggur
rannsóknarskipið Bjarni Sæ-
mundsson af stað i 3ja leiöangur-
inn út af Vestfjörðum og verður
Hjálmar leiðangursstjóri. Þá
mun að öllum likindum fást úr þvi
skorið hvort sú kenning sé rétt, aö
loðna gangi aö vestan, suður fyrir
landið. —S.dór
Grundartangalínan!
Sjö tilboð bár-
ust í stauravirki
1 gær voru opnuö tilboð i undirstöður fyrir stauravirki 220 kV
háspennulinu þeirrar, sem Landsvirkjun hyggst reisa milli spenni-
stöðvar Landsvirkjunar við Geitháls og hinnar fyrirhuguöu járnblendi-
verksmiöju I Hvalfirði.
Undirstöðurnar voru boðnar út I þrem verkhlutum og var bjóðendum
gefinn kostur á að bjóöa i einn eða fleiri verkhluta. Sjö tilboð bárust frá
eftirgreindum aðilum sem hér segir:
Verkhluti 1 Verkhluti 2 Verkhluti 3
1. Hitatæki h/f,
Steingr.
Pálsson 121.688.520 130.936.572 127.431.770
2. Aöalbraut h/f 107.613.354 117.725.610 113.480.896
3. Völur h/f
og Stólpi s/f 110.533.210
4. Hlaðbær h/f,
Fjölvirkinn h/f 58.967.709 57.392.725
5. Vörðufell h/f 80.930.000 74.201.000
6. Miðfell h/f,
Véltækni h/f 108.799.200 145.783.100 108.274.000
7. Grétar og
Rúnar h/f 142.043.900 148.973.360 164.819.000
Tilboðin verða nú tekin tii nánari athugunar og endanlegs saman-
burðar.
Gólfteppahreinsunin
Hjallabrekku 2
Tek í hreinsun og þurrkun allskonar teppi og
mottur. Fer í heimahús ef óskað er. Símar
41432 og 31044.
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
Ví FILSSTAÐ ASPÍTALINN:
HJOKRUNARFRÆÐINGAR óskast
til starfa nú þegar á hinar ýmsu
deildir spitalans. Vinna hluta úr
fullu starfi svo og einstakar vaktir
kemur til greina. Upplýsingar veitir
hjúkrunarframkvæmdastjórinn,
simi 42800.
LANDSPÍ TALI:
LÆKNARITARI óskast til starfa á
bæklunarlækningadeild spitalans
frá 1. april n.k. i hálft starf.
Stúdentspróf eða hliðstæð menntun i
tungumálum ásamt góðri kunnáttu i
islenskri réttritun nauðsynleg.
Umsóknir ber að senda fyrir 15.
mars til læknafulltrúa bæklunar-
lækningadeildar, sem veitir nánari
upplýsingar.
Reykjavik 18. febrúar 1977.
skrifstofa
Rf KISSPÍTALANNA
EIRÍKSGÖTU 5.SÍM111765