Þjóðviljinn - 03.07.1977, Side 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 3. júll 1977
Rætt við rithöfun
leikskáldið PAVEL
Kohouthjónin ieldhúsinu. Irina ogPavel met kjölturakkan Edison á milli sln. (Mynd IM)
„ÉG
HEF
ENGU
AÐ
LEYNA”
Hér birtist 4. grein Ingólfs Margeirssonar frá
Tékkóslóvakiu. í þessari grein segir Ingólfur
frá heimsókn sinni og norsks blaðamanns til
Pavels Kohouts, rithöfundar og andöfsmanns.
1. grein birtist25. mai, 2. grein birtist 26. júni
og sú 3. birtist i gær, 2. júli.
Pavel Kohout sýnir greinarhöfundi bréfiö um nauöungarflutning
þeirra hjóna. (Mynd IM).
1 þessu húsi bjó Pavel-f jölskyldan uns henni var varpaö á dyr fyrir
nokkrum vikum. (Mynd IM).
Prag, 29/3:
Efst á Hrad-hæðinni,
sem rís upp frá bökkum
Vitavaf Ijótsins (Moldá),
standa margar sögulegar
byggingar. Á milli þriggja
halla, Erkibiskupshallar-
innar, Schwartzenberg -
hallarinnar og Forseta-
hallarinnar, stendur fal -
legt þrílyft hornhús. Á efstu
hæð þess býr rithöfundur-
inn og andófsmaðurinn
Pavel Kohout. Kaldhæðni
örlaganna hefur komið
heimkynnum andófs-
mannsins fyrir aðeins
nokkrum tugum metra frá
Hrad-höllinni, forsetaað-
setri Husaks, aðalritara
kommúnistaflokks Tékkó-
slóvakíu.
Viö eigum i erfiöleikum meö aö
finna dyr rithöfundarins, þar eö
nafnspjald hans hefur veriö f jar-
lægt af huröinni. Eftirnafn hans,
skrifaö með máðu bleki á dyra-
stafinn, gefur til kynna, að við
séum á réttri leiö. Við knýjum á
dyrnar, og eftir smástund kemur
brosleit, gömul kona i gættina.
Hún ávarpar okkur á þýsku og
segir, að þvi miður sé Kohout ekki
viö, þar sem hann snæöi hádegis-
verö á nærliggjandi krá. Þegar
hin vingjarnlega hreingerninga-
kona hefur útskýrt fyrir okkur
leiöina, kveöjum við og þökkum
aöstoðina.
örlög dansks blaðamanns
Viö komum auga á rithöfundinn
um leið og við stigum inni krána.
Hann situr ásamt konu sinni viö
litiö hornborö I þröngum og nota-
legum veitingasalnum. Þar sem
Kohout er i liflegum samræöum
viö sessunauta sina, setjumst viö
i barinn og biðum átekta. Reynsla
undanfarinna daga hefur kennt
okkur, aö þaö geti veriö afdrifa-
rikt aö rasa fyrir ráö fram. I
norska sendiráðinu i Prag,
heyröum viö um danskan blaöa-
mann, sem bókstaflega haföi ver-
iö flæmdur út úr landinu, þegar
hann reyndi aö ná viötali viö fyrr-
verandi utanrikisráðherra, jiri
Hjek. Leynilögreglan haföi beitt
táragasi, þegar blaöamaðurinn
nálgaöist hús ráðherrans, og
haföi hundelt hann, og margsinn-
is reynt aö keyra bil hans út af
veginum. Aö lokum gafst blaöa-
snápurinn upp, og kom sér út úr
landinu. öryggisleysi og var-
kárni fólksins, sem viö höfum
haft samband viö, hefur einnig
gert þaö aö verkum, aö viö erum
orönir tortryggnir á umhverfiö.
Eins konar smitandi taugaveikl-
un. Skyldu þessir velklæddu
herramenn, sem sitja viö hliö
okkar á barnum, og tala saman i
hálfum hljóöum, vera þýskir
verslunarmenn i ferðaleyfi, eöa
tékkneskir leynilögreglumenn?
Hvaö meö hippaklædda strákinn
meö skeggiö, sem situr viö glugg-
ann, flettandi i dagblaöi yfir bjór-
glasi? Eöa konan i ljósa kjólnum,
sem hrærir kaffibollanum, og
starir út i loftið, eins og hún sé aö
biöa eftir einhverjum? Eru þau
þarna af tilviljun, eöa eru þau i
fullri lögregluvinnu? Eöa erum
viö komnir meö ofsóknar-
brjálæöi? Sama ofsóknarbrjálæði
og þjáir svo margan tékkóslóv-
akiubúann, og sem er magnaö-
asta kúgunartæki valdhafanna?
Skyndilega stendur Kohout upp
frá borðinu og bregöur sér á sal-
erniö. Viö gleymum allri var-
kárni og höldum I humátt á eftir
honum. Viö tökum hann tali á
karlaklósettinu, velhultir gegn
hugsanlegu leynilögreglufólki og
öörum spæjurum. Þegar við höf-
um sýnt honum skilriki okkar, og
tilkynnt honum tilgang okkar,
ljómar hann allur upp og faðmar
okkur næstum aö sér. Hann segist
aö visu ekki vilja veita beint viö-
tal, þar sem bein frásögn geti
veriö notuö á móti honum, og
einnig kjósi hann aö tjá sig sjálfur
skriflega. Okkur sé hins vegar
velkomiö aö ræöa viö hann um
heima og geima, og endursegja
umræöurnar óbeint. Meö öðrum
oröum: Viðtal án beinnar tilvitn-
unár. Hann spyr, hvernig við röt-
uöum á fund sinn, og þegar viö út-
skýrum þaö, hlær hann hátt. seg-
ir, aö leynilögreglan hafi bersýni-
Á slóöum andófsmanna í Tékkóslóvakíu Grein 4: