Þjóðviljinn - 25.05.1977, Síða 11
Miðvikudagur 25. mai 1977. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11
Námskeiðið verður dagana 1.-8.
júli. Það er ætlað börnum og
unglingum 8-14 ára, sem styst eru
komin i fimleikastiganum, þ.e.
eru aðeins á 1.-3. þrepi. Kennarar
verða Margrét Jónsdóttir og Þór-
ir Kjartansson.
Þá mun F.S.Í. sjá um aðstoð og
umsjón með börnunum utan
kennslustunda i leikfimisalnum.
Nú þegar er til þess ráðin Þórunn
Pétursdóttir, en hún á sæti i
stjórn og námskeiðanefnd F.S.l.
Þátttökugjald er kr. 15.000.00. I
þvi er innifalið eftirfarandi:
Fæði, húsnæði, ferðir Rvik —
Laugarvatn — Rvik, kennsla i
fimleikum, aðgangur að sundlaug
og gufubaði (eftirlit haft með þvi)
ánægjulegar kvöldvökur, að
ógleymdum gönguferðum, eftir
þvi sem veður og timi leyfir.
Einnig verður séð um að þátttak-
endur fái ákveðinn hvildartima
daglega.
Umsóknir þurfa nauðsynlega
að berast fyrir hvitasunnu, 30.
mai, til skrifstofu F.S.Í., íþrótta-
miðstöðinni, Laugardal, Reykja-
vik, simi 83402. Skrifstofan er
opin þriðjudaga, miðvikudaga
fimmtudaga, kl. 14-17 Umsóknir,
Englandsmeistarar Liverpool. t kvöld leika þcir annan úrslitaleik sinn á skömmum tima.
Evrópukeppni meistaraliða
/
Endanleg skipan:
Loftur ólafsson byrjaði golfver-
tfðina af mikium krafti á
„Hvitasunnumóti” Golfklúbbs
Reykjavikur.
Stjörnulið
Charltons
Vegna mikiliar ánægju þátttak-
enda á námskeiði F.S.Í. I „fim-
leikastiganum” s.l. sumar að
Laugarvatni, er ákveðið að hafa
annað slfkt námskeið nú i sumar.
sem berast eítír hvitasunnu (30.
og 31. mai) verða ekki teknar til
greina.
Nú hefur endanlega ver-
ið gengið frá komu
stjörnuliðs knattspyrnu-
goðsins Bobby Charltons
hingað til lands. Allmiklar
breytingar hafa verið
gerðar á skipan liðsins.
Leikur Urvalsliðs Knatt-
spyrnusambandsins og liðs
Charltons fer fram á
Laugardalsvelli næstkom-
andi miðvikudag. Ákveðið
hefur verið að lið
Knattspyrnusambandsins
verði það sama og átti að
leika gegn færeyingum um
síðustu helgi. Endanleg
skipan liðs Charltons verð-
ur þá þessi:
Alex Stepney (England, Millwall,
Chelsea, Manchester United)
markvörður.
George Wood (England, Liver-
pool) Markvörður.
Norman Hunter (England, Bri-
stol City) Miðvörður.
Brian Kidd (England, Manchest-
er United, Arsenal, Manchester
City) Framherji.
Tommy Smith (England, Liver-
pool) Varnarmaður.
Jack Charlton (England, Leeds,
Middlesbrough) Miðvörður.
Ian Cailaghan (England,
Liverpool) Miðvallarspilari.
Alan Ball (England, Blackpool,
Everton, Arsenal, Southampton)
Miðvallarspilari.
Kalph Coates (England, Burnley,
Tottenham) Miðvallarspilari.
Tony Dunne (Irland, Manchester
United, Bolton) Varnarmaður.
Howard Kendall (Preston, Ever-
ton, Birmingham) Miðvallar-
spilari.
Peter Lorimer (Skotland, Leeds)
Framherji.
John Hurst (Everton, Oldham)
Varnarmaður.
Peter Osgood (England, Chelsea,
Southampton) Framherji.
Gerry Daly (Irland, Manchester
United, Derby) Miðvallarspilari.
Bobby Charlton (England, Man-
chester United, Preston) Fram-
herji.
Bobby Charlton
/
Islandsmótið 1. deild:
Þrír leikir í kvöld
geta orðið mjög gjafn. Bæði liðin
hafa komið nokkuð á óvart i mót-
inu, þótt FH-ingar virðist öllu
sterkari þessa stundina, ef marka
má leik þeirra gegn IBV fyrir
stuttu.
I kvöld fara fram í is-
landsmótinu í knattspyrnu
Golfver-
tíðin að
hefjast
Kylfingar landsins fara nú
að tfna saman tækin og búa sig
undir vertiðina sem senn
hefst. Siðastliðinn laugardag
hófst ein af allra fyrstu
keppnunum. Þá fór fram á
Grafarholtsvelli golfvelli
Golfklúbbs Reykjavfkur,
keppnin um hinn svokallaða
Hvitasunnubikar. Keppnin á
laugardaginn var einskonar
undanrás þannig að 16
kylfingarnir með best skor
nettó komust áfram. Þetta var
18 holu keppni, og sigurvegari
brúttó varð Loftur ólafsson
með 72 högg sem er afar góður
árangur.
Sigurvegari með forgjöf
varð Halldór B. Kristjánsson,
lék á 66 höggum en annar og
jafn honum varð Guðmundur
Vigfússon með 66 högg. 1
aukakeppni um efsta sætið
sigraði Halldór. Loftur ólafs-
son varð i þriðja sæti með 69
högg en forgjöf hans er 3.
Þá hefur verið send iíí skrá
yfir mót i sumar og er ljóst að
mikið verður um að vera I
sumar. Um næstu helgi fer
fram Hvitasunnumót Golf-
klúbbs Suðurnesja. Það er 36
holu keppni og er reiknuð til
stiga Golfsambandsins.
þrír leikir. Þetta áttu upp-
haflega að vera lok f jórðu
umferðar mótsins en þar
sem leik KRog Breiðabliks
var frestað í gær vegna
landsleiks íslands og Fær-
eyja verður svo ekki.
A Melavelli leika Fram og
Vikingur, leik sem ætti að geta
orðið mjög jafn og spennandi.
Fram er i öðru sœti i mótinu og er
til alls liklegt. Liðið hefur sigrað
tvo siðustu leiki sina með miklum
yfirburðum og virðist sem tapið i
fyrsta leiknum gegn ÍBV hafi
verkað vel á liðið. Vikingar eru
greinilega sterkir i ár, en ein-
hvern veginn virðist vanta allan
neista i leikinn. Þeir eiga yfir
jöfnum og góðum mannskap að
ráða sem sjálfsagt fer að láta til
skarar skriða. Ljóst má vera að
liðið er ekki auðsigrað eins og
komið hefur i ljós það sem af er
mótinu og eins Reykjarvikurmót-
inu, ekki einn einasti tapleikur, en
8 jafntefli og einn sigur.
Á Akureyri leika efsta og
neðsta liðið, Akranes og Þór.
Mikið má vera ef skagamönnum
tekstekki að vinna þennan leik og
þar með sinn fjórða sigur i röö.
Hafa akurnesingar sýnt mikið
öryggi i leik sinum, ekki fengið á
sig mark. Vinni liðið þennan leik
er stutt I auðan sjó framundan á
stigatöflunni.
A Kaplakrikavelli leika FH-
ingar og lBK.Þessi leikur ætti að
M
staöan
Staðan i 1. deild isiandsmótsins i
knattspyrnu er nú þessi:
IBV-Valur
Akranes
Fram
Keflavik
Valu
Vikingur
Breiðabl.
FH
ÍBV
Þór
KR
Næstu ieikir i 1
kvöld, þá leika
Þór/Akranes og
0 1
. deild eru annað
Fram/Vikingur,
FH/tBK.
Markahæstir
MARKAHÆSTU LEIKMENN
DEILDARINNAR:
Ingi Björn Albertsson, Val 3
Olafur Danívalsson, FH 3
Sumarliði Guðbjartsson, Fram 3
Hreiöar Breiðfjörö, UBK 2
Jón Lárusson, Þór 2
Kristinn Björnsson, ÍA 2
Sigurður Björgvinsson, ÍBK 2
Þórir Sigfússon, ÍBK 2
Guömundur Þorbjörnsson,Val 2
UngUnganámskeið
/
í
fimleikastiganum
íslenska UL-liðið
Urslitaleikurmn verður í kvöld
Tap fyrir belgum
Islenska unglingalandsliðið i
knattspyrnu tapaði fyrir Belgiu
I siöasta leik liðsins i Evrópu-
keppni unglingaiandsliöa, sem
haldin er i Belgiu. Belgisku lik-
mcnnirnir voru að sögn mun
betri aðilinn i þessum ieik, en
sigurinn tryggði þeim sæti I úr-
slitariðli, en þar leika að auki
sovétmenn, v-þjóðverjar og
italir.
— þegar Liverpool og Borussia Mönchengladbach mætast í Róm
í kvöld hefst i höfuðborg ttaliu,
Róm, úrslitaleikurinn i Evrópu-
keppni meistaraliða, leikur Eng-
landsmeistarana Liverpool og
þýsku meistarana Borussia
M'önchengladbach. Þegar hafa
þúsundir knattspyrnuáhuga-
manna bæði i Þýskalandi og Eng-
landi lagt leið sina til Rómar til að
fylgjast með leiknum. Alls munu
57. þús. áhorfendur sjá leikinn,
auk þess 600 blaðamenn. Leikn-
um verður sjónvarpað beint um
25 lönd i Evrópu.
Fyrir leikinn eru Þýskalands-
meistararnir taldir öllu sigur-
stranglegri, og þar kemur margt
til. A laugardaginn tryggði liöiö
sér sigur i þýsku meistarakeppn-
inni, þeirri fimmtu siðan 1970, á
sama tima sem liverpool tapaði i
úrslitum bikarsins enska. Auk
þess munu þýsku leikmönnunum
hafa verið heitið mun rif-
legri peningaupphæð ef sigur
vinnst en Liverpool.