Þjóðviljinn - 19.02.1977, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 19.02.1977, Blaðsíða 13
Laugardagur 19. febrúar 1977 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA — 13 EINAR KARL HARALDSSON RÆÐIR VIÐ HOVHANNES I. PILIKIAN, LEIKSTJÓRA Hin kynferðis- lega söguskýring min skýrir allt og tekur marx- ismanum fram sýningum minum bent á að þeir endurfundu aðeins kjarnann i grisku leikjunum. t öðru lagi fullyrði ég að ekk- ert það sé til sem kaliað er hreinir griskir harmleikir eða hreinir gleðileikir. 1 harmleikjunum eru atriði full með stórkarlalegum gamanmálum og i gleöiloikjun- um er á stundum sár harmur kveðinn. Það eru einungis tilsi- gildir griskir leikir sem eru óhreinir (impure). — Tragi - comic or comi-tragic). Þeir eru bara mannlegir, ekkert annað. Að minu mati er stór- brotin leiklist skjalfesting raun- veru mannsins og á ekkert skylt við ljóðlist, heimspeki eða há- spekileg viðhorf. Mikil leiklist er mjög raunveruleg og fjallar um þau náttúrulegu vandamál, aðstæður og skilyrði sem við er að etja i þjóðfélaginu. Allt er í textanum Hér þykir segulbandsstjóra rétt að koma Shakespeare á blaö og þvi er spurt um túlkun á verkum hans.en fyrr en varir er komið út i llfsfilósófiska sálma. — Shakespeare hefur verið túlkaður á marga vegu, en flest- ir taka upp einhversonar ein- stefnuskilning sem þeir binda sig við I uppsetningum. Kring- um verk og æfi Shakespeares er iðnaður, kapitaliskt gaman. Mörg hundruð bækur koma út á hverju ári og enskudeildir há- skólanna komast vel af en Shakespeare deyr i öllu flóðinu. Það kann ef til vill að hljóma ósennilega að hægt sé að upp- götva eitthvað nýtt hjá Shake- speare þegar svona er i pottinn búið en staðreynd er það nú samt, að mörg þau þemu sem ég hef tekið upp hafa ekki verið nefnd af Shakespeare-fræðing- um áöur. Túlkun min er alveg ný og styrkur hennar vona ég að felist I þvi að hún sé i fullu sam- ræmi við það sem Shakespeare ætlaðist til sjálfur. Það sem ég hef uppgötvað, það sem vekur Framhald á næstu siðu 1 Ém. Hann fékk ekki að klára leik- stjóraskólann i Bretiandi, þvi skólastjórnin sagöi að það væri Sýningin á Lé skipulögð á fundi i byrjun janúar: frá v. Stefán Baldursson, aðstoðarleikstjóri, Sigurjón Jóhannsson, yfirleikmynda- ekki hægt að kenna sköpunar- teiknari Þjóðleikhússins, Jane Bond, búningahönnuður, Sveinn Einarsson, þjóðleikhússtjóri, Ralph Koltai, leikmyndateiknarinn heims- 8áfu- °g uf henni hafði hann nóg. frægi, sem gerir leikmyndina og leikstjórinn. Mynd — eik. Mynd — gel sinni upprunalegu mynd. Ég legg mig fram um að uppgötva hvað upprunalegir áhorfendur fengu út úr leikritinu. Ég er i ieit að týndum fjársjóðum frá lið- inni tið. Ég fæst eingöngu við hin stóru sigildu leikverk. Það sem ég uppgötva er það sem ég sann- færist um aö hafi verið ætlun höfundarins með verkinu. Og mér finnst það bara vera dapur- legt að ég skuli vera sá fyrsti sem uppgötvar það. Þetta þykir fólki ef til vill frumlegt og byltingarkennt. Dæmin vantar ekki. Uppsetningar minar á griskum leikjum sanna aö frá þvi að þeir voru skapaðir af Sófókles, Eurypides og Aesky- los fyrir 2500 árum hafði enginn uppgötvað að þeir eru miðill fyrir naturalisma. Það hefur verið viöloðandi álit allra á öll- um timum að stilfæra bæri griska leiki. 1 byltingu minni á túlkun griskra leikja eru tvö höfuðat- riði: t fyrsta lagi að sigildir griskir leikir eru miöill fyrir algjöran naturalisma Við höfum haldið að Ibsen og Tchekov hafi skapað natural- ismann I leikhúsi en ég hef með TIL KVENNA Það er æfing á Lé konungi i Þjóðleikhúsinu og leikararnir sitja umhverfis borð i ballett- salnum ásamt leikstjóranum Hovhannes I. Pilikian og ræða textann. „Trúið mér ekki,” seg- ir hann, „þetta er allt hérna i textanum”. Fyrsti mánuöurinn af æfingatimanum hefur allur farið 1 textagreininguna og merking orðanna f frumtextan- um og i Islensku þýðingunni er krufin til mergjar, og leikstjór- inn fcrðast vitt og breitt i sög- unni, goðsögnum, tungumálum og orömyndunarfræðinni til þess að skýra lykilorð, endur- tekin minni og þemu i leikritinu. Orðfærið sem viðhaft er á æfingunni lætur óvenjulega i eyrum, og að baki þess liggur sérstæð lifsspeki leikstjórans. Fyrir hádegi er textinn þæfður og örfáar blaðsiður lagðar að velli. Eftir matarhléið stendur æfingin til tvö og þá er spuni með skarplegum athugasemd- um Hovhannesar. Þennan dag er leikurunum uppálagt að hækka og lækka sfna eigin þjóð- félagsstöðu. Þeim gengur bæri- lega að tjá það I leik. Sömuleiðis að hækka sina eigin og lækka annarra stöðu. Jafnvel að lækka sina stöðu og hækka annarra um leið. En að hækka sina stöðu um leið og staða hinna er hækkuð reynist lifsins ómögulegt. Niðurstaða: 011 fyrirbærin nema hið siðastnefnda þekkja leikararnir úr lifinu. (Jtlegging: Svona erum við skemmd af kapitalismanum. Einföld — en ekki augljós — sannindi verða Ijóslifandi fyrir augum manns I spunasamspili leikara og leik- stjóra. Það sem krafist hefði fyrirferðarmikiliar rökræðu I töluðu máli leiðir hér hvað af öðru I einföldum myndum, sjálfsagt og rökrétt. Skömmu seinna er komið að þeim vandræðum að byrja viö- tal viö Hovhannes I. Pilikian, og til þess að komast einhvern- veginn út úr þeim ógöngum er brugðið á það ráð að spyrja hvort hann viti hversvegna virt- ir gagnrýnendur i heimsblöðun- um liki honum við Grotowski og Brook að frumleika? Enduruppgötvun hins upprunalega A Islandi þykir það beinlínis óflnt að vera málglaður, en Hovhannes talar gjarnan og mikið, og hefur yndi af. Spurningar verða næstum óþarfar, aðeins stöku stefnuvisi er skotið að meðan bandiö geng- ur. — Ég reyni ekki aö vera frum- legur. Annaðhvort ertu frum- legur eða ekki. Ég er hissa á þvi að vera kallaður frumlegur. Min meginstefna er þvert á móti að enduruppgötva leikritin 1 Eina von mannkyns: ALLT VALD „Eina ástin sem er einhvers virði er ást móður til barns og hún ætti að móta þjóðfélagsgerðina.”, segir Hovhannes I. Pilikian. Mynd — gel

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.