Þjóðviljinn - 25.05.1977, Qupperneq 10

Þjóðviljinn - 25.05.1977, Qupperneq 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 25. mai 1977. LANDAMÆRASTRÍÐ FRAMTÍÐARINNAR: IErindi islendinga á Hafréttar- ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna ■ héðan I frá er að verja það sem áunnist hefur I fiskveiðilögsögu og landhelgismálum. Ráðstefn- ■ an er þó jafn áhugaverð fyrir þvi. A Hafréttarráðstefnunni hefur I rauninni verið deilt um þrjú meginatriði: Réttinn til fiskveiða, réttinn til frjálsra siglinga og réttinn til auðæfa hafsbotnsins. Nóg hefur svo sem verið deilt um tvö þau fyrr- nefndu, en siðastnefnda verk- efnið: að skapa alþjóðarétt um nýtingu auðæfa hafsbotnsins, mun án efa reynast þyngsta þrautin, enda mestir framtiðar- hagsmunir i húfi. Auðæfi hafs- botnsins verða aðeins nefnd i stjarnafræðilegum tölum og hætt er við að hagsmuna- árekstrar miili rikjanna 150, sem þinga á Hafréttarráðstefn- unnt_verði orðnir fjölmargir, aður en friður rikir á þessu sviði. Hvaða þjóðir eiga nýtingar- rétt á auðæfum hafsbotnsins, fjölmelmisvölunum, málmun- um og oliunni? Getur einhver alþjóðastofnun gætt hagsmuna rikja heims gagnvart Banda- • rikjunum, sem ein búa yfir * þeirri þekkingu og tækni, sem I nauðsynleg er til þess aö nýta I auðæfi á hafsbotni svo einhverju ■ nemi? Þetta eru spurningar I sem nú er leitað svara við. Hafsbotninn, utan 200 milna efnahagslögsögu strandrikja, verður næsta auðlýidauppspretta hráefnasnauös heims. Kapphlaupiö um gæöi hafsbotnsins er þegar hafið og hafa bandarlkjamenn mikið forskot fram yfir önnur iðnríki. Þróunarrlkin hafa enga möguleika á að taka þátt I kapphlaupinu, en geta þau variö hagsmuni slna á vettvangi Hafréttarráð- stefnu Sameinuðu þjóðanna? AUÐÆFIHAFD JÚPANNA fíandaríkjamenn elnir ráða yfir þekkingu og tækni til þess að nýta auðæfi hafsbotnsins Hafsbotninn er siðasti svarti og óþekkti bletturinn á heimskort- inu. Frá þvi á fyrstu hafréttar- ráðstefnunni 1958 hefur athygli rikra iðnaðarþjóða æ meir beinst að þeim auðævum sem finna má á honum og i. Enda þótt visinda- menn margra iðnrikja stundi nú hafsbotnsrannsóknir eru Banda- rikjamenn áratugum á undan öðrum á þessu sviði. I þrjátiu ár hafa bandarisk stjórnvöld látið rannsaka hafsbotninn kerfis- bundið, skráð efni hans og gerð og kortlagt auðæfi hans. Sovétmenn hafa ekkieytt rúblu á þessu skyni að eigin sögn. Sovétrikin hafa verið sjálfum sér nóg u'm hráétni og málma á landi. Þau hafa keppt við Bandarikin um geiminn, en hafdjúpin hafa þau látið af- skiptalaus hingað til. Samkeppnin i dag snýst fyrst og fremst um að ná oliu af tiltölulega litlu dýpi á landgrunni. Sam- keppni morgundagsins verður á meira dýpi. Þegar árið 1972 náði breska rannsóknarskipið „Chall- enger” upp af miklu dýpi litlum steinvölum með einkennilegri samsetningu: járn, mangan, kopar, nickel, kobalt, magnesiu, vandadium, ál og molybden. Þetta voru kallaðar fjölmelmis- völur og voru geymdar sem safn- gripir fyrir jarðfræðinga þar til 1958. þá byrjaði háskólinn i Ka- liforniu að fá áhuga og siðar einnig bandarisk málmleitar- fyrirtækijFrakkar, kanadamenn, v-þjóðverjar og sovétmenn hófu einnig leit, en hún hefur verið smávaxin miðað við það sem bandarikjamenn hafa fjárfest i henni. Brátt fundust tvö svæði, sem voru rik af fjölmelmisvölum: Indlandshaf og Kyrrahafið. Gifurleg auðæfi blöstu við. A meðalsvæði voru milli 5 til 10 þús- und tonn af fjölmelmisvölum á ferkilómetra. 1 Kyrrahafinu einu hefur verið reiknað út að 1600 miljarðar tonna af þessum auð- æfum biði vinnslu. Fjölmelmis- völurnar eru á 6 þúsund metra dýpi og það eru mörg tæknileg vandamál óleyst áður en hægt er að ná þeim upp i einhverju magni. Þau eru þó ekki óleysan- leg og fyrir 1985 gera bandarikja menn ráð fyrir að hefja vinnslu á þeim. Hér eru engir smámunir i húfi og uppgötvun þessara auðæfa gerði það m.a. að verkum að Kissinger, fyrrverandi utanrikis- ráðherra Bandarikjanna, lagði mikla áherslu á Hafréttarráð- stefnu Sameinuðu þjóðanna. Mikilvægustu málmarnir i fjöl- melmisvölunum eru mangan, kó- balt, kopar og nickel. Banda- rikjamenn flytja inn 19% af þeim kopar sem þeir nota, 84% af nick- elinu og 92% af kóbaltinu. Þessar málmtegundireru einkum fluttar inn frá rikjum Suður-Ameriku. Gert er ráð fyrir að notkun ann- arra málmtegunda en járnblanda fari vaxandi og innflutningurinn til Bandarikjanna nemi 64 miljörðum dollara árið 2000, og þykir það fullstór biti i banda- riskum f járhagsáætlunum. Lausnin er fólgin i fjölmelmisvöl- unum, sem enginn á enn. Takist fyrirætlanir bandarikjamanna gætu þeir orðið sjálfum sér nógir á þessu sviði eftir 10 ár. Áttatiu prósent koparfram- leiðslunnar i heiminum kemur frá þremur þróunarlöndum, Zambiu, Zaire og Chile. Að tiu árum liðn- um gera bandarikjamenn ráð fyrir að verða herrar yfir kopar- markaðinum i heiminum með nýtingu fjölmelmisvalanna. Þeir munu þá ráða öllum helstu hrá- efnum heimsins, og engin tak- mörk yrðu fyrir valdi þeirra. Fulltrúar þróunarrikjanna vita vel að hverju stefnir, og ýmis iðn- riki hafa einsett sér að reyna að ná upp forskoti Bandarikjanna i hafsbotnsfræðum. Vandamálið á Hafréttarráðstefnunni er það að fátt virðist geta stöðvað væntan- lega einokun Ibandarikjamanna á nýtingu auðæfa hafsbotnsins. Þróunarrikin vilja koma á fót al- þjóðastofnun sem hafi eftirlit með vinnslu fjölmelmisvala. Banda- rikjamenn geta fallist á alþjóða- stofnun en vilja að stórfyrirtækj- um verði einnig seld einkaleyfi á nýtingu vissra svæða. Alþjóða- stofnun þessi yrði til þess að byrja með að treysta eingöngu á upp- lýsingar bandariskra visinda stofnana, þvi þær einar vita um lögin i hafdjúpunum, þykkt þeirra og eiginleika. Þeim væri þvi i lófa lagið að búa svo um hnútana að i hlut alþjóðastofnunarinnar féllu einvörðungu rýru svæðin, en bandarisk fyrirtæki sætu ein að þeim svæðum, þar sem feitt er á stykkinu. Allir eru sammála um að ekki er hægt að láta þessi gifurlegu auðæfi liggja ónýtt. Spurningin er hvernig og hverjir eigi að nýta þau. Kissinger leit á þetta sem slikt hagsmunamál og hótaði að stöðva allar samningaviðræður: „Við munum nýta hafsbotnin hvort sem alþjóðareglur verða settar þar um eða ekki. Verði þær ekki settar munum við gera það ein- ir.” Ekki ósvipuð röksemda- færsla og i lifshagsmunamáli is- lensku þjóðarinnar. Þróunarrikin hafa samt sem áður séð sér þann kost vænstan að fallast ekki á neitt samkomulag um nýtingu hafsbotnsins. Á með- an reyna Trakkar, sovétmenn og japanir að þróa tækni sem gerir þeim kíeift að berjast um 'haí djúpin við bandarikjamenn. En þeir fjármunir sem þessar þjóðir verja i rannsóknir eru léttvægir miðað við fjáraustur banda riskra stjórnvalda til þessara þarfa. Bandarikjamenn hafa einnig uppgötvað að á dreif i hafdjúpun- um er fólgið dranium i miklu magni: um 5 miljarðar tonna. Þeir eru nú að þróa tækni sem gerir þeim kleift að safna úran inu saman og ná þvi upp. Þetta er ekki talið verða kostnaðarmeira en svo. að samsvari núverandi heimsmarkaðsverði. Hér hefur i þessari grein at- hyglinni verið beint að þeim máímum sem fel’ast' á hafsbotní og bandarikjamenn hafa yfir burðaraðstöðu og þekkingu til þess að nýta i náinni framtið. Hafið þekur 360 miljónir ferkiló- metra af yfirborði jarðar og I þvi og á botni þess eru fólgnar fjöl- margar auðlindir, sem ekki verð- ur fjallað um hér. Landamærastrið nútimans eru háð um hafsvæðin. I raun er Haf- réttarráðstefnan ekki annað en vettvangur landamæradeilna. Ríkín 114 sem eiga Tand að sjó neyðast til þess að skipta á mílli sin landhelgi, fiskveiði- og efna- hagslögsögu, að landgrunnsrétt- indum. Þá verður að taka tillit til landluktra rikja. Átök um þessi atriði standa nú yfir utan Haf- réttarráðstefnunnar viða um heim. Siðustu vikur hefur verið sagt i fréttum frá „átökum” um hafréttarmál milli sovétmanna og bandarikjamanna, ira og Efnahagsbandalagsrikja, Austur- Evrópurikja og Efnahagsbanda- lagsrikja, grikkja og tyrkja, breta og argentinumanna, og malasiumanna og indónesa. Samt er enginn vafi á þvi að hafsbotnsnefnd Hafréttar- ráðstefnunnar á erfiðasta verk- efnið fyrir höndum. Þau sjónar- mið sem uppi eru varðanai nýt- ingu auðlinda hafsbotnsins verða seint sætt. Oft hefur verið farið i strið út af ómerkilegri landa- mæraþrætum. I hráefna- og málmsnauðum heimi má búast við miklum átökum um haf- djúpin. Einar Karl byggði á Nouvel Observateur. ÚTBOÐ Tilboð óskast í að byggja parhús í Norðurbænum í Hafnarfirði. Húsin þurfa að steypast upp, ásamt bílskúrum, í sumar og haust og Ijúka báðum utanhúss og lóð tyrfð, hellulögð og malarborin innkeyrsla. Fyrra húsið verður að véra fullgert 1. febr. 1978 og hitt 1. febr. 1979. Kraf- izt er jaf n vandaðrar vinnu og f rágangs og í fyrri DAS-húsum og dagsekt- um beitt, ef afhendingar stæðust ekki. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu okkar gegn kr. 10.000.00 skilatrygg- ingu. Tæknilegar upplýsingar veitir Halldór Guðmundsson arkitekt á teiknistof- unni S.F. Ármúla 6, sími 38750. Tilboð verða opnuðá skrifstofu okkar þriðjudaginn 31. maí, kl. 11 f .h. Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Happdrætti DAS

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.