Þjóðviljinn - 07.04.1977, Síða 18
18 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 24. mars 1977
Böövar Valgeirsson, framkvæmdastjóri Samvinnu-
feröa.
Auöur Björnsdóttir haföi nóg aö gera viö aö taka niöur Grétar Guömundsson starfsmaður hjá Samvinnuferöum.
pantanir, meöan staðið var viö á skrifstofu Samvinnu-
feröa.
I
>
I
i
i
F
I
I
I
>
I
i
Rætt við BÖÐVAR VALGEIRSSON, framkvæmdastjóra yngstu ferðaskrifstofunnar
MIKLAR
ANNIR
framundan
— Ég skal viðurkenna
það, að við byrjuðum á
dálítið erfiðum tíma, í
maí 1976, vegna þess að
þá þegar eru mjög
margir, sem ætla sér að
ferðast um sumarið búnir
að láta bóka sig. En þetta
tókst nú samt allt saman
og okkur gekk vel í f yrra.
Við vorum með ferðir til
Spánar, á Costa del Sol og
eins gerðum við tilraunir
með ferðir til Portúgal,
meira var það nú ekki
svona til að byrja með.
Síðan má segja að flest
hafi gengið í haginn og
við erum á uppleið og
miklar annir framundan
hjá okkur, sagi Böðvar.
Valgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Samvinnu-
ferða, er viðræddumvið
hann fyrir skömmu um
það hvernig yngstu
ferðaskrifstofu landsins
hefði gengið á fyrsta
starfsárinu í hinni hörðu
samkeppni ferðaskrif-
stofanna hér á landi.
Sólarferðir til að byrja
með.
Og Böövar heldur áfram:
— Siöastliöið haust tókum viö
svo upp Kanarieyjaferöir og
höfum verið meö þær i vetur og
hafa þær gengið afar vel. Viö
tókum upp samvinnu við Sunnu
um flugferðir til Kanarieyja og
tel ég það koma vel út, enda
veröur sætanýtingin mun betri
hjá báöum aðilum meö þeim
hætti. Annars væru skrifstof-
urnar aö fara sitt i hvoru lagi
með hálfar véiar eöa rúmlega
þaö.
— En hvað er svo framundan I
sumar?
— Þaö er fyrst að nefna feröir
til Costa del Sol á Spáni, sem
alltaf njóta vinsælda, en svo
erum viö aö taka upp stuttar
feröir til Evrópu, þetta 5 til 10
daga feröir. Sannleikurinn er
sá, að mjög margir sem hafa
farið ár eftir ár til sólarlanda
vilja gjarnan breyta til einu
sinni og jafnvel er til i þvi og
sumir vilji fara stuttar feröir til
Evrópu og geta jafnframt farið
til sólarlanda. Viö ætlum i
sumar aö vera með svona
stuttar feröir til Irlands, og
verða 2 feröir þangaö strax i
mai, siðan ætlum viö aö fara
ferðir til Austurrikis, Þýska-
lands og Norðurlandanna.
Verö þessara feröa er lágt, svo
lágt aö þaö ætti aö vera öllum
mögulegt aö ráöa við það, en
fram t'il þessa hafa Evrópu-
ferðir goldiö þess aö vera of
dýrar ef miöað er við hópferðir
til sólarlanda.
Nýjungar.
Nú, þá veröum viö einnig með
innanlandsferöir fyrir erlenda
feröamenn, sér i lagi þjóöverja
og svia, en viö höfum tekið aö
okkur aö sjá um slikar ferðir
fyrir sænsku feröaskrifstofuna
Reso og þýsku feröaskrifstofuna
Neckermann. Þýska feröaskrif-
stofan mun einnig senda hingað
farþegaskip, sem viö munum
annast um alla fyrirgreiðslu
fyrir. Annaö þessara skipa er
fremur litið og mun fara i sigl-
ingu um N-Atlantshafiö, til Is-
lands, N-Noregs og Nýfundna-
lands. 1 sambandi viö þaö skip
má nefna, að Neckermann, mun
annast um flugferöir hingaö
fyrir þýska feröamenn, sem
geta svo fariö um borö i skipið
þegar þaö kemur hingaö en sá
hópur sem kemur sjóveg meö
þvi fer hér i land, skoöar sig um
og flýgur siðan utan. Þetta er
alger nýjung hér á landi.
— Margir hafa haft orð á þvi
að islensku ferðaskrifstofurnar
séu of margar, hvert er þitt álit
á þvi máli?
Hörö samkeppni.
— Jú, það er alveg rétt, þær
eru of margar og samkeppnin
þvi afar hörð. Það ér til að
mynda mun meira framboö á
ferðum til sólarlanda i sumar en
nokkru sinni fyrr og ég er hand-
viss um að þær verða aldrei
farnar allar. En þaö er eitt, sem
ferðaskrifstofurnar gætu tekiö
upp og yröi þeim öllum til góös,
en þaö er samvinna um flug-
feröirnar, þegar þær eru allar
aö fara á sömu staöina i sólar-
löndum meö farþega. Meö þvi
móti yröi sætanýtingin margfalt
betri hjá þeim, en flugiö er sem
kunnugt er, stærsti kostnaöar-
liöurinn i þessum feröum. Og ég
hygg aö slik samvinna eigi eftir
aö aukast mikiö frá þvi sem
veriö hefur.
— Nú hefur þaö veriö siður
islendinga aö taka orlof sitt aö
sumarlagi, hafa Kanarieyja-
feröir breytt þessari venju eitt-
hvað?
— Já, óneitanlega. Þeim
fjölgar ár frá ári sem notfæra
sér þann möguleika aö eyöa
hluta af frii sinu i sólarlöndum
yfir veturinn, en eiga svo hiö
stutta sumar hér á landi til
góöa. Og það er ofur skiljanlegt
aö fólki fari þannig aö. Sumarið
hjá okkur er ekki nema 3 mán-
uðir, og ef þaö er gott, þá er hart
aö eyöa 2-4 vikum i sól erlendis.
— Eruö þiö meö einhver á-
form um stækkun skrifstof-
unnar frá þvi sem nú er?
Sígandi lukka er best.
— Já, við stefnum aö sjálf-
sögðu uppá viö, en þaö eru
engar stökkbreytingar i
vændum. Við teljum þaö heppi-
legra að þróunin sé jöfn og sig-
andi, heldur en að taka stór
stökk. Hér vinna nú 7 fastir
starfsmenn, þar af 2 fastráönir
fararstjórar. Siöan erum við
meö lausráðna farastjóra á
mesta annatimanum. Við
höfum sett okkur þaö sem
markmiö að veita sem allra
besta þjonustu og ég tel aö
okkur hafi tekist þaö og þaö er
auðveldara að halda sliku
áfram ef ekki eru tekin stór
stökk í einu.
— Þiö eruö sem sé ánægö meö
fyrsta áriö og kannski bjart-
sýnir á framtiðina?
— Já, viö getum ekki annaö
en verið ánægöir meö fyrsta
starfsáriö, þaö hefur fariö fram
úr vonum og vissulega litum viö
björtum augum á framtiöina,
enda ekki ástæöa til annars.