Þjóðviljinn - 03.04.1977, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 03.04.1977, Blaðsíða 3
Sunnudagúr 3. aprfl 1977.| ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3 #Olíuskip undir „ódýrum fánum" farast unnvörpum úr elli og vegna slælegrar stjórnar Sansinena fór f tvennt f sprengingu ILos Angeles Northern Breeze er einn þeirra manndrápsbolla, sem hafa hrokklh f tvennt fyrir elli sakir Með oliu þeir fóru á FÚNUM rvðkláfi Meira en 1000 gömul olíuskip, sem heföi átt að setja i brotajárn fyrir nokkrum árum, plægja ennþá öldur heimshaf- anna. Á síðustu mánuðum hefur um tylft slíkra skipa rifnað og brotnað. Um- hverfisverndarmenn þykj- ast góðir ef olían, sem úr þessum kláfum rennur, eyðist í eldi. Ekki alls fyrir löngu fórst þýska oliuskipið Tevega á leiðinni frá Antwerpen og Casabianca. Og með þvi 16 manna áhöfn. Út- gerðarfyrirtækiö lýsti harmi sin- um eins og venja er i slikum til- fellum. Það hefði getaö sparaö sér þá hræsni. Ahöfnin vissi vel ............* Auglýsing í Þjóðviljanum ber ávöxt. Auglýsinga - síminn er 8-13-33 hvað var i vændum. Sumir höfðu þegar fliíið skipið. Aðrir höfðu reynt að fá þýskan konsúl i Túnis til að kyrrsetja það. En hann gat það ekki. Skipið var að visu 1 eigu þýskrar útgerðar og áhöfnin var þýsk. Skipiö var skráð á Kýpur. í gróðaleit sinni skrá mörg skipafirmu skip sin i löndum, þar sem öryggisráðstafanir eru ekki teknar alvarlega og eftirlit meö þeim er litið sem ekkert. Með þvi móti er einnig auðveldara að reka skip með ódýru vinnuafli úr þriðja heiminum. Af þessum sök- um svamla nú meira en 2000 göm- ul og ryðguð skip um sjóinn, sannkallaðir manndrápsdallar. Og útgerðin þaggar niður óþægi- legar spurningar og vonar að allt reddist. En slysum fjölgar. Einkum koma þá oliuskip við sögu. Mörg þeirra voru byggð i hasti skömmu eftir strið, þegar oliu- notkun jókst gifurlega, og var ailt til þeirra sparað. Þau nálgast hættulegan aldur þegar þau eru orðin tiu ára, en þeim er haldið miklu lengur á floti. Afleiöingarn- ar láta heldur ekki á sér standa: • 15. des. sl. strandáði Argo Mer- chant, 23 ára, skráð i Liberiu, viö Nantuckett i Bandarikjunum. 26 miljónir litra af oliu fóru i sjóinn. • 17. des.l höfninni i Los Ange- les verður mikil sprenging i Sansinena, skráð i Liberiu, 19 ára gamaltskip. 49 hafnarverkamenn og sjómenn farast, 50 særast. • 24. des. I.eki kemur að Oswego Peace, skráöu I Liberiu, 15 ára gömlu skipi. 10 miljónir litrar af oliu fara I Thamesfljót i Connectieut. • 30. des. Grand Zenith, skráð i Panama, rifnar fyrir utan strönd Nýja Skotlands, 38 menn farast. Aldur skips — 23 ár. • 18. jan. Irenes Challenger, skráð i Liberiu, rifnar skammt frá Hvaæeyjum. 12 miljónir litra af oliu fara i Kyrrahafiö. Aldur skisins 22 ár. Það er lán i óláni, að til þessa eru þaö einkum smærri og eldri oliuskip sem farast. En skipa- fræðingurinn Noel Mostert segir i bók sinni „Risaoliuskip” (Super- tanks), að ef tiu risaoliuskip fær- ust samtimis og öll oiian úr þeim læki úti sjó, þá mundi heimurinn farast. Vegna þess aö höfin væru þá þakin oliuhimnu og gætu ekki framleitt meira súrefni. Það er þess vegna, að um- hverfisverndarmenn eru fegnir, þegar olia úr slysaskipum brenn- ur i stað þess að auka enn á mengun hafsins. Enda þótt skip þau sem sigla undir „ódýrum fána” séu aöeins 15% af skipastóli heims, þá sjá þessi skip um tvo þriðju allra sjó- slysa. 1 Liberiu, Panama, Singapore, Trinidad eða á Kýpur, er litt spurt um eldvarnir og eldfim efni i skipsskrokki. Þar er hægt að komast af með kannski helmingi fámennari áhöfn en i Evrópu, og auk þess ráða sjómenn úr þriðja heiminum fyrir hungurlaun., eins og áður var nefnt. Þar er og sára- litiö eftirlit með starfsmenntun skipstjórnarmanna — viö athug- un kemur oft i ljós að fyrsti stýri- maöur hefur aðeins réttindi þriðja stýrimanns og þeir sem eru neðar i virðingarröö i brú eða vélarrúmi hafa kannski enga pappira. Þvi er haldið fram, að það kosti ekki nema fimm banda- rikjadollara að verða sér úti um skipstjóraréttindi I konsúlsskrif- stofum Panama. Það er þvl ekki undarlegt, þótt margir skuggabaldrar fáist viðútr gerð undir „ódýrum fánum”, og þeir sem kallast sæmilega „virðulegir” reyna einnig þann sama leik. Og slysum heldur áfram að fjölga, eins og hver maður getur sagt sér sjálfur. Þegar oliuskipiö Arrow frá Liberiu strandaði við Kanada kom það á daginn, aö sendistöð skipsins var óvirk, kompásnum skeikaði um þrjár gráöur og dýptarmælirinn hafði verið bilaöur i marga mán- uði....

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.