Þjóðviljinn - 23.03.1977, Page 20
DWÐVIUINN
Miðvikudagur 23. mars 1977
Dyggustu liösmenn Kristins:
Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-21 mánudaga til föstu-
daga, ki. 9-12 á laugardögum og sunnudögum.
Utan þessa tima er hægt aö ná i blaöamenn og aöra
starfsmenn blaösins i þessum simumt Ritstjórn 81382,
81527, 81257 og 81285, útbreiðsla 81482 og Blaöaprent81348.
81333
Einnig skal bent á heima-
sima starfsmanna undir
nafni Þjóðviljans I sima-
skrá.
Einar,
Ólafur,
Þórarinn.
Þeir klöppuðu
Kristín upp
Kristinn Finnbogason, fjár-
málamaður, hefur verið endur-
kjörinn formaður Fulltrúaráðs
Framsóknarfélaganna i Reykja-
vik.
Þetta gerðist á aðalfundi full-
trúaráðsins, sem haldinn var i
fyrrakvöld. Telja kunnugir að
Kristinn og nánustu félagar hans
hafi nú sterkari tök á flokksvél
Framsóknarflokksins i Reykja-
vik en nokkru sinni fyrr.
Kristinn Finnbogason hefur á
siðari árum orðið eins konar tákn
fyrir þau óprúttnu fjármálaöfl,
sem náð hafa æ meiri völdum inn-
an Framsóknarflokksins að
undanförnu og mega nú heita þar
alls ráðandi.
Nokkrar raddir höfðu um það
heyrst innan flokksins, einkum
utan af landi, aö algjört lágmark
væri nú, að forysta flokksins ýtti
Kristni frá formennsku i fulltrúa-
ráöinu. — A þessar raddir var þö
ekkert hlustaö, og studdu þeir
Ólafur Jóhannesson, Einar
Agústsson og Þórarinn Þórarins-
son mjög eindregið viö bakiö á
sinum ,,kraftaverkamanni” og
töldu hann öllum mönnum heppi-
legri til formennskunnar.
Fyrir eindreginn stuðning
helstu forustumanna flokksins
sigraöi Kristinn glæsilega á aöal-
fundinum og var kjörinn formaö-
ur fulltrúaráösins meö 98 atkvæö-
um, en Þorsteinn Ólafsson, kenn-
ari fékk aðeins 58 atkvæöi. Þeir
sem enn telja sig til vinstri i
Framsókn urðu fyrir miklum
vonbrigðum vegna stuönings
helstu forystumanna flokksins við
Kristin , en ýmsir höfðu gert sér
vonir um að hægt yröi að fá for-
ystuna til að fallast á Sverri
Bergmann lækni sem formann i
stað Kristins.
Þessar vonir brugöust gjör-
samlega. Þaö var Kristinn, sem
reyndist i náðinni eins og fyrri
Kristinn Finnbogason.
daginn og fór meö glæsilegan sig-
ur af hólmi.
Kristinn Finnbogason og sú
hirð fjáraflamanna og valda-
manna i bankakerfinu, sem
kringum hann situr mun nú hefj-
ast handa um kosningaundirbún-
ing vegna borgarstjórnarkosn-
inga og alþingiskosninga á næsta
ári og hugsa sér vist ekki aö
hverfa frá kjötkötlunum.
Af hinu fer ekki sögum, hvort
almennir kjósendur muni lika
klappa upp Kristinn og liö hans,
þegar þar aö kemur.
Skranflutningar hersins á fiskimiðin:
Allir sverja af
sér ósómann
Það er haft eftir utan-
rikisráðherra í Mbl. i
gær að lögreglan á
Kef lavíkurf lugvelli og
Landhelgisgæslan hafi
gefið hernum leyfi til
þess að sökkva járna-
rusli eða sprengjuefni i
hafið hér útí Faxaflóa.
Orðrétt segir Mbl. og
hefur eftir utanríkisráð-
herra á alþingi í fyrra-
dag:
,,..ennfremur aö haft var
samband við lögreglustjóra-
embættiö á Keflavikurflugvelli
um flutning útaf vellinum og aö
islenskur starfsmaöur varnar-
liðsins hafi haft samráö viö land-
Brjóta þeir reglur
um netafjölda í sjó?
Þjóöviljanum hafa borist fjöl-
margar ábendingar frá sjómönn-
um um, aö margir netabátar á
vertiöinni brjóti lög meö þvi aö
vera meö of mörg net I sjó og
komistekkiyfir aö draga öll netin
i róöri og láti þau liggja þar til
næst er vitjaö um. Slikar ásakan-
ir hafa oft heyrst áöur og hart
verið deilt. En hvaö mega bátar
hafa mörg net i sjó og hvernig er
eftirliti meö þvi,aö þær reglur séu
ekki brotnar, háttaö?
Hjá sjávarútvegsráöuneytinu
fengum viö þær upplýsingar aö
bátur meö 8 manna áhöfn mætti
vera meö 90 net, 8—9 manna
áhöfn ekki fleiri en 105 net, 10
manna áhöfn ekki fleiri en 120
net, llmanna áhöfn ekki fleiri en
135 net og 12 manna áhöfn eða
fleiri ekki meira en 150 net, eða
10—11 trossur.
Mjög erfitt er aö fylgjast meö
þvl aö þessar reglur séu ekki
brotnar, þar sem menn þurfa þá
aö fara út meö bátunum og
fylgjast meö þegar netin eru
dregin. Undanfarin ár hefur verið
reynt aö fylgjast meö þessu úr
landi þó, en eftir aö sjávarútvegs-
ráöuneytiö réöi 5 eftirlitsmenn sl.
haust ætti aö vera hægara aö
fylgjast meö þessu, þar sem þeir
geta fyrirvaralaust fariö um borö
i skipin og fariö meö þeim I róöur.
Þetta hefur þó ekki verið gert enn
sem komiö er I vetur, þar sem
eftirlitsmennirnir eru flestir
bundnir viö togarana. En senni-
legt er aö þeir munu taka
stikkprufu á þessu þegar kemur
fram á netavertiöina, sem er aö
hefjast um þessar mundir. Aöal-
veiðitækið á vertiöinni þaö sem af
er hefur veriö lina,en nú fara nær
öll skip aö skipta yfir á net. —
S.dór
helgisgæsluna um þaö, hvar
mætti henda farminum fyrir
borö....”
Eins og skýrt var frá i Þjóövilj-
anum i gær neitar Pétur Sigurös-
son, forstjóri Landhelgisgæslunn-
ar þvi alfarið aö Landhelgisgæsl-
an hafi gefiö leyfi til þessara
flutninga, enda skorti hana vald
til sliks.
Þorgeir Þorsteinsson, lögreglu-
stjóri á Keflavikurflugvelli sagöi I
samtali viö Þjóöviljann i gær, aö
herinn sæki um leyfi til sin ef
flytja á einhverjar vörur útaf
vellinum til Bandarikjanna. 1
þessu tilfelli var sótt um leyfi ti!
aö flytja þetta skran útaf vellinum
á samskonar pappirum og ef um
útflutning er að ræöa, en tekiö
fram aö sökkva ætti þessu i sjó.
„Viö gefum leyfi til aö flytja
þetta útaf vellinu, en mitt um-
dæmi nær ekki lengra en aö vall-
arhliöinu og ég get hvorki gefiö
leyfi, né neitaö um leyfi til
flutninga utan mins umráöa-
svæöis, þannig aö ég hef ekki gef-
iö neitt leyfi til aö sökkva þessu i
sjóinn”, sagöi Þorgeir.
Sannleikurinn i þessu máli er
nefnilega sá aö herinn sótti aöeins
um leyfi til aö flytja efniö út af
vellinum, en siöan var ekki sótt
um neitt leyfi. Herinn tók sér ein-
ungis það Bessa-leyfi, aö brjóta
alþjóölegar reglur um varnir
gegn mengun sjávar, I þeirri
fjallgrimmu vissu, aö Islensk yf-
irvöld myndu ekki hreyfa hönd né
fót frekar en vant er þegar herinn
á 1 hlut. Yfirmenn hersins vita
fullvel hverjir eru stjórnendur I
þessu landi.
Hið auma yfirklór utanrikis-
ráöherra að biðja um skýrslu,
rannsaka nánar, og annaö þvi um
líkt, er aöeins til aö sýnast eitt-
hvaö ætla aö gera I málinu. Auö-
Framhald á bls. 18.
Karin Söder óskaöi sérstaklega eftir aö kynnast Hitaveitu Reykja
vikur i opinberri heimsókn sinni til islands. Miöflokksmenn i Svi-
þjóö leita nú sem óöast aö nýjum ieiöum I orkuöflun til þess aö
styrka sig i andstööunni viö kjarnorkuverin. Hér er sænski utan-
rikisráöherrann i stjórnstöö Hitaveitu Reykjavikur aö rýna i mæli-
tækin.
Bara blöðin, sem eru
að sprengja stjómina
Þaö var mjög norrænt and-
rúmsloft á Hótel Sögu siödegis i
gær. Karin Söder, utanrikisráö-
herra Sviþjóðar, sem hér er i
opinberri heimsókn, hélt fund
meö blaöamönnum, og auk þess
dreif aö utanrikisráðherra
Noregs og Danmerkur, ásamt
sendiherrum Noröurlanda hjá
Sameinuöu þjóðunum, og
Tryggve Bratteli, sem hingaö
kemur vegna dags Noröur-
landa. i dag hefst einnig vor-
fundur utanrikisráöherra
Noröurlanda.
Karin Söder, Miðflokksþing-
maöurinn, sem öllum á óvart
varö utanrikisráöherra i sænsku
borgaraflokkastjórninni, hefur
slegiö þvi föstu að stjórn hennar
muni ekki gera neinar breyting-
ar á utanrikisstefnunni. Hún
fylgir virkri hlutleysisstefnu, en
frú Söder hefur lagt sérstaka
áherslu á aö sviar eigi aö leggja
mesta rækt við þá sem næst
þeim búa. Fyrst koma Noröur-
lönd, siöan Evrópa eins og hún
leggur sig og svo afgangurinn af
heiminum. í samræmi viö þetta
sjónarmið hefur hún fariö i
opinberar heimsóknir til
Norðurlanda. ósagt skal látiö
hversu frábrugðið þetta sjónar-
mið er stefnu kratastjórna i Svi-
þjóð, sem á alþjóöavettvangi
lögöu áherslu helst á þróunar —
afvopnunar — og mannréttinda-
mál. Benda má á aö krataflokk-
ar á Norðurlöndum hafa nána
samvinnu sin á milli og I verka-
lýðshreyfingunni norrænu eru
margir kratar og mikil sam-
skipti. Borgaraflokkarnir i svi
þjóö hafa ekki slik samtök á
norrænum grundvelli að styöj-
ast við og þvi þykir sérstök
ástæöa fyrir þá aö gera talsvert
úr norrænni samvinnu opin-
berlega.
Orkumálin helsta bitbein-
iö.
Karin Söder situr á völtum
veldisstóli ef marka má skrif i
sænskum blöðum siöustu daga.
Flokkur hennar, Miðflokkurinn,
varð aö sláaf kosningaloforö *
um sinum i kjarnorkumálum og
fallast á aö eitt kjarnorkuver til
viöbótar færi á stað. 1 staöinn
var sett niöur nefnd til þess að
gera heildarúttekt á orkumál-
unum og rikisstjórnin sam-
þykkti ströng skilyrði, sem upp-
fylla þarf, ef kjarnorkuver á að
fá starfsleyfi. Nokkur kjarn-
orkuver i Sviþjóö eru nú á þvi
stigi aö taka þarf ákvöröun um
hvort halda skal áfram aö fjár-
magna þau og veita þeim
starfsleyfi. A morgun, fimmtu-
dag verður rikisstjórnin aö taka
eina slika ákvöröun. Aö sögn
Karin Söder eru þaö bara blöðin
sem eru að sprengja ríkisstjórn-
ina, en liklega niöurstööu taldi
— sagði Karin
Söder, utanríkis-
ráðherra Svíþjóðar,
á fundi með
fréttamönnum
í gær
hún veröa þá, aö samþykkt yröi
að fresta öllum veigamiklum
ákvöröunum i orkumálum þar
til orkunefndin heföi lokiö störf-
um og lagt fram valkosti i stað
kjarnorkunnar. Slik ákvöröun
getur hinsvegar þýtt atvinnu-
missi fyrir f jölda fólks i orku- og
byggingariðnaði og valdiö orku-
svelti i Sviþjóö aö mati krata,
hægri manna og frjálslyndra.
Komið hafur greinilega fram
að almennir flokksmenn i flokki
Karin Söder vilja heldur aö
stjórnin falli heldur en gefiö
veröi eftir fyrir vilja hægri leií.
togans, Bohmans, i kjarnorku-
málunum, enda er hann talinn
ráða of miklu i stjórninni.
Fyrsti ósigurinn fram-
undan?
Rikisstjórn borgaraflokkanna
i Sviþjóö á nú yfir höföi sér aö
biöa fyrsta ósigur sinn á þinginu
og er þaö vegna tillögu hennar
um að Sviþjoð gangi i IDB-
bankann, Alþjóðaþróunarbank-
ann, sem emkum veitir lán til
Suður-Ameriku, Flestar þjóöir
Vestur-Evrópu eru með i bank-
anum, en bandarikjamenn ráöa
mestu, og fá þær þannig rétt til
þess að bjóöa i verk i S-Ameriku
með lánsaöstoð frá bankanum.
Allmargir Miðflokksþingmenn
neita aö styðja tillöguna vegna
þess að bankinn hefur vont orö á
sér, meöal annars fyrir afstööu
hans til stjórnar Allende. Karin
Söder sagöi á fundinum aö
ástæðan fyrir þvi aö hún styddi
aðild Sviþjóðar, væri helst sú,
að margar þjóðir i Suður-Ame-
riku vildu auka áhrif hlutlausra
rikja i bankanum, og einnig fá
möguleika til þess að kaupa
vörur annarsstaðar frá en
Bandarikjunum.
Kratapólitík
Utanrikispólitik svia er
óbreytt þrátt fyrir stjórnar-
skiptin og nyja stjórnin hefur
tekiö upp þau atriði I efnahags-
málum, sem borgaraflokkarnir
gagnrýndu mest áður, þaö er að
segja stórlántökur erlendis til
þess að hvetja stórfyrirtækin
sænsku til dáða og staöbundnar
efnahagsaðgerðir i staö al-
mennra.
Karin Söder sagöi á blaöa-
mannafundinum aö ástæöan til
þess að efnahagsmálapólitikin
Framhald á bls. 18.