Þjóðviljinn - 23.04.1977, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 23.04.1977, Blaðsíða 9
Laugardagur 23. apríl 1977 ÞJÓDVILJINN — SIÐA 9 Þeir þrir aldarfjórðungar sem Halldór Laxness hefur lifað eru mesta umbyltingarskeið i sögu is- lensku þjóðarinnar. Þegar hann fæddist var Island eitthvert versta eymdarbæli i Norður- Evrópu vestanverðri; æöi stór hluti þjóðarinnar hafði ekki séð önnur ráð til þess að halda lifi en að flýja land. Nú eru islendingar i hópi þeirra þjóðfélaga þar sem þjóðartekjur á mann eru hvað hæstar; islendingar hafa á þess- um tima, og einkanlega siðustu fjórum áratugum, stokkið úr mið- öldum til forustu i nútimalifi. Ég dreg i efa að i nokkru landi öðru hafi orðið slik umskipti né tekist jafn vel. Þessi bylting er árangur af mikilli baráttu: Þar koma við sögu verklýðshreyfing og sam- var safnast saman heima hjá Jóni Helgasyni, á stúdentafélagsfund- um eöa kvöldvökum, og Jón las fyrir okkur greinar og skáldverk Halldórs, oft langt fram á nótt. Mér finnst ég hafa nauðþekkt allar skáldsagnapersónur Hall- dórs og átt sumar þeirra að vin- um. Atvikin höguðu þvi svo að ég komst i náin kynni viö Halldór skömmu eftir að ég kom heim frá námi og þau kynni hafa haldist alla tið siðan. Þegar ég hóf störf við Þjóöviljann skrifaði Halldór stöðugt iblaðið, langar greinar og stuttar og hitti sifellt i mark. Stundum var hann eins og blaða- maður, ef einhverjir andstæðing- ar kveinkuðu sér, og birtist i gætt- Halldór Laxness 75 ára 23. apríl 1977 Halldór Laxness (Ljósm. Sjónv. Helgi Sveinbjörnsson). vinnuhreyfing sem áttu kost á forustu hinna mikilhæfustu manna. Þar koma viö sögu menntamenn og listamenn þjóð- arinnar, einkanlega hópurinn sem Kristinn E. Andrésson safn- aði kringum sig. Þar koma við sögu stjórnmálaflokkar sem sóttu hugsjónir sinar i kenningar sósialismans og eignuðust i önd- verðu óvenju glæsilega forustu- menn. Þar koma við sögu fjöl- margir hópar og leiðtogar á sviði heilbrigðismála, félagsmála og menningarmála, svo að fátt eitt sé talið. En i minum huga sker eitt nafn sig úr þessari byltingar- sögu, Halldór Laxness. Halldór gerðist félagslegur byltingarmaður i lok þriðja ára- tugsins. Hann kynnti þá köllun sina i Alþýðubókinni sem út kom 1929. Á titilsiðu frumútgáfunnar stendur „Til Alþýðuflokksins, vinsamlegast frá H.K.L.”—• en Alþýðuflokkur og Alþýðusam- band voru þá sama stofnunin. 1 greininni „Um þrifnað á Islandi” sem vakti hvað mesta hneykslun skrifaði Halldór: „Einginn getur sannfært mig um, að neitt sé þvi til fyrirstööu, nema skortur á menningu, að nokkur fjölskylda i landinu hafi lélegri hibýlakost en þriggja herbergja ibúð og eldhús ásamt raflýsingu. Ég er að hugsa um að halda áfram að skrifa þángaðtil islenskri alþýöu hefur skilist að hún hefur eingan rétt á þvi að lifa hundalifi, og að fátækt- in er glæpur allra glæpa.” (Orðalagið er tekið úr 3ju útgáf- unni sem út kom 1949.) Halldór stóö við þaö sem hann var að hugsa um. Hann varð um langt árabil sá forustumaður I menn- ingarmálum og stjórnmálum sem mestur styr stóö um og mest áhrif hafði á mina kynslóö. Ég var tiu ára þegar Alþýöubókin kom út en ég braust fljótlega gegnum hana, þótt skilningurinn hafi vafalaust verið takmarkaður. Siðan hef ég lesið allt sem Halldór hefur skrif- að jafnóðum og það birtist. Mér hefur sjaldan þótt eins vænt um hann og árin sem ég dvaldist i Danmörku i skugganum af járn- hæl þýsku nasistanna. Utanrikis- ráðuneytinu tókst aö smygla til okkar nýjum Islenskum bókum, þar á meðal bókum Halidórs og Timariti Máls og menningar. Þá Að Gljúfrasteini: Sigriöur, Ilalldór, Guöný, Auöur. inni hjá mér daglega með nýjan pistil, oft handritaðan. Við höfðum þann hátt á að hann hringdi ævinlega til min þegar hann kom úr utanlandsferðum, og ég átti við hann viðtöl sem fjöll- uðu um menningarmál og stjórn- mál. Ég man ekki til þess að hann neitaði mér um grein ef ég bað hann að skrifa af einhverju til- efni, hann mætti meira að segja með mér á áróðursfundi þegar ég fór i framboð i Hafnarfirði 1949 og las grimmustu kaflana úr Atóm- stöðinni. Ég held að seinasta greinin sem hann kom með til minhafi veriðmögnuöádrepa um hernaðarofbeldi rússa i Ung- verjalandi og hann fagnaði þvi að Þjóðviljinn hafði lagt hliðstætt mat á þá atburði. En meginefnið i greinum hans var barátta gegn bandariskri ásælni og bandarisk- um herstöðvum á Islandi. Sumar þær greinar um erindreka banda- riskrar ásælni voru heitustu áhrinsorð sem samin hafa verið á islensku. Adeilugreinar Halldórs voru alltaf beittar. En hann hefur aldrei verið ofstækismaður. Ég hef af eðlilegum ástæðum ekki persónulegar minningar um skuidaskil hans við kaþólskuna, en mér þótti vænt um grein sem hann skrifaði i Þjóðviljann þegar evangelisk-lúterski sértrúar- flokkurinn vigði kirkju I Skálholti, en þar minnti Halldór á að Skál- holtsstaöur hefði aöeins gegnt forustuhlutverki i kaþólskum sið og að þar hefði siðasti kaþólski biskupinn, stórmennið Jón Ara- son, verið veginn af evangelisk- lúterskum erindrekum danakon- ungs. Ég fylgdist hins vegar með skuldaskilum Halldórs viö for- ustumenn Sovétrikjanna og Jósep heitinn Stalin. Við ræddum þau mál oft og lengi, og ég sá hvernig hann safnaöi að sér bókum, las og las. Hann hefur sjálfur gert grein fyrir þeim skuldaskilum I bókum, svo aö ég þarf ekki að rifja þau upp. En þá gerðust þau ömurlegu tiðindi aö Þrihross þjóðfélagsins, sem haft höfðu þaö aö atvinnu áratugum saman aö niða bll verk hans, hófu hann á stall og þóttust dýrka hann. Mér þótti leitt þegar Halldór hætti skrifum sinum i Þjóðvilj- ann, og ég fór til hans og spurði hverju þetta sætti og hvort ekki mætti vænta þess að hann tæki upp þráðinn aftur. Eg man vel eftir svari hans. Hann minntist ekki einu orði á Stalin eða Sovét- rikin, heldur sagði mér að hann hefði einsett sér ungur aö taka þátt i þvi að hefja fslenskt þjóðfé- lag, sbr. ivitnun þá i Alþýöubók- ina sem ég birti i upphafi. Nú hefðu þau umskipti orðið að hér væri komið samfélag af svipuðu tagi og hann hefði haft i huga ung- ur. Þvi væru áhugasvið hans að verða önnur og hann gæti ekki fjallaö um þau I blaðagreinum. En þaö kom fram i rabbi okkar þá og jafnan siðan aö hann er sósial- isti og setur sjálfstæði Islands of- ar öllu öðru. Ýmsum kann að þykja þessi grein einkennileg þula um minni háttar atriöi; er það ekki mesta afrek Halldórs að hann er eitt af stórskáldum mannkynssögunn- ar? Ekki verða dregin nein skil milli baráttumannsins Halldórs Laxness og rithöfundarins. 1 ris- mestu verkum sinum gekk hann á hólm við gaspur Þrihrossanna um dýrð islensks dreifbýlis, sveitalifs og fortiðar og hvatti til efnahagslegrar og menningar- legrar sóknar, ég minni á bæk- urnar um Sölku Völku, Bjart i Sumarhúsum, ólaf Kárason, Jón Hreggviðsson, á Atómstöðina og Gerplu. Ég er ekki bókmennta- fræðingur sem betur fer. Hins vegar var ég lengi óhemjulegur lestrarhestur. 1 nokkra áratugi reyndi ég að fylgjast með þvi sem best væri skrifað á þeim þjóð- tungum sem ég kunni skil á og komast i kynni viö bókmenntir þær sem kallaðar eru sigildar. Leiösögn min hefur verið afar einföld regla. Mér finnst þeir skáldsagnahöfundar mestir sem best kunna að segja sögu. Sam- kvæmtþeirri reglu á Halldór ekki marga jafnoka i veraldarsögunni. Og eitt kann hann betur en aðrir höfundar sem ég hef kynnst. 1 mestu skáldverkum hans hafa sögulokin ævinlega verið galdur og fjölkynngi; ég þekki engan höfund sem hefur haft þá iþrótt jafn vel á valdi sinu. Kannski nýt- ur Halldór þar þess, að vera þegn þjóðar sem frá landnámsöld hef- ur stundaö þá iþrótt aö botna vis- ur. Ég man eftir þvi að eitt sinn skrifaði Halldór grein i Þjóðvilj- ann um stórar þjóðir og smáar og rétt þeirra til sjálfstæðis. Hann benti á að fjölmenni gerði enga þjóð mikla; það væri ekki kjöt- þunginn sem skæri úr heldur and- leg afrek. Hann hefur með rit- verkum sinum sannaö rétt okkar til sjálfstæðis á svo einstæðan hátt að enginn þarf aö efast um málalok i þeirri baráttu sem ekki er enn leidd til fullra lykta. Vafalaust hneggja Þrihross þjóðfélagsins hátt i dag i tilefni af afmæli Halldórs Laxness. Þessi litla grein er hins vegar hugsuö sem lágmælt kveðja frá þvi fólki sem Pétur Þrihross kall- aði ættjarðarleysingja og irska

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.