Þjóðviljinn - 08.07.1977, Qupperneq 5
Föstudagur 8. júll 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
SVFÍ-billinn á Raufarhöfn
Unglingar í Reykjavík:
Meira verknám
og félagslíf
Eins og auglýst hefur veriö var
dregið i Deildahappdrætti SVFl
15. júni sl. og aðeins úr seldum
miðum.
Mazda 818Station bifreið kom á
miða nr. 27612 til Raufarhafnar
og litsjónvarp á miða nr. 23706 til
Þingeyrar.
Enn eru ósótt litsjónvarpstæki
er komu á miða nr. 31564 og nr.
41953. Eru handhafar þessara
vinningsmiða beðnir að framvisa
Eins og áður efna bindindis-
menn til móts i Galtalækjarskógi
um verslunarmannahelgina. Það
eru sunnlenskir templarar og Is-
lenskir ungtemplarar, sem efna
til mótsins og mun það verða með
svipuðu sniði og áður. Aögangs-
eyri verður I hóf stillt og verður
mótsgjald hið sama og i fyrra.
„Fjölbreytt mót i fögru um-
hverfi” segja forráðamenn Bind-
þeim á skrifstofu SVFl á Granda-
garði.
A myndinni óskar Gunnar Frið-
riksson forseti SVFl Birni Jóns-
syni sjómanni á Raufarhöfn til
hamingju með hinn glæsta vinn-
ing, en Björn tók við bifreiðinni
f.h. konu sinnar, Margrétar Pét-
ursdóttur. Með þeim á myndinni
eru Guðjón Jónatansson og Hörö-
ur Friðbertsson formaður happ-
drættisnefndar SVFl.
indismótsins i Galtalækjarskógi
og „Við munum leggja kapp á að
bjóða upp á dagskrá fyrir alla
fjölskylduna.” Sérstakar fjöl-
skyldutjaldbúðir verða á móts-
svæðinu þar sem fólk getur haft
bifreið sina hjá tjaldinu. Dansaö
verður bæði kvöldin og sérstök
barna- og unglingadagskrá verð-
ur á sunnudeginum.
Sálfræöideildir skóla i Reykja-
vik gengust fyrir ráðstefnu um
málefni unglinga á grunnskóla-
stigi, dagana 13.-16. júni s.l. Ráð-
stefnuna sátu auk starfsmanna
sálfræöideilda, kennarar, skóla-
stjórar, námsstjórar og starfs-
menn ýmissa stofnana, sem
vinna að málefnum unglinga. A
ráöstefunni voru kynntar og
ræddar rannsóknir og nýjungar
sem unnið er að hér á landi varð-
andi unglinga.
Mjög erfitt er að móta raunhæf-
ar tillögur um úrbætur á ung-
lingastigi, þvi ótrúlega fáar staö-
reyndir liggja fyrir um núverandi
ástand hér á landi. Sigurjón
Björnsson, prófessor kynnti hluta
af niðurstöðum rannsóknar ham
og dr. Wolfgangs Edelstein, þar
sem þeir kanna samhengi félags-
legrar stöðu og námsárangurs; er
þetta i fyrsta sinn sem athugun á
þessu fer fram hér á landi.
Heildarniðurstööur liggja ekki
fyrir enn.
I framsöguerindum og umræð-
um kom þetta m.a. fram: Náms-
efni og kennsluform á unglinga-
stigi höfðar ekki til stórs hóps
nemenda, sums staðar allt að
30%. Þetta ástand, sem vitað er
að skapar skólaleiða, stafar m.a.
af þvi, að fræðsluhlutverk skólans
er nær alls ráðandi, enda hefur
skólinn afleit skilyrði til að halda
uppi virku félagslifi meöal ung-
linga. Nám á unglingastigi mót-
ast enn I ótrúlegum mæli af bók-
námsviöhorfum menntaskólanna
enda er bóknám margfalt
kostnaðarminna en verklegt nám
og vettvangskynningar. Þátttak-
endur töldu ljóst að stór hluti er-
fiðleika, sem börn og unglingar
eiga við að etja á rót sina að rekja
til sjálfsuppeldis, sem þessi hópur
býr við og stafar af of löngum
vinnutima foreldra. Svo virðist
sem skólaskipti, sem tiðkast hafa
að afloknum 6. bekk i ýmsum
hverfum borgarinnar séu afar
óheppileg og verður ótvirætt að
mæla með samfelldum skóla fyrir
grunnskólastig. Þátttakendur
voru sammála um að núverandi
stærð sumra grunnskóla (allt að
1500 nemendur) valdi auknu losi
einkum á unglingastigi, og var
hæfileg skólastærð talin 500-700
nemendur.
Þátttakendur ráðstefnunnar
töldu tvimælalaust til bóta ef
stefnt yrði að þvi að bæta aðstöðu
skóla til verknáms, vettvangs-
kynninga og félagslifs. Einnig er
nauðsyn á að foreldrum verði al-
mennt gert kleyft að stytta vinnu-
tima sinn, til að þeir hafi tækifæri
til aukinnar samveru með börn-
um sinum og áhrifa á skólastarf.
Menntun og viðhorf kennara
þurfa einnig að breytast þannig
að daglegt skólastarf mótist
meira af uppeldis- og félagsleg-
um þörfum unglinga, einkum aö
skólinn veiti börnum og ungling-
um tækifæri til aukins skilnings á
mannlegum samskiptum. Taka
þarf upp skipulega námsráðgjöf
við unglingastigið.
Sálfræðideildir skóla i Reykja-
vik eru ráðgefandi fyrir skóla,
nemendur og foreldra á grunn-
skólastigi á vegum Fræðsluskrif-
stofu Reykjavikur. Deildirnar eru
3 og skipta borginni á milli sin.
Forstöðumenn eru sálfræðing-
arnir Grétar Marinósson, Krist-
inn Björnsson og Gunnar Árna-
son.
Bindindismót í
Galt alækj ar skó gi
„Kortsnoj hinn ógurlegi”
er viðurnefni sem þessi landflótta
sovétmaður gengur undir
Sovéski stórmcistarinn Viktor
Kortsnoj er orðinn að einhvers-
konar þjóðsagnapersónu eftir
að hann yfirgaf föðurlandið á
siðasta ári. Siðan það gerðist
hefur verið fremur fátt af
meistaranum að frétta. Hann
hefur ekki tekiö þátt I neinu al-
þjóðlegu skákmóti og haldiö sig
við mót sem haldin eru I Hol-
landi. Þannig háði hann seint á
siðasta ári, einvlgi við fremsta
skákmann Hollands i dag, Jan
Timman.
Einvigi þetta varð að fremur
ójöfnum leik, Kortsnoj hafði al-
gera yfirburði yfir andstæðing
sinn og vann með 5,5 v gegn 2,5
v.
Kortsnoj hefur alltaf verið
sjálfst. persónuleiki sem ekki
hefur vilað fyrir sér að koma
skoðunum sinum á mönnum og
málefnum á framfæri. Þekktur
er sá haturshugur sem hann ber
til Tigrans Petrosian fyrrum
heimsmeistara i skák. 1 þeim
samskiptum sauð allt uppúr er
kolumbiski skákmeistarinn
Castro fékk sendan tékk sem
svaraði 100 bandarikjadölum
fyrir að hafa lagt Petrosian að
velli á millisvæðamótinu I Biel i
fyrra.
Af skákmönnunum fjórum
sem eftir eru i áskorendakeppn-
inni er Kortsnoj talinn langlik-
legasti sigurvegarinn. Þar kem-
ur ekki aðeins til sigur hans yfir
Petrosian i einvigi þeirra heldur
mjög svo sérstæður og glæsileg-
ur árangur sem hann náði á hol-
lenska meistaramótinu fyrir
skömmu. Keppendur á mótinu
voru 14 talsins og þar af flestir
af sterkustu skákmönnum þjóð-
arinnar samankomnir. Úrslitin:
1. Kortsnoj 12 v. sf 13! 2 — 3.
Timman og Donner 8,5 v. 4. Ree
8 v. 5. Langeweg 7 v. 6. Ligter-
ink 6.5 v. 7. Hartoch 6 v. 8 — 11.
Vann Baarle, Böhm, Van der
Vliet og Van Wijgerden 5.5 v.
hver. 12 — 13. Boersma og Van
der Sterren 5 v. 14. Hofland 2,5
v. Hér birtist ein af skákum
Kortsnoj úr mótinu. Skák sú,
lýsir stil hans betur en flest ann-
að.
Kortsnoj.
Hvitt: Viktor Kortsnoj
Svart: Hans Böhm (HoIIand)
Kóngindversk — vörn
1. c4 d6
2. RC3 g6
3. d4 Bg7
4. e4 Rc6
5. Be3 e5 ’
6. d5 Rd4
7. Rge2 Rxe2
8. Bxe2 f5
(Svartur leggur þegar of mik-
ið á stöðu sina. Rólegra og væn-
legra framhald sýnist 8. —
0-0 xx.)
9. exf5 gxf5
10. f4 Re7
11. fxe5 dxe5
12. Bg5!
(Sterkur leikur, sem felur I
sér gildru. Leiki svartur nú 12.
—0-0 kemur 13. d6! cxd6 14. Rd5
og vinnur.)
12. .. Dd7
13. c5 0—0
14. Db3 Kh8
15. 0—0—0
(Taflmennska hvits hefur
verið mjög árangursrik. Hann
hefur þegar öflugt frumkvæði á
báðum vængjum.)
15... Rg6
16. Bb5 Df7
17. Bc4 Dd7
18. d6(?)
(Hér átti hvitur kost á mun
sterkara framhaldi. 18. c6! t.d.
18. — bxc6 19. dxc6 De8 20. Hd8
og svartur er illbeygöur. Leikur
Kortsnojs má þó heita næstbesti
leikurinn i stöðunni.)
18...
19. h4
20. h5
21. Be7
22. Kbl
c6
e4
Re5
Bh6+
He8
23. Re2 b5
24. cxb6
(Við þetta missir fripeðið á d6
mesta stuðninginn. Kortsnoj
metur þó timann meira sem
vinnst viö þessi uppskipti.)
24. .. axb6
25. Rf4 Hxe7
(Nauðsynleg skiptamuns-
fórn ef svartur vill losa um sig.)
26. dxe7 Dxe7
27. g3 b5
28. Be6 Bxf4
29. Bxc8 Hxc8
30. gxf4 Rd3
31. Hhgl Df6
32. Hg3 Rxf4
(Ný nýtur Kortsnoj sin hvað
best. 1 framhaldinu notfærir
hannsérsnilldarlega möguleika
þá sem hinn berskjaldaði svarti
kóngur býður uppá.)
33. Hd6! De5
34. Hxc6 Hd8
(En ekki 34. — Hf8 35. Df7! og
vinnur.)
35. h6!
(Skapar enn frekari veikingar
i kóngsstöðu svarts.)
35. .. Re2?
(Eftir þennan leik á svartur
sér ekki viðreisnar von. Eini
Kortsnoj og Petrosjan
möguleikinn til að halda lifi i
stöðunni var að leika 35. —
Rd5.)
36. Hg7 e3
37. Dd3!
a b e d o f g h
(Rothöggið. Ef 27. — Hxd3 38.
Hc8+ og mátar.)
37... De4
38. Dxe4 fxe4
39. Hd7! Hg8
40. Hcc7 Hgl +
41. Kc2
— og svartur gafst upp. Fram-
haldið gæti orðið 41. — Hcl- 42.
Kb3 Hxc7 43. Hd8+mát.
Hvernig sem málin þróast
meö Kortsnoj i framtfðinni geta
vist fáir þvi neitað að leitun er
að jafn sterkum og sjálfstæðum
persónuleika og Kortsnoj hefur.
Þvi meiri afrek sem hann vinn-
ur á skáksviðinu eykst virðing
manna á honum og þeim erfið-
leikum sem hann hefur orðið aö
ganga I gegnum.