Þjóðviljinn - 08.07.1977, Side 11
Föstudagur 8. júll 1977 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
Knattþrautlr
KSÍ
Knattþrautir KSi eiga
ávallt vaxandi vinsældum
að fagna. Sumarbúðir þær
sem KSi heldur, hafa gert
mikið til að auka vinsældir
þeirra/ en á tímabili höfðu
þær að mestu horfið í upp-
eldi knattspyrnumanna
okkar.
Flestir at okkar snjöllustu
knattspyrnumönnum fyrr á ár-
um, menn á borð við Rikharð
Jónsson og Þórólf Beck, náðu
mikilli fullkomnun i þessari grein
iþróttarinnar, og er þvi fagnaðar-
efni að vegur þrautanna sé að
aukast á nýjan leik. Þeir sem
uppfylla kröfur um aldur og lausn
þrautanna geta hlotið merki sem
Knattspyrnusambandið veitir,
þ.e. gull-, silfur- og bronsmerki.
Prófin þurfa aö fara fram á
knattspyrnuvelli, og prófdómari
verður að vera til staðar. Þeir
sem hafa áhuga á að þreyta slikt
próf þurfa að byrja á bronsmerk-
inu, siðan silfrinu og þvi næst
gullinu. Ekki mega liöa minna en
2 mánuðir á milli prófa.
t hálfleik landsleiks Islands og
Noregs á dögunum var knatt-
spyrnufólki úr Breiðabliki veittar
viðurkenningar fyrir að hafa lok-
ið við hin ýmsu stig þrautarinnar.
Þar af voru fjórar stúlkur sem
jafnframt eru fyrstu stúlkurnar á
Islandi sem fá viðurkenningu fyr-
ir þessar þrautir. —hól.
'ZÍTzv’
íKjpwOW.
‘tisv
ipmpc*
Afar mikilvæg umferð í
1. deildinni um helgina
Toppliðin þrjú, Valur, Akranes og
Víkingur eiga öll leiki á heimavelli
Valur er
efstur í
1. deild
kvenna
Valsstúlkurnar undir
handleiðslu þeirra Alberts
Guðmundssonar og Youri
Ilischev halda öruggri for-
ystu þaö sem af er tslands-
mótinu. Staðan I deildinni er
nú þessi:
Valur 7 5 2 0 21:3 12
Fram 6 4 11 14:7 9
FH 6 3 1 2 24:5 7
Breiöablik 5 2 2 1 22:7 6
Viðir 6 0 1 5 5:29 1
IBK 6 0 1 5 1:36 1
LEIÐ-
RÉTTING
I grein um leik IBV og
Fram I blaðinu i gær var sagt
að Sigurlás Þorleifsson hinn
marksækni miðherji eyja-
manna hefði gert öll þrjú
mörk IBV. Þetta er ekki rétt,
þvi Tómas Pálsson skoraöi
fyrsta mark leiksins. Sigur-
lás skoraði hins vegar tvö
þau siðustu. Það að Sigurlás
hefði skorað fyrsta markið
var haft eftir dómara leiks-
ins, Eysteini Guðmundssyni,
en við nánari eftirgrennslan
kom hið gagnstæða i ljós.
Nú er farift að siga nokkuft á
seinni hlutann á 1. deildarkeppn-
inni i knattspyrnu. Linurnar mjög
skýrar hvað varðar topp- og botn-
baráttuna. Ljóst má vera að
hvorki Vikingar né Akurnesingar
hyggjast gefa tslandsmeisturum
Vals nein grið I sambandi við
efsta sætið I deildinni. Rétt á eftir
koma svo Vestmannaeyingar
sem hafa náð sér verulcga á strik
i siðustu leikjum og Keflvikingar,
bæði lið sem eru til alls llkleg.
Það er þvi útlit fyrir geysilega
harða keppni um efsta sætið, og
öll fimm liðin eiga möguleika á
sigri. Þannig verður þessi 13. un>
ferð Islandsmótsins geysilega
mikilvæg uppá stöðuna i mótinu
að gera. A Laugardalsvellinum á
morgun kl. 14 leika Valsmenn við
IBV. Þetta verður tvimælalaust
leikur helgarinnar, þvi bæði liðin
hafa átt mikilli velgengni aö
fagna að undanförnu á mótinu
eftir trega byrjun.
Valsmenn eru öllu sigurstrang-
legri I þessum leik, en þeir ættu
engan veginn að vanmeta Eyja-
liðið sem er greinilega mjög
sterkt um þessar mundir. Grimur
Sæmundsson mun ekki leika með
Valsmönnum á laugardaginn og
ekki vist hver tekur slöðu hans.
A Akranesi fá skagamenn Þór
frá Akureyri i heimsókn.Þar virð-
ist sigur IA vera nokkuð öruggur,
þó ekki megi gleýma þvi, aö
Þórsarar unnu einmitt fyrsta leik
sinn i mótinu gegn ÍA. Leikurinn
hefst kl. 15.
Breiðablik og KR leika i Kópa-
vogi kl. 16. Þessi leikur er mikil-
vægur hvað varðar botnbarátt-
una, en er ekkert sérlega áhuga-
verður þar sem bæði liðin hafa
leikið fremur illa að undanförnu.
A sunnudaginn kl. 20 leika Kefl-
vikingar viö FH. Nái Keflviking-
ar slgri i þeim leik mega forystu-
liöin þrjú fara alvarlega aö vara
sig.
A mánudagskvöldið kl. 20 leika
Vikingar við Fram. Vikingar ætla
sér greinilega aö gera sitt til aö
tslandsbikarinn lendi þeirra
megin. Það sem af er keppnis-
timabilinu, og þá er Reykjavikur-
mótið tekið með i reikninginn,
hafa Vikingar aðeins tapaö einum
leik. Aödáunarvert öryggi sem
segir meira en mörg orö. Þeir eru
aö sjálfsögðu sigurstranglegri I
leiknum, þar sem Fram hefur
ekkert sýnt nema slaka leiki að
undanförnu.
Stangarköst
tstandsmót I stangarköst-
um var haldift af Kastklúbbi
Reykjavikur á kastvellinum
I Laugardal þann 25. júni.
Keppt var I 7 greinum. Sig-
urvegarar i hinum einstöku
greinum urftu:
Fluga einhendis:
1. Svavar Gunnarsson 56,65
m
Fluga tvihendis:
l. Svavar Gunnarsson 63,25
m.
Lengdarköst meft 18 gr. lóði
og spinnhjóli:
1. Þórður Jónsson 92,98m.
Lengdarköst meö 18 gr. lóði
og rúlluhjóli:
1. Astvaldur Jónsson 86,11 m.
Lengdarköst með 7,5 gr. lóöi
og spinnhjóli:
1. Baldvin Haraldsson 75,39
m
Hittiköst með 7,5 gr. lóði:
1. Astvaldur Jónsson 30 st.
Hittiköst með 18 gr. lóði:
1. Astvaldur Jónsson 45 st.
Frétta-
tilkynning
Meistaramót Islands i
sveina-, drengja-, meyja-, og
stúlknafl. (15-18 ára) fer
fram á Akranesi 16. — 17.
júli. Hefst kl. 14.00 á laugar-
dag. Keppni i 100 m grinda-
hlaupi og stangarstökki fer
fram siðar i Reykjavik.
Þátttökutilkynningar ber-
ist ólafi Þórðarsyni I sima
1750 og 2264 eða Ingólfi Stein-
dórssyni I sima 2202 og 1320,
Akranesi, fyrir 13. júli.
Annir hjá golfurum
N.k. laugardag fer fram á
Grafarholtsvelli Max Factor
opnamótið. Mót þetta, sem er
árlegur viðburður, er fyrsta
opna mótið, sem haldið er i
Grafarholti i sumar. Keppt
verður i flokkum þ.e.
meistaraflokki, 1. fl., og 2r3fl.
karla og einum flokki kvenna.
Umboðsaöili Max Factor á Is-
landi, Ólafur Kjartansson,
hefur gefið verölaun þau, sem
keppt er um, en auk farand-
gripa verða Max Factor
snyrtivörur I verðlaun. Þar
sem nú er aðeins um mánuður
þar til Islandsmótiö I golfi
hefst, er mót þetta tilvalið
tækifæri fyrir kylfinga að
kynna sér völlinn, en hann er
nú að komast i sittallra besta
ástand. Ræst veröur út frá kl.
lOf.h. Þátttökulistar hafa ver-
ið settir upp i allagolfskála á
Stór-Reykjavikursvæðinu, en
auk þess má tilkynna þátttöku
i sima 84735, en þar má einnig
fá uppl. um rástlma á föstu-
dagskvöld.
A sunnudag fer fram á
Grafarholtsvelli hin árlega
Admiralskeppni, þar sem átta
manna sveitir bestu kylfinga
hinna ýmsu klúbba leiða sam-
an hesta sina. Þessi keppni er
einstakt tækifæri fyrir fólk aö
sjá marga af bestu kylfingum
landsins i keppni. Mótið hefst
kl. 13 á sunnudag.